Alþýðublaðið - 29.03.1952, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 29.03.1952, Blaðsíða 5
\ ' •:• . ................. Johannes G u ðmuríclsson: m í 40. TBL. ALÞÝÐUBLAÐS- INS þ. á. birtist grain með fyrir sögninni; Báðir í sömu fylk- ingu. Greinin virtist til orðin vegna greinarkorns, er ég reit í Alþýðublaðið og birtist þar 31. janúar s. 1. undir fyrirsögn- inni: Verkamaðurirm og bónd- inn. I grein minni kemst ég með- al annars svo að orði, að skil- yrðin til að reisa sér óbrot- gjarnan minnisvarða séu nú á tímum að miklu leyti lögð upp í hendurnar á hverjum bónda. Þetta þykir greinarhöfundi, S. Jó, illa mælt eða að minnsta kosti ofmælt og biður mig að útskýra þessi orð mín nánar, sem hér skal líka gert, fyrst bess er óskað. Má vera að fleiri en g’reinarhöf. hafi ekki komið auga á þessi skilyrði, og væri þá vel, ef augu þeirra gætu einnig opnast í þessum málum. Eg er fæddur í sveit laust eftir 1890 og ólst þar upp. Dvaldist ég í sveit til 1911 og vann þar öll venjuleg sveita- störf. Jafnframt kynntist ég kjörum og starfsháttum sveita fólksins af eigin sjón og raun, bæði meðal hinna fátækustu bænda og iþeirra efnaðri. Á þeim árum var ekki hægt að segja, að bændastéttinni væru lögð nein skilyrði í hendur til bættrar afkomu, af hinu opin- bera. En sjálf var hún sem óð- ast þá að drepa sig úr dróma selstöðuverzlunarinnar með stofnun kaupfélaganna og var á þann hátt tekin að bæta kjör sín. Einnig var þá tekið að brydda á nokkurri umbótavið- leitni í búnaðarháttum almennt, og einstaka ötulir bændur á góð um bújörðum stórbættu jarðir sínar og byggðu á þeim vönd- uð hús. En yfirleitt var ástand ið þannig, að minnsta kosti um aldamót, að bæjar- og penings- hús voru byggð af torfi og grjóti með rekaviðarárefti, og ekki annað þiljað en baðstofa og sums staðar stofa. Túnin voru flest lítil, ógirt, eða illa girt, og kargaþýfð. Þannig var þetta í minni sveit og nærliggjandi sveitum, þar sem ég þekkti til, og þann ig stóð þetta með iitlum breyt- ingum þar til jarðræktarlögin komu til framkvæmda. Síðan hefur ræktun landsins miðað á fram stórum skrefum — mis- stórum þó, eftir árferði og verð lagi landbúnaðarafurða. Með jarðræktarlög'unum voru fyrstu skilyrðin lögð í hendur bænd- um til að bæta jarðir sínar til muna. Kunnugir menn hafa tjáð mér, að jarðræktarstyrkur inn nægði fyrir allri vinnu við að brjóta landið og jafnvel fræi iíka. /if þetta er rétt, er hér ekki um óverulega aðstoð að ræða. Annað skilyrði var veitt með stofnun verkfærakaupa- sjóðs. Þá fengu búnaðarféiögin styrk til verkfærakaupa, og mun sá styrkur hafa komið að miklum notum, enda hófst þá landbrot í stórum stíl. En með aukinni ræktun og sléttun gátu bændur aukið bústofninn, en þó minnkað vinnuafiið á búunum vegna bættrar aðstöðu við hey- öflun. En þrátt fyrir þetta eða jafn vel vegna þess, streymdi fólk- ið úr sveitinni að sjávarsíðunni, þar sem peningar voru auð- gripnir og félags- og skemmtana líf fjölbreyttara (orsakirnar voru margar, en verða ekki raktar hér nánar). Þetta sáu; forráðamenn þjóðarinnar og töldu að ekki