Tíminn - 11.06.1964, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.06.1964, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þor5teinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskriístofur í Eddu-húsinu, símar 18300—18305. Skrif- stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innan- lands. — í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Áðalfundur Stéttar- sambands bænda Það voru heldur kaldar kveðjur, sem fulltrúar á aðal- fundi Stéttarsambands bænda fengu hjá landbúnaðarráð- herra að þessu sinni. í fyrsta sinn síðan Stéttarsambandið var stofnað, flutti hann nú ekki ávarp á aðalfundin- um. í stað þess bauð hann fulltrúunum til hádegisverðar og flutti þar einhverja þá óvenjulegustu ræðu, sem sög- ur fara af við slíkt tækifæri. Ræða þessi, sem var mjög löng, var full af alls konar ádeilum og ónotum í garð samtaka bænda og einstakra bænda og hefur Mbl. því ekki treyst sér til að birta nema útdrátt úr henni. Flokks- bræður ráðherrans, sem þarna voru mættir, voru ekki sízt undrandi yfir þessari veizluræðu ráðherrans. Þótt bændur séu slíkri gestrisni óvanir, myndu þeir þó vafalítið láta þetta kyrrt liggja, ef þeim þætti ekki þessi ræða ráðherrans slæmur fyrirboði. Að mörgu leyti gat hún bent til þess, að ríkisstjórnin hygðist taka enn kulda- legar á málum bænda en áður og þessi framkoma ráð- herrans ætti að vera þáttur í því að beygja þá til undan- látssemi og hlýðni. Til þess benti ekki sízt sá tónn hjá ráðherranum, að bændur byggju við betri kjör en áður og þyrftu ekki neitt að kvarta. Það kom annars glöggt fram á aðalfundinum, að land- búnaðurinn er nú staddur í meiri hættu en nokkru sinni fyrr. Svo mikill er nú fólksflóttinn úr sveitunum. Að nokkru leyti stafar þetta. ^f svipuðum ástæðum og ann- ars staðar, að fólkið sækir til þéttbýlisins, þar sem þæg- indin þykja meiri og skyggja óeðlilega á þá kosti, sem sveitalífinu fylgja. En að verulegu leyti rekur þetta ræt- ur til stjórnarstefnunnar. Hún hefur stóraukið allan kostnað við búrekstur og bústofnun. Þess vegna gefast nú fleiri og fleiri bændur upp af f járhagslegum ástæðum, og unga fólkið treystir sér ekki til að taka við. Aðalfundur Stéttarsambandsins benti á ýmsar leiðir til að mæta þessu, en tvær kalla á skjótasta lausn. önnur er sú, að leiðrétting fáist á grundvelli afurðaverðsins, svo að opinberar skýrslur sýni ekki áfram. að bændur séu lang tekjulægsta stétt landsins. Hin er sú, að iánskjör landbúnaðarins verði stórbætt, lánin aukin og lengd og vextir lækkaðir, svo að hægt sé fyrir bændur að halda uppi framkvæmdum, er nútímabúskapur krefst. Vonandi boða ekki hinar köldu kveðjur, sem fulltrúar bænda fengu í veizlu ráðherrans, það, að ríkisstjórnin ætli að standa gegn því, að bændur fái þessar leiðrétt- ingar, sem á margan hátt eru hliðstæðar þeim sem verka- lýðssamtölcin hafa nú fengið fram. í því sambandi er alveg sérstök ástæða að árétta það, að bændur krefjast ekki neins, sem er hliðstætt grunnkaupshækkun hjá launafólki, heldur fyrst og fremsí, samræiriingar og leið- réttingar. Ef ríkisstjórnin stendur gegn þessum réttmætu kröf- uni; á það eklci aðeins eftir að bitna á bændum, heldur þjóðinni allri, því að án blómlegs og vaxandi landbúnað- ar verður ekki búið sæmilega í þessu landi. Eínsdæmi Það er einsdæmi, sem gerðist í samningum ríkis- stjórnarinnar og verkalýðsfélaganna nú, að verkalýðs samtökin skuli þurfa að knýja fram aðgerðir í húsnæð- ismálum í sambandi við kjarasamninga. En slíkt var aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálunum orðið, að þetta var óumflýjanlegt. _________________________________\ T í M I N N, fimmtudaglnn 11. júnf 1964 — Stalin kom Kínverjum í klípu með árásinni á Suður-Kóreu Rússar hafa alítaf verið ófúsir tii að efla Kínverja. Erling Bjöl er einn kumnasti sérfræðingur Dana á sviði utanríkismála. Haiiai ferðað ist áður viða um lönd og skvifaði greinair fyrir ýmis blöð, en nú er hann sögu- prófessor í Árósum. Eftirfar andi grein hans er eins kon. air ritdómur um þrjár nýjar bækur, sem fjalla um ýmsa þætti kommú'nismans, þ.e. „The Centre of the World“ eftir Robert S. Elegant, ,,Korea: the limited War“ eftir David Rees og „Social isin in One Country 1924— 1926“ eftiir E. H. Carr. MARGT er frumstætt í þjóð- lífi Kínverja, en engu að síður er Kína orðið stórveldi á ný og fram hjá því verður ekki geng- ið þegar fjallað er um málefni Asíu. Ög Kína er jafnframt orð ið heimsveldi í fyrsta sinn og á sér ákveðna stefnu gagnvart Evrópu, Afríku og Suður-Amer íku. Endurheimt stórveldisaðstöð unnar í Asíu á Kína að þakka mannmergð sinni ásamt því, að því hefir loks tekizt að sam- einast á ný. Heimsveldisaðstöð una hefir það aftur á móti öðl azt fyrir kraft aðfenginna kennisetninga. Og hvort má sin meira hið endurreista ríki eða kennisetn ingarnar? Robert S. Elegant víkur að þessu í sinni nýju bók, en hún er að því leyti sérstæð í hinu mikla bókaflóði um Kína, að hún er vel skrifuð. Elegant leggur megináherzlu á það hlutverk Maos að framhalda hinni kínversku erfð, qkki að- eins sem mótandi ríkisins, held ur einnig sem boðberi. DRAUMURINN um sæluríki á jörðu er gamall meðal Kín verja Að áliti Elegants eru núverandi „taugateygjur" í Kína síðasta en ekki sízta stig þróunar, sem hófst um það bil 900 áium fyrir Krist.“ Næsti og ljósasti fyrirrennari Maos er þó Hung Hsiuchuan. Kommúnistar dá mjög uppreisn arhre.vfingu hans, en hún var barin niður fyrir réttri öld og blóðbaðið var svo mikið, að helzt má líkja því við evrópskt stríð á okkar dögum. Sagt er, að tala fallinna hafi numið 20- 30 mtlljónum. Eftirtektarvert er, að það voru einnig aðfengnar hugsjón ir úr vestri sem Hung byggði á sitt „mikla himneska konungs ríki friðarins“. Þetta var hin kristna mótmælendahreyfing og Elegant segir, að Kínverj ar hafi þá eins og hú komið trú boðu.n hinnar vestrænu menn ingar í bobba með því að taka orð þeirra alltof bókstaflega MARXISTÍSK bókstafstrú Kínverja er samt em áður að- eins cin af ástæðunum til á- rekstranna milli stjórnanna i Moskvu og Peking, og ef til vill ekki sú mikilvægasta, þó að mest beri á henni. Elegant bendii í þessu sambandi á að sjálm Rússa i efnahagsaðstoð við kinversku „bræðraþjóðina“ Hann fullyrðir, að Kínverjar STALIN hafi ekki fengið eina einustu rúblu að gjöf. En þetta er ekki alls kostar rétt. Klaus Mehnert hefir sýnt fram á það í bók sinni, að gef inn hafi verið búnaður eins sjúkrahúss, 20 sauðkindur til undaneldis og áhöld handa einu ríkisbúi, sem hlaut nafnið „Vin áttaf' Hvað sem þessu líður er fróð iegt að athuga hér til saman burðai lánastefnu Rússa gagn- vart ,,borgararíkjum“ eins og Indlandi og Egyptalandi. Sovét- ríkin hafa lánað Inverjum fjár- hæð scm samsvarar 933 milljón um dollara og Egyptalandi 783 milljónum, en Kína hefir að- eins fengið að láni fjárhæð, sem jafngildir 430 milljónum dollara. Alla aðra aðstoð, þar á meðal vopnasendingar, hafa Kínverjar orðið að greiða með vörum og við verði, sem naum ast verður talið hagstætt. Brezki