Alþýðublaðið - 29.03.1952, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 29.03.1952, Blaðsíða 4
AB'ASþýðubiaðið 29. marz 1952 Innílufningur erlends verkafólks „EFLIÐ ÍSLENZKAN IÐN- AГ var kjörorð, sem fann djúpan hljómgrunn í hugum íslendinga á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina. Is- lenzkur iðnaður reis á legg á skömmu.m tíma, veitti mikla atvinnu og sá þjóðinni fyrir brýnum þörfum. Allir landsmenn virtust á einu máli um nauðsyn þess að efla iðnaðinn. En nú er þetta breytt. Gamla kjörorðið um að efla íslenzkan iðnað er orð- ið nokkrrs konar forngripur. Iðnaðurinn dregst saman; mikill fjöldi þess fólks, er við hann vann áður, gengur nú atvinnulaus og erlendar iðn- aðarvörur koma í stað ís- lenzkra, jafnvel þótt þær séu hvorki betri né ódýrari. Meginorsök þessarar öfug- þróunar er starf og stefna núverandi ríkisstjórnar. Sam ri’ráttur iðn?,'5arins er bein afleiðing af hinni svokölluðu „frjálsu verzlun" íhaldsins og Framsóknarflokksins, láns- fjárskortinum, sem kemur harðast niður á iðnaðinum; dýrtíðinni og verðbólgunni. -Nú er yfirvofandi hætta á því, að íslenzki iðnaðurinn leggist í rústir. En ríkisstjórn afturhaldsins horfir upp á þetta án þess að hreyfa hönd eða fót til raunhæfra aðgerðá. Samtök iðnaðarins birta um þessar mundir í dagblöðunu.m smáklausur, sem eiga .að glæða áhuga almennings á gildi iðn- aðarins og koma í stað gamla kjörorðsins um að efla ís- lenzkan iðnað. Stjórnarblöðin birta þessar smáklausur dag- lega á sama hátt og málgögn stjórnarandstæðinga. Þar er þó að finna markvísa og rök- studda gagnrýni á starf og stefnu núverandi ríkisstjórn- ar, sem ber ábyrgð á því, hversu komið er fyrir ís- lenzkum iðnaði. Slík^t gagn- rýni er naumast hægt að orða betur í örstuttu máli en gert er í Morgunblaðinu í gær, svo að tekið sé eitt dæmi af mörgum. Þar er komizt að orði á þessa lu,nd: „Ef þér kaupið erlendar iðnaðarvör- ur, sem hægt er að framleiða innan lands á hagkvæman hátt, er það sama og flytja inn erlent verkafólk og stuðla að minnkandi atvinnu í land inu.“ Hér er tekið á kjarna máls- ins. Fjandskapur ríkisstjórn- arinnar í garð iðnaðarins er sams konar fyrirbæri og hún flytti inn í stórum stíl erlent verkafólk til að láta það taka vinnuna af íslenzku.m 'hönd- um. Með því að flytja inn í landið erlendar iðnaðarvörur, sem hægt er að framleiða inn- an lands á hagkvæman hátt, er verið að láta útlendinga sitja fyrir íslendingum um verkefni. Afleiðingin er sú, að á sama tíma og erlendar iðnaðarvörur hrúgast upp í landinu, gengur íslenzkt iðn- aðarfólk atvinnu.laust og á fárra eða engra kosta völ. Þetta eru staðreyndir, sem liggja öllum í augum u.ppi, nema ríkisstjórninni. Hún er blind eða sofandi í afstöðunni til iðnaðarins og virðist ekki hafa hugmynd um, að þessi mikilvægi atvinnuvegur er að komast í kalda kol. Auðvitað er það gott og blessað, að stjórnarblöðin birti nefndar smáklausur til stuðnings við iðnaðinn. En væri ekki samt nær lagi fyrir þau, ef þau bera hag og vel- ferð iðnaðarins á annað borð fyrir brjósti, að ganga að því með oddi og egg að vekja rík- isstjórnina og skipa henni að gera skyldu sína? Almenn- ingur á ekki sök á því, hversu komið er fyrir íslenzka iðnaðinu.m, heldur ríkisstjórn in og stuðningsflokkar henn- ar. En stjórnarblöðin reyna að verja fjandskap ríkisstjórn arinnar í garð iðnaðarins sam tímis því, sem þau birta boð- skap eins og þann, er Morg- unblaðið flutti í gær og hér hefur verið rakinn. Það er sannarlega tími til þess kominn, að ríkisstjórn afturhaldsins hætti að láta það viðgangast, að útlending- ar sitji fyrir íslendingum um verkefni. Afstaða hennar til iðnaðarins í dag er nákvæm- lega sú sama og hún flytti inn erlent verkafólk til að stuðla að minnkandi atvinnu í landinu. Hún ætti að dratt- ast til að lesa smáklausur málgagna sinna um iðnaðinn og láta þær sér að kenningu verða. Syndir hennar væru vissu.lega nógar samt. Aðalfundur verður haldinn í Kvenfélagi Hallgrímskirkju mánud. 