Alþýðublaðið - 17.02.1952, Page 8
Hðiuiónieikar í
Ausiurbæjarbíá
íiaii
BJÖRN OLAFSSÖN heldur
fiðlutónleika í Austurbæjar-
bíói á mánudags- og þriðju-
dagskvöld. með Undirleik Árna
Kristjánssonar. Eiu hljómleik-
ar þessir haldnir á regum tón-
listarfélagsins.
Á efnisskránni eru f'ðlulög
eftir Mozart, Paganiri. Gemini
ani, Dvorak. Beethoven og Þór
arin Jónsson.
losning í iélagi
járniðnaðarmanna
STJÓRNARKOSNINGIN í
Fétagi járniðnaðarmanna í
Reykjavík heldur áfram í dag.
131 kaus í gær af 270 á kjör-
skrá. Járniðnaðarmenn eru
hvattir til að koma snemma í
dag á kjörstað, sem er í skrif-
stofu fé’agsins. Kosið er frá kl.
10 f. h. til kl. 6 e. h.
íslenzkum sfúdenfi
ireitfar 3200 norsk-
ar krónur.
SAMKVÆMT tilkynnlngu
frá norska sendiráðinu í
Reykjavík, hafa Norðmenn á-
kveðið að veita íslenzkum stú
dent styrk, að fjárhæð 3200
norskar krónur, til háskóla-
náms í Noregi næsta vetur.
Koma einkum til greina stú-
dentar, er nema vilja norska
tungu, sögu Noregs, norska
þjóðmenningar- og þjóðminja
fræði, dýrafræði, grasa- og
jarðfræði Noregs. kynna sér
norsk réttarfar og bókmennt-
ir.
Styrkþegi skal dvelja við
nám í Noregi a. m. k. 8 mán-
uði á tímabilinu frá 1. septem-
ber til maíloka.
Þeir, sem kynnu að -hafa hug
É að hljóta þenria styrk, eiga
að senda umsóknir til mennta
málaráðuneytisins fyrir 1. apríl
n, k., ásamt afriti af prófskír-
teini og meðmælum, ef til eru.
Ðr. Sigurði Þórarins-
syni boðið í fyrirlestra
för til Bretlands
DR. SIGURÐI ÞÓRARINS-
SYNI hefur verið boðið til
Bretlands af Lundúnáháskóla'
til þess að flytja þar fyrirlestra
um stórborgum Bretlands og
ekki einungis flytja fyrirlestra
í London, heldur ýmsum öðr-
um stórbeorgum Bretlands og
háskólabæj um. Með erindun-
um mun Sigurður sýna skugga
myndir og í sumum tilfeilum
kvikmyndir.
Sigurður tók sér far með
G-ullfossi í gærmorgun, og
mun dve’ja á Bretlandi fram
í apríl.
FUNDUK í dag klukkan 2
e. h. í stjórnmálaskóla ungra
jafnaðarmanna. Gylfi Þ.
Gíslason talar um jafnaðar-
stefnuna. Mætið vel og stund
víslega.
Með hverju eiga Dagshrúnarmenn að
að greiða húsaieigu, fatnað, skatta
og önnur gjöld, er 400 krójiur eru
farnar í fæði á viku?
MORGUNBLAÐIÐ birti í gær uppskrift á vikufæði
fjögurra manna fjölskyldu í Reyk.vjavík og kemst að
þeirri niðurstöðu, að það kosti kr. 400,29. En nú er viku-
kaup Dagshrúnarverkamanns ekki nema kr. 638,88, svo
að Morgunblaðið ætlar hönum að greiða allan annan
framfærslukostnað og skatta með kr. 238,5^9 á viku. Sú
upphæð mun þó fæstum endast nema fyrir húsnæði, upp-
hitun og rafmagni, og á þá Dagsbrúnarverkamaðurinn
EKKERT eftir til að greiða fatnað á fjölskyldu sína, hrein-
lætisvörur, viðhald a búslóð, opinber gjöld og annað, sem
hann kemst ekki hjá að verja fé til, þótt hann feginn
vildi. EKKERT er heldur eftir fyrir strætisvagnakostn-
aði, og er þess þó þörf, því að ekki hafa verkamenn
bilastyrki, og EKKERT heldur fyrir. skemmtunum eða
óeinum smávegis munaði; en Morgunblaðinu finnst senni-
|ega óþarft, að verkamenn veiti sér slíkt.
Og vikukaupið vérður ekki kr. 638,88, nema verka-
maðurinn liafi vinnu livern einasta virkan dag, en _nú
jru margir atvinnulausir og enn fleiri, sem ekki hafa
vinnu nema dag og dag. Hvernig ætli þeim, sem við slík
kjör búa, lítist á fæðisuppskrift og útreikning Morgun-
blaðsins? Og hvernig ætli þeim, se.m hafa fyrir stærri
fjölsicyldu að sjá en fjögurra manna, gengi að láta viku-
kaupið endast með slíkum- fæð.isreikningi?
