Tíminn - 27.05.1964, Side 7

Tíminn - 27.05.1964, Side 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu-húsinu, símar 18300—18305. Skrif- stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. lnnan- lands. — í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiöjan EDDA h.f. Jákvæð andstaða Stjórnarblöðin hafa undanfarið verið að tíunda þau mál, sem urðu að lögum á seinasta þingi. Sú upptaln- ing sýnir, að þingið hefur ekki afgreitt nein meiriháttar stórmál. Þó skal fúslega játað, að þingið afgreiddi fáein mál, sem horfðu til nokkurra bóta, eins og aukin framlög til vegamála og aukna aðstoð við litlu búin, en þar var yfirleitt um að ræða mál, sem Framsóknarmenn höfðu beitt sér fyrir á undanförnum þingum. Nær öll hin meiriháttar mál, lét þingið hins vegar leggjast til hliðar. Reynslan leiddi í ljós, að varðandi þau hafði ríkisstjórnin enga stefnu eða neikvæða afstöðu. Hér má t. d. nefna efnahagsmálin, húsnæðismálin, jafn- vægi í byggð landsins, eflingu framleiðni og endurbætur á skólakerfinu. í öllum þessum málum fluttu Framsókn- armenn tillögur um nýjar aðgerðir og úrlausnir, en þeim var undantekningarlaust stungið undir stól af þingmeiri- hlutanum. Þannig einkenndist þingið af neikvæðum vinnubrögðum stjórnarflokkanna og jákvæðum tillögu- flutningi Framsóknarmanna. Sá meginárangur náðist af þessari jákvæðu baráttu Framsóknarmanna, að ríkisstjórnin féll frá lögþving- unarleiðinni í launamálunum og reynir nú samningaleið- ina með góðum horfum um samkomulag. Þess munu ekki mörg dæmi, að stjórnarandstaða hafi haldið uppi eins jákvæðri baráttu og Framsóknarmenn gerðu á seinasta þingi. Hún var alger andstæða neikvæðr- ar afstöðu Sjálfstæðisflokksins í tíð vinstri stjórnarinnar. Skuldasöfnun í góðæri Stjórnarblöðin eru þagmælsk um þá staðreynd, að skuldir þjóðarinnar umfram inneignir hafi vaxið um 340 millj. kr. síðan í árslok 1958, þrátt fyrir óvenjulegt góðæri og hagstæða gjaldeyrisöflun, engar meiriháttar stórframkvæmdir og öll fyrirheit stjórnarinnar um að draga úr erlendum skuldum. Með þessu er m. a. fallin sú fullyrðing þeirra, að „viðreisnin“ hafi þó alltaf auk- ið inneignir bankanna erlendis. Slíkt. er vitanlega ekki hrósvert, þegar upplýst er, að skuldir hafa aukizt miklu meira en hinum auknu inneignum nemur. Til þess að draga athygli frá þessum staðreyndum, beita stjórnarblöðin nú ýmsum smáskæruhernaði. T. d. var nýlega lesið upp í útvarpinu, úr forustugrein í Vísi, að gjaldeyrisstaða bankanna hafi verið óhagstæð um mikla upphæð, þegar vinstri stjórnin lét af völdum. Töflur, sem fylgja nýbirtri ársskýrslu Seðlabankans sýna hins vegar, að gjaldeyrisstaða bankanna var hagstæð um 228.5 millj. í árslok 1958. Slíkur er málflutningur stjórnarblaðanna. Kvöldsala í Reykjavík Mjög eykst nú óánægja meðal neytenda í Reykjavík vegna afskipta borgarstjórnarinnar af kvöldsölunni. Áð- ur en þessi afskipti borgarstjórnarinar hófust, gátu þeir, sem seint komu úr vinnu, fengið keyptar ýmsar nauð- svnjavörum heimilanna. Nú er þetta úr sögunni, en hins vegar er auðvelt að ná í tóbak og sælgæti. Þetta