Alþýðublaðið - 15.03.1952, Síða 4
AB-AIþýðublaðið
15. marz 1952
Fóstbræðralag Þjóðviljans og Vísis
VÍSIR, málgagn Björns Ól-
afssonar og stéttarbræðra
hans, heildsalarma, ræddi i
forustugTein í fyrradag um
ræðu þá, er Helgi Hannesson
flutti í fulltrúaráði Alþýðu-
flokksins hér í bæ á dögun-
um. Leggur heildsalablaðið
þar eins og jafnan áður mikla
áherzlu á að vara verkalýð-
inn við kauphækkunum, þar
eð þær leiði til aukinnar verð-
bólgu, og reynir einu sinni
enn að gefa í skyn, að dýr-
tíðarbölið sé sök alþýðustétt-
anna. Fer ekki dult, að Vísir
kann illa þeim boðskap for-
seta Aiþýðusambandsins, að
verkalýðurinn hljóti að knýja
fram hagsbætur til þess að
bæta sér upp þá kjararýmun,
sem stafar af hinni sívaxandi
verðþenslu og dýrtíð.
Það fer ekki á milli mála,
hvað hér er að bögglast fyrir
brjósti heildsalablaðsins. Vís-
ir lítur svo á, að verkalýður-
inn eigi ekki að láta sér detta
í hug að krefjast hækkaðra
launa, heldur una þeirri
kjaraskerðingu, sem hann
hefur orðið fyrir af völdum
dýrtíðarinnar og verðbólg-
unnar. Hins vegar mun eng-
inn hafa orðið þess var, að
Vísir hafi látið eitt einasta
orð falla í þá átt, að „kjara-
bætur‘‘ heildsalanna væru
várhugaverðar. Hánn hefur
þvert á móti gengið feti fram-
ar en önnur málgögn borg-
arastéttarinnar í því að lofa
stefnu og störf núverandi rík-
isstjórnar, enda er það hús-
bóndi hans, Björm Ólafsson,
sem þar ræður stefnunni
öllum öðrum fremur. Með
öðrum orðum: Vísir lítur svo
á, að verkalýðurinn eigi að
sætta sig við hinar síþyngdu
byrðar dýrtíðarinnar og verð-
bólgunar til þess að heildsal-
arnir geti fengið þær kjara-
bætur, sem afturhaldsstjórn-
in vill þeim í té láta!
Hitt er vonlaust fyrir Vísi,
eins og öll önnpr málgögn
stjórnarflokkanna, að ætla að
telja þjóðinni trú um, að
dýrtíðin og verðbólgan sé sök
verkalýðsins, Alþýðusamtök-
in, háfa’ hvað . eftíir armað
krafizt þess af stjómarvöld-
unum, að þau hefjist handa
um að reisa rönd við verð-
bólgunni og dýrtíðinni, enda
væri það bezta kjarabót hins
vinnandi fólks. En þessum á-
skorunum verkalýðsamtak-
anna hefur ekki verið sinnt.
Þvert á móti hefur verið
gengið í berhögg við vilja
þeirra og óskir, svo að dýr-
tíðin er nú meiri en nokkru
sinni áður. Og þá á verka-
lýðurinn að sjálfsögðu ekki
nema það val eitt að knýja
fram hækkað kaup til að
bæta sér upp kjaraskerðing- •
una. * 1
Samtímis því, sem heild- j
salablaðið túlkar afstöðu hús- f
bænda sinna til ræðu Helga [
Hannessonar, gerist svo það,
að Þjóðviljinn ræðst einu
sinni enn á forseta Alþýðu-
sambandsins í tilefni hennar.
Kommúnistablaðið kaliar
Helga Hannesson „verkfalls-
brjót“ og segir, að hann hafi
haft það „meginverkefni að
sætta verkalýðinn við kjara-
skerðingu og launaárásir“.
Slíkt er framlag Þjóðviljans
til þeirrar einingar verkalýðs
ins, sem hann er löngum að
boða og vegsama!