31. marz kl. 8.30 e. h. í VR, Vonarstr. 4. FUNDAREFNI: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagssystur, mætum vel og stundvíslega. — Stjórnin. Skrifsfofur vorar eru fluttar á Laufásveg 8. Landssamband iðnáðarmanna Vorvinna. Hér á landi verður þess enn langt að bíða að vorvinnan hefjist úti í sveitunum. En í Danmörku er hún þegar hafin. Á myndinni sjást nokkrir menn við skurðgröft til framræslu á Lálandi, einni af dönsku eyjunum. ,A forgi lífsins/ — ný ævi saga effir Hagalín Hún er skráð eftir Þerði Þorsteinssyni hreppstjóra og kemur út í dag. -----------------------«--------- „Á TORGI LÍFSINS“ heitir ný bók eftir Guðmund Gísla- son Hagalín, og kernur hún út í dag. Þetta er ævisaga Þórðar Þorsteinssonar á Sæbóli í Fossvogi og greinir frá því, sem á daga hans dreif í æsku og fram á fullorðinsár. Hagalín er löngu þjóðkunnur fyrir ævisögur sínar, enda mun hann á þessu sviðí bókmenntanna hafa náð mestum árangri allra núlifandi rit- höfunda okkar, en þeir, sem iesið hafa „Á torgi lífsins“, munu á einu máli um, að þetía sé skemmtilegasta ævisaga hans og bók, er lýsi vel ævi og kjörum íslenzks alþýðumanns þessarar aldar. AÐALFUNDUR Þjóðdansa- félags Reykjavíkur var haldinn 12. .marz s. 1. og lauk þar með fyrsta starfsári félagsins. Starfsemin hefur nær ein- göngu verið fólgin í .námskéið- nm, sem haMin hafa verið fyr- ir börn og fullorðna. Námskeið bessi hafa sótt á annað hundrað manns. Kennslu önnuðust frú .Sigríður Valgeirsdóttir og Kristjana Jónsdóttir. Kenndir voru jöfnum höndum gamlir dansar og þjóðdansar, svo ' og vikivakar og söngdansar. Fyrir jólin gekkst félagið fyrir barnaskemtun, og var þar margt skemmtiatriða, m. a. sýndir ýmsir dansar. Skemmt- un þessi var afar fjölmenn. Næst komandi sunnudag' kl. 8 hyggst félagið halda loka- skemmtun í skátaheimilinu og koma þar fram 5 sýningarflokk ar, sem sýna nokkra dansa hver. Allir dansunnendur eru velkomnir meðan húsrúrn leyfir. Starfsemin næsta haust mun verða með svipuðu sniði og í vetur. Haldin verða 2—3 nám- skeið fyrir byrjendu.r og einnig komið á sameiginlegum dáns- kvöldum fyrir þá, sem á nám- skeiðunum hafa verið. Við stjórnarkosningu var stjórnin öll endurkosin að und- anteknum einu,m, sem baðst eindregið undan endurkosn- ingu sökum fjarvistar úr bæn- um. Stjórnina skipa nú: Frú Sig- ríður Valgeirsdóttir, formaður, Kristjana. Jónsdóttir, Björn Olsen, Jón Ingi Guðmundsson og Þórarinn Björnsson. Endur- skoðendur voru kosin þau Ólöf Þórarinsdóttir og Jens Jónson. 'AB — AlþýSublaCið. Ctgefandl: AlþýSuflokkurtnn. Bitstjðrl: Stefán Pjetursson. fcuglýsingastjóri: Emma Möller. — Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. — Auglýsinga- ■tmi: 4906. — AfgreiSslusími: 4900. — AlþýSuprentsmiSJan, Hverfisgötu 8—10. AB 4 AB hefur átt stutt samtal við Hagalín í tilefni af þessari nýju bók hans, er kemur út á fimm- tugsafmæli sögumannsins í dag. „Ég hef ávallt haft mjög gam an af frásögnum raanna, sem glöggir eru á atburði þá, sem þeir hafa lifað, og fólk, er þeir hafa kynnzt á lífsleiðinni“, sagði Hagalín. „Varð mér fljót- lega Ijóst, að Þórður Þorsteins- son á Sæbóli var í hópi