Tíminn - 27.05.1964, Side 2
Þriðjudagur, 26. maí.
NTB-París. — Aðalmaðurinn
í ráninu á frú Madeleine Dass-
ault var þekktur glæpamaður,
.Tean Jacwues Casanovan. Ilann
liefur ekki náðst enn, Hans er
leitnð í samkandi við morð á
lögregluþjóni og fjölda rána.
NTB-Accra. — Talið er lík-
legt, að 36 menn hafi látið líf-
ið, þegar eldur kom upp í gull
nárnu í Prestea í Suðvestur
Ghana í kvöld.
NTB-Ottawa. — U Thant
framkvæmdastióri Sameinuðu
þjóðanna, sagði í dag, að hvcr
sá, sem í fullri alvöru legði til,
að nota kjarnorkuvopn í Suður-
Víetnam, hlyti að vera vitlaus.
NTB-Iáege. — A. m. k. 19
misstu lífið, þegar ferðamanna
höllin Chateau de Wegimont
nm 11 km- fyrir utan Liege í
Belgí'j, hrann til grunna í nótt
NTB-Kairo. — Nasser, for-
seti Arahíska Sambandslvðveld
Isins, og Aref, fqrseti frak, und
irrituðn í dag sáttmáia um að
koma á fót samcisinlegu for-
sejapáðj. sem stvrkja á einingu
landanna tveggja.
NTB'Washington. — Óeirðir
Urðu í dag milli blökkumanna
og lögreslunnar í þænum Cam
bridge í Marvland í Bandaríki
upum og særðust margir,
NTB-Cane Kennedy. — Frest
að ,rar til fimmtudaffs að skiófa
á loft handarí'ka tunglfarinu
..Anoito", sem skjóta átti á loft
f datr.
NTB-Brussel. — Fiármálaráð
herra V-Þvzkalands. Kurt,
Sehmucker. lagði til í dag. að
FBF-löndin skvldu lækka tollg
sfna rreen hriðia landi um 25%
án öpss að híða eftir árangrin-
um af Krnnerlv-ráðstefnnnni.
NTWRsrifn. — Fvrrnm „tan
rfkioréðiierra Austur-Þvzka-
Inrido, (Iporrr Der(j„»er. vnr jáf
IIDTI ' floft. WflHH vqr 4ry>rv*iií
lir f 1?í ín farsrfoT«5 fvj*ír
NTB-Aden. — Finn hrezkur
h°rmaðn” var dreninn QC sin
pðrjr c<Y",'*nct f hardÖFfum við
cjrncriiUðq í Pn-Ifnn-fiölhinnm ’
f\arr
NT’lí.Georf'etowi' — Margar
flö'clcrlUnt' nf Tndfájinkvni vorn
f dair rinffnr frá t>'>!ml-vniuim
F>nni” í ATn ''Kenrie-hérafsínu í
rivo'A-.i diijnna. eu har hafa
h’okVnmnTvn hrennt nið'ir hverf
einncfn hós,
- \
NTB-Nicósíu. — SkQtjð var
í dag á sænska og aust.urrfska
lngrenhimoon f hióniictll Sam-
einuðu hióðanna við St, TTilar
ion-ka=fa1ann í Kvrenía-hérað
írni n Trúr"i" T7!nrnrm 5fF>v^íct
NTB-Stokkhóimi. — Sti«
,,Tennerström ákærði í dag lát
inn sænskan hershöfðingja.
Bengt Taenhscon. fvrir nð hafn
’ajósnað fyrir NATO geun
fovétríkiunum. Hernaðaryfir
öldin í Svíhjóð segja þettn h«d
eraij unnppuna.
Bammmmmmmmmmmmmmm
Hlutlausir
vinna sigur
NTB-Vientiane og Peking, 26. maí.
Talsmaður herliðs hlutlausra í
Laos tilkynnti í dag, að þeir hefðu
endurheimt hinn hemaðarlega
mikilvæga bæ Muong Kheung á
Krukkusléttu í dag, og að herlið
hægrisinna væri vel á veg komið
með að umkringja tvær Pathst
Lao-herdeildir, sem eru á leið til
þorpsins Paksane fyrir vestau
sléttuna. Jafnframt tilkynnti Pek
ingstjórnin, að hún teldi að halda
ætti nýja ráðstefnu um Laos í
Phnompenh í Kambodsíju í næsta
mánuði.