mætti við svo bú ið standa. Þá voru samin og. samþykkt lög um nýbýlasjóð, Með þeirri löggjöí voru sköpuð skilyrði til að nema landið og byggja að nýju. Síðan hefur starfsemi þessi haldið áfram og blómleg nýbýli vaxið upp' víða | um land, og hún mun að for-1 fallalausu þegar frám líða stundir, ; svo framarlega sem ekki eru framundan ísa óg harð indatímábil, er geri allar jarð- ræktartilraunir að engu; en það skulum viðvona, að ekki verði. Þá má nefna, að nokkurn styrk ber að veita til endurbygginga á sveitabýlum, ef ég man rétt, og er með því enn citt skiiyrð- ið veitt til að styðja sveitabónd ann í starfi sínu. S. J. segir nú máske, að hægt sé að tala um hlutina og rita; erfiðara sé oft að benda á stað reyndirnar. Og þá er að halda sig að þeim. Ég er ekki kunnugur um allt ísiand. En ég þekki nokkuð til í nærliggjandi sveitum og þó einkum þeirri, sem ég er bor- inn og barnfæddur í. Ég hef þegar lýst, hvernig ástandið var þar, þegar ég var að alast þar upp og sé ekki ástæðu til að endurtaka það. Nú er fyrir ára tugum kominn akvegur um sveitina og getur hver, sem um hann fer, séð, hvernig þar er umhorfs. Á flestum jörðunum eru risin upp myndarleg og vist leg steinhús, sums staðar tvö. Túnin hafa verið stóraukin, girt og sléttuð, sumsstaðar eru þau margföld að stærð við það sem var. Á ýmsum bæjum, þar sem áður voru 25—30 ær ^kipta nú ærnar hundruðum, og var þó skipt um fjárstofn þarna fyrir fáum árum, vegna mæðiveik- innar. Peningshús og hlöður hafa víða verið reist úr steini, og annars staðar eru slík hús að rísa af grunni. Sem lítið dæmi úr þessari sveit, get ég nefnt það, að á einum bæ hafa á síðastliðnum tveim árum verið reist fjárhús úr steini með safnryfju undir og grindum í gólfi yfir 120 fjár. í húsunum eru sjálfvirk brynnslutæki og ekkert til spar að að gera þau sem vistlegust og bezt úr garði fyrir fénaðinn. Við þessi hús hefur verið reist hlaða samtímis, er tekur 4—5 hundruð hesta. Hús þessi ásamt hlöðu kosta undir 60 000 kr. með nútímaverðlagi og líklega miklu meira. Á þessari jörð búa bræður tveir, sem eru ekki tald ir efnaðir, en sæmilega stæðir. Mér er ekki kunnugt um, að þeir hafi stofnað til neirua telj andi skulda vegna þessara bvgg inga. Geta má þess, að jafn- framt þessum framkvæmdum, hafa verið sléttaðar um það bil 4 dagsláttur árlega og þeim kom ið í rækt jafnharðan. Bú þess- ara bræðra er ekki stórt mið- að við ýmis önnur. Hvernig hafa nú þessir menn og aðrir, sem líka sögu hafa að segja, framkvæmt þetta, þrátt fyrir mjög óhagstætt tíðarfar síðustu, árin og að undangengn- um fjárskiptum fyrir nokkrum árum? Hefur hér gerzt eitt- hvert kraftaverk? Eða er hægt að framkvæma þetta á ein- hvern annan hátt? Já, það er hægt. Verkin sýna merkin. Það er hægt vegna þess, að sköpú'ð hafa verið skilyrði til að fram- kvæma þetta. Við þurfum ekki að deila frekar um þetta og slculum láta það niður falla. Það verð- ur ekki borið á móti því með rökum, að hið íslenzka þjóðfé- lag hefur skapað skilyrði til vmbóta og framfara í landbún- aði. Og, — guði sé lof! — við eigum duglega og