Alþýðublaðið - 23.01.1952, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 23.01.1952, Blaðsíða 4
AB-AIþýðublaðið 23. janúar 1952 Of fáir verkamannabústaðir TÍMANUM þykir það lítið, að ekki sbuli hafa verið byggðir nema 200 verka- mannabústaðir í Reykjavík síðustu tólf árin. Og það er rétt hjá Tímanum. Það er allt of lítið. Það er rétt hjá honum, að ástandið myndi nú vissulega vera annað og heil- brigðara í húsnæðismálum höfuðstaðarins, ef þó ekki nema helmingur þeirra íbúða, sem hafa verið byggðar á síð ustu tólf árum, hefðu verið verkamannabústaðir. Það hefði meira en nokkuð ann- að stutt að þvi, að halda húsa leigunni og húsaverðinu í skefjum; en okrið, sem nú viðgengst í þessum efnum, er, eins og Tíminn segir rétti- lega, ein mesta meinsemdin í fjárhagsmálum þjóðarinnar. En það er ekki aðeins síð- ustu tólf árin, sem því miður allt of fáir verkamannabú- staðir hafa verið byggðir. Áratuginn þar á undan, þeg- ar flokkur Tímans hafði lengst af forustu í stjórn landsins, voru ekki byggðir nema 170 verkamannabústaðir í Reykja vík. Alþýðuflokkurinn, sem átti allt frumkvæði að lög- gjöfinni um verkamannabú- staði, hefði viljað láta þá vera miklu fleiri; en það reyndist, þá eins og alltaf síðar erfitt að vekja áhuga borgaraflokk anna á þessu þýðingarmikla umbótamáli. Framsóknar- flokkurinn hafði þó á sínum tíma verið með í því að setja lögin um verkamannabústað ina; en úthald hans við fram kvæmd þeirra reyndist fljótt harla lítið. Hin síðustu tólf ár, þegar hann hefur sjaldn- ast haft forustu í stjórn lands ins, hefur hann meira að segja sízt reynzt þessu máli meiri stuðningsflokkur, en Sjálf- stæðisf okkurinn, sem eins og allir vita var því í upphafi afgerlega andvígur og vildi þá enga verkamannabústaði láta byggja. Framsóknaflokk- urinn var til dæmis eini flokk urinn, sem ekkert vildi fyrir þetta mál gera fyrir rúmum fimm árum, þegar lögin um verkamannabústaðina voru endurskoðuð og ákveðið var að auka fram’ag hins opin- bera til byggingar þeirra bæði í bæjum og kauptúnum. Hann greiddi beinlínis at- kvæði gegn þeirri lagasetn- ingu. Og enn sýnir Framsóknar- flokkurinn í sölum alþingis miklu minni skilning á nauð- syn fleiri verkamannabú- staða, en Tíminn gerir í rit- stjórnargreinum sínum. Al- þýðuflokkurinn flutti á því þingi, sem nú er að enda, frumvarp til laga um fjáröfl- un með það fyrir augum, að hægt yrði að byggja 200 nýja verkamannabústaði á ári á næstu fjórum árum. En þó að þar væri um algerlega raun- hæfa áætlun að ræða, enda bent á auðfarnar leiðir til þess að afla fjárins, hefur Framsóknarflokkurinn ekki verið fáanlegur til þess, frek- ar en Sjálfstæðisflokkurinn, að láta svo lítið, að ræða það frumvarp; og það er víst al- veg áreiðanlegt, að þinginu verður slitið án þess, að það fái nokkra afgreiðslu. Tíminn mun nú að vísu sjálfsagt afsaka það með því fjögurra milljóna framlagi til verkamannabústaða, sem stjórnarflokkarnir ákváðu ný- lega í sameiningu af 50—60 milljóna tekjuafgangi ríkis- sjóðs á árinu, sem leið. En sú upphæð nær skammt til móts við þær 25 milljónir, sem Alþýðuflokkurinn ætlað ist til í frumvarpi sínu að aflað yrði fyrir byggingarsjóð verkamanna á ári næstu fjög ur árin og nægt hefðu til þess að byggja 200 nýja verka- mannabústaði árlega á þeim tíma. Og ekki var við það komandi að fá framlagið af tekjuafgangi ríkissjóðs hækk að hið a’Ira minnsta. Stefán Jóh. Stefánsson flutti tillögu um, að það yrði að minnsta kosti