Pathet Lao-herliðið hafði að ná
bænum Muong Kheung á sitt vald
s. 1. sunnudag, og segjast hlutlaus
ir hafa endurheimt hann í dag.
Yfirmaður herliðs hlutlausra,
Kong Le hershöfðingi, hefur nú
komið sér fyrir við Bana um 15
km. fyrir sunnan Krukkuslétu og
Lögreglan eltir
rollur
KJ-Reykjavík, 26. maí.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur
haft ærinn starfa við að elta rollur
reykvískra fjáreigenda að undan-
förnu, en þær hafa viljað sækja
allmikið í skrúðgarða þeirra Hafn
firðinga.
Þannig er tnál með vexti, að
reykvískir rollueigendur eiga upp
rekstrarland í Hvassahrauni, sern
er eyðibýli rétt við Stóru-Vatns-
léysu. Þangað er búið að reka eitt
hvað af geldfénaði, en girðingarn-
ar halda engu, og fénaðurinn held
ur í garða Hafnfirðinga og rífur
þar allt og tætir. Geldféð er allt
nýrúið og sprækt og því erfitt að
hafa hendur á því. Er þetta hinn
mesti ófögnuður bæði fyrir garð-
eigendur í Hafnarfirði, og svo fyr
ir lögregluna að vera á hlaupum
í kringum féð.
er talið, að hann muni ef til vill
þurfa að yfirgefa Bana bráðlega
og flýja lengra í suður.
Vestrænir hemaðarfulltrúar í
Vientiane telja, að eitt höfuðtak-
mark Pathet Lao-herliðsins sé að
ná bænum Muong Soui í Mið-Laos
á sitt vald. Ef það tekst, þá fá
kommúnistar yfirráð yfir hinum
þýðingarmikla vegi milli höfuð-
borgarinnar, Vientiane og konungs
borgarinnar, Luang Prabang.
Kínverska Alþýðulýðveldið lagði
til í dag, að þau 14 ríki, sem sátu
Geneve-ráðstefnuna um Laos 1962
komi saman til nýs utanríkisráð-
herrafundar í Phnopenh í Kam-
bodsíju í næsta mánuði. Hefur ut
anríkisráðherra Rauða-Kína, Cíhen
Yi, sent þeim 14 ríkjum, sem
tóku þátt í ráðstefnunni, ályktun
um þetta.
Peking-stjómin hefur einnig
svarað beiðni Breta um, að hún
neyti áhrifa sinna og fái Pathet
Lao-herliðið til þess að hætta ár-
ásum sínum í Laos. Kvaðst Pek-
ingstjómin ekki geta gert þetta,
þar sem Pathet Lao-herliðið hefði
alls ekki gert neinar árásir og
sagði, að bardagamir á Krukku-
sléttu væru einungis innri erjur
í herliði hlutlausra.
Bretland lagði til í dag, að sendi
herrar þeirra 14 ríkja, sem sátu
Laos-ráðstefnuna, skyldu koma
saman til fundar í Vientiane til
þess að ræða Laos-deiluna.
Fimmtugur í dag
JÚN HELGASON, RITSTJÚRI
Jón Helgason, ritstjóri Tímans,
er fimmtugur í dag. Hann er fædd
ur á Akranesi, en ólst upp á
Stóra-Botni í Botnsdal hjá foreldi’-
um sínum, Oddnýju Sigurðardótt-
ur og Helga Jónssyni, bónda og
hreppstjóra, sem þar bjuggu lengi.
en þau em nú bæði látin. Jón
gekk í Samvinnuskólann, en réðst
síðan ungur að árum blaðamaður
að Tímanum og starfaði þar síðan
samfleytt i sextán ár, lengst af
sem fréttaritstjóri. Síðan var hann
ritstjóri blaðsins Frjáls þjóð nokk
ur ár en réðst að nýju til Tknans
sem ritstjóri fyrir hálfu fjórða
ári. Jón er kvæntur Margréti Pét-
ursdóttur, og eiga þau þrjá mann
vænlega syni. Heimili þeirra er að
Miðtúni 60 í Reykjavíik.