er óneitanlega spor aftur á bak, enda var þetta ekki tilgangur borgarstjórnar. Meðferð þeirra, sem mest hafa fjallað um þessi mál, hefur hins vegar leitt til þess- arar i'iikomu. Vegna þessa eru neytendur eðlilega gramir. Það er nauðsynlegt, að borgarstjórnin taki þetta mál upp að nýju og veiti neytendum viðunandi úrlausn. T í M I N N, miðvikudagur 27. maí 1964. — Verður kosið um fána í Kanada? Pearson mun gera fánabreyfingu að fráfararafriði. KANADA hefur búið á annað ár við minnihlutastjórn Frjáls lynda flokksins undir forustu Lester B. Pearsons. Almennt mun álitið, að stjórninni hafi tekizt vonum fremur, þar sem hún hefur jafnan þurft að semja við aðra flokka um fram gang þingmála eða átt mála- lok undir afstöðu þeirra. Það hefur styrkt stjórnina verulega að hinir flokkarnir hafa haft takmarkaðan áhuga fyrir nýj- um þingkosningum og því ekki kært sig um að fella stjórn- ina. Horfur eru nú taldar þær, að Frjálslyndi flokkurinn sé vænlegur til að ná hreinum meiri'hluta, ef kosningar færu fram á næstunni. Því er talið líklegt að Pearson muni brátt leita eftir tækifæri til að efna til kosninga, en einhverjar mál- efnalegar ástæður þurfa þó helzt að vera fyrir hendi. Ýms- ir blaðadómar eru nú á þann veg, að fánamálið muni verða honum slíkt tilefni, en margt bendir nú til þess, að það verði mikið deilumál í náinni fram- tíð. FÁNI Kanada er nú eftirlík- ing brezka fánans, að því undan skildu, að í miðju hans er lítið merki, sem á að minna á Kan- ada. Þetta rekur rætur til þess. að Kanada var upphaflega brezk nýlenda, en hefur síðan verið brezkt sambandsríki. Margir Kanadamenn una því illa, að fáninn skuli þannig vera eftirlíking erlends fána. Einkum gildir þetta um Frakk ana í Quebec-fylki, þar sem um priðjungur þjóðarinnar býr Þar hefur krafan um nýjan fána lengi átt mikið fylgi og þar hefur Frjálslyndi flokkur- inn lengi átt traustustu ítökin. Fyrir seinustu kosningar lofaði flokkurinn því, að hann myndi láta skipta um fána, ef hann fengi meirihluta í kosningun- um. Strangt tekið er flokkurinn ekki bundinn við þetta loforð, þar sem hann fékk ekki meiri hluta, en siðferðilega telur hann sig þó bundinn við það ag reyna að koma málinu fram, þar sem stjórnarforustan féll honum í skaut. Það hefur svo ýtt undir þetta að skilnaðarhreyfing eykst nú mjög í Quebec-fylki. Fransk- ættaðir menn eru þar í miklum meiri hluta og telja Quebec hafa verið haft útundan að ýmsu leyti. Þær kröfur fá því góðan jarðveg þar, að Quebec eigi að heimta víðtækari heima stjórn og jafnvel að segja sig úr tengslum vig Kanada. Pear son hefur reynt að mæta þess- um kröfum með því að taka vaxandi tillit til fylkisstjórnar innar í Quebec, en þar fara flokksbræður hans nú með völd. Hvað eftir annað, hefur hann gert það að fráfararatriði ef slík mál fengjust ekki sam- þykkt á þingi. Þrátt fyrir þetta dregur ekki neitt úr skilnaðarhreyfingunni í Quebec, nema síður sé. Þess vegna reynir Pearson nú en að koma til móts við hana með því ag lofa að skipta um fána. en jafnhliða er ætlunin að lög- Þannig mun nýi fáninn sennilega Ijta