Alþýðublaðið - 22.03.1952, Page 4

Alþýðublaðið - 22.03.1952, Page 4
AB-AIþýðubíaðið 22. marz 1952. ,Skilyrðislaust með Rússum' ÞJÓÐVILJINN hefur kom- izt eftirminnilega úr andlegu jafnvægi í umræðunum um sænska njósnarann Enbom. Hann reynir að fara að dæmi sænsku samherjanna og af- neita Enbom sem kommún- ista. Slíkt er þó auðvitað von laust verk. Njósnari þessi er alinn upp í sænska kommún- istaflokknum, hefur verið starfsmaður tveggja blaða hans og var árið 1947 valinn til þess að vera fulltrúi sænsku „æskulýðsfylkingar- innar“ í útvarpsumræðum. Auk þess er engum blöðum um það að fletta, hvaða mann tegund hefur mestan hug á njósnum fyrir Rússa, hvort sem ættjörðin, er hún velst til að svíkja, heitir Svíþjóð eða ísland. Annars er furðulegt, að Þjóðviljinn skuli vera svo uppstökkur, þegar minnzt er á njósnir kommúnista í þágu Rússa. Blaðið ætti að vera far ið að venjast slíku fyrir löngu. Auðvitað er það út af fyrir sig engin nýlunda, að stund- aðar séu njósnir í þágu er- lendra ríkja. En í sambandi við njósnir Rússa vill svo til, að kommúnistaflokkamir um víða veröld eru uppeldisstöðv ar þessarar starfsemi og hafa í því efni sem mörgum öðr- um tekið nazista sér til fyrir myndar. Munu.rinn er aðeins sá, að nazistar voru fámenn og fyrirlitin klíka utan Þýzka lands, en kommúnistar eru fjölmennir á Vesturlöndum. Þess vegna er moldvörpustarf semi kommúnista í þágu Rússa miklu, hættulegri en verk þau, sem nazistar dæmd ust til að vinna að fyrirmæl- um húsbænda sinna í Þýzka- landi á valdadögum Hitlers og félaga hans. Kommúnistaflokkamir vinna skipulagt að því að gera fylgismenn sína að rúss- neskum njósnurum, þó að þeir afneiti jafnan þeim, er reynast sannir að sök, af pólitískri hræðslu. Hitt er engum vafa bundið, að þeir hafa mikla velþóknun í hjarta sínu á rússnesku njósnurun- um. Þeir predika öllum fylg- ismönnu.m sínum skilyrðis- lausa hlýðni við húsbænd- urna í Moskvu. í þessu sam- bandi er lærdómsríkt að rifja upp, að þegar Sameiningar- flokkur alþýðu — sósíalista- flokkurinn var stofnaður hér og breitt yfir nafn og númer kommúnistaflokksins í blekk ingarskyni, lýsti Brynjólfur Bjarnason yfir því, að hinum nýja flokki bæri að vera „skil yrðislaust með Rússum“. Brynjólfur er að sjálfsögðu ekki einn um þessa afstöðu. Hann túlkaði aðeins á hrein- skilinn hátt viðhorf allra kommúnistaforingja á Vestur löndum til Rússlands. Og samherjar hans erlendis hafa meira að segja gengið svo langt u.ndanfarin ár að boða það, að þeir myndu fagna því, ef Rauði herinn réðist inn í ættlönd þeirra til að troða þau undir rússneska járnhælinn. Það er ekki nema von, að lærisveinar slíkra foringja gerist rúss- neskir njósnarar og vinni þau verk, sem eru húsbænd- unum í Moskvu mest að skapi. íslenzkir kommúnistar eru í þessu efni nákvæmlega sama fyrirbærið og samherj- ar þeirra í öðrum löndum. Þess vegna standast þeir ekki reiðari en þegar upp- víst verður um njósnir í þágu Rússa slíkar sem þær, er En- bom flokksbróðir þeirra hef- ur rekið í Svíþjóð. Öllum muji í minni, þegar Þjóðvilj- inn tókst á hendur að verja athæfi rússneskra veiðiþjófa í íslenzkri landhelgi. Hann ætlaði vitlaus að verða yfir þeirri meinbægni, að íslend- ingar skyldu leyfa sér að am- ast við þessum göfugu gest- um! Hann myndi einnig líta á það sem meinbægni, ef am- azt yrði við njósnum í þágu. Rússa hér á landi. Það er ekki nema eðlileg afleiðing þess, að flokkur hans er „skilyrðis laust með Rússum“. En auð- vitað myndi Þjóðviljinn þakka njósnurunum með af- neitu,n alveg eins og sænsku kommúnistarnir afneita „fé- laga“ Enbom. REYKJAVÍK - HAFNARFJÖRÐUR. FJÖLGUN FERÐA UM KÓPAVOGSHREPP. Frá og með laugardeginum 22. marz verða ferðir sem hér segir: Frá Reykjavík kl. 6,30 alla kl. 7,15 virka kl. 8,15 daga. kl. 