Jón Helgason þarf ekki að
kynna lesendum Tímans, svo langa
og góða samleið, sem hann hefur
átt með þeim. Störf hans við blað
ið hafa verið bæði mikil og marg-
háttuð. Hann er í fremstu röð ís-
lenzkra blaðamanna og hefur
löngu hlotið almenna viðurkenn-
ingu í því starfi. Ber margt til
þess, ágætar gáfur, mikil vand-
virkni og virðing fyrir starfinu, rit
leikni og víðtæk alcnenn þekking.
Nokkrar bækur hafa komið út eft-
ir hann og er kunnastur bókaflokk
urinn fslenzkt mannlíf og Tyrkja-
ránið, þar sem efnið er sótt í söga
þjóðarinnar og fjallað um efnið
af fræðimannlegri skarpskyggni og
list í máli og stíl.
Annars er það ekki ætlunin að
tíunda hór verk Jóns eða rekja
ævisögu — til þess er hvorki til-
efni á fimmtugsafmæli né heldur
lúklegt, að það væri honum að
skapi. En ég og annað samstarfs-
fólk Jóns hér á blaðinu höfum
sérstaka ástæðu til þess að þakka
honum samstarfið og alla kynn-
ingu það sem af er. Mér hefur löng
um þótt cnikið til um marga mann-
kosti Jóns Helgasonar, en hæst
ber þar fölskvalausa vináttu, hjálp
semi og drenglund, sem vel hefur
dugað, mikla ósérhlífni og sam-
vinnulipurð. Mér hefur ærið oft
orðið list hans og vald í beitinga
íslenzkrar tungu að aðdáunarefni
og talið mig njóta góðs af þeirri
snertingu. En ég vil aðeins með
þessum orðum færa Jóni Helga-
syni beztu afmælisóskir minar og
annarra vina hans og samstarfs-
manna hér við biaðið. — A. K.
Stokkseyrarkirkja endurvígð
STJAS-Vorsabæ, 26. maí.
Á sunnudaginn fór fram hátíða
guðsþjónusta i Stokkseyrarkirkju
í tilefni af því, að lokið var um-
fangsmiklum breytingum á kirkj-
unni. Guðsþjónustan hófst klukk-
an 14 með því að dr. Páll ísólfs-
son lék forspil, þá flutti séra Gunn
A
SÍÐUSTU STUNU
Hsím.-Reykjavík, 26. maí.
Bflslys og árekstrar eru alltaf
eitt helzta fréttaefni hlaða hér, en
liins vegar sjaldan minnzt á, þeg-
ar ökumaður hindrar slys með
snarræði. Þega rblaðamaður Tim-
ans gekk eftir Vesturgötu í dag
um 3,30, anaði niiðaldra kona á
gatnamótum Vesturgötu og Garða-
strætis út á götuna, án þess að
líta tii hægri eða vinstri, og beint
Arekstur við
Skíðaskálann
KJ-Reykjavík, 26. maí.
Klukkan að ganga tólf í kvöld
varð hörkuárekstur rétt fyrir neð
an Skíðasikálann í Hveradölum á
milli Kaiser-bíls og Fólksvagns.
Fjórir farþegar í Fólksvagninum
slösuðust og voru fluttir til Reykja
víkur. Bílarnir eru stórskemmdir.
fyriir bíl, sem kom á talsverðum
hraða upp Geirsbrekkuna. Með
fádæma snarræði tókst bflstjór-
anum að snarhemla og stanzaði
bflinn með ískri og ýlfri nokkrum
sentimetrum frá konunni. Vel af
sér vikið hjá bílstjóranum, hugs-
uðu þeir, sem á horfðu, en kon-
unni, sem hafði verið forðað frá
sælu himnarflcis, að minnsta kosti
fyrst um sinn, fannst lítig til um
og sendi bflstjóiranum aðeins tón-
inn — skammir. Já, laun heimsins
eru vanþakklæti.
ar Jóhannesson prófastur bæn og
séra Magnús Guðjónsson sóknar-
prestur þjónaði fyrir altari og
flutti prédikun. Að lokum flutti
biskupinn yfir íslandi, séra Sigur-
björn Einarsson ræðu. Mikill mann
fjöldi var á Stokkseyri við guðs-
þjónustuna, og víða blöktu fánar
við hún í þorpinu.
