Tíminn - 27.05.1964, Qupperneq 5
Átta brautskráð-
ir úr leikskóla
S. 1. laugardag var Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins slitið og
brautskráðust þaðan 8 nemendur,
eftir tveggja ára nám. Leiklistar
skóli Þjóðleikhússins er tveggja
ára skóli og útskrifast leiklistar-
nemar þaðan annað hvert ár. Þeir
sem útskrifuðust að þessu sinni,
voru Arnar Jónsson, Anna Her-
skind, Bryndís Schram, Jón Júlíus
son, Leifur ívarsson, Oktavía
Stefánsdóttir, Sverrir Guðmunds-
son og Þórunn Magnúsdóttir.
Þetta er 9. árgangurinn, sern
brautskráðst hefur frá Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins, en samtals
hafa 55 nemendur lokið prófi frá
skólanum.
Kennarar við skólann í vetur
voru lei'karamir Gunnar Eyjólfs-
son, Kristín Magnús, Kelmenz Jóns
son, Benedikt Ámason og Jón Sig-
urbjörnsson, sem kenndi til ára-
móta. Elizabeth Hodgshon, ballett-
meistari, kenndi sviðshreyfingar
og ballett. Auk þess kenndu pró-
fessorarnir Steingrímur J. Þor-
steinsson og Símon Jóhann Ágústs
son við skólann, héldu þar m. a.
fyrirlestra um sálfræði, leiklistar-
sögu o. fl. Skólastjóri er Guðlaug-
ur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri.
Þrír af nemendunum, sem út-
skrifuðust að þessu sinni, hafa far
ið með stór hlutverk á leiksviði
Þjóðleikhússins á s. 1. vetri. Am-
ar Jónsson lék stórt hlutverk í
Gísl, Þórunn Magnúsdóttir lék
Ófelíu í Hamlet og Bryndís
Schram lék titilhlutverkið í Mjall
hvíti og stórt hlutverk í Táninga-
ást.
Prófdótnarar voru mjög ánægð
ir með frammistöðu nemenda á
prófinu og töldu þetta einn bezta
árganginn, setn útskrifazt hefur frá
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins.
Skólastjóri brýndi fyrir nemend-
um að sýna alúð í starfi, hvort
sem hlutverkið, er þeim væri fal-
ið að túlka, væri stórt eða lítið.
Vera trúm köllun sinni og missa
ekki kjarkinn, þótt móti blási.
Hann benti þeim einnig á, að
sjálfsgagnrýni væri ekki síður
nauðsynleg, því að sjálfsgagnrýni
og sjálfstraust væru þeir eiginleik
ar, sem hverjum leikara væru
nauðsynlegir. Að svo mæltu ósk-
aði hann hinum ungu leikurum
velfarnaðar og góðs gengis á leik
listarbrautinni.
Næsta haust fær Leiklistarskóli
Þjóðleikhússins nýtt og gott hús-
næði til afnota í hinum reisulegu
salarkynnum Dagsbrúnar og Sjó-
tnannafélagsins við Lindargötu.
Við það fær Leiklistarskólinn
betri starfsskilyrði og mun öll
kennslan fara þar fram næsta vet-
ur. — Myndin er af þjóðleikhús-
stjóra og Arnari Jónssyni við skóla
uppsögn.
i IZnrs/wc
íaf{.L
Sinfóníuhljómsveit íslands
Ríkisútvarpií
Rússneski píanósmllingurinn
VLADIMIR ASHKENAZY
leikur með Sinfáníuliljómsveit íslands á
aukatónleikum í Háskólabíói, fimmtudag-
inn 4. júní, kl. 21,00.
^ /
Stjórnandi:
IGOR BUKETOFF
Efnlsskrá:
Mozart: ............ Sinfónía nr. 35 „Haffner"
Beethoven:...........Píanókonsert nr. 1, C dur
Rachmanoinoff:.......Píanókonsert nr. 3 d-moll
Áskriftarskírteini gilda ekki að tónleikunum, en föstum
áakrLfendum er gefinn kostur á forkaupsrétti aðgöngu-
mtða til fðstudags 39. maí — gegn framvísun áskriftar-
gkfrteina I bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og bóka-
M8om Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg 2, og Vesturveri.
Sýning í Bogasalnum
ÍSLAND VIÐ ALDAHVÖRF
Allar hinar frægu myndir frá leiðangri Paul Gai-
mard til íslands árið 1836 (201 mynd) verða til
sýnis og sölu dagana 27. til 31. maí.
Opið daglega frá kl. 2 e.h. til 10 e.h.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja dælustöðvarhús við
Grensásveg fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.
Útboðsgagna skal vitja í skrifstofu vora, gegn
3.000,— króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
Stúlka óskast
á skrifstofu happdrættis FUF í Tjarnargötu 26,
í 4—6 vikur.
Upplýsingar eftir kl. 4, á skrifstofunni.
ÍSLANDSMÓTIÐ
Laugardalsvöllur miSvikudag kl. 20,30
Valur — Þróttur
Mótanefnd
Bæjarstjórn Akraness hefir ákveðið að efna til
hugmyndasamkeppni um merki fyrir kaupstað-
inn. Uppdrættir skulu vera 12x18 cm á stærð og
skulu þeir sendir til bæjarstjórans á Akranesi fyr-
ir 15. júlí 1964.
Umslag skal auðkennt með orðinu Samkeppni.
Nafn höfundar fylgi í sérstöku umslagi vandlega
lokuðu. 15.000 kr .verðlaun verða veitt því merk-
inu sem valið verður og áskilur þæjarstjórnin
sér rétt til þess að nota merkið að vild sinni án
frekari greiðslu.
Einnig áskilur bæjarstjórnin sér rétt til að hafna
öllum tillögum sem berast kunna ef henni þykir
engin hæf til notkunar.
Bæjarstjórinn Akranesi
Björgvin Sæmundsson
T í M I N N, mlðvikudagur 2/. maí 1964.
5