Tíminn - 06.02.1964, Side 15
EYJAN LOGAR
Framhald af 1. sí3u.
það er nú, er að ekkert
hraunrennsli er byrjað enn.
Ómögulegt er að segja um
það, hvort hraunrennsli
fylgir í kjörfarið. Hins veg
er falla glóandi sletturnar
út á gígbarmana og hlaðast
þar upp og renna lítillega
niður. Þessar slettur munu
þegar hafa valdið því, að
þarna verður lengi sker við
líði, þótt vikureyjan sjálf
eigi kannski fyrir sér að eyð
ast á skömmum tíma. Komi
svo verulegt hraunrennsli,
eins og í Öskju, hefur Surts-
ey tryggt sér langa lífdaga.
Sigurður setur jarðhrær-
ingarnar í Eyjum laugardag
inn 1. febrúar í sambandi
við þessa breytingu á gos-
inu. Hann sagði að menn á
skipi hefðu þótzt sjá gufu
suðvestur í hafi, en um það
vildi hann ekkert segja. —
Hann kvaðst ekki orðið þora
að neita neinu í sambandi
við eldgos.
Sigurður hefur nú flogið
í tvo daga yfir eyjuna, og
sýnlr myndin, sem hann tók
í gær og birtist í blaðinu
í morgun, að þá var hún grá
af snjó. Hann sagði að all-
ur snjór hefði verið horfinn
af henni í dag, en stöðuvatn
ið í gamla gígnum hefði ver
ið fagurgrænt og tilvalið
að synda í því, ef nýju gíg
amir hefðu ekki verið að
þeyta mekki yfir það öðru
hverju.
Er þeir sigldu umhverfis
eyjuna í dag, fóru þeir yfir
hryggji á sjávarbotni, er
virðast hafa orðið til eftir
að gosið hófst. Þó sagðist
Sigurður ekki geta sagt um
hvað væri gamalt og hvað
nýtt af þeim kennileitum.
Þeir fóru all nærri gosstöðv
unum á mb. Haraldi, og
urðu í eitt skipti að bakka
frá í hvelli, þegar nýi gíg-
urinn fór að spúa logandi
björgum út á hafið til
þeirra. Annars gekk ferðin
mjög vel og er eftirminni-
leg öllum, sem tóku þátt í
henni.
OLÍUHREINSUNARSTÖÐ
Framhald af 1. síðu.
og tryggum yfirráðum íslendinga
og jafnframt yrði að gæta tryggi-
lega hagsmuna neytenda í land-
inu, atvinnuveganna og alls al-
mennings. Hvorki erlendir aðilar
né innlendir einkaaðilar mættu ná
hér einokunaraðstöðu í þessu sam
bandi.
IÐJUVER
Framhald af 1. síðu.
250 til 300 manns atvinnu, en
reikna má með, að upp myndi
jafnhilða rísa aluminiumiðn-
aður, er ynni úr framleiðslu alu-
miniumbræðslunnar. Talið er hag-
kvæmast, að verksmiðja rísi við
sunnanverðan Faxaflóa. Þá er a-
ætlað, að verksmiðjan myndi
stækka og bræða meira en 30 þús.
tonn á ári, en tvöfalda má orku-
framleiðslu fyrstu Búrfellsvirkjun
arinnar með viðbótarvirkjun, sem
myndi kosta um 600 milljónir.
KFNNSLUBÓK í
GRASAFRÆÐI
Nýlega er kominn út GRÓÐUR-
INN kennslubók í grasafræði 1. og
2. hefti. Höfundur Ingólfur Davíðs
son. Setning og prentun ísafoldar-
prentsmiðja. Litasíður Lít-
brá. Teikningar litmynda Bjarni
Jónsson og Dagný Tande Lid.