hækkað, úr 4 milljón- um upp í 10 milljónir; en sú tillaga var felld af Framsókn arflokknum og Sjálfstæðis- flokknum í sameiningu. Þannig ber í Framsóknar- flokknum á alþingi ósköp lít ið á þeim áhuga fyrir fleiri verkamannabústöðum, sem Tíminn lýsir svo fjálglega í skrifum sínum. En auðvitað er það miklu útlátaminna, að skrifa fagurlega um nauð- syn fleiri verkamannabú- staða, en að leggja fram það fé, sem nauðsynlegt er til þess að fjölga þeim, svo að um muni. á allskonar ullarprjónavörum Undir hálfvirði verða seldar peysur fyrir konur, telpur og drengi, barnasokkar, herra sokkar, drengjavesti, kvenbolir, barnakjólar. Einnig innkaupa- og handavinnutöskur úr leðri fyrir gjafverð o. fl. o. fl. ÞÓKSBÚÐ Þórsgötu 14. Korwngur á ferðálagi. Friðrik Danakonúngur ~ ~ ferðaðist mikið á árinu, sem leið. I fyrravor fór hann í opinbera heimsókn til London og í haust dvaldi hann um skeið í Rómaborg. Myndin var tek- in af honum á götu þar. Það er Wern sjóliðsforingi, sem er með honum. Konungurinn horfir ekki neitt blíðlega á Ijósmyndar- ann. En það fylgir nú einu sinni tign hans og embætti, að vera allsstaðar eltur af slíkum mönnum. Leltað nýrra aðferSa við verknn og geymslu síldar FULLTRUAR frá síldveiðí- þjóðum í Evrópu að íslending- um undan teknum sátu ráð- stefnu í London í september s. 1. til þess að athuga möguleika á aukinni neyzlu á óíldarafurð- um og verkun síldar til útflutn ings til hitabeltislahdanna og þá sérstaklega Afríku cg Asíu. Þó að síldarlýsi hafi að jafn- aði verið í háu verði og mikjl eftirspurn eftir því, hefur geng ið frekar treglega að selja síld til neyzlu, bæði vegna mikillar síldveiði undanfarin ár og svo vegna þess að mtnkaðurinn í Rússlandi og Eystrasaltslöndun um og Póllandi .er iokaður síð- an Rússar lögðu þessi ríki und- ir sig. Síldveiðiþjóðirnar á Atlants hafsströnd Evrópu, Bandaríkin. og Kanada vinna nú að því í sam einingu að finna uðferðir sem gera útflutning á síld til hita- beltislandanna mögulegan, en. það er mörgum annmörkum háð vegna þess að erfitt er að flytja síld og annan fisk bangað. 111 útíendiiHgum veitfu lenzkur rikisbor AB — Alþý3ubla3iS. Útgefandi: Alþ.ýSuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Auglýsingastjóri: Emma Möller-----Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. — Auglýsinga- sími: 4906. — Afgreiðslusími: 4900. — AlþýSuprentsmiðJan, Hverfisgötu 8—10. ÞRJATIU OG SJÖ útlend- ingum var veittur íslenzkur ríkisborgararéttur með lögum, sem samþykkt voru á alþingi í gær. Langflestir þessara manna eru fæddir erlendis. Nöfn þeirra, sem ríkisborg- ararétt öðlast samkvæmt lögun- um eru þessi: 1. Bay, Léif, Jan Agnar Axel prentmyndasmiður í Reykjavík, fæddur 7. sept. 1922 í Dan- mörku. 2. Berlin, Johannes Erik Fri- dolf, verkamaður í Reykjavík, fæddur 4. janúar 1916 i Finn- landi. 3. Blumenstein, Kurt Karl Andreas, húsgagnanmiður í Reykjavík, fæddur 28. janúar l 1908 í Þýzkalandi. 4. Bröring, Franci.sca Elisa- beth Maria, nunna í Hafnarfirði, fædd 13. júlí 1910 í Hollandi. 5. Eilertsen, Isak Jentoft Dag- finn, sjómaður, Reykjavík, fæddur 23. ágúst 19:i0 í Noregi. 6. Förelund, Ingvald, verka- maður í Reykjavík, fæddur 1. maí 1920 í Noregi. 7. Halldóra Elíti Jónsdóttír, saumákona á Akureyri, íædd 10. október 1928 á ídandi. 8. Hansen, Harald, rafvirki i Reykjavík, fæddur 17. júní 1908 í Noregi. 9. Hillers, Börge, mjóikur- iðnaðarmaður á Selfossi, fædd ur 3. júní 1915 í Danmörku. 