Þetta asnaspark kommún-
istablaðsins stafar auðvitað
af því, að það vill reyna að
þyrla upp reykskýi, sem hylji
svik kommúnista í hagsmujia-
baráttu verkalýðsins undan-
farin ár. Þjóðviljanum fer
líkt og glæpamanni, sem leit-
ar á staðjnn, þar sem hann
drýgði afbrotið. Hann teflir
fram hverri blekkingunni
annarri hlægilegri til þess að
reyna að afsaka svikastarf-
semi Dagsbrúnar í verkfall-
inu í fyrravor. Hann hefði
átt að fullkomna ósómann
meg því áð reyna að verja
þátt kommúnista í tveimur
síðustu sjómannaverkföllum,
undirferli þeirra, svik og heig-
ulshátt.
Það er gömul aðferð þjófs-
ins, að kalla saklausa þjófa,
og hrópyrði Þjóðviljans um
„verkfallsbrot“ Helga Hann-
essonar eru sama fyrirbærið.
Og í heift hatursins teku,r
kommúnistablaðið sér stöðu
við hlið Vísis, þegar forseti
Alþýðusambandsins og heild-
arsamtök verkalýðsins, sem
hafa hrundið kommúnistum
af stóli, er annars vegar. En
ótrúlegt er, að heiðarlegir
verkalýðssinnar, sem hafa
glæpzt til fylgis vid komm-
únistaflokkinn, sætti sig við
fóstbræðralag Þjóðviljans og
Vísis. Það mun koma í ljós,
þegar á reynir í vor.
Karneval í Nizza. Það má siá margt skrýtiiegt
á kjötkveðjuhátíðunum suður
í löndum kaþólskunnar, ekki hvað sízt á hinu fræga árlega
karneval í Nizza. Hér sjást til dæmis þrír blaðaljósmyndarar'
á götu þar í borginni, þegar karnevalið stóð þar yfir nýlega.
Þeir eru sagðir hafa vakið mikla kátínu mannfjöldans.
Pétur Sigurðsson:
VISS TEGUND trúaðra refsidómur yfir „drambsemi
manna, sem telja sig hafa feng
ið hina réttu ,,línu“ frá himna-
föðurnum og þykjast fylgja
henni ófrávíkjanlega, tala hátt
um nauðsyn manna á því að
„frelsast“ frá synd. Sjálfsagt
hafa menn þess mikla þörf, en'
nú gerifet ég svo djarfur að
spyrja: Hver mun frelsa oss frá
ófögnuði trúblindunnar? Á marg
an hátt er hún skaðvænleg,
þótt ekki sé um slíkt brjálæði
að ræða og hjá hjónunum í
Winnipeg, sem fyrir nokkru
börðu barn til dauða. Þau eru
nafngreind í Lögbergi, 31. jan-
úar 1952. Litla sjö ára stúlkan
var fósturbarn þeirra, og hafði
þeim þótt vænt um barnið.
„Hjón þsssi voru haldin miklu
trúarofstæki", segir í Lögbergs
greininni, „þau sóttu allar sam
komur prestsins A. C. Valdez,
sém var hér í borg nokkrar vik
ur og þóttist geta gert krafta-
verk og læknað sjúka. Talið er
að trúarofsi hjónanna hafi snú
izt upp í brjálæði við það að
sækja þessa trúaræsingafundi".
Sennilega hafa þau ætlað að
reka illan anda út úr barninu,
en börðu það til dauða og lágu
svo á hnjánum í snjónum fyrir
utan húsið, i náttklæðunum, er
lögreglunni var gert aðvart.
óskast nú þegar að stóru fyrirtæki hér í bænum.
Æskilegt, að viðkomandi hafi nokkra reynslu í
vörusölu til kaupmanna í Reykjavík.
Umsókn með upplýsinginn um menntun og fyrri
störf, ásamt meðmælum, ef fyrir hendi eru, sendist
blaðinu fyrir 17. þ. m. merkt „Röskur sölumaður".
Eg fæ lítið bindíndisblað frá
Noregi, sem heitir „Menneskc-
vennen". Þetta er fallegt nafn
og vissulega hefur blaðið, og
þeir, sem að því standa, unhið
bindismálinu mikið gagn um ára
tugi. í hverju eintaki blaðsins
er venjulega lítil grein, sem heit]
ir „Stille stund“. Ein klausan í’
þessum gneinum er á þessa leið:'
„Þá mun hann skilja hveitið
frá illgresinu. Hveitið, það eru
hinir trúuðu, og þeim mun hann
safna í sína himnesku hlöðu. En
illgresinu, öllum sem ekki hafa
tekið sinnaskiptum,. öllum, yan-,
trúuðum, hvort sem þeir eru
kennarar eða lærisveinar þeirra,
foreldrar eða börn, háir éða lág-
ir, mun verða kastað í hinn ó-
slökkvandi eld í helvíti, þar sem
er eilífur grátur og gnístran
tanna“.
