Alþýðublaðið - 24.01.1952, Síða 1

Alþýðublaðið - 24.01.1952, Síða 1
ALÞY9DBLABIB r (Sjá 8. síðu.) XXXIII. árgangur. Fimmtudagur 24. janúar 1952 18. tbl. a ttr Þyrilvœngjfi í stað sjúkravagns. HjúkrunariiS þjóðanna í Kóreu notar nú þyrilvængjur í stað sjúkravagna t'l þess að flvtia særða menn af vígvöllunum. Á myndinni er verið að bera einn hinna særðu upp í þyrilvægjuna. Það er efnislega samþykkf á fil- lögu Alþýðuffokksins á dögunum ------4------ Gert ráð íyrir IjámiSingu af þessu fé fil frysfihúsa á Sigiufirði og Ísafirðí HHHJOfr | Hinnisblaðum ! verzlunarokrið ALÞINGI samþykkti í gær að heimila ríkisstjórn- inni að verja allt að 4 millj. kr. til þess að bæta úr ; BIFREIÐAVARAHLUTIR, j sem kosta 100 kr. í útsölu, liefðu kostaS S8 kr., ef verð- ; lagsákvæðin væru en í gildL ; Helztu liðir verðsins eru j þessir: ; Innlcaupsverð 30 kr. ; Tollar og söluslsa'.tur 19 — j Bátagja’d 17 — | Álagning 28 — ; (Þar af álagningarhækkun ; vegna afnáms verðlags- I ákvæða 12 kr.) : Hvað segja bifreiðaeig- ■ endur um, að þuría að greiða j 100 kr. fyrir hlut, sem kost- í ar 30 kr. í innkaupi? STJÓRNARFLOKKARNIR felldu í gær fil'ögu Haralds Guðmundssonar og Gylfa Þ. Gíslasonar usn ráðsíafanir til at- vinnuaukningar í Reykjavík. En forsætisráðherra skýrði hins vegar frá því, a‘ð unnið væri að úrbótum í því sambandi. p',vinnuörðugleikum á landinu á þann fiátt* er hún i telur heppilegast. Cg er þetta efnisiega samþykkt á tiilögu Alþýðuflckksins um 4 miilj. kr. framlag til atvinnuaukningar í kaupstöðum cg kauptúnum. Tillaga sú um þet.'a efni, er hlaut samþykki þingsins, var breytingarti laga frá fjárveitinganefnd við tillögur ráðherranna tveggja um hraðfryh'ihús á Siglufiiði. En til þess mun vera ætlazt, að af þessu fé njóti bæði Siglufjörður og ísafjörður fjárhagslegrar aðstoðar til að koma upp hraðfrysliliúsum, og er þó umfram þær þarfir nokkurt fé, um 1 millj. lcr., til at- vinnuaukningar annars staðar. Ti’laga Haralds og Gylfa um þetta efni er fyrrihluti breyt- ingartillögu þeirra við hrað.-s. frystihúsatillögu ráðherranna tveggja, sá hluti hennar. er kom til atkvæða. Hann hljóðar svo: „Enn fremur skorar alþingi á ríksstjórnina að hlutast til um, að hraðfrystihúsum og fiskvinnslustöðum í Reykjavík verði séð fyrir nauðsyn’egu rekstrarfé, til þess að togarar í Reykjavík geti lagt afla sinn þar á land til vinnslu, og að Þinglausnir á s ÞINGLAUSNIR eiga að fara fxam á alþingi í dag. Fund um lauk í efri deld í gærkvöldi, en síöasti fundur í neðri deilcl að þessu sinni verður árdegis í dag. Þinglausnir fara fram síðdegis. --------——------- Veðurútlitíð í dag: Norðausían kaldi og víðast léttskýjað. iðnaðarfyrirtæki þurfi eigi að fella niður starfsemi vegna skorts á rekstrarfé. Jafnframt beiti ríkisstjórnin sér fyrir því,' að nú þegar verði hafizt handa um þær byggingaframkvæmd- ir í Reykjavík, sem fé hefur verið veitt til í fjáriögum, svo sem byggingu iðnskóla, heilsu- verndarstöðvar og bæjar- • spíiala, og að geíinn verði frjáls innflutningur á nauðsynlegum. hráefnum til íslenzks iðnaðar." ■ Haraldui spurðist fyrir um 1 það í umragðunum um atvinnu leys'smálin á aiþingi í gær, | hvað ríkisstjórnin ætlaoi að | gera til að bæta úr atvinnu- ! levsinu í Reykjavík, hvort rekstrarfé yrði útvcgað fisk- vinnslustöðvumim og hvað liði greiðslu á framlagi ríkissjóðs tT byggingafrarnkvæmda. Varð forsætisráðherra fyrir svörum og kvað atyinnumála- néfnd fullírúaráðs verkalýðs- félaganna hafa rætt við stjórn- ina um úrræði