12,30 kl. 14,00 kl. 17,30 alla kl. 18,30 kl. 20,00 kl. 23,30 daga. Það eru eindregin tilmæli til viðkomandi aðila, að þeir fari með þessum vögnum, fremur en Hafnarfjarð- arvögnum á hliðstæðum tímum. LANDLEIÐIR H.F. AB — AlþýSublaBiS. Utgefandl: Alþý3ufIokkurlnn. Eitstjóri: Stefán PJetursson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. — Ritstjómarsímar: 4981 og 4902. — Auglýsinga- ’«fani: 4906. — AfgreiSslusími: 4900. — AIþý3uprentsmi3Jan, Hverfisgötu 8—10. AB 4 Hinn nýi sjónleikur þjóðleikhússins: Leikstjóri: Maraldur Björnsson - Þýð andi: KarMsfeld „ÞEGAR nú þjóðleikhúsið tekur fyrsta leikrit Kambans til meðferðar á leiksviði sínu, er margs að minnast og fleira en hér er tóm til, en þá yrðum vér að undri góðra marma og næstu kynslóðar, sem sér alla hluti nýafstaðna í fullu Ijósi sögunnar, ef vér laíum undir höfuð leggjast að metk það með sjálfum oss, sem gerzt hefur svo að s-egja fyrir augum vor- um, og það, þegar I hlut á eitt höfuðleikritaskáld íslands.“ Þannig lýkur L. S. — Lárus Sigurbjörnsson — siuttri grein, er hann hefur ritað um Guð- mund Kamban í það leikskrár- hefti þjóðleikhússins, sem geíið er út í tilefni þess að sjónleikur Kambans, „Þess vegna skiljum við“, er sýndur þar á sviði sem fyrsta leikritið, er þjóðleikhús- ið tekur til meðferðar eftir þann höfund. Ég vil geta þcss, að ég geri það í óleyfi, að gera þessi lokaorð að upphafsorðum þessarar greinar, og að ég skil ekki til fulls hvað höfundurinn á við, en hef þó ekki hirt um að biðja hann skýringar. En á meðan ég sat í þjóðleik- húsinu og horfði á frumsýningu þessa sjónleiks, gat óg ekki að því gert, að þessi lokaorð, sem ég las áður en sýningin hófst, voru furðu áleitin, og vöktu með mér margar spurningar, einkum varðandi viðhorf okkar gagnvart höfundi sjónleiksins. Ég minntist þess þá, að fyrir því sem næst tveim árum f.vlgdi ég hópi ferðamanna, norskra og sænskra, um salarkynni þjóð- leikhússins. Við námum aö sjálfsögðu staðar í „kristalssain um“ svonefnda, og voru gest- unum sögð deili á þeim höfundum, sem þar getur að líta höggmyndir af. Nokkru síðar, þegar við vorum kom- in út á götuna, vék einn Svíanna sér að mér, en hann er rithöfundur og bókmenntagagn rýnandi, og spurði lágt, — rétt eins og hæverskir menn gera, þegar viðkvæm mál ber á góma — hvers vegna ekki hefði verið þarna höggmynd af Kamban. Mér varð óhægt um svarið, af þeirri einföldu ástæðu, að ég vissi það ekki til hlítar. En Sví- inn misskildi að vonum þögn mína, og bætti annarri spurn- ingu við, — hvort það væri vegna þess, að við teldurn Kamban einhverra orsika vegna ekki eiga þar heima. Ég var að vísu feginn því, að geta svarað þeirri spurningu neit- andi, en fann sárt til þess um leið, að sú neitun mín gat varla hljómað sannfærandi í eyrurn hins erlenda manns. Síðan hef ég spurzt fyrir um orsökina, og að því er ég hef frett eftir góð- um heimildum, er þarna aðeins um að kenna því, að enginn að- ilja virðist.hafa gert sér í hug- arlund hvílíkum misskilningi sú töf kann að valda, sem áreið- : anlega hefði orðið skemmri, ef þeir hefðu gert sér það ljóst. ís- lenzkur myndhöggvari hefur að sögn lokið, eða því sem næst | lokið, við höggmynd af skáld-1 inu, sem aðstandendur eru þó | ekki sagðir fyllilega ánægðir með. En hvers vegna var ekki hafizt handa um gerð myndar- innar í tæka tíð, eða séð svo um, að hún væri tilbúin fyrir löngu? Og hvers vegna er það; fyrst nú, að þjóðleikhúsið tekur sjónleik eftir Guðmund Kamb- an til meðferðar? Þá hefði stolt okkar verið meira í samræmi við þá skapgerð, sem hann gerði þjóðareinkenni íslendinga Arndís Björnsdóttir og Inga Þórðardóttir í hlutverkum í. þætti. í skáldverkum sínum, ef við hefðum svarað öllum spurning- um, háværum sem lágværum, varðandi áfstöðu okkar til ör- laga hans, með því að sýna eitt - hvert af viðamestu leikritum hans á sviði þjóðleikhússins þegar á fyrsta starfsári þess. Og njér er sama~hvað hver segir, — ég trúi því ekki, að engin leið hefði reynzt fær til bess að hafa þegar tilbúna sómasamlega höggmynd af skáldir.