Tíminn - 07.03.1964, Blaðsíða 6
FB-Reykjavík, 6. marz.
Á blaðamannafundi um Hall-
grímskirkju, sem haldinn var í
gær, skýrði gjaldkeri kirkjunnar
•blaðamönnum frá því, að í árslok
1962 hefðu framkvæmdir við
kirkjuna numið 3.655.000 krónum,
en á sama tima höfðu kirkjunni
toorizt í frjálsum framlögum og
gjöfum 1.527.000 krónur, söfn-
uðurinn hafði lagt fram 1.837.000
krónur, þar með taldar 166 þús-
und krónur, sem ríkið hafði lagt
fram, og auk þess hafði bærinn
lagt fram til kirkjunnar á 10 ár-
um 945 þúsund krónur.
Síðasta kostnaðaráætlun, sem
gerð hefur verið vegna Hallgrfcns
kirkju, hljóðar upp á 50 milljónir,
og á nú eftir að vinna fyrir 41
milljón til þess að fullgera kirkj-
una, en stefnt er að því að ljúka
toenin árið 1974 á 300. ártíð Hall-
gríms Péturssonar, Passíusálma-
skáldsins.
í kostnaðaráætluninni er gert
ráð fyrir kaupum á 50 radda org-
eli, sem kosta mun um 1.2 millj-
ónir króna, og verður það stærsta
orgel landsins, en sérfræðingar
telja, að hljómburður kirkjunnar
ætti að verða sérstaklega góður,
eða eins og bezt verður á kosið til
flutnings tónlistar.
Á fundinum skýrði biskupinn
yfir íslandi yfir því, að danskur
íslandsvinur hefði skrifað sér og
sagzt vilja gefa Hallgrímskirkju
veglega gjöf, sem er cnálverkið
ForsfSa bréfanna.
FÉ TIL MINNINGAR UM
*
KIRKJU
Kristur á króssinum, eftir danska
málarann Viggo Pedersen, en máL
verk þetta er metið á 40.000
krónur danskar. Hallgrímskirkju
hafa einig borizt aðrar gjafir, t.d.
hét Samband íslenzkra samvinnu-
félaga fyrir löngu, að gefa kirkju-
klukkurnar, og fyrir skömmu
skýrði ónafngreindur vinur Hall-
grímsklrkju, séra Jakobi Jóns-
syni sóknarpresti frá því, að hann
hygðist gefa kirkjunni öll þau
gólfteppi, sem þyrfti að nota í
hana.
Á þessu ári er ráðgert að ljúka
byggingu hliðarálma kirkjunnar,
en í vesturálmunni verður að-
staða til safnaðarstarsemi, og þar
verður messað, eftir að ekki verð-
ur lengur hægt að messa í núver-
andi húsnæði safnaðarins, og þar
til kirkjunni verður lokið. Einnig
er ætlunin að reisa 17 metra af
hinum 174 metra háa turni í ár,
og koma þaki yfir hliðarálm-
urnar.
Eins og nýlega hefur verið skýrt
frá í fréttum, þá hefur biskup
landsins valið 5. sunnudag í föstu
sem er hinn 15. marz, til þess að
vera almennur minningardagur
Hallgríms Péturssonar í tilefni
þess að á þessu ári eru 350 ár
liðin frá fæðingu hans. Þann dag
verða messur sungnar um land allt
í anda sr. Hallgrims: „Minum
Drottni til þakklætis" — „allt svo
verði til dýrðar þér“ — svo skyldi
kirkjan minnast og þakka. Þannig
segir m. a. í bréfi biskups til sókn
arpresta í sambandi við hina fyr-
irhuguðu Hallgrímsminningu.
í þessu sambandi hefur einnig
verið minnst á minningarkirkjuna,
sem þjóðin er að reisa Passíusálma
skáldinu í hjarta höfuðborgar ís-
lands og þvatt er til þess að all-
ir, sem votta vilja þakklæti og
hollu&tu við hin helgustu verð-
mæti, þeir leggi fram skerf —
lítinn eða stóran eftir ástæðum
—„til Hallgrímskirkju í Reykjavík
nú á þessum tímamótum
SR. HALLGRIMS
í þessu' tilefni hefur á undan-
förnum mánuðum verið undirbúin
útgáfa á svokölluðum gjafahluta-
bréfum Hallgrímskirkju, sem vera
skulu kvittanir fyrir frjálsum fram
lögum til minningarkirkjunnar.
