Tíminn - 07.03.1964, Síða 8
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA FRAMSÖKNARMANN A
Ritstjóri: Elías Snæland Jónsson.
GLÆSILEG SUF ■ RÁDSTEFNA Á SELFOSSI
Um 80—90 manns, bæði úr Reykjavikur, Reykjanes- og
Suðurlandskjördæmi, sat hina mjög glæsilegu og fjölmennu
ráðstefnu Sambands ungra Framsóknarmanna á Selfossi um
helgina. Var þar rætt um uppbyggingu efnahags- og atvinnu-
málanna- Framsöguerindi fluttu þeir Helgi Bergs, ritari Fram
sóknarflokksins, Kristján Karlsson, erindreki, Jón Skaftason,
alþingismaður og Steingrímur Hermannsson, framkvæmda-
stjóri. Verður nánar gerð grein fyrir ræðum þeirra f Vett-
vanginum mjög bráðlega.
Ráðstefnan hófst í samkomusal
Kaupfélags Árnesinga á Selfossi
á laugardaginn kl. 2.30, og setti
Örlygur Hálfdanarson, formaður
SUF, hana með stuttri ræðu. Fund
arstjórar voru skipaðir þeir Sigur-
finnur Sigurðsson, Selfossi og Páll
Uýðsson, aelfossi, og fundarritar-
ar: Halldór Hjartarson, Hafnar-
firði og Gunnar Guðmundsson, Sel
fossi.
Því næst hófust framsöguerind-
in. Fyretur talaði Helgi Bergs, rit-
ari Framsóknarflokksins, og ræddi
hann um þróun efnahagslífsins al-
mennt. Stóð sú ræða í eina og
hálfa klukkastund, og var þá gert
kaffihlé.
Eftir kaffihléið flutti Kristján
Karlsson, erindreki Stéttarsam-
bands bænda, erindi um landbún-
aðinn, Jón Skaftason, alþingismað-
ur, erindi um sjávarútveginn og
Steingrímur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarráðs Rík
isins, erindi um iðnaðnn. Voru
öll erindin mjög góð og fræðandi,
og vel tekið af fundarmönnuni.
Hluti fundarmanna á ráðstefnunni
Kl. 21 hófst siðan skemmtun
SUF í Selfossbíó og var husið
þéttskipað. Einar Ágústsson, al-
þingismaður, flutti stutta ræðu á
skemmtuninni, en auk þess var
sýndur leikþáttur og Jón Gunn-
laugsson hermdi eftir ýmsum
þekktum landsmönnum. Var þeim
öllum vel íagnað. Hljómsveit Ósk-
ars Guðmundssonar lék fyrir dansi
og varð að framlengja skemmtun-
ina til kl. 2,30.
Á sunnudaginn var farið snemma
morguns í glampandi sólskini og
skoðaðar ýmsar framkvæmdir i
héraðinu. Var fyrst farið í Mjólk-
urbú Flóamanna og síðan í Tré-
smíðaverkstæði Kaupfélags Ár-
nesinga og tilraunabúið að Laug-
ardælum og Þorleifskoti.
Eftir hádegið var farið á kreik
á nýjan leik og Ullarþvottarstöð
SÍS í Hveragerði heimsótt, og litið
á hafnarframkvæmdirnar í Þor-
lákshöfn og ýmsar aðrar vinnu-
stöðvar þar.
í undirbúningsnefndinni áttu
sæti: Kristinn Finnbogason,
Reykjavík, formaður nefndarinn-
ar, Halldór Hjartarson, Hafnar-
firði, og Sigurfinnur Sigurðsson,
Selfossi.
GUNNAR BENEDIKTSSON, HINH PRESTLÆRDI LINUKOMMUNISTI, SKRIFAR UM „BARATTUNA UM BARNSSALINA":
KOMMUNISTAR HREMMA 7 ÁRA BÖRN OG
ÞJÁLFA ÞAU í OFSTÆKIKOMMÚNISMANS
Daginn effir aS íhaldið hóf aS birta ósannindi sín
um unglingaklúbb FUF í Reykjavík, birti ÞjóSviíjinn
„frétt" frá einum sinna dyggu þjóna á Austf jörSum. Sá
náungi leyfSi sér aS halda því fram, aS 12 ára börnum
hafi veriS „smalaS" inn í FUF á HéraSi. Þeirri enda-
leysu var svaraS áSur í Vettvanginum, og eySum viS
ekki fleiri orSum á svona ómerkilegan uppspuna. —
Þess má þó geta, aS ÞjóSviljinn hóf þessi skrif sin aS
nýju, og vitnaSi enn þá í „fréttaritara" sinn- Og þeim
„góSa" manni brást ekki sköpunargáfan frekar en
venjulega.
