Alþýðublaðið - 02.02.1952, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 02.02.1952, Qupperneq 7
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er hafa sýnt okkur samúð og vinarhug í tilefni andláts og jarðarfarar FRÚ RÓSU ÞOIÍGEIESDÓTTUR HÚSMÆÐRAKENNARA. Eiginmaður, mó'öir og systkini. Hafnarfirði. 1/2 ’52. Forcldrar og systkini. Hugheilar þakkir til allra ættingja og vina bæði fjær og nær fyrir auðsýnda samúð vegna hins sviplega fráfalls sonar okkar og bróður, MARTEINS R. JÓNSSONAR, er fórst af b.v. Júlí þ. 26/12 s.l. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar þökkum við af alhug fyrir hina virðulegu minningarathöfn, sömuleiðis skipstjóra og skipshöfn b.v. Júlí fyrir framúrskar- andi rausn og hugulsemi við son hans og okkur. Verið viss um, að samúð ykkar og hugulsemi mýkir hina sáru sorg okkar. Fyrsti íslenzki ríkisráðsfundurinn undir forcæti Sveins Björnssonar 1941, þá ríkisstjóra Vottum innilega þökk fyrir auðsýnda samúð og hluttekn- ingu við andlát og jarðarför elskulegrar dóttur okltar, EDÐU GUÐRÚNAR. ína og Guðni Kristjánsson. Framh. af 5. síðu. um fyrir íslands hönd. Við þess ar samningagerðir var honum það mikill styrkur, hve þaul- . kunnugur hann var orðinn ís lenzku atvinnulífi og verzlunar háttum. íslendingum, er þurftu að leita til send’Iráðsins var hann hinn ljúfasti. Ég vil í ' þessu sambandi minnast þess með þakklæti, hvílík hjáipar- hella íslenzka sendiráðið í Kaupmannahöfn var íslenzkum stúdentum, er dvöJdust v-ið nám erlendis á kreppuarunum 1931 —1933, þegar gisldeyri.sskortur rnn og yfirfærsluörðugleikarnir voru sem mestir. ]>að er eklci ofmælt, að sendiráðið bjargaði á þessum vandræöaárum sum- um íslenzku stúdentunum frá hreinum og beinum sulti Þá var sömu góðvildina fyrir að finna hjá sendiherranum siálf um og starfsliði hans við sendi ráðið. Þegar Þjóðverjar hernámu Danmörku vorið 1040 var auð- sætt að ekki yrði unnt að hál’da uppi starfi íslenzka sendíráðs ins í Kaupmannáhöfn á sama hátt og áður. Var því sendiherr ann kvaddur heim og komst hann til íslands um langa og stranga krókaleið. .\ri n 1940 — 1941 var hann ráðnnautur rík- isstjórnarinnar í utanríkisjnól um, enda langreyndastur allra íslendinga á því sviði. Á þessu ári var einrnit.t verið að skipu- Jeggja íslenzku utanríkisþjón- ustuna í miklu stærri stíl en áðúr, því að nú tóku íslending- ar utanríkismólin í eigin hend ur. Var þá komið upp nýjum sendiráðum og ræðismanna- skrifstofum allvíða'um lönd, og vann Sveinn Björnsson manna mest að þessari skipulagningu. Þegar sýnt var, að hemám Ðanmerkur gat dregizt á lang- inn var ákveðið að stofna ís- lenzkt ríkisstjóraembætti. Mun Okki neinn annar maður en Sveinn Björnsson hafa komið til mála í það embætti. Bar þar margt til, mannkostir hans og prúðmennska, löng reynsla í utanríkisþjónustu, svo og hitt, að hann hafði í tvo ára- tugi ekki tekið neinn virkan þátt í íslenzkum ctjórnmáíum. Hann var kjörinn ríkisstjóri 1941 og endurkjörinn 1942 og 1943. Þegar lýðveldi var stofn- að á íslandi 17. júní 1944 var hann kjörinn fyrsti fcrseti lýð- veldisins, og er óhætt að íull- yrða, að hann var eini maður- inn, sem öll íslenzka þjóðin gat sameinazt um án tíflits til stjórnmálaskoðana og annarrs ágreinings. Það vir ekki lítill ávinningtir. að fyrsti forseti landsins skyldi vera maður, sem naut svo óskiptrar virðing ar og vinsælda bjóðarinnar allxar. Á bernskuskeiði lýð- veldjsins