út. Þrjú rauð viðarlauf á hvífum feldi með bláum röndum til endanna. Þannig lítur núverandi fáni Kanada úf. Hann er að mestu eftir- líking brezka fánans, að undanskildu smámerkinu í miðjunnl. festa þjóðsöng. „O Kanada1' verður þá sennilega þjóðsöngur Kanada, en það er tillaga Frakka í Quebec. Brezkætt- aðir menn vilja hins vegar annaðhvert lögfesta „God Save the Queen“ eða „The Maple Leaf Forever“' Eins og er, hefur Kanada raunverulega engan þjóðsöng. PEARSON hefur fyrir nokkr um dögum tilkynnt þinginu, að hann muni brátt leggja fyrir það tillögu um nýjan fána og gera þá tillögu ag fráfararat- riði.Jafnframt sagði hann, að enn hefðj ekki verið tekin endanleg ákvörðun um gerð hins nýja fána. Blöðin telja hins vegar, að slík ákvörðun sé þó raunar sama og tekin, þótt það hafi ekki verið gert form lega. Samkvæmt frásögnum þeirra verður fáninn þannig, að á honum verða þrjú rauð viðarlauf á hvítum feldi, en bláar rendur verða tii endanna. Viðarlauf hefur um alllangt skeið verið sérstakt einkennis- merki Kanada. Búizt er við að fánabreyting in muni mæta harðri mótstöðu meirihluta íhaldsflokksins og ef til vill einstakra þingmanna í Frjalslynda flokknum Afstaða minni flokkanna tveggja, Social Credit-flokksins og Nýja jafn- aðarmannaflokksins, er ekki alveg eins Ijós, en þó má búast við, að sá fyrr nefndi fylgi breytingunni, þar sem hann á aðalfylgi sitt í Quebec Ann- ars getur vel svo farið, að allir flokkarnir klofni eitthvað um fánamálið í samræmi við bú- setu þingmannanna. Pearson er talinn hafa tekið þessa ákvörðun vegna þess, að honum sé ljóst, að Frjáslyndi flokkurinn geti því aðeins hald ið velli, að hann treysti aðstöðu í Quebec, og því hætti hann heldur á það í sambandi við fánamálið að tapa fylgi annars staðar, ef þag gæti styrkt að- stöðu hans þar. Auk þessa sé svo fánabreytingin nauðsynleg til þess að tryggja samheldni Kanada. Vaxandi áhrif skilnað arsinna í Quebec má m.a. marka á því, að fylkisþingið þar samþykkci nýlega að láta fara fram fræðilega athugun á þeim áhrifum, sem það hefði á efnahag Quebec, ef það yrði sjálfstætt ríki. Andstæðingar skilnaðarsinna vona, að þetta leiði i ljós, að skilnaður væri fjárhagslegt óráð, en eigi að síður sýnir þetta, að þeir treysta sér ekki til annars en að taka mikið tillit til skilnað- arhreyfingarinnar. í ÞEIM fylkjum Kanada, þar sem brezkættaðir menn eru í meirihluta mun 'fánabreytingu verða mjög misjafnlega tekið og sennilega getur hún leitt til harðrar mótspyrnu þar. Mörgum finnst það, að með fánabreytingunni sé verið að slíta aldalöng tengsl við Breta- veldi. Líklegt þykir, að þetta muni Diefenbaker, leiðtogi í- haldsmanna reyna að nota sér út í vztu æsar. Kosningar sem færu fram í Kanada nú, þykja líklegar til að bitna hart á smáflokkunum. Sumir telja, að Social-Credit- flokkurinn gæti alveg þurrkazt út, ef kosið yrði um fánamálið, en Nýi jafnaðarmannaflokkur- inn ætti á hættu að missa fylgi til beggja aðalflokkanna. Tveggja flokka kerfi myndi þá að nýju koma til sögunnar < Kanada. Þ. Þ. 7

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.