Alþýðublaðið - 23.01.1952, Side 5
Jón Hjálmarsson:
iðir til aff sigr
ÞAÐ ER MÁLA SANNAST,
að sjaldan hefur horft uggvæn
legar um afkomumöguleika al-
þýðu manna en einmitt nú.
Hvaðanæva berast fregnir um
ördeyðu atvinnulífsins ásamt
skilmerkilegum upplýsingum
um atvinnutekjur verkamanna,
sem undantekningarlaust eru
xnjög lágar, ærið oft allt niður
í nokkur hundruð krónur á
mánuði. En það ber vitaskuld
skýlaust vitni þess, að mögu-
leikar verkafólksins til að sjá
sér og sínum fyrir sæmi’egu
lífsframfæri eru þar með að
engu orðnir.
VESTURLANÐ.
Vestfirðir munu vera sá hluti
landsins, sem einna harðast
hefur orðið úti við atvinnuleys
ið. Á Bíldudal fór nýlega fram
atvinnuleysisskráning. Kom þá
í Ijós, að þeir fjölskyidumerm,
sem skráðir voru atvinnulaus-
ir, höfðu aðeins haft 200 kr.
í október til framfæris hverj-
um fjölskyldumeðlim. Ekki
munu nærri allir atvinnulaus-
ir hafa mætti til skráningar,
og kunnugum ber saman um,
að tekjur alls þorra verkafólks
þar séu mjög svipaðar tekjum
þeirra, sem til skráningar
mættu. Á ísafirði má segja, að
um lengri tíma hafi verið um
algert atvinnuleysi að ræða.
Þar byggja bæjarbúar afkomu
sína einvörðungu á fiskveiðum
og fiskverkun. Hraðfrystihús
og aðrar fiskverkunarstöðvar
standa auðar og aðgerðalausar,
aðallega sökum hráefnaskorts,
því að fisklaust er á grunnmið
um að kalla. Algerlega gegnir
sama máli um önnur kauptún
þar vestra, svo sem Súðavík,
Flateyri, Patreksfjörð og Bol-
tmgarvík.
mjög svipað því, sem hér hefur
verið lýst.
AJlir bæir og þorp, sem at-
vinnuleysið leggur nú sína
dauðu hönd á, eiga það sameig
inlegt, að allir afkomumögu-
leikar íbúanna byggjast á fisk
veiðum og fiskverkun. Víðast
hvar eru myndarleg hraðfrysti
hús og aðrar fiskv’erkunar-
stöðvar fyrir hendi. Til bygg-
ingar þeirra hefur verið varið
miklu fjármagni. enda hefur
alþýða manna tengt allar von-
ir sínar um stöðuga vinnu og
örugga lífsafkomu við sleitu-
iausan rekstur þeirra. Nú hef-
ur hins vegar alger stöðnun
orðið á rekstri þessara fyrir-
tækja. Fyrir verkafóikið er
ekki í annað hús að venda,
engin önnur atvinnutæki eru
fyrír hendi, sem veitt geti fólk
inu atvinnu í staðinn. Þess
vegna er ástandið svo geigvæn
legt, atvinnuleysið 1 algleym-
ingi og skorturinn á næsta leiti.
Þessari stöðvun á rekstri fisk-
vinnslustöðvanna veldur aðal-
lega hráefnaskortur. Fiskafli
hefur að undanförnu gersam-
lega brugðizt fyrir Vestur- og
Norðurlandi, þannig að enda
þótt bátar hafi róið, þá hafa
þeir á engan hátt getað séð
vinnslustöðvunum fyrir nægi-
legu hráefni. Og vándinn ligg
ur í því, hvernig hægt sé að
skapa þeim nægilegt hráefni
til vínnslu.