þeirra, sem mér lætur að segja frá og skrifa eftir, enda hef ég haft mikið yndi af að rita „Á torgi lífsins“. Ævi Þórðar er fljótt á litið ekki sérstæð og einkennist naumast af mörgum og miklum atburðum, en þetta er eigi að síður hversdagssaga ísl-enzkrar alþýðu í blíðu og stríðu og sízt ómerkari en fyrri ævisögur mín ar. Sjálfum þykir mér mjög vænt um þessa bók, og ég vona, að svo verði einnig um lesendur hennar“. — Þetta er bók að vestan? „Já, Þórður er Vestfirðingur og dvaldist fram á fullorðinsár lengstum hjá séra Sigurði Stef- ánssyni presti og alþingismanni í Vigur. Æska hans, áður en hann komst í vist til séra Sigurð ar, mun vekja undrun þeirra, sem ekki þekkja fátækt þá, er alþýða aldamótaáranna varð að þola. Það munaði minnstu, að Þórður biði ævilangt tjón á lík ama sínum af skorti og illri að- búð. En það rættist fljótt og vel úr honum eftir að hann kom í Vigur, og ævistarf hans ej- orð- ið mikið og merkilegt. Þórður segir ágætlega frá og er glöggur á menn og málefni. Ég á von á því, að myndin af samferðafóli; inu og atburðunum, sem upp er dregin í bókinni, reynist les endunum' minnisstæð. Þetta sögu efní hefur verið mér mjög að skapi, og ég er ánægöur með ár angurinn". — Hefur bókin verið lengi í srníðum? „Það er erfiðara að svara því en flestir munu ætla í fljótu bragði. Mig hefur langað til að skrifa sögu alþýðumanns, sem verið hafi jafnaldri tuttugustu aldarinnar og lifað breytingar hennar og umrót, allt síðan ég færði „Virka daga“ og „Sögu Eldeyjar-Hjalta" í letur. Ég hef nokkuð lengi leitað að manni eins og Þórði Þorsteinssyni. En ég gerði mér ekki íyllilega ljóst hvað ég hafði verið heppinn í valinu, fyrr en verkið' var hafið. Það skiptir auðvitað nokkru máli, að ég þekki dável til að- stæðna þarna vestra. En aðalat- riðið er þó Sögumaðurinn og ævi hans. Ég held, að Þórður sé sannur og góður fulltrúi hinna duglegu og farsælu alþýðu- manna á þessari öld, mannanna, sem hafa vaxið af viðfangsefn- unum og vandanum og við ís- lendingar sigum að þakka það sem við erum orðnir eða gætum verið. Mér finnst ekki ómerki legt verkefni og draga fram hlut þeirra, því að sagan af þeim bregður Ijósi á líf og starf þjóð- arinnar. Þórður er iíka fulltrúi alþýðumannanna fyrir norðan, sunnan og austan, en það hefur gleymzt allt of lengi að gera sögu þeirra skil, þiátt fyrir allt bókaflóðið á undanförnum ár- um“. „Á torgi lífs:ns“ er gefin út af Iðunnarútgáíunni, en prentuð í prentsmiðjunni Odda. Bókin er 278 blaðsíður að stærð í meðal broti og sett drjúgu letri. Frá gangur af hálfu prentsmiðju og útgefanda er eins og bezt verð- ur á kosið. lanns § UM 300 MANNS tóku þátt í skíðaferðum ferðaskrifstofunn- ar um síðustu helgi. Var þá far ið í Hveradali og að Lögbergi. Nú um helgina verða farnar þrjár skíðaferðir frá ferðaski'if stofunni, ein á laugardag kl. 1,30 og tvær á sunnudag kl. 10 f. h. og kl. 1,30 e. h. Farið v-srð ur í Hveradali. Góður snjór er riú á fjallinu, og fæið á vegum þangað austur líka. Asf og ofstopi, ný kvikmynd ÁST OG OFSTOPI nefnist amerísk kvikmynd, sem byrj- að var að sýna í Stjörnubíó í gærkvöldi. Aðalhlutverk leika Humphrey Bogart og Gloria Grahame. Kvikmynd þessi er byggð á sögu eftir Dorothy B. Hughes, fjallar um morðmál, ástir og örvæntingu. Kennslubók í verkíegri sjévinnu í ÞEIR Arsæll .Tónsson og Hendriks Thorlacius hafa sótt til bæjarráðs um íjárstuðning við útgáfu kennslubókar í verk legri sjóvinnu. Bæjarráð vísaði umsókninni til umsagnar for- stöðunefndar sjóvinnunám- skeiða.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.