Bréfin eru prentuð í mismunandi
litum eftir upphæðum þeirra sem
eru kr. 100,00, kr. 300,00, kr.
500,00, kr. 1000,00, kr. 5000,00.
A forsíðu bréfanna er mynd af
Hallgrímskirkju eins og hún verð
ur byggð, tilfærð er upphæð og
kvittun byggingarnefndar kirkj-
unnar fyrir gjafahlutum.
Á annari slðu er prentuð mynd
af listaverkinu Hallgrímur Péturs
son, eftir Einar Jónsson mynd-
höggvara, með áletruðu versinu:
„Gef þú að móðurmálið mitt“.
Á þriðju síðu er ávarp biskups-
ins yfir íslandi svohljóðandi:
„Síra Matthías Jochumsson sagði
í fyrirlestri, sem hann flutti kring
um síðustu aldamót um síra Hall-
grím Pétursson, að ef leita ætti
atkvæða um það, hvaða íslend-
ingar væru mest dáðir og elskaðir
af þjóðinni, mundi síra Hallgrím-
ur án efa verða hlutskarpastur. í
því fámenna úrvali afbragðsmanna
sem kæmust í úrslit í slíkri keppni
væri höfundar Passíusálmanna ó-
tvírætt mestur „ástgoði“.
Hvað veldur? Síra Matthías rek
ur nokkur þau rök, sem til þess
liggja, og verður þeim naumast
hnekkt. Kjarni málsins er sá, að
þjóðin vissi sig eiga Hallgrími
meira að þakka en öðrum mönn-
um. Enginn hafði sem hann verið
henni styrkur í stríði og þraut,
enginn borið bjartara ljós í litla,
dimma bæi, enginn staðið eins
nærri hverjum einstökum frá
bernsku til banadægurs. Til hans
voru orðin sótt, þegar baminu var
kennt að biðja. í margvíslegum
aðstæðum lífsins voru heilræði
hans tiltæk og tímabær. Lífsspeki
hans, auðskilin, djúp og tær, var
sífelld stoð cg hugbót. Og í hverju
helstríði og harmi veittu versin
hans svölun og græðslu. Fáir eru
Cörti ,6ii Tir;: ,isgmi'(öin<-.i fj
þéir, sem iagt hafa þjóð'Jáfrímii-
ið af mörkum til andlegrar farsæíd
ar. Dæmin úr veraldarsögunni um
svo ríkan sess eins manns í lífi
þjóðar öldum saman eru ekki
mörg, ef nokkur eru.
Þakkarskuld íslendinga við síra
Hallgrím Pétursson verður aldrei
ofmetin. Sú gjöf, sem hann var
þjóðinni, verður alltaf meiri en
hver áþreifanleg viðurkenning
hennar. Vér vonum, að aldrei
renni sú öld yfir ísland, að gildi
hans verði ekki metið, að verk
hans og minniing fyrnist.
Kirkjan er í smíðum í höfuð-
borg íslands. Sérstaða hennar er
sú, að hún á að bera nafn Hall.
gríms, Hallgrímskirkja. Hún verð-
ur ekki tiltakanlega mikið mann-
virki á mælifcvarða nútímans, —
stærðin mundi varla mjög gagn-
rýnd, ef í hlut ætti leikhús, dans-
salur eða kvikmyndahús. Hún verð
ur sóknarkirkja eins hins fjöl-
mennasta safnaðar, auk þess er
henni ætlað lilutverk í almanna-
þágu, sem er nauðsynlegt en engin
kirkja höfuðstaðarins hefur rými
til að gegna.
Flestum irun finnast það heil-
brigð og réttmæt hugsun, að höf-
uðkirkja f höfuðborg fslands sé
helguð minningu þess manns, sem
ber yfir aöra í íslenzkri kirkju-
sögu og að það horfi til sæmdar
fyrir þjóðina að votta á þann
hátt þökk sína og vitund um var-
anlegt gildi dýrmætustu verðmæta
sinna.
Heitum því og stuðlum að því,
að Hallgrímskirkja í Reykjavík
rísi sem fyrst.“
Á baksíðu er tilfært eftirfar-
andi úr lögum um tekjuskatt og
eignarskatt nr. 70/1962:
12. gr.