sagnfræðingurinn E. H. Carr rekur sögu kínversk- rússneskra samskipta, einkan- lega í byrjun Stalíntímans, í nýjum bindum risaverks síns Sögu Sovétrússlands. Þegar á skýringar Carrs er litið hlýtur mann að furða mest á því, að ekki skuli löngu fyrr hafa kom ið til beins fjandskapar milli rússneskra og kínverskra komm únista. Ritverk Carrs er ná- kvæmf og ríkulega stutt skjal- legum tilvitnunum. Þar er greinilega sýnt fram á, hvern ig Rússar hafa notfært sér hina kínversku flokksbræður í eigin gjörnum tilgangi. STALÍN fylgdi Chiang Kai Sek að málum allt þar til Mao hélt innreio sína í Peking. Þá smeygði hann böndum sínum á hina nýju ríkisstjórn með ein- hverju djöfullegasta bragðinu i sínum meistaralega valdavef. þ. e. Kóreustríðinu. Alien S. Whiting sýnir fram á það í bók sinni „Kínverjar fara yfir Yalu“ að Kóreustríð ið hafi verið fyrirtæki, sem laut aigerlega rússneskri stjórn í upphafi Deila má um, hvort Stalín hafi séð fyrir allar af- leiðingar, eins og Palczi-Horv- ath heldur fram í ævisögu Maos Kommúnistar höfðu fyrirfram hlotið ákveðið athafnafrelsi vegna gáleysislegra yfirlýsinga Mac Arthurs fyrst og síðar Dean Achesons. sem gáfu i skyn, að Kórea væri utan varn arsvæðis Bandaríkjanna. Stalín hefur jafnvel ekki get- að séð fyrir að Bandaríkja- menn brygðust við á annan veg en þeir höfðu sjálfir sagt.Afleið ingarnar urðu verulegur ávinn ingur fyrir Rússa, ekki sízt í Au.sturlöndum. Hlutleysi Tai- wan hafði gert Bandaríkjamenn og Kinverja andstæða hvora öðrum. Ágreiningurinn ágerðist þegar Mac Arthur réðst inn í Norður-Kóreu, og ekki hefir reynzt unnt að draga úr hon um aftur allt til þessa dags. Mao tók sér þarna stöðu með Stalín, sem auk þess tókst að koma málum svo fyrir, að Kín verjar önnuðust varnir rússn- eskra hagsmuna og urðu sjálf ir að bera kostnaðinn, sem af því leiddi. EFTIR lát Stalíns tókst Kín verjum fljótlega að smeygja sér úr þassari gildru. Við þetta óx þó enn ágreiningurinn milli Bandaríkjamanna og Kínverja. Englendingurinn David Rees hefir sýnt fram á það í hinni nýju bók sinni um Kóreustríð ið, að Foster Dulles hafi þá fyrst hótað ..víðtækum gagn- ráðstöíunum“ og beitt kjarn orkuvopnunum sem trompi i því milliríkjaspili. Kínverjar höfðu lært af dýr keyplri reynslu og snérust til fylgis við „friðsamlega tilveru hlið við hlið“ á undan Rússum. Mao fór að fara sínar eigin leiðir Krustjoff varð að grípa til kjarnorkuvopnanna sem tromps til þess að ná taki á honum á ný Haustið 1957 héldr Kínverjar og Rússar ráð stefnu um kjarnorkumál og þar lofaði Krustjoff að aðstoða Kína við að verða kjarnorku- veldi Ef til vill hefir þetta stigið Kínve' jum til höfuðs. 1958 gerðust þeir svo áleitnir í utan ríkisslefnu sinni, að Rússar urðu áhyggjufullir. Vorið 1959 tryggði Mao forna kínverska hagsmuni með því að brjóta uppreisn í Tíbet á bak aftur með vopnavaldi og eyðandi eldi. Krustjoff hvarf þá frá kjarnorkusamkomulaginu og fór í heimsókn til Eisenhowers Mao endurgalt með fyrstu árás inni á vinaþjóð Rússa Indverja Upp frá þessu tóku tengsl Kína og Sovþétríkjanna að rofna smátt og smátt. Hags- munir ríkjanna hafa slitið hug sjónaþræðina eins og oft vill verða þegar tengslin eru í eðli sínu ónáttúrleg, eins og telja verður tengslin milli Kína og Rússiands SÚ ÆTLUN Kínverja að Qyggja efnahagsþróun slna fyrst og fremst á Sovétríkjun um var algerlega úr lausu lofti gripin. Fyrir stríð nam verzlun við Sovétrfldn aðeins einum Framhald á 13. «i8u 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.