ú, hefði nægur skiiningur og viiji allra aðilja verið fyrir hendi, — svo að hann gæti prýtt hóp iátir.na listbræðra sinna í „kristalssaln- um“ að minnsta kosti nú þegar þjóðleikhúsið sýnir minningu hans þann sóma að .sýna eitt af leikritum hans. Tvímælalítið ber Guðmund Kamban hæst íslenzkra ieik- ritaskálda, þeirra er enn hafa komið fram, og ber margt til þess. Hann var skáici, bæði á ljóð og sögur, fjölhæfur og fjöl- menntaður gáfumaður; tilfinn- ingaríkur og skapmikill hug'- sjónamaður, og svo djarfur og hreinskilinn, að samtið hans þótti fremur löstur en kostur. Hann var þaulkunnugur öllú, sem að leiklist laut, leikari og þrautreyndur leikstjóri. Hann kunni því fj''llstu skil á allri tækni varðandi gerð leikrita, auk þess sem hann hafði til að bera allt það, sem áður er um getið. Samt sem áður fer því fjarri, að leikrit hans séu öll jafngóð. Það leikrit hans, sem þjóðlsikhúsið hefur \-alið til þess að heiðra með minningu hans og list, er ekki eitt þeirra beztu eða tilþrifamestu, er eftir hann liggja, enda bótt það hafi sína kosti, og beri sums sí.aoar glögg einkenni höfundar, þau er bezt verða að taijast, — hreinskilni hans og dirfsku. Bygging þess er til dæmis helzt til laus á lcöflum, og víða þarf mikið átak til að túlka það, sem á bak við býr. Mér er þetta val lítt skiljanlegt, þegar tekið er tillit til þess, að þarna er í raun rétri um minn- ingarsýningu að ræða. Við opn- Haraldur Björnsson sem prófessorinn. un þjóðleikhússins var sjónieik urinn ,,Fjalla-Eyvindur“ valinn til sýningar, í heiðurs- og þakk- lætisskyni við list Jóhanns Sig- urjónssonar. Þá heí’ði mátt telja hliðstætt að þjóðleikhúsið hefði valið leikritið „Vér morð- ingjar“ til sýningar í heiðurs- og þakklætisskyni við list Kambans, en það leikrit aflaði honum almennrar vióurkenn- ingar leikgagnrýnenda og íeik- húsgesta á Norðurlöndum, enda þótt æskilegast hefði verið, að þjóðleikhúsið nefði getað átt heiðurinn af því áð kynna ieik- húsgestum sérkennilogasta — og stórbrotnasta —- verk hans, ,,Marmara“. En að það .varð ekki, er önnur saga, og senni- lega ekki forráðamerm þjóð- leikhússins að öllu Jeyti um að saka. En hvað' um það. Þjóðleik- húsið heíur gert ýmislegt til þess að þetta leikrit rninnkaði ekki í meðferð þess, enda þótt mjög vafasamt verði að teljast að það takist og að hróður höfundar vaxi meðal áhorfenda, og veld- ur því þó ekki eingöhgu val leikritsins. Haraldur Björnsson hefur leikstiórn á hendi og leikur sjálfur eitt aðalhlutverk- ið. Þótt það sé afleit venja, sem því miður virðist ætia að kom- ast í heíð í þjóðleikhúsinu, að leikstjóri tvískipti þannig kröft um sínum, má samt vera að það komi ekki fyrst og fremst að sök í þetta skiptið, og að hann hefði ekki náð sterkari tökum á leikstjórn þótt hann hefði haft hana eina um að hugsa. Víst er um það, að eitthvað brestur; leikendurnir ná yfir- leitt ekki því sambandi við sjón leikinn og höfund hans, sem með þarf til þess að verkið verði satt og lifandi á sviðinu. Gervi Haraldar sem prófessors ins er og miður gott, spjátr- ungslegt um of; þrátt fyrir létt- lyndi það og gleðilöngun, sem gripið hefur hann á íullorðins- aldrinum, er hann bó alltaf pró fessor og dr. med. og heldur því fullri virðingu, að minnsta kosti innan vébanda fjölskyldunnar. í sjónleik þessum velur Kamban sér að viðfangsefni ör- lög þriggja kynslóða af íslenzk- Framhald á 7. síðu. . Baldvin Halldórsson og Hildur Kalman í hlutverkum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.