10. Hirst, Karl Ileinrich MaX Moritz, járnsmiður í Reykjavík, fæddur 31. júní 1907 í Þýzka- landi. 11. Husbý, Oskar Ingmar, verkamaður í Reykjavík, fædd- ur 29. október 1913 í Noregi. 12. Hiiter, Margarethe Justine Anna Elisabeth, saumakona á Akureyri, fædd 27. desember 1911 í Þýzkalandi. 13. Juul, Thyra Marie, lyfja- fræðingur í Reykjavík, fædd 1. marz 1897 í Danmórku. 14. Keil, Max Robert' Hein- ríeh, skrifstofumaður í Reykja— vík, fæddur 14. januar 1908 í Þýzkalandi. 15. Knauf, Edvard Carl Wal- ter, blikksmiður á ísafirði, fæddur 28. marz 1910 í Þýzka- landi. 16. Kummer, Gannar Paul, verkamaður í Grindavík, fædd- ur 3. október 1934 i Þýzkalandi. 17. Kummer, Kristmundur fæddur 8. ágúst 1933 á íslandi. Iierbert, nemandi í Grindavík, 18. Larsen, Kristoffer And- reas, verkamaður í Reykjavík, fæddur 21. septpmber 1918 í Noregi. Framhald á 7. síðu. VITINN á Elliðasy hefur ver ið færður í nýtt hús á Heiðna- bjargi, austast og hæst á eynni, 070°, 630 m frá gamla staðnum. Staður: 65°08'44" n.br., 22°48' 24" v. Ig. Ljóseinkenni, sjónar- lengd og logtími eins og áður. Ljóshæð: 47 m. Vitahús: 4,5 m hár, grár, þrístrendur turn með 2,9 m háu, gráu ljóskeri. Ljóshorn eru þannig: Hvítt 075°—087 0 fhilli Hösk- uldseyjar og Kópaflagna. Grænt 087°—118° yfir Kópa :0ögur. Hvítt 118°-—126° rrúlli Kópa flagna og Breka. Rautt 126°—152° yfir Breka og Lágaboða. Hvítt 152°—156J rr.illi Lága- boða og Lónsskerja. Grænt 156°—323.’ frá Lóni að Steinaklettum. Rautt 320°—075° vestan við Steinakletta. Aðvörun: I hvíta ljóshorninu 152°—156°, milli Lágaboða og Lónsskerja, svo og suðurvestur af Álaskerjum, eru grunn, sem brýtur á í miklum sjó. Forgangsréttur meistara og kan ata til kennslu íslenzkra fræð FRUMVARPIÐ um forgangs rétt kandidata frá Háskóla Is- lands til embætta, varðandi kennsluréttindi þeirra, sem lokið hafa prófi í íslenzkum fræðum, eða A.B.-prófi, var ssinxþykkt í neðri deild fyrir hslgina og afgreitt sem lög. Meginefni hinna nýju lagaá- kvæða er það, að þeh', sem lok- ið hafa meistara- eða kandidats prófi í íslenzkum fræðum við heimspekideild háskólans, skuli að öðru jöfnu hafa A rgangsrétt til kennslu í íslenzkri tungu, ís- lenzkum bókmenntum og ís- landssögu við alla framhalds- sltóla, sem kostaðir eru eða styrktir af ríkisfé eða sveitarfé, nema kennsla á unglingastig- inu sé í framkvæmdinni í hönd um barnaskóla, og þó því að- eins, að kennsla í þessum grein um nemi a. m. k. hálfu kenn- arastarfi eða sérstakur kennari sé ráðinn til starfsins, enda skuli þeir að öðru leyti full- nægja þeim kröfum um mennt- un kennara við gagnfræða- og menntaskóla, sem gerðar eru i lögum. Þá skulu þeir, sem lokið hafa B.A.-prófi við heimspekideild háskólans, með hliðstæðum hætti njóta forgangsréttar til kennslu við skóla gagnfræða- stigsins og við sérskóla í þeim greinum, er próf hvers þeirra um sig tekur til, enda fullnægi þeir að öðru leyti þeim kröfum um menntun kennara við gagn- fræðaskóla eða menntaskóla, sem gerðar eru í iögum. Þeir standa þó að baki peim mönn- um, er fyrri málsgrein getur, um kennslu í íslenzkum fræð- um, og eigi framar þeim, er lok ið hafa við háskóla fullnaðar- prófi með kennsraréttindum í þeim greinum, er B.A.-prófið lýtur að. Þó standa B.A.-prófs- menn eigi framar þeim kenn- urum, er lokið hafa fullnaðar- prófi frá erlendum kennarahá- skólum. Kennsluréttindi þeirra manna, sem áður hafa hlotið þau, skulu vera óskert. AB 4

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.