Þessi skrif ÞjóSviljans minntu okkur á, aS kommún-
istar á fslandi hafa sfna „æskulýSssérfræSinga" og sina
ÆskulýSsfylkingu. Unga fólkiS forSast nú eftir mætti
æskulýSssamtök kommúnista, sem teyma inn i sinar
raSir börn á barnaskólaaldri, ef þeir geta. Er slíku
„klappliSi" oft safnaS saman á fundum kommúnista og
viS fleiri tækifæri.
„ÆskulýSsmálasérfræSingurinn", sem viS komum
fyrst auga á, heitir Gunnar Benediktsson- Mun hann
prestlærSur, auk þess aS vera dyggur kommúnisti.
Hann gaf eitt sinn út bókarkorn nokkurt, sem hann
kallaSi: „Baráttan um barnssálina'. Er þar mikinn „fróS-
leik" aS finna.
Ath. — öll innskot hér á eftir eru Vettvangsins).
komniúnishians?), þeim ságðar
siigur og ævintýri (líklega
gersk ævintýri!), þau syngja
sína söngva (byltingarsöngva?)
og þeim er gefinn kostur á að
æfa sig í félagsstarfsemi“
(strax 7 ára byrja sem sagt
kommúnistar að æfa saklaus og
óþroskuð börnin i þágu heims
kommúnismans).
í þessum félögum er haldið
uppi margs konar „fræðslu-'
og um það segir Gunnar m.a.:
„Þeim (7 ára börnunum) ?r
sögð saga vcrkalýðsins — saga
kúgunar þeirrar, sem hann hef
ur orðið að búa við, — saga um
baráttu hans í sigrl og ósigri,
— saga þeirra manna, sem
hafa helgað sig baráttunni fyr
ir frelsi hans (þ. e. í augum
kommúnista Stalín, Lenín, Mao
og fleiri slfkir). Það eru hetj
uraar, sem böraunum er kennt
að dá og sem þeim er kennt
að velja sér til fyrirmyndar".
Börain eiga sem sagt að lfta
upp til Stalíns, Mao og annarra
guða línukommúnista, og
„velja sér þá til fyrirmyndar'
Enda munu þess dæmi á fs-
landi, að böra kommúnista
kalla Jósef Stalfn, einn af
mestu morðingjum sögunnar,
„góða manninn!"
•it9d j ^ðiðingmtS •qBJtgud í siam
böraip, að sögn Gunnars Bene
diktssonar, tekin inn í stjóra-
málafélög kommúnista, og þait
látin ganga undir „pólitískan
heilaþvott", eins og Þjóðviljinn
vill helzt kalla það, grundvall-
aðan á dýrkun rússneskra og
væntanlega kínverskra, komm-
únista.
Þessi upptalning fyllir hvern
meðalmann viðbjóði, en það
ógeðslegasta í æskulýðsstarf
semi kommúnista er þó ekki
komið fram ennþá. Við skulum
því lesa svolítið meira í „fræð
um“ Gunnars: — „f þessum fé-
lögum er þeim líka kennt að
taka virkan þátt í baráttunni
fyrir heill og frelsi stéttar sinn
ar. Þau taka að sér sölu blaða
og bóka, sem fræða um bar-
áttu hans og kjör, og flytja
boðskap þeirrar Iífsspeki, sem
hann hyllir. Þess eru ekki fá
dæmi, að þau hafi gerzt kenn-
arar föður síns og móður . .
komið með nýjan anda inn á
heimili sitt, opnað þar glugga
og hleypt út pestnæmi þeirra
kenninga, sem foreldrarnir
hafa drukkið í sig“. — Hér er
komið inn á eitt ógeðslegasta
fyrirbærið í „pólitískum heila-
þvotti" kommúnista — að
berja heimskommúnismann inn
í höfuð ungra barna og gera
þau að ofstækismönnum, og
etja þeim síðan gegn foreldr-
um sínum. Austan járntjalds, t.