Eins og blaðið skýrði frá fyrir
skömmu hafa farið fram miklar
breytingar á Stokkseyrarkirkju að
undanförnu, en þær hófust fyrir
einu ári. Kirkjunni var lyft, steypt
ur undir hana grunnur, flestir
máttarviðir voru endurnýjaðir,
nýtt skrúðhús byggt, anddyri
stæbkað og snyrtiherbergi lag-
færð. Þá var sett nýtt hitunar- og
rafkerfi í kirkjuna og allir vegg-
ir klæddir harðviði, nýir stoppað-
ir stólar eru einnig í henni og
nýtt pípuorgel, sem keypt var frá
Bretlandi.
Athöfnin hófst eins og fyrr seg
ir með forspili dr. Páls ísólfsson-
ar. Kirkjukórinn söng yið messuna
undir stjórn Pálmars Þ. Eyjólfs-
sonar og voru að mestu sungin lög
eftir höfunda frá Stokkseyri, þar
á meðal ísólf Pálsson, Pál ísólfs-
son, Bjarna Pálsson, Friðrik
Bjarnason og stólvers eftir söng-
stjórann, en það hafði ekki verið
sungið opinberlega áður. Einsöng
í laginu söng Þuríður Pálsdóttir
Kirkjunni hafa borizt margar
veglegar gjafir að undanfömu,
m. a. 180 þús. kr. í peningum.
Stokkseyringar heima og heiman
gáfu henni veglegan skírnarfont,
útskorinn, gerðan af Jóhanni
Björnssyni frá Húsavík. Skírnar-
skálina gerði Hreinn sonur Jó-
hanns, og var hún gjöf frá Kven-
félagi Stokkseyrar. Kvenfélagið
gaf einnig teppi á kirkjugólfið
Kirkjunni voru gefnir tveir mjog
fagrir ljósahjálcnar, annar frá
Sturlaugi Jónssyni, Vinaminni,
Stokkseyri, en hinn gaf heimilis-
fólkið í Stóru-Sandvík til minning-
ar um foreldra sína og bróður
Fyrrverandi sóknarbörn gáfu há-
tíðamessuhökul. Kirkjunni voru
gefnir 30 silfurhikarar til nota við
altarisgöngu, altarisdúkur og fleiri
góðar gjafir.
Mikill mannfjöldi var við mess-
una, talið að þar hafi verið milii
300—400 manns. Eftir messu bauð
Kvenfélag Stokkseyrar öllum til
kaffidrykkju í barnaskólahúsinu.
Þar voru flutt ávörp og þakkaði
sóknarnefndarformaður, Frímann
Sigurðsson, gjafir og hlýhug í
garð kirkjunnar. Séra Gunnar^ Jó-
hannesson prófastur og séra Áre-
líus Níelsson fluttu einnig ávörp.
Meðal gesta við hátíðamessuna
voru þrír ráðherrar, auk fjöl-
margra annarra góðra gesta.
Hjartafélögin þjóta upp
Fyirir nokkru var stofnað
Hjarta og æðasjúkdómavamar
félag Akureyrar og nágrennis,
með um 200 félögum. Einnig var
stofnað Hjarta- og æðasjúkdóma
varnarfe'lag Selfoss og nágrennis.
með 70 félögum.
Á næstu dögum verða félög
stQfnuð á eftirtöldum stöðum:
FÖIMTUDAG þ. 28 maí n.k. í
Borgarnesi að hótel „Borgar-
nesi‘% kl. 8,30 e.h.
FÖSTUDAGINN þ. 29. maí n.k.
á Akranesi í „Stúkuhúsinu“,
kl. 9 e.h.
FÖSTUDAGINN þ. 29. maí n.k.
í Keflavík í samkomuhúsinu
„Aðalveri“, kl. 9,30 e.h.
Fólk er vinsamlega beðið að
fjölmenna á stofnfundinn f Borg-
arnesi, Akranesi og Keflavík.
Prófessor Sigurður Samúelsson,
mun mæta á fundinum í Borgar-
nesi og á Akranesi, en Snorri P.
Snorrason, læknir, mætir á fund-
inum í Keflavík.
Á næstunni verða stofnug félög
í Vestmannaeyjum og í Hafnar-
firði, og væntanlega bráðum á
Vestfjörðum.
Ætlunin er, að stofna félög j
stærri kaupstöðum á Norður- og
Austurlandi í sumar og haust.
2
T f M I N N, mlðvikudagur 27. mai 1964.