harðfenga bændastétt, sem yfirleitt hefur kunnað: að nota sér þéssi skil- yrði, og því hefur margur bóndinn þegaf reist sér óbirot- gjarnan minnisvarða á jörð sinni;' aðrir eru að gera það, og enn aðrir mvnu gera þáð, í framtíðinni. Það er ekki langt síðan, að lesin var í útvarpinu skýrsla um framkvæmdir í sveitum landsins á s. 1. ári,. s, s. bygg- ingar, girðingar, skurðgröft og,- ræktun, Þetta voru háar tölur og sýna ljóslega hve mik- ið er gert til eflingar landbún- aðinum. Vel má vera, að erfitt sé að afla lánsfjár til landbúnaðar- framkvæmda í svipinn eða til bústofnskaupa, eins og greinar- höfundur nefnir. En hvaða at- vinnugrein í landi voru á ekki við slíka örðugleika að stríða nú? — Það skyldi þá helzt vera verzlunin, og vafalaust er ó- hóflega mikið fé bundið í henni um þessar mundir. En miðað við aðrar atvinnugreinar mun landbúnaðurinn ekki bera skarðan hlut frá borði, nema síður sé. Var ekki þingsálykt- un samþykkt á síðasta þingi, þess efnis, að hálfum mótvirðis sjóði skyldí varið í þarfir land- búnaðarins? Eftir því á að skipta til helminga milli land- búnaðarins annars vegar og allra annarra atvinnugreina hins vegar. Fór ekki Eysteinn f jármálaráðherra til Bandaríkj- anna í fyrra vetur og fékk þar allstóra fúlgu af bandarískum dollurum að láni handa land- búnaðinum? Svo minnir mig. Ég sé ekki ástæðu til að telja fleira upp af þessu; tagi. Það liggur svo í augum uppi. Hinu skal ég ekkert bera á móti, að til eru bændu.r, sem berjast í bökkum um afkomu sína, og bændastéttin á við margs konar örðugleika að stríða, og gengur misjafnlega að yfirstíga þá. Til þess liggja margar orsakir. Fyrst og fremst eru bændu.r eins og aðrir mis- jafnlega hagsýnir og duglegir. I öðru lagi eru þeir misjafn- lega heppnir. Suma eltir ólán- ið á röndum með alls konar ó- höppum og vanhöldum, aðra ekki. I þriðja lagi eru jarðirn- ar nokkuð misstórar og mis- góðar, framkvæmdamöguleikar því misjafnir. Framfarirnar í landbúnaði þjóðarinngr eru þó sérstaklega eftirtektarverðar, þegar á það er litið, að allan síðasta áratug hafa bændur átt að stríða við eina þá ægilegustu fjárpest, sem nokkurn tíma hefur herjað þetta land, og jafnframt hafa dunið yfir ein hin mestu harð- indaár, sem komið hafa um langt skeið hér norðan lands og austan. Þegar þetta tvennt er haft í huga, sýnir það ann- ars vegar, hve vel er að land- búnaðinum búið af hálfu hins opinbera, og hins vegar hve duglega og ötula bændastétt við eigum. Um sameiginlega hagsmuni bænda og verkamanna skal hér ekki fjölyrt, því grein þessi er þegar orðin lengri en ég ætlaði. Framhald á 7. síðu. Í ■-'& ? Tlf f-f. oc , .' ™ • . < Irimmtugur i dag: ÞÓRÐUR HREPPSTJÓRI er ’ fimmtugur í dag. IJérna í Kópa Ivogshreppi þarf ekki að nafn greina manninn nánar, Þórður hreppstjóri, eða Þórður á Sæ- bóli, það kannast aliir hér við hann. Vinir hans og kunningjar þekkja hann að tryggð, hjálp- semi og hollráðum, andstæðing ' arnir þekkja hann sem mála- r fylgjumann, harðan í horn að j taka og óvæginn, ef því er að skipta. En allir þekkja hann að | dugnaði, ósérhlífni og