mjög svipuð þeim, sem um er rætt í tillögu Haralds og Gy’fa. Þá bjóst hann við, að ekki mundi standa á fjárfrámlt"gv.rn 'ríkissjóðs til þeirra byggingá, sem fé er lagt til á fjárlögum. Tillaga ráðherranna tveggja var, eins og skýrt hefur verið frá áður hér í blaðinu, um það, að veita IV2 milljón til hrað- frystihúss á Siglufirði og heim- ila stjórninn að veita ábyrgð fyrir sömu upphæð til þess. Hannibal Valdimarsson bar þá strax fram breytingartillögu urn það, að ísaf jörður nyti sömu kjara um byggingu hraðfrysti- húss. Og Haraldur Guðmunds- son og Gylfi Þ. Gíslason báru fram aðra breytingartillögu um margháttaðar ráðstafanir til atvinnuaukningar í Reykja- vík, svo og um 4 millj. króna framlag af ríkisfé til atvinnu- aukningar almennt. Allar þessar tillögur komu til athugunar í fjárveitinga- nefnd, og varð samkomulag um það að fa’last á fjögurra millj króna tillöguna, en láta í henni felast væntanlegar fjárveiting- ar til hraðfrystihúsa bæði á 'SiglufjrS og ísafýrði. Lagði nefndin til, að tillagan orðaðist svo: „Alþingi ályktar að heim- i’a ríkisstjórninni að verja allt að 4 milljónum króna íil þess að bæta úr atvinnu- örðugleikum í landinu á þann hátt, er hún telur heppilegast. Ríkisstjórniu getur sett þau skilyrði fyrir aðstoð þessari, um mótfram- lög og annað, sem hún telur nauðsynleg.“ Nefndin taldi, að engin þörf væri á því að veita stiórninni sérstaka heimild fyrir ábyrgð- um í þessu sambandi, þar eð henni væri heimilt samkvæmt fjárlögum að ábyrgjast lán allt að 8 milljónum króna til | hraðfrystihúsa j verksmiðja, og og fiskimjöls- væri sjálfsagt I að nota þá heimi’.d í því skyni, ef þörf krefur. Hannibal Valdimarsson lýsti yfir því í umræounum um til- lögu þessa í sameinuðu þingi í gær, að hann tæki aftur breyt- ingartillögu sína í trausti þess, að ísfirðingar fengju nauðsyn- legt fjárframlag til hraðfrysti- húss af þeim 4 milljónum, sem tillaga nefndarinnar heimilaði að verja til atvinnuaukningar. Og Haraldur Guðmundsson tók einnig til baka þann hluta breytingartillögu sinnar, sem fjallaði um nákvæmlega sömu fjárveiting'u. Tillaga nefndarinnar var síðan samþykkt mótatkvæða- laust. Dagsbrúnarfumfair um stjérnarkjörið DAGSBRÚNARFUNDUR verður haldinn í Iðnó í kvöld og.hefst kl. 8,30. Stjórnarkjörið í félaginu verður þar til um- ræðu, og munn fulltrúar allra hinna þriggja lista taka þátt í umræðunum. Framsögumaður C-lisíans, lista alþýðuflokksmanna, í Dagsbrún á fundinum í kvöld verður Þorsteinn Pétursson Alþýðuflokksménn í Dagsbrún. eru allir hvattir til að fjöl- menna á fundinn og mæta stund víslega. fíeimsókn III Batida ríkjanna í vor STOKKHÖLMSBLÁÐIÐ „Morgon-Tindningen“ skýrir frá því, að Tage Evlender, for- sætisráðherra Svía, hafi í hyggju að fara í þriggja vikna heimsókn til Banrlaríkjanna á komandi vori. ALÞÝÐUFLOKKURINN heldur opinberan borgara- fund í Listamannaskálanum annað kvöld, og hefst hann klukkan 8,30. Umræðuefni fundarins verða atvinnumál- in og atvinnuleysið. Ræðumenn fundarins verða fulltrúar flokksfélag- anna og verkalýðshreyfingarinnar í bænum og þar fjallað um þau mál, scm nú eru efst á baugi og valda öllum hugs andi Reykvíkingum mestum áhykkjum. Eru Reykvíkingar hvattir til að fjölmenna á fundinn, en þó einkum þeir, sem eiga allan hag' sinn undir því að stefna Alþýðuflokks ins í baráttunni við atvinnuleysið sigri. AB mun skýra nánar frá fundinum á morgun og þá birta nöfn ræðumannanna, sem þar koma fram.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.