Morgunblaðið víkur að því, að enginn fái búi sínu borg-
ið nema með hagsýni. En sú hagsýni, sem það þykist
flytja, dugar að minnsta kosti ekki Dagsbrúnarverkamanni
til að láta kaup sitt hrökkva fyrir brýnustu nauðþurft-
um, þótt vinnu hefði á hverjum'degi. Svo gífurleg er dýr-
tíðin orðin, að jafnvel þetta óbrotna fæði, sem Morgun-
blaðið talar um, getur Dagsbrúnarverkamaður ekki veitt
sér.
En hvað um skriffinna Morgunblaðsins sjálfa? Hvað
finnst þeim um fæðisuppskrift sína? Auðvitað vantar þá
ekki peningana. En skyldi þeim ekki þykja þunnur þrett-
ándi að mega ekki næra sig á öðru alla vikuna? Og skyldi
þeim ekki finnast, að farið væri að slá í ýsuleifarnar,
sem keyptar eru á mánudegi, en matreiddar á fimmtu-
degi, ef enginn ísskápur er til á heimilinu?
Hl
ALÞY9UBLABI9
Iðnaðurinn,
Adenauer sifur
þeirra Edens,
íons og Schumans
Ferðafélagið efnir fil Ijós-
myndasýningar næsfa hausf
■———- -♦----
Sýningin verður haldin í tilefni af 25 ára
afmæli félagsins.
: .: .• . :-—♦—----
-FERÐAFÉLAG ÍSLANDS efnir á komandi liausti til ljós-
myndasýningar, sem haldin verður í Listamannaskálanum. Verð
ur hún ’væntanlegá opnuð um miðjan nóvember n.k.
.' Sýniiig þessi er haldin í til-
efhi .25. ára. afmælis Ferðafé-
lagsins. Hefur það haldið þeirri
venju að efna til Ijósmynda-
sýningar á 5 ára fresti, en féll
þó niður 1942, aðadega vegna
styrjaldarinnar og efnisskorts á
ljósmyndavörum.
Síðasta sýning var haidin í
Listamannaskálanum 1947. Þátt
fveir íslenzkir ráð-
herrar sifja ráðs-
fund Aflanfshafs-
bandalagsins.
RAÐHERRARNIi-t Bjarni
Benediktsson og Eysteinn Jóns
son eru farnir af landi burt til
þess að sitja ráðstefnu Atlants-
hafsbandalagsins. Jafnframt ráð
herrunum sækja íundinn af
hálfu íslands þeir Fétur Bene-
diktsson, sendihecra íslands í
Portugal, og Gunniaugur Péturs
son, varafulltrúi íslands í Atl-
antshafsráðinu.
táka í henni var góð og samtals
voru um 400 Ijósmyndir sýnd-
ar. Aðsókn að henni var með
ágætum og samtals sáu hana
um 6000 manns.
Ákveðið hefur verið að
myndun á næstu ljósmyndasýn
ingu verði skipt í flokka. Ber
þá fyrst og fremst að nefna
lándslagsmyndir, en fyrir þeim
hfeur Ferðafélagið hvað mest-
an áhuga vegna lantíkynningar-
starfsemi sinnar og árbókarút-
gáfu. í öðru lagi verða sýndar
litskuggamyntlir og jafnvel
kvikmyndir, er sýndar verða á
kveðna tíma á kvöldin. I.oks
verður svo öðrum myndum,
hverju nafni sem þær nefnast,
skipað í einn og samg flokk.
í landlagsmyndaflokki verð-
ur sérstök deild meö ákveðnum
fjölda mynda frá hverjum þátt
takanda, er lýsir ákveðnu
byggðarlagi eða héraði.
Búast má við að há verðlaun
verði veitt fyrir beztu myndir
í hverjum flokki.
Ef þátttaka að sýningunni
verður mjög mikil, er viðbúið
að takmarka verði íjölda sýn-
ingarmynda, og veröur þá iögð
áherzla á að sýna pær myndir,
sem ekki hafa verið hér á sýn-
ingum áður.
TÍMINN segir í gæf, að flokk-
ur sá, sem að honum standi,
hafi jafnan haft tröllatrú á
samkeppnishæfni íslenzka
iðnaðarins. Þetta lítur ágæt-
lega út í fljótu bragði. En því
miður eru verk Framsóknar-
flokksins í mikilli mótsögn
við þessi faguryrði Tímans.
Allir vita, að íslenzki iðnað-
urinn á um þessar mundir í
vök að verjast — beinlínis
fyrir atbeina ríkisstjórnarinn
ar. Tíminn neyddist meira að
segja til að játa fyrir nokkr-
um dögum, að illa og ómak-
lega væri að iðnaðinum búið,
og þá er langt gengið, þegar
Tíminn fer að segja sannleik
ann.
SÉ ÞAÐ SATT, að Framsókn-
arflokkurinn beri íslenzkan
iðnað fyrir brjósti, er það
vægast sagt furðulegt, að
hann skuli geta unað afstöðu
núverandi ríkisstjórnar til
iðnaðarins. Engum dettur í
hug, nema þá ritstjóra Tím-
ans, að ráðið til að gera ís-
lenzkan iðnað samkeppnisfær
an, sé að búa honum sem
verst skilyrði, en það hefur
núverandi ríkisstjórn gert.