Fyrra heftið er ætlað til unglinga-
prófs, en hið síðara einkum til
landsprófs. f heftunum eru alls 28
litmyndasíður. Litmyndirnar eru
af 83 tegundum íslenzkra villijurta
31 teg. crlendra nytjaplantna og
af ættmeið gróðursins. Enn fremur
eru í heftunum margar svart-hvít-
ar skýringamyndir og allmargar
ijósmyndir. Hefur Bjarni Jónsson
teiknað flestar svart-hvítu myndirn
ar, en Björn Björnsson _ tekið
flestallar ljósmyndirnar. — í fyrra
heftinu eru aðalkaflarnir: Ytri
gerð og hlutverk gróðursins, mikil-
vægar nytjaplöntur, grasasöfnun
og gróðursetning. 16 litmyndasíð-
ur. (Hinar sömu og í grasafræði
Geirs Gígju). En í síðari hefti eru
kaflar um innri gerð og störf gróð-
urs, skyldleika og niðurskipun, ætt
meið, gróðurríki og gróðurlendi ís
lands o. fl. 12 litmyndasíður, allar
nýjar. í báðum heftum eru lit-
myndaskrár með stuttum umsögn-
um um tegundirnar. Ættu hinar
mörgu litmyndir að auðvelda mjög
blómaþekkinguna — bæði skóla-
nemendum og öðru áhugafólki. —
Grænn gróður er undirstaða lífs-
ins á jörðinni — og ættu menn
að ganga sjáandi um hið undursam
lega ríki gróðursins-
NONA .
Framhald af 2 síðu
utan í morgun, Nona; Tal og Glig-
oric, Johannessen fer eftir tvo
daga, en Wade fer í dag til AkurJ
eyrar í boði skákfélagsins þar3itgf-l
ir fjölskákir og verður þar nyrðra
fram að helgi, heldur heimleiðis
á mánudag.
YFIR 186 ÞÚS.
Framnald at 16. síðu.
en Hafnarfjarðar. Reykjavík
,er stærsti kaupstaðurinn
mcð 76-057 þús. íbúa. Akur-
eyri er sá næststærsti með
9.390 íbúa, Kópavogur með
7.652 íbúa, og Hafnarfjörður
með 7.615 íbúa.
SÍLDARAFLINN
Framhalc? af 16. siðu.
Geir 850, Hamravík 1500, Ófeigur
II. 700, Halldór Jónsson 1000, Lóm
ur 1350, Ingvar Guðjónsson 800,
Húni Iþ 1100, Marz 800, Jón á
Stapa 750, Meta 650, Rifsnes 1500,
Guðbjörg 1200, Hannes Hafstein
1800, Pétur Sigurðsson 700, Vigri
1800, Sigurkarfi 1600, Víðir BU
1000, Snæfell 1400, Árni Magnús-
son 2200.
SNJÓFLÓÐ TÓK BÍL
Framhal:' af 16. síðu.
milli Reykjavíkur og Raufarhafn-
ar í vetur. Bíllinn mun ekki vera
mikið skemmdur, en í dag fór
jarðýta á staðinn til þess að
hreinsa snjóinn frá henni og á
morgun fara þangað væntanlega
tveir trukk-bílar til þess að reyna
að ná bílnum upp á veginn, eða
koma honum niður brekkuna, ef
það þykir hentugra.
Útför konu minnar,
Höllu Gu3mundsdóttur
frá Hallskoti,
er lézt 31. f. m. verður qer3 frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn
8. febrúar kl. 1 e. h.
Ólafur Jónsson.
SAU ENGA KIND
Framhald af 16. síðu.
eitthvert hefði verið.
Talsverður snjór var á heiðun-
um, en samt hægt að rekja hvern
einasta læk, og varla hægt að
segja að aulað hefði í skurð, sagði
Guðmundur. Sýnist hafa hríðað í
logni.
Að lokum sagði Guðmundur, að
eftirleit þessi hefði verið farin í
öryggisskini. Heimtur voru ekki
góðar af þessu svæði í haust, en í
vetur hefur engin skepna farizt
þar, enda ágæt jörð. Það, sem
hefur farizt, hefur farið í gangna-
dægrahríðinni í haust.
SKOPBLAÐIÐ
Framhald af 16. s(3u.
D. 1963, og grein eftir prófessor
Parkinson, smásögur, kvennaþátt-
ur og fleira. Segja útgefendur
blaðsins, að Gosa sé ætlað svipað
hlutverk og Spegillinn gegndi á
sínum tíma; þó treysti Gosi sér
ekki til að höfða til samvizku þjóð-
arinnar, en verði bæði með og
móti mönnum og málefnum, eink-
utn méð.
Útgefandi blaðsins er Velvak-
andi s. 1., en eigendur hans eru
skráðir, Sigurjón Þorbergsson,
Magnús Jónsson, ritstjóri blaðsins,
Jón Laxdal Arnalds lögfræðingur,
Kristján Thorlacius, teiknari blaðs
ins, og Ingibergur Guðbjartsson.