var það i rauninni lífsnauðsyn að hafa í æðsia embætti landsins mann, sem enginn stvr stóð um, og var hafinn yfir allt stjórnraála- bras. Á sama hátt og Sveinn Björnsson háfði áður mótafi ís- lenzku utanríkislnónustuna mótaði hann nú stöcu hins ís- lenzka þjóðhöfðingj.’i. Þetta var að ýmsu levti mikill vandi. Hér varð að sigla milli skert og báru. íslendingar kuona að vísu enn sem fyrr vel að meta vrrðu lega og hofmannlega fram- göngu, en allt titlaiog og strang ar siðareglur í líkingu við er- lenda hirðsiði er þeim íjarri skapi. ísienzki þjóðhöfðinginn verður að vera alþvðlegur höfð in.si, ef hann á að vinna ást- sæld þjóðarinnar. Af vinsæld- um Sveins Björnssonar með þjóðinni má marka, hve vel honum tókst að samoina betta tvennt. Eg efast mjög um. að nokkrum núlifandi íslendingi hefði tekizt betta eins vel. Virðu ie.qur og alþýðlegvr í senn, höfði-ngi í luhd og höfðingi heim að sækja, þannig var fyrsti for- seti íslands, og bannig vilia ís- j lendingar hafa foi'seta sína. — j Sveinn Björnsson kvæntizt 1908 Georgíu Hoff-Hansen, lyfsala og jústisráðs i Hobro á . Jótlandi. Það er almanna mál, j að hin fvrsta forsetafrú íslend-1 bera og maður hennar, alúð- leg, alþýðleg, glaðvær og gest- risin. Á því ér enginn vafi, að hún hefur verið forsetaí um ó- metanlegur styrkur í störfum i hans. Börn þeirra hjóna eru ses. Björn, kaupmaður í Suð- ur-Ameríku, Anna, gift Sverri Paturssyni dýralækni í Dan- mörku, Hendik, sendiráðs- ritari í París, Svemn, tann -læknir í Kaupmannahöfn, Ól- : maður lögfræðingur, og Elísa- i bit gift Davíð Jónssyni stór j kaupmanni. j Þrátt fyrir miklar ann- ir um dagana hafði Sveinn i Björnsson tíma til að sinna | ýmsum öðrum áhugamál- og stundaði fyrr á árum mik- ið laxveiðar. Á .úðustu árum hans beindizt áhugi hans mjög , að búskapnum á Bessastöðum. sem hefur komizt í hið blóm- legasta horf, eftir að þar varð forsetasetur. vSveinn Björnsson forseti var gæfumaður. Hann lifði stór- j stígasta framfaratímabil, sem orðið hefur á íslandi, ekki sem óvirkur áhorfandi, heldur sem virkur þátttákáridi í flestum merkustu fi-arn fara mály num. Hann mótaði íslenzka utanríkis þjónustu og hann varð fyrsti innlendi þjóðhöfðinginn á ís- iandi, og gegndi því starfi á bann hátt, að hann ávann sér traust og ástsæld alþjóðar hér á landi og vinsældir og virðingu erlendis. Hann skapaði forseta- embættinu virðingu. sem ekki verður metin til fjár. Skarð hans verður vandfyllt, við eig um því miður ekki völ á mörg um slíkum mö-nnum. Hann ‘sameinaði flesta bá mann- kosti. sem íslenzka þjóðin met' ur raest. Og fyrsta forseta ís- lands mun ávallt verða minnzt Trieð virðingu os bakklæti. Ólafur Hansson. VeðurútHtið í dag: Norðaustan stinningskaldi; úrkomulaust cn víða skaf- fer n.k. Útför KARÓLÍNU KRISTJÖNU ÁRNADÓTTUR fram frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 5. febr. kl. 2 e. h. Vandamenn. Vegna úífarar r forseta Islands, herra Sveins Björnssonar, verður verzlunum félaga vorra Iokað allan daginn í dag, laugardaginn 2. fcbrúar. Félag íslenzkra byggingarefnakaupmanna. Vegna úffarar forseta íslands, herra Sveins BjÖmssonar, verða afgreiðslur okkar og vinnustofur lok- aðar allan daginn í dag. Félag efnalaugaeigenda Vegna úffarar forseta íslands, herra Sveins Bjömssonar, verður verksmiðja vor og skrifstofur lok- aðar í dag, laugardaginn 2, febrúar. H.f. ísaga

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.