Tíminn - 01.03.1964, Qupperneq 5
r
Þáttur kirkjunnar
Vorið er á næsta leiti
MF-30 de Luxe dráttarvél
HÉR ER DRÁTTARVÉLIN, SEM HENTAR MEÐALSTÖRUM OG SMÆRRi BÖUM
HPURUEIKI OQ FURÐUMIKIUL KRAFTUR ERU MEG*
INEINKENNI MF30 VÉLARINNAR:
33 HA. DIESELVÉL. 2 AFLÖRTÖK. TVÖFÖLD
KÚPLING. SJÁLFVIRKUR ÞRÝSTISTILLIÚTBÖNAÐ.
UR VÖKVAKERFIS OG ..SYNKRONISERUÐ". 'QfR.
SKIPTING ERU NOKKRIR AF EIGINLEIKUM MF.
30. SEM SKAPA YFIRBURBI HENNAR.
VERÐ AÐEINS UM KR. 80.000 AUK SÖLUSKATTS.
DRÁTTARVÉLAR h.f.
Æskulýðsstarf
þjóðkirkjunnar
— SUMARBÚÐIR í SKÁLHOLTI
Það leikur ekki á tveim tung
um, að kirkja íslands hefur
nálgazt bernsku og æsku hin
siðari ár og áratugi meira
en nokkru sinni fyrr síðan
heimilisguðrækni og húsvitj
anir urðu að nokkru úti I ys
og hraða tæknialdar.
Barhaguðsþjónustum fjölg
ar með hverju ári, og víða
eru þær sérstaklega í fjöl-
menni farnar að nálgast
fjölda almennra guðsþjón-
ustna. Og börn sækja mess-
ur vel. Séu þær og kirkju-
gestir við þær, talið með í
þeim hópi, sem kirkjur
sækja, þá verður kirkjusókn
á Islandi allt í einu að telj-
ast góð, minnsta kosti þar
sem barnasamkomur eru í
kirkjum.
En vel skyldi þess gætt,
að drepa ekki áhuga barn-
anna meS þrælbundnum
formum og allt of miklum
hátíðleika. Páist þau til að
hlusta, syngja, biðja og vera
virkir þátttakendur, má á-
reiðanlega telja þau jafnfull-
gilda og fullkomna kirkju-
gesti og hina fullorðnu, hvern-
ig sem á væri litið.
Þá koma æskulýðsguðs-
þjónustur, en þær hafa nú
verið haldnar til að byrja
með einu sinni á ári, það er
að segja á æskulýðsdaginn,
sem hefur verið ákveðinn,
og er að verða hefð 1. sunnu
dag í marz ár hvert.
En þá hefur komið í ljós,
að kirkjur meira að segia í
Reykjavík eru troðfullar á-
hnarasamra áheyrenda Þess
vegna hafa einstaka söfnuð-
ir nú þegar hafizt handa um
æskulýðsmessur oftar t.d. kl.
5 síðdegis venjulega sunnu-
daga. Og það sama kemur í
ijós og gagnvart börnunum
Unga fólkið sækir kirkju og
meira að segja ekkert síður
en fullorðna fólkið, þegar það
á von á einhverju, sem það
telur snerta sig og sín hugð-
arefni, og sé því ekki íþyngt
með stirðnuðum og hálfdauð
um, formum innihaldslítilla
helgisiða.
Tækist gott samstarf milli
kirkju og skóla í hverfum
borgarinnar. mundu kirkjur
bókstaflega troðfyllast við
hverja æskulýýðsmessu jafn-
vel á hverjum sunnudegi
mestan hluta vetrar.
Þarna gætu æskulýðsfélög
kirknanna einnig lagt hönd
og hug að verki. En þeim
fiölgar líka stöðugt. Og kem-
ur þar í Ijós fjölþættur áhugi
og fjölbreytt tómstundastörf
-em unga fólkið skapar sér i
’.afnaðarheimilum kirkna
sinna ef vel er á haldið. Má
þar benda á æskulýðsfélag
Vkureyrar, sem fyrirmynd
")g í safnaðarheimili Há-
'ogalandskirkju í Langholts-
'verfi í Reykjavík starfar
fjölmennt æskulýðsfélag,
sem hefur innan sinna vé-
banda ýmsar deildir áhuga-
fólks, t.d. Ijósmyndaklúbb,
föndurklúbb, framsagnar-
deild, þjóðdansadeild, músik
deild með margvíslegum
kvartettum og söngaðferð-
u m Og þar starfar einnip
smábarnakór.
Víðar er komin og að mót-
ast slík félagsstarfsemi æsk-
unnar, ekki sízt á Norður-
landi og við Laugarneskirkji
í Rvík.
Og í Reykjavík stands
Kristileg félög ungra manna
og kvenna, stofnuð af sr
Friðriki Priðrikssyni, enn þá
í blóma, og þau hafa orði?
fyrst til þess að hefja sum-
arstörf utanbæjar með börr u
um og unglingum. Allir B
kannast við Vindáshlíð og H
Vatnaskóg, og margir hafa
átt þar ógleymanlegar gleði-
stundir, sem varpað haf;
birtu langt fram á ævinnar
braut.
Loks hefur svo þjóðkirkjan
sj álf hafizt : handa um að
koma á fót slíkum suimr-
búðum. En þær hafa verið
starfræktar að Löngumýri.
og síðustu sumur á fleiri
stöðum, og alltaf yfirfullt aí
glöðum og góðurn þátttak-
endum. Þörfin fyrir það, að
koma börnurn og unglingum
burt úr ryki og glaurni borg-
arinnar, þótt ekki sé nema
nokkra daga að sumrinu
eykst árlega.
Enn hafa þeir á Norður
landi orðið á undan. Er nú
langt komið að byggja sum-
arskóla til slíkrar starfsenn
við Vestmannsvatn í Þinsr-
eyjarsýslu. Hefur unga fólk
ið sjálft undir forystu æs'
lýðsleiðtoga kirk’unnar.
en bað er ungt embætt
vegum æskulýðsstarfsins
kirkjunni, — safnað fé til
reisa þessar búðir.
Og svo er nú röðin komi’
að okkur hér syðra. ekki sízi
í Reykjavík. Og auðvita?
eiga sumarbúffir Suðurlands
hinar fyrstu, að verða í Skál-
holti.
Á æskulyðsdaginn, fyrsta
sunnudag í marz ,— og
hann er í dag — fer fram
fjársöfnun og merkjasala við
allar Kirkjur borgarinnai fyr-
ir sumarbúðirnar í Skálholti.
Væntanlega kemst fullur
skriður á byggingamál þau á
komandi sumri.
Æskan mun taka höndum
saman um, að þangað megi
stefna hópum barna og
æskufólks til yndislegra sam-
verustunda við leik og störf,
söng og bænir, helzt strax á
árinu 1065, það er næsta
sumar. Herðum nú róðurinn
svo að sú spá rætist.
og viS erum komin í ferðahug. Á vorin er bezt að ferðast, lægslu fargjöldin, fegursli árslíminn suður i
löndum, Við fljúgum ulan í vor með Flugfélaginu, móti sól og sumri og fylgjum sumrinu heim.
Það er Flugfélagið,
sem flylur yður á leiðarenda; ferðaslcrifslofurnar annasl alla fyrirgrciðslu og skipulsggja ferðina. bægi'
legar flugferðir, ódýr ferðalög, lág fargjöld, leitið upplýsinga hjá Flugfélaginu eða feröaskrifslofunum.
TÍMINN, sunnudaginn 1.
marz
1964
5