Og nú boða vissir menn með
miklum krafti heimsendí. Jörð-
in á að sporðreisast. íshettan á
norðurpólnum er orðin o£ þung.
AB — Alþy9ublaSi3. Útgefandl: Alþýðufíokkurinn. Rítstióri: Steíán Pjetursson. [ Auðvitað géta alltaf einhvér O-
AuglýsingastJóri: Enuna MðUer. — Ktstjómarsímar: 4901 og 4902. — Auglýsinga- 1 skapleg náttúrufyrirbæri átt
aiml: 4906. — AfgreiOsluaími: 4900. — AlþýSuprentsmiBJan, Hverfisgötu 8—10. sér stað, en að slíkt gérist sem
ÖLLUM ÞEIM MÖRGU,
sem sýndu mér ógleymanlegan vinarhug á áttræðis-
afmæli minu, 10. marz, votta ég mitt bezta þakklæti.
í Bið guð að blessa ykkur öll.
Reykjavík, 14. marz 1952.
Kristjón Eggertsson.
Englendinga", eins og Tímmn,
11. marz s. 1. hefur eftir nors^.
um spámanni, er svo furðuleg
kenning, að hún sýnir bezt,
hvers eðlis spádómurinn er.
Enginn getur auðvitað full-
yrt, að ekki geti einhverntíma
orðið hnattsprenging, er bindi
enda á tilveru þessarar litlu
jarðstjörnu okkar: En til hvers
eru allir þessir erellingaspádóm
ar, aðeins til að ræða og sturla
Veikgeðjá sálir? Allir vitum
við, að eitt sinn ber okkur að
öeyja, og er ekki nóg, að hver
maður búist hyggilega við dauða
sínum, þótt ekki sé unnið að
því að halda mönnum í stöðugri
angist og hræðslu við einhvern
ægilegan heimsendi.
Um 40 ára skeið hef ég kynnst
ýmsum trúarstefnum og marg-
víslega trúuðu fólki, og ég hika
ekki við að segja, að alls konar
öfgar í þeim efnum vinna mönn
um stórtjón. Fólk er ruglað i
ríminu, inn í það er troðið fá-
ránlegum trúarskoðunum, sem
vinna mörgum manninum ævi-
langt tjón. Margur maðurinn
mundi haga ævistarfi sínu á allt
annan veg, en oft verður, sök-
um slíkra trúarskoðana. Ég
hirði ekki um að veitast að
neinum sérstökum sértrúar-
1 stefnum, þótt það væri auðvelt.
Fasfeignaeigendur
mótmæla hækkun
fasteignagjalda
AÐALFUNDUR Fasteigna-
eigendafélags Reykjavíkur var
haldinn síðast liðinn mánudag.
Jón Loftsson, formaður félags-
ins, og Magnús. Jónsson, fram-
kvæmdastjöri þess, gáfu þar
ítarlega skýrslu um starfsemi fé
Iagsins á síðasta ári.
Á síðast liðnu vori starfrækti
félagið leigumiðlun, og hafði
hún milligöngu um leigu á um
það bil 50 íbúðum.
Félagið hefur sem áður haft
opna skrifstofu, og hafa felags-
menn mikið . leitað til hennar
með ýmis vandamál sín. Á ár-
inu var hafin útgáfa sérstaks
félagsbteðs, þar sem rædd eru
ýmis þau mál, sém hiíscigendirr
var3« miklu. Félagsstjórnín hef
ur tekið til meðférðar ýmis
skattamál og á margvíslegan
hátt reynt að vinna . sem bezt
að hagsmunamálum húseigenda.
