Alþýðublaðið - 10.01.1952, Blaðsíða 8
Eíostætt hrekkjabragð
í á slökkvisföðina oa íi
ir
Állt sSökkviliðið
ikassagerðirani
kvatt út, en fiegar að
var enginn eldur laus
Skálholt
SÁ EINSTÆÐI ATBURÐUR gerðist í gærdag, að slökkvi-
liðið var narrað út á þann hátt, að hringt var í síma til slökkvi-
stöðvarinnar og tilkynnt að eldur væri laus í Kassagerð Reykja-
víkur. Mun þetta vera í eina skiptið, sem svo bíræfið hrekkja-
isragð er leikið, að hringja í síma og kveðja slökkviliðið út.
fjegar um engan cid er að ræða. Hitt er algengara að brotnir
séu brunaboðar og eitt slííct tilfelli átti sér einnig stað í gær
»g var þá lika um narr ao ræða.
Þingsályktunartillaga Albýðuflokks-
manna um það til umræðu i gær,
Hafís 20 mílur ú
af
VEÐURSTOFUNNI barst
í gær skeyti um það frá
brezkum togara fyrir norð-
an land, a'ð hafís væri á reki
30 sjómílur norðaustúr af
Horni.
Og samkvæmt fregnum
frá íogurum, sem nú, þessi
dægur, eru að fara úr land-
vari út á miðin, er samfelld
hafísbreiða 20 sjómlur vest-
ur undan Látrabjargi og eins
langt norður með Vestfjör'ð-
um og augað eygir!
---------*---------:
in III Brellands
SÖNGKONAN Gúðrún Á.
Símonar var meðal farþega
með flugvélinni „Gullfaxa" til
.Englands í morgun; en hún hef-
tir dvalizt hérlendis síðan í
ágústmánuði síðast liðnum.
Söngkonan mun dveljast í
Lundúnum um hríð, en síðar
er för hennar heitið til Suður-
Wales, og ef til vill víðar um
Bretland. Á meðan hún dvald-
ist hér, hélt hún söngskemmt-
anir í Reykjavík, á Akureyri,
“ Þagar tiikynning barst um
að kvikriað væri í Kassagerð- í
inni brá slökkviliðið þegar við.
Var allt liðið kvatt út og allir
brunabílarnir .sendir á staðinn,
því ef rétt hefði reynzt að kvikn
að hefði í kassagéröinni gat ver
ið þar um stórbruna að ræða.
Einnig konui 'ögreglumenn á
saðinn. En þegar að Kassagerð
irini kom var þar eriginn eldur
og engirm þar kánnaðisf'við' að
hafa riringt á síokkýiliðið.
Sá sém tók á móti trunakvaðn
ingunni á slckkvistöðinni mun
ekki hafa innt þann, sem hringdi
eftir nafni- ,:enda aldrei komið
•fyrir áður, áð riokkúr hafi hringt
á slökkvistöðina í síma og til-
kynnt eldsvoða þegar ekki um
rieirin eld hefur verið að ræða.
ÞeSs má geta að þessi eina
kvaðning, þar sem allt slökkvi
iiðið mætti með bíla sína, mun
kosta mörg hundruð krónur og
jafnvel þúsundir.
í gærmorgun var slökkvilið-
ið einnig gabbað irm á Lindar
götu, fen þar hafði verið brotinn
brunaboði á horni Vatnsstígs og
Lindagötu.
-------------------------
Leiðrétting.
Það skal tekið fram vegna
ummæla hér í blaðinu í gær, að
viðgerðarmenn bæði frá Raf
magnsveitu Reykjavíkur og raf
veitu Hafnarfjarðar unnu að við
gerð á Hafnarfjarðarlínunni.
Húsavík, í Vestmannaeyjum
og víðar, og voru söngdómarar
mjög á einu máli um það, að
hún bæri af öðrum íslenzkum
söngkonum hvað rödd og kunn-
áttu snerti.
ag ísl. iðnrekenda hefuríekiðsýn
ingarglugga Málarans á leigu í 1 ár
Iðnfyrirtækio riumu hafa þar sýningar
til skiptis á framleiðsluvörum ssnum.
FÉLAG ÍSLENZRAR IÐNREKENDA hefur tekið á leigu
sýningarglugga Málarans í Bankastræti, og hefur gert samning
am hann til eins árs. Hefur öllum fyrirtækjum innan félags-
ins verið gefinn kostur á að afnot af glugganum, og munu nú
þegar vera fullráðið í liann allt þetta ár.
Samkvæmt upplýsingum. er
AB hefur fengið hjá skrifstofu
Félags íslenzkra iðnrekenda,
er tilgangurinn með þessu sá,
að vekja athygli almennings á
íslenzkum iðnaðarvörum,
jafnframt því sem einstökum
iðnaðarfyrirtækjum gefst þarna
kostur á að auglýsa framleiðslu
sína.