d. f Rússlandi og A-Þýzkalandi,
eru mörg dæmi þess, að börnin
hafi selt foreldra sína í hend-
ur „alþýðulögreglunni", vegna
þess, að þeir hafa ekki viljað
gleypa þann óþverra, sem
kommúnistar hafa troðið inn
í börnin. Þetta er spekin, sein
Gunnar Benediktsson boðar,
þetta er spekin, sem markar
stefnu Æskulýðsfylkingarinnar
í „baráttunni um bamssálina"
Hann skýrir þar frá æsku-
lýðsstarfsemi kommúnista, svo
vel hér á landi sem erlendis.
Talar hann mikið um hinar
svokölluðu „bamadeildir" en
það eru „félög með börnum
verkalýðsins á aldrinum 7—14
ára (7 ára skal hefjast hinn
svívirðilegi „pólitíski heila-
þvottur“, eins og Þjóðviljinn
kallar það), og þeirp félögura
fenginn leiðbeinand) úr flokki
hinna fullorðnu (áróðursmeist-
arar línukommúnista). Félög
þessi halda sína fundi, það er
farið með börnunum í skemmti-
ferðir og þau látin iðka íþróttir
til að efla heilsu sína og lík
amshreysti (stor. heræfingarn-
ar, sem segir frá í leyniskýsrl
um SÍA). Þau halda fundi á
hverjum sunnudegi, og oftar
eftir ástæðum. Þar eru flutt
fyrir þau erindi (um blessun
En hinum sjö ára gömlu böm
um er kennt sitt hvað flelra.
Gunnar segir: „Þeim er kennd
landafræði, — ekki um dýpi
Kyrrahafsins eða fjallgarða í
Ameríku. Þeim eru sýndar
myndir af byggingum, sem
verkamenn í Rússlandi búa í
(Rússadýrkunin i sinni „glæsi-
legu“ mynd), verksmiðjur, sem
þeir eiga sjálfir (einmitt!), og
sem framleiða fyrir þá nauð-
synjar þeirra, ökrum, sem þeir
hafa ræktað, lystigörðum, sem
þeir hafa bvggt fyrir sig og
börn sín“. &jö ára gömul éru
Við getum einungis lýst yflr
ógeði okkar.
Gunnar (lýkur bókarkomi
sínu með því að lýsa bar
áttu komcnúnista og íhaldsins
um barnssálina, og verðum við
þá vör við hina ógeðslegu
keppni, sem rlkir á milli þess
ara tveggja aðila um að hrifsa
til sín óþroskuð börnin og
skapa skoðanir þeirra að eigin
vild. Þar f(nnst engin hugsun
um velferð barnanna — einung
is um að móta skoðanir þeirra
til pólitísks ávinnings. Slíkt
er hættulegt og fyrirlitlegt.
Gunnar segir: „Yfirstéttin og
málsvarar hennar vita það vel
og skilja, hvers virði það er,
hvaða hugmyndir ná fyrst að
festa rætur í hugum barnanna,
og það er ekki sama, hverjar
þær eru, og yfirstéttin hefur
ekki mótspyrnulaust látið af
hendi réttindi, þótt um minna
hafi verið að ræða en óskorað
an rétt til að móta barnssálirn
ar.“ — Nei, ef við lítum á
sögu ungra Sjálfstæðismanna,
og ekki sízt Heimdallar, þá
er okkur ljóst, að þeir hætta
ekki mótspyrnulaust iðju sinni
meðal barnanna. Ungir Fram
sóknarmenn fordæma slfkar að
gerðir ihaldsmanna og komm
únista, og fyrirlíta tilraunir
þeirra til þess að skclla slík-
um ósóma yfir á unga Fram-
sóknarmenn. Framsóknar-
menn byggja samtök sín á
grunnsteinum sjálfstæðrar
hugsunar og þeir myndu aldrei
láta sér koma til hugar, hvað
þá meira, að reyna að troða
stjómmálastefnu sinni inn í
hug smábarna. Börnin eru dýr
mætasta eign hverrar þjóðar
Við fordæmum sérhverja til
raun til þess að skemma þá
fögru og þýðingarmiklu sveit
framtíðarinnar.
T í M I N N, laugardagur 7. marz 1964. —
8