REYKJAVÍK OG AKUREYRI
Reykjavík og Akureyri hafa
sérstöðu miðað við aðra bæi,
sökum þess að þar er um all-
mikinn og fjölbreyttan iðnað
að ræða. Iðnrekstur er mun ör-
uggrari atvinnugrein en sjáv-
arútvegurinn, því að hann er
hvorki háður tíðarfari né afla-
leysi. Ekki er þó svo að skilja,
að atvinna sé hlutfallslega
mun meiri í Reykjavík og Ak-
ureyri. Það er sannast sagna,
að atvinnuleysi ■ verkafólks við
a’’rnenna vinnu er á báðum
þessum stöðum nú orðið allveru
legt, en við það bætist, að iðn-
aðuri.nn hefur dreigizt mjög til
fi nnanlega saman á báðum þess
um .stöðum. Á Akureyri mun
rosk’ega 100 manns hafa verið
sagt upp vinnu í haust af þess-
um orsökum. Verksmiðjurekst
u- í Reykiavík hefúr goldið
slíkt afhro'ý sem kunnugt er,
að af um'1000 manns, sern um
þetta leyti í fyrra hafði vinnu
í yerksmiðjum. vinna þar nú
ekki nema um 500. Þess ber
enn fremur að gæta, að í fyrra
höfðu allmargar verksmiðjur
orðið að segia upp nokkru af
fólki vegna hráefnaskorts, svo
að fækkunin er raunvefu’ega
nokkru meiri en. þessar tölur
gefa til kyrma, miðað við full-
kominn rekstur viðkomandi
fyrirtækja.
Táknræn einstök dæmi í
þessu sambandi eru, að t. d. í
skóiðnaðinum unnu um 120
manns í fyrra, en nú aðeins 20,
og í uTarverksmiðjunni á Ála-
fossi er réttu hundraði manns
færra nú en um þetta leyti
í fyrra.
AÐGERÐALEYSI RÍKIS-
STJÓRNABINNAR.
Þessar staðreyndir skýra sig
sjálfar að fullu, og engum efa
er það undir orpið, að nú er
þörf skjótra átaka, ef þjóðin á
ekki að bíða hið mesta tjón.
Öll von sérhvers þjóðfélags um
efnalega velmegun byggist á
sköpun verðmæta, og þeim mun
meiri sem verðmæta öflunin
er. þeim mun betri verður af-
koma einstaklingsins og þjóð-
arheildarinnar. Fari hins veg-
andi eða stöðvist að einhverju
ar verðmæta öflunin minnk- í
leyti, er vá fyrir dyrum. og
verði hún viðvarandi, er voðinn
vís. Því er óhætt að fullyrða,
að mesta sóun verðmæta í
hverju þjóðíélagi sé atvinnu-
leysið.
Hins vegar fer því þó fjarri,
að stjórnarvöldin í landinu
hafi tekið þetta alvörumál föst
•um tökum. Þvert á móti hefurj
venjulegast verið ta’að’ fyr:r !
daufum eyrum, þegar atvinnu-
leysinu hefur verið lýst, og:
raunhæfar aðgerðir til að bægja ;
því frá hafa engar verið gerð- ]
ar, eins og. gleggst sést á því, i
að atvinnuleysið fer sífellt vax- j
andl. Samt sem áður eru það j
þó valdhafarnir einir, sem hafa 1
tök á raunhæíum aðgerðum í j
þessu efni. Stundum er því líka ‘
haldið fram, að því er virðist
til þess að afsaka aðgerðáleysi j
þeirra, að atvinnuleyslð stafi
af þrálátum áflabresti eúivörð j
ungu, og sé það því óviðráðan- j
legt. Það er að vísu alveg rétt, ;
að þrá’átt aílaleysi er veruleg
orsök þess, hvernig kömið er. !
Hins vegar er atvinnulevsið i
•jafn óbærilegt verkafóiki og
jafn hættulegt efnahagsaíkomu j
þjóðarheildarinnar, hver sem I
orsökin er, og jafn sjálfsagt, I
að ekki sé látið bíða að koma j
í veg fyrir skaðvænlegar af- j
leiðingar þess.
Fundur fullskipaðrar stjórn
ar Alþýðusambands íslands,
sem haldinn var um miðjan
íróvember s. 1., tók þessi mál til
ýtarlegrar athugunar, og í á-
lyktun . fundajins er bent á
nokkrar leiðir til útrýmingar
atvinnuleysinu, t. d. á nauðsyn
þess að togararnir leggi afla
upp hér á landi til fullrar verk
unar, sömuleiðis, að afla þeirra
verði dreift þannig, að við það
skapist sem almennust atvinnu
aimagns-
750 watta kr. 147.00.
1000 watta með’ skiptirofa i
500 watt kr, 190.00.
1500 watta með skiptirofa í
750 watt, kr. 215.00.
Sendum heim.
Vélá- bg raftækjaverzlunin
Bankastræti 10. Sími 6456.