Iðnaðarfyrirtækin innan fé-
lagsins munu að vísu notfæra
sér gluggann mismunandi mik-
ið; en öllum hefur verið gefinn
kostur á að hafa þar sýningar.
Þau íyrirtæki, sem sýna í
glugganum, munu yfirleitt
hafa umráð yfir honum ekki
skemur en viku í senn, og ein-
staka fyrirtæki munu hafa þar
sýningu oftar en einu sinni yf-
ir árið.
Félag íslenzkra iðnrekenda
hefur auglýst eftir glugga-
skreytingamanni til þess að
vera fyrirtækjunum til ráðu-
neytis og aðstoðar við útstill-
ingar í gluggann; en ekki hefur
enn verið gengið frá ráðningu
neins manns.
Fyrsta fyrirtækið, sem mun
hafa sýningu í glugganum, er
Rafha í Hafnarfirði, og mun
ætlunin hafa verið, að sýning-
in hæfist strax upp úr áramót-
unum, en óveðrið undanfarna
daga hefur frestað henni.
FYRIR JÓLIN flutti tímaritið
Víðförli þrjár greinar um end-,
urreisn Skálholtsdómkirkju
eftir S;gurbjörn Einarsson
prófessor, Magnús Má Lár-
usson prófessor og Þóri Bald-
vinsson.byggihgameistara. AB
endurprentaði . nýlega . grein
Þóris og vill gjarna nota
þetta tækifæri til að benda
lesendum sírium á báðar hin-
ar xitsmíðárnar, sem eru hin-
ar athyg’isverðustu. AB hef-
ur áður minnzt á, hversu
vel ætti við, að endurreisn
hinnar fornu dómkirkju í
Skálho’ti yrði upphaf að auk-
inni ræktarsemi þjóðarinnar
við. þennan sögufræga stað,
og það fagnar því, að þetta
mál virðist eiga auknum á-
huga góðra manna að fagna.
SKÁLHOLTSSTAÐUR hefur
allt of lengi verið í niður-
níðslu; þegar að því er gætt,
hvaða sögulegar minningar
eru við hann tengdar. Skál-
ho’t var um ár og aldir mið-
stöð andlegs lífs á íslandi.
Biskupsstóllinn var fluttur
þaðan, þegar dimmast var
yfir íslandi af völdum myrk-
urs kúgunar og erlendrar
harðstjórnar. Og' Skálholt
hefur ekki hafizt til vegs á
ný, þrátt fyrir fengið frelsi
og sjálfstæði. Síðustu árin
hefur hins vegar orðið vart
við vaxandi áhuga á því að
reyta arfa niðurlaegingarinn-
ar úr garði Skálholts.
SUMIR AÐILAR vilja gera
Skálholt að biskupssetri á
ný. Sú ráðstöfun myndi þo
vafalaust ýmsum erfiðleikum
bundin. Þess vegna er ósenni-
legt, að af því verði í bráð,
enda þyrfti a2 athuga það
mál gaumgæfilega áður en
hafizt yrði handa. En um hitt
ættu allir að geta orðið sam-
mála, að endurreisn Skál-
holts beri að byrja á því að
reisa hina fornu dómkirkju
Brynjólfs biskups þar af rúst-
um. Hún yrði sögufrægð
Skálholts veglegur minnis-
varðí. Og það er vel farið, að
áhrifamenn innan kirkjunnar
á borð við Sigurbjörn Einars-
son og Magnús Má Lárusson
skuli leggja þeirri hugmynd
jafn drengilegt lið og þeir
hafa gert með hinum ágætu
greinum sínum í síðasta hefti
Víðförla.
Brezfcur línuveiðari
i
fyrir áfalli
í GÆMORGUN kom brezk-
ur línuveiðari til Reykjavík-
ur, sem orðið hafði fyrir miklu
áfalli í ofveðrinu. Er skipið tals
vert brotið ofan þilja og hafði
misst annan björgunarbátinn.
Línuveiðarinn heitir „Vale of
Clyde“ og var hann staddur hér
sunnan við land í ofviðrinu á
svipuðum slóðum og brezki og
þýzki togarinn, sem misstu
stýrið, og Þór og Fylkir björg-
UðU. ... : j
ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA Hannibals Valdimarsson-
ar og Haralds Guðmundssonar um lánastarfsemi veðdeildar
landsbankans var til umræðu í sameinuðu þingi í gær. Flutti
Haraldur framsöguræðu um tillöguna og lagði áherzlu á hina
miklu nauðsyn þess, að lánastarfsemi veðdeildarinnar yrði hag
að þannig, að nú gæti náð upphaflegum tilgangi sínum — þeim
að veita rífleg lán til húsabygginga til langs tíma.
se
að koma „Flying
Enterprise" í höfn
Hallinn 80 gráður
og nýtt fárviðri
VONLÍTIÐ þótti í gærkvöldi,
að takast myndi að koma
„Flying Enterprise“ til Irafnar.