Frá tekjum skal draga, áður en
skattur er á þær lagður:
D. Einstakar gjafir til menningar-
mála, vísindalegra rannsóknar-
stofnana viðurkenndrar líknar-
starfsemi og kirkjufélaga, þó
ekki yfir 10% af skattskyldum
tekjum gefanda, enda sé hver gjöf
ekki undir 300 kr. Fjármálaráð-
herra ákveður í reglugerð, hvaða|
málaflokkar og stofnanir korni til
greina s amkvæmt þessum staf-
lið.“
Meðfylgjandi mynd sýnir útlit
forsíðu hinna nýju gjafahluta
bréfa Hallgrímskirkju.
Það skal tekið fram, að þetta
er ekki í fyrsta skipti, sem slík
Gjafahluta bréf eru notuð í sam-j
bandi við söfnun á fé til kristi-1
legs starfs. Sumarbúðirnar í Lind-
ar-rjóðri í Vatnaskógi, sem byggð-
ar voru um og eftir 1940, eru að
verulegu leyti byggðar fyrir til-
svarandi gjafahluti.
Þessi nýju bréf Hallgríms-
kirkju, hafa nú verið send öllumj
sóknarprestum í landinu og verða
þau fáanlega að loknum minning-
arguðsþjónustunum í kirkjum
um land allt sunnudaginn 15.
marz n.k. og síðan áfram fyrst
um sinn hjá sóknarprestunum.
Öðrum vinum Hallgrímskirkju'
úti um landið verða einnig send
þessi bréf til fyrirgreiðslu og mun
síðar verða skýrt frá hverjir þeir
eru.
í Reykjavík og nágrenrii verða
bréfin með sama hætti fáanleg
hjá sóknarprestum og kirkju-
vörðum — og á ýmsum stöðum,
Byggingarnefnd Ha'lgrímskirkju
hvetur landsmenn til að leggja
stein í byggingu minningarkiirkju
passíusálmaskáldsins, einmitt nú
á þessum tímamótum, og gera það
með því að eignast gjafahlutabréf
þau, sem nú er verið að dreifa um
landið.
Allar gjafir, þótt minni séu en
gjafahlutabréfin, segja til um, eru
jafn þakksamlega þegnar. Má af-
henda þær sóknarprestum lands-
ins eða til
Biskupsskrifstofunnar, Klapp-
arstíg 27, Reykjavík.
eða til gjaldkera Hallgríms-
kirkju, Þórsgötu 9, (sími
199 58), Reykjavík.
EINKAMAL
SVEITAMAÐUR óskar eftir að komast í bréfasamband við stúlku
25—50 ára, sem hefur áhuga á sveitabúskap. Flillrl þagmælsku
heitið. — Svar sendist til auglýsingaskrifstofu TÍMANS, Banka
stræti 7 fyrir 1. apríl n. k. Merkt: Sveitabúskapur.
Gott
iðnaðarhúsnæði
til leigu.
Upplýsingar í síma 37132 og 32281
SKIPAtiTGCRB RÍKISINS
Ms. Herðubreiö
fer vestur um land í hringferð
12. þ.m. Vörumóttaka árdeg-
is í dag og á mánudag til Horna
fjarðar, Djúpavogs, Breiðdals-
víkur, Stöðvarfjarðar, Mjóa-
fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna-
fjarðar, Bakkafjarðar, Þórs-
hafnar og Kópaskers. Farseðl-
ar seldir á miðvikudag.
Skjaldbreið
fer vestur um land til ísa-
fjarðar 12. þ.m. Vörumóttaka
árdegis í dag og á mánudag til
Ólafsvíkur, Grundarfjarðar,
Stykkishólms, Patreksfjarðar,
Sveinseyrar, Bíldudals, Þing-
eyrar, Flateyrar, Suðureyrar og
ísafjarðar. Farseðlar seldir á
miðvikudag.
Jörðin
Efra-Nes
í Borgarfirði er til sölu,
eða leigu.
Réttur áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er, eða
hafna öllum.
Upplýsingar í síma 35803.
ChctuaiÁ
JZaiiía kroíí
frítrterkín
TIL SÖLU
Þvottaker (úr tré),
2 eldhúsborð og kerru-
poki, allt sem nýtt.
Upplýsmgar í síma 12367,
eða 17384.
Trúlofunarhringar
Fljói afgreiðsla
Sendum gegn póst-
kröfn
GUÐM. P09STEINSSON
gullsmiSur
Bankastrætj 12
1«
T í M I N N, laugardagur 7. marz 1964.