Forustumenn iðnaðarins hafa
jafnvel komizt svo að orði,
að íslenzki iðnaðurinn sé á
heljarþröm, og enginn getur
efast um, hver- hafi hrint hon
um þangað. Það hefur núver-
andi ríkisstjórn gert.
BJARTSÝNI er oft góð og
blessuð, en hún getur farið
út í öfgar, og það á við um
Framsóknarflokkinn, ef hann
, ep svo trúaður á samkeppnis
hæfni íslenzka iðnaðarins, að
hann telji þennan mikilvæga
atvinnuveg þola áföll þau, sem
hann hefur orðið fyrir af völdi
um núverandi ríkisstjómar.
Ef Framsóknarflokkurinn
hefur trú á íslenzka iðnaðin
um og vill veg.hans sem mest
an, þá ætti hann að fela þing
mönnum sínum og ráðherr-
um.að slá skjaldborg um iðn
aðinn og verja hann áföllum
af hálfu ríkisstjórnar aftur-
haldsins. Það væri iðnaðin
um mun meira virði en sýnd
srskrif Tímans.
EDEN, utanríkismálaráð«
herra Breta, ræddi í gær við
Adenauer, kanzlara og utanrík
ismálará'ðherra Vestur-Þýzka
lands og bauð honum að sitja
ráðstcfnu utanríkismálaráð-
herra þríveldanna, en bún
hefst á morgun.
Vitað er, að meginviðfangs-
efni ráðstefnu þeirra Edens,
Achesons og Schumans, verð<
ur að reyna að ná samkomu-
lagi um Þýzkalandsmálin fyr-
ir fund Atlantshafsráðsins I
Lissabon. en hann hefst á miö
vikudag.
I
Aflasöiur 8 togara
frá 6. febrúar
f:
SAMKVÆMT frásögn í blaS
inu ,,Víði“ hafa átca íslenzkiri
togarar selt afla sinn á Bret-
landi frá 6.—13. íebrúar, og
hafa sölur þeirra verið sem hérl
segir:
Keflvíkingur, Kefiavík, 206
lestir, 6752 stpd. Hafliði, Siglu-
firði 225 lestir, 7695 stpd. Ól,
Jóhannesson, Patr. 211 lestir,,
7119 stpd. Elliði, Siglufirði 19’?
lestir, 6992 stpd. Karlsefni,
Reykjavík 201 lest, 7732 stpd.
Askur, Rvík 244 lestir, 9256
stpd. Hvalfell, Rvík 202 lestir,
9515 stpd. Jón Þorláksson, Rvíki
240 lestir, 10246 stpd.
Sáftanefnd seff ? |
í fogaradeiluna ■
SAMNINGAUMLEITANIK
í togaradeilunni stóðu fram
til klukkan 3 í fyrrinótt.
Engir samningafundir vora
haldnir í gaer, en í dag kl. 2
cr fundur ákveðinn. I
Á þessum fundum leitai?
stjórnskipuð sáttanefud fyrir
sér um samkomulag, en hana
skipa ásamt Torfa Hjartar-
syni, sáttasemjara ríkisins,
Emil Jónsson alþingismaður
og Gunnlaugur Briem stjórm
arráðsfulltrúi.
Spila og skemmti-
kvöldá
dagskvöldið
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN
í Reykjavík efna tii spila- og
skemmtikvölds í Alþýðuhús-
inu við Hverfisgötu næstkom-
andi þriðjudagskvóid. Spila-
keppnin, sem hafin var hjá 11.
hverfinu fyrir um það bil hálf-
um mánuði, heldur áfram á
spila- og skemmtikvöldi félag-
anna á þriðjudag. Frá öðrum
dagskráratriðum verður skýrt í
þriðjudagsblaðinu.
Félagar eru beðmr að fjöl-
menna og mega þeir taka með
sér gesti.
Veðurútlitið í dag;
Hæg suðvestlæg átt, dálít
il rigning eða súld, víða
þoka.
Flugufregn um
árás og rán i
—----- i
RANNSÓKNARLÖGREGL^
AN í Rcykjavík liefur enggi
kæru fengið út af árás þeirri^
er sagt er frá í einu dagblað-
anna í gær, að átt hafi sér stafS
í fyrrinótt. i,
Virðist þar vera um í’.ugu-
fregn eina að ræða, og er þaði
algert ranghermi, að maðui?,
sá, er fyrir árásinni átti a<5
hafa orðið, hafi komið á lög^
reglustöðina í fyrrinótt og kærfi
þar árás og rán. Rannsóknar-
lögreglan mun hafa náð tali af
manni þeim, sem talið var aS
orðið hafi fyrir árásinni, og
hafði hann ekkert að kæra. >
Skemmfun FU J
í Tjarnarcafé I
FUJ í Reykjavík efnir til
skemmtunar í kvöld í Tjarnt
arcafé uppi og hefst hún kL
9 síðdegis.
Aðgöngumiðar, sem ekk3
kosta nema kr. 15,00, fást
við innganginn. i