VALLARMÁLIÐ
Framhald af 16. s>3u.
spyrjast fyrir um, hvers vegna
menn þessir væru komnir í gæzlu
varðhald og hvers eðlis hið svo-
kalla ávísana- og launagreiðslu-
mál væri. En hann kærði sig ekki
um að svara neinum frumatrið-
um um það. éjálfsagt er þagnar-
skylda hans mikilsverð. Vonandi
gleymist ekkert af þessum mann-
skap í gæzluvarðhaldinu vegna
þagiiarákvæða.
VORKAUPSTEFNAN
í FRAKSCFURT
verSur haldin
16.—20- febrúar.
Helztu vöruflokkar: gjafa-
vörur, skrautvörur, skart-
gripir, vefnaðar- og fatnað-
arvörur í geysilegu úrvali,
ritföng og pappírsvörur,
snyrtivörur, hljóðfæri og
varahlutir til þeirra, list-
munir til híbýlaskreytinga,
leir-, málm-, kristals- og
glervörur, tágavörur, leik-
föng, jólaskreytingar
o. m. m. fl.
Allar nánari upplýsingar og
aðgöngukort veitir
umboðshafi
Ferðaskrifstofa rikisinis
Lækjargötu 3,
Reykjavík
Sími 1-15-40
ATHUGiÐ!
Stúlka sem hefur áhuga á
sveitabúskap vill kynnast
ungum bónda á aldrinum
25—35 ára.
Svar sendist blaðinu, merkt
Borgarstúlka
NYTT SKOPBLAÐ
Fullt af myndum
G
O
S
i
Meðal annarra sem þar koma
við sögu eru:
Bjarni Benediktsson, Gunnar
Eyjólfsson, Jóhann Hafstein,
Gylfi Þ. Gíslason, Alistair
Maclear, Guðmundur í. Guð-
mundsson, Einar Olgeirsson,
Lúðvík Jósepsson, Halldór Ás-
grímsson, Ágúst Valfells, og
síðast en ekki sízt: Maðurinn
sem stjórnar vísitölunni.
SÖLUBÖRN!
Komið eftir hádegi á Hverfisgötu 50
há sölulaun.
SAMKEPPNI
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Bandalags íslenzkra Iista-
mínna er hér með efnt til hugmyndasamkeppni um minnis-
merki er reist skuli Bjarna Jónssyni frá Vogi til heiðurs og
þakklætis fyrir margvíslegt brautryðjandastarf hans í íslenzk-
um listmEjJum. Lausn verkefnisins er með öllu óbundin.
Tillögurnar skulu við það miðaðar að verkið standi utan
húss, ,og skal fylgja hverri tillögu greinargerð um fullnaðar-
framkvæmd verksins. Ein verðlaun verða veitt, kr. 25,000,00.
Öllum íslenzkum listamönnum er heimil þátttaka í samkeppni
þessari.
Tillögum skal skilað auðkenndum ásamt nafni höfundar í
lokuðu sammerktu umslagi. Skulu þær hafa borizt ritara dóm-
nefndar, Jóni Bjarnasyni hæstaréttarlögmanni, Skólavörðustíg
3 A, Reykjavík, eigi síðar en hinn 20 september 1964. Dóm-
nefnd skipa þessir menn: Björn Th. Björnsson listfræðingur,
formaður, Jón Bjarnason hæstaréttarlögmaður og Þorvaldur
Skúlason listmálari, og veita þeir frekari upplýsingar, ef ósk-
að er.
Úrslit samkeppninnar verða birt hinn 13. október 1964.
DÓMNEFNDIN
Mi5$todvarketiIS
og brennari
Til sölu er lítið notaður 13 ferm. miðstöðvarketill
ásamt Gilbarco-brennara.
Allar nánari uppiýsingar veitir Björn Stefánsson,
Bogahlíð 12, sími 32306.
Verkamenn óskast
Nokkra verkamenn vantar við byggingarvinnu,
handlöngun við murverk og fleira í fjölbýlishús-
inu Ljósheimar 2. Löng og vel borguð vinna.
Upplýsingar á staðnum hjá byggingarmeistaran-
um og símum 10528 og 18851-
TÍMINN, fimmtudaginn 6. febrúar 1964 —
15