Skiþið liggur í stórsjó með átta-
tíu gráða halla, og brezka flota-
málaráðuneytið tilkyimti síð-
degis í gær, að búast mætti
vi'ð nýju fárviðri í morgun.
Allar tilraunir í þá átt að
koma taug úr dráttarbátnum
um borð í „Flying Enterprise“
í gær reyndust árangurslausar,
en þess verður freistað með
morgninum, ef þess þykir nokk-
ur kostur. Takist það, verður
taugin fest í skut skipsins og
reynt að draga það aftur á bak
til hafnar.
Garlsen skipstjóri og stýri-
maðurinn af dráttarskipinu
munu kasta sér fyrir borð í
björgunábeltum, ef „Flying
Enterprise" sekkur. Þeir gátu
ekki hafzt við á þiljum uppi
allan daginn í gær vegna hall-
ans á skipinu.
♦ Þar eð langt er síðan þessi til
lágá korn fram á þinginu, eri húra
fjallar hins vegar um athyglis-.
vert atriði varðandi íbúðarhúsá,
byggihgár .og húsn,'bðisyandræð|
síðustu ára, skal hún birt hérv
orðrétt:
„Alþingi ályktar að leggjal
fyrir ríkisstjórnina að hlutasfe
til um að útlánareglum veðdeildt
arinnar við Landsbanka íslanda
verði þegar á næsta ári (þ. e. á
þessu ári, sem nú er byrjað)
breytt á þann veg, affi
unnt sé að festa fyrsta vcörétt
fasteigna í slíkurn iánum, en:
til þess að starfsemi veðdeildar’
innar nái upphaflegum tilgangi
sínum, þurfa lánsupphæðir aS
margfaldast frá því sem nú er„
og mættu helzt ekki r.ema minnai
en 50—75%, af núverandi bygg
ingarkostnaði. — Jafnframt sé
lagt fyrir ríkisstjörnina að geras
ráðstafanir til greiðrar sölu veð
deildarbréfa með sem allrsa
minnstum afföllum frá nafn-
verði þeirra“.
ÚTLÁN VEÐDEILDARINNAR
HAFA MIJÍNKAÐ.
Haraldur Guðmundsson rakti
í ræðu sinni, hvernig lánastarf
semi veðdeildarinnar. hefði ver.
ið frá því að hún var stofnuð
árið 1900. Frá því ,að hún var;
stofnuð til þess. er fyrri heima
styrjöldin hófst veitti hún lán
til húsbygginga er námu 11 millji
ónum króna. Síðan var hlé á
starfsemi hennar til ársins 1926,
en á árunum frá 192,6 til þess er,
síðari heimsstyrjöldin hófst lára
aði hún út 40 milljónir króna8
Framh. á 7. síðu. j
Hús á Vífilssté'fialínunrii eru enn í
myrkri og kulda.
SUÐURNES ERU NÚ BÚIN að fá rafmagn aftur eftiri
fjögurra sólarhringa bilun á háspennulínunni, sem hafði í för
með sér myrkur og kulda fyrir íbúa Suðurnesja. Að því er skri£
stofa Rafveitu Hafnarfjarðar tjáði AB í gær var bráðabirgða
viðgerð á línunni lokið, að undantekinni línunni á Álftanesi,
en því verki mun lokið í dag.
Á Flafnarfjarðarlínunni höfðu
brotnað fjórir staurar hjá Urr-
iðakoti, auk þess hafði hún
víða slitnað og einangranir
skemmzt. Eftir að fyrstu við-
gerðinni var lokið, komu í ljós
nýjar bilanir, og var gert við
þær á þriðjudagskvöld. 50
heimtaugar slitnuðu í Hafnar-
firði í óveðrinu, og hefur þegar
verið gert við þær.
Keflvíkingar hafa orðið hart
úti vegna bilananna, og fengu
þeir fyrst rafmagn um kl. 11 í
fyrrinótt. Þar að auki hefur
Keflavík verið vatnslaus.
Straumi var hltypt á til Grinda
víkur og annarra staða á Suður
nesjum um kl. 3,30 í fyrrinótt.
Engar nýjar bilanir hafa átt
sér stað. Viðgerðin, sem fram-
kvæmd var, var aðeins til bráða
birgða og verður hún endur-
bætt við hagkvæmari aðsíæður.
Viðgerð er ekki lokið á Vífils
staðalínunni, en á henni erur.
hús í Fossvogi og Kópavogi og
þar suður af. Alls brotnuðu og
skemmdust 38 staurar, og var
það meira en á nokkurri ann-
arri rafmagnslínu í nágrennl
Reykjavíkur. j
Flugskýli skemmdssf
á Melgerðismelum
f OFVIÐRINU um he’gina
urðu nokkrar skemmdir á flug
skýli Flugfélags íslands á Ak-
ureyri, og einnig tók þar þak
af skúr, sem var í byggingu,
og járn sleit af bröggum.