Tryggvag. 23. Sími 81279
%
. að Uthlíð 13
nú og framvegis: Barna_
sokkar, hosur. nærföt, og
bomsabuxur og herravesti
o. fl. Islenzkt band (e.kki
lopi). Einnig er prjónað eft
ir pöntun úr útlendu garni
og einnig tekið í prjón úr
tillögðu.
Prjónastofan Máney,
aukning, enn frernur, að betur
verði hlúð að Iðnaðinum en
verið heíur.
IÐNAÐURINN.
Ekki verður það með sanrd
'sagt. að' óviðráðanlegar orsakt?
valdi því, að iðnaðurinn í land
inu heíur dregizt svo saman,
að í ærið mörgum tilfellum
megi kalla a’gera stöðvun. Or-
sök til þess er sú. að leyfður
hefur verið skipulagslaus inn
fiutningur á fullunnum iðnað ■
arvörum á sama tíma og iðnað
inum hefur ekki gefizt kostur
á nægilegu lánsfé til reksturs
síns og ti1 kaupa á nauðsynleg
um hráefnum. Þetta og þetta
eitt orsakar stöðvun iðnrekst
ursins og þá um leið hitt, ao
iðnverkafólki er nú í stórum
stil beinlínis bægt frá því að
vinna fyrir sér og leggja urn
leið fram krafta sína við áS
skapa þjóðinni verulega aukin
Framhald á 7. síðu.
NORÐURLAND.
Á Norðurlandi hefur sömu-
leiðis verið mjög tilfinnanlegt
atvinnuleysi að undanförnu,
tekjur verkamanna af sumar-
atvinnu mjög rýrar sökum þrá
láts aflabrests á síldveiðum.
Strax og síldavertíð lauk,
myndaðist atvinnuleysi í stór
um stíl norðan lands, en sökum i
aflabrests á vertíðinni, voru
sumartekjur verkafólksins
mjög rýrar, höfðu aðeins nægt
íyrir nauðþurftum líðandi dags
og var því fyrirsjáanlegt, að
langvarandi atvinnuleysi væri
fólkínu óbærilegt. Þar er nú
hið hörmulegasta ástand. Á
Siglufirði hefur t. d. verið gjör
samlega atvinnulaust síðan síld
arvertíð lauk. Atvinnuleysis
skráningu er nú nýlokið á Ól-
, afsfirði. Þar létu 80 manns skrá
sig atvinnulausa með á þriðja
hundrað manns á framfæri
sínu, og vitað er þó um all- j
marga atvinnulausa verkamenn
og konur, sem eigi mættu til
skráningar. Á Sauðárkróki
munu tekjur fjölmargra verka 1
manna 8—9 fyrstu mánuði árs 1
ins, sem leið, vart hafa farið
fram úr 3ja mánaða launum,
og á Drangsnesi og Hólmavík
á Ströndum hefur verið algert
atvinnuleysi frá því í sumar,
svo að við liggur hreinu neyð-
arástandi. Þannig mætti léngi
telja og fara stað úr stað kring
um all land, alls staðar er sama
sagan. Og enda þótt bæja og
kauptúna á Austurlandi hafi
ekki verið getið hér sérstak-
lega, þá er atvinnuástandið þar
hafa tryggt bifreiðar sínar hjá Samvinnutryggingum
og njóta hinna góðu kjara, sem félagið býður.
212 319 kr.
Samvinnutryggingar útbluta arði sínúm til félags-
manna, og hlutu þeir, sem tryggja bifreiðar sínar hjá
félaginu, 212.319 krónur, á tveimur árum, en það sam-
svarar 5% afslætti af endurnýjunariðgjöldum.
320 000 kr. afslátlur
Samvinnutryggingar tóku upp þann sið, að gefa þeim
bifreiðaeigendum, sem ekki valda skaðabótaskyldu tjóni
á ákveðnu tímabili, ríflegan afslátt af iðgjöldum bif-
reiðanna. .....
Þannig voru greiddar í afslátt 320.000 krónur á tveim
árum og eru það ekki lítil hlunnindi fyrir örugga öku-
menn.
Bifreiðastjórar! Setjið ykkur það takmark á hinu
nýbyrjaða ári að draga stórlega úr árekstrum og
slysum og tryggið ykkur þannig verulegan afslátt
af tryggingagjöldum bifreiðanna.
101
7010
«/ Skrifstofur í Sambandshúsinu. — Umboðsmemi um alít land.
tlllUIII
AB 5