Samþykkt var á fundinum
svohljóðandi tillaga:
„Almennur félagsfundur í
Fasteignaeigendafélagi Reykja-
víkur ítrekar áskorun stjórn-
ar félagsins ?il bæjarstjórnar
Reykjavíkur um að nota okki
lagahemiild þá, sem sveitá-'
stjórnum var veitt á síðasta al-
þingi til þess ' að imfiaimta
fasteignagjöld ineð allt að 400%
álagi. Béndir fundurinn sér-'
staklega á þá staðreynd, að
fasteignagjöld eru ú iögð án til
lits til efnahags viðkomandi,
og þess vegna er siík , skatt-
heimta mjög ranglát. Vegria
hinna.miklu erfiðleika við. öfl-
un lánsfjár til húsabygginga
er líka með öllu óhæfilegt að
leggja nýja skatta á það fólk
sérstaklega, s,em ráðizt hefur: í
húsbyggingar. Einnig er þess að
gæta, að hækkun gjalda, sem
lögveð hafa í fastei.gnum, tor-.
velda enn meir að auðið sé að
fá lán út á eignir þessar“".
Jón Loftssón forstjóri, var
endurkjörinn formaöur félags-
ins. Guðjón Sæmundsson húsa-
smíðameistari og Magnús Vig-
fússon húsasmíðarr.eistari áttu
að gang-a úr stjórninni. Var
Guðjón endurkosinn, en Magn
ús báðst undan endurkosningu,
og var Jón Sigtryggsson dóniv.
kosinn í hans stað. Áðrir í
stjórnirini eru þeir Hjálmar Þor
steinsson húsgagnasmíðameist-
ari og Friðrik Þorsteinsson hús
gagnasmíðameistari.
í varastjórn voru kosnir þeir
Váldemar Þórðarson kaupm,,
Egill Vilhjálmsson forstjóri og
Sighvatur Einarsson pípulagn-
ingameistari. Endurskoðendur
voru kosnir þeir Guðmundur
Gamalíelsson bóksali og Vig-
fús Guðmundsson frá Engey
Hinu má svo ekki gleyma, að
oft vinna slíkar trúarhreyfing-
ar líka margvíslegt gagn.
UmboSsmaimsstad
fyrir íslenzkar
getraunir
Til eru lærðir og gremdir
menn, sem enn. trúa því, að fyr
íf 6000 árum hafi guð skapað
þennan heim á 6 dögum, en NÚ UM HELGINA er útrunn
böivað svo öllu mannkyninu s'ök ';nn frestur fyrir þá„ sem ætla
um þess að fyrsta konan át eplii ag -sækja um umboðsmánnsstarf
i 'leyfisleysi. Mönnum gat verið ' fyrir .. íslenzkar getraunir. Ilef-
vorkunn fyrr á öldum, en nú ’ ur þegar borizt fjöldi umsókna
þarf trú til þess að trúa siíku
og mörgu öðru hliðstæðu, sem
enn er reynt að berja inn í höf-
uð manna. Mehritun og gáfur
virðast standa magnþrota and-
spænis trúargrillunum. Sumir
trúa á heilagar kýr og heiiaga
apa, eins og t. d. í lndlandi, aðri
ir trúa á heilaga daga og ýmsa
helgisiði sem sáluhjálparatriði.
Milljónir manna hafa oft dá-
ið úr hundri i Indlandi og hung
ursneyðin er þar alltaf hið ó-
leysta vandamál. Þeirri r.eyð
mætti þó afstýra, e£ stjórnin
þyrði að drepa hinar gaghslausu
heilögu kýr og önnur heilög kvik
Framhald á 7. síðu. .
úr Reykjavík og frá þeim stöð-
um, sem ætlað er að rekstur get
rauna. nái til í upþhafi.
Þar sem starfsemi þessi ér.
flestúm ókunn, heíur stofnunín
þeðið biaðið að geta þess, að um
sækjeridur geti fengið allar nán
ari upplýsingar viðvíkjandi
starfseminni í síma skrifstof-
unnar 5618, og er hún opin alla
virka daga frá kl. 9—5. Þóknun
fyrir umboðsmannssiarfið verð
ur 9 % af umsetníngu umboðs-
manns.
Eyðublöðin, sem ætluð eru um
sækjendum - til útfyllingar, ■ eru
afhént á fræðsluniálaskriistof-
unni í Arnárhvoli.
AB 4