fádæma j kjarki. Þau óhöpp, sem Þórð I hafa sótt heim 'um æfina, I myndu hafa nægt til þess að leggja hern meðalmann að velli. En Þórður er þannig skapi far- 1 inn, að hann gengur ótrauður á hólm við óhöpp og örðugleika og neitar að viðurkenna að hann sé sigraður í leik, á meðan hann er með lífsmarki. Fyrir bragðið hefur hann alltaf hlotið sigur að lokum, hversu ójafn og von laus, sem leikurinn hefur virzt j^egar verst horfði. Til þess að sanna að ég fari ekki með neitt fleipur, ætla ég að rifja upp nokkur æfiatriði Þórðar í stuttu méli. Hann er fæddur í eynni Vigur í N.-ísa- fjarðarsýslu, þann 29. marz 1902, en fluttist ungur að Litla bæ í Skötufirði. Þegar hann var á þriðja á?/. féll hann niður af húsalofti, hlaut að vonum mikla byltu, og fór þá stórt stykki úr vanga hans. Fljótt jafnaði hann sig þó eftir það slys, en ekki var hann nema sjö ára að aldrei, þegar hann hlaut aðra byltu og hættulegri, því að þá beið hann höfuokúpubrot. Þrettári ára hrapaði hann i Vig urbjörgum, skaddaðist þá mikið í andliti, meðal annars brotnaði hakan, og fleiri áverka hlaut hann við það fal'l. Á togara varð hann fyrir því slysi, að við sjálft lá, að hann missti þumal ingur annarrar handar; lafði hann á nokkrum taugum við hendina, og var ákveðið að fara með Þórð til Eyja, og láta taka af honum fingurirm; þeirri á- kvörðun var samt breytt, hald jð til Reykjavíkur, og tókzt Guðmund.i prófessor Thorodd- sen, sem þá var nýbyrjaður læknisstörf, að græða fingurinn Þórður Þorsteinsson. við höndina. Hættulegri slys og alvarlegri biðu Þórðar þó síðar; árið 1930 féll niður vinnupallur, sem hann stóð á. og hlaut Þórð ur þá svo alvarleg meiðsl, að hann var óvinnufær í þrjú. ár, og enn varð hann fyrir því slysi árið 1945. að braggagáfl féll of an á hann. og hlaut hann þá enn mikil meiðsl og alvarleg. Eftir allt þetta er hann 50% örorkumaður, samkvæmt mati. Ókunnugir kvnnu að halda, að maður, sem orðið hefur fvrir öllu þessu, gengi við hækiur og nyti opinberíar framfærslu. En því fer fjarri. Þórður er einn af þessum mönnum, sem ekki eru aðeins líkamlega ódrepandi, heldur hefur kjarkur hans og brek eflst við hveria braut. Ó- kunnugir geta ekki séð það á útliti hans eða framkomu, að hann gangi ekki hverfum manni heilli til skógar, þrátt fyrir allt; hann rekur uinfangsmik- inn garðyrkjubúskan. og gegn ir auk þess ábvrgðarmiklum störfum fyrir hreppinn og hið ooinbera, er hinn vaskasti í deilum, ef svo ber undir, og lætur ekki hlut sinn fyrir nein um orrustulaust. Mundi marg- ur, sem ekki hefur haft af slík um óhöppum að segja, mega þakka fyrir að vera gæddur starfsbreki Þórðar og dugnaði. Þórður hefur alln æfi stund að erfiðisvinnu, bæði á sjó og Framhald á 7. síðu. Mínningarorð Jónína Tómaúlóilir HVER. veitir því eftiríekt þótt vindurinn fevki burt einu skógarlaufi? Hverju bre\rtir það, þótt ein mannvera hverfi yfir landamæi jarðiífsins? Dag legða hlustum við á andláts- fregnir meðborgara okkar. Dag lega sjáum við aldna og unga borna til grafar. En venjulega veitum við þessu furðu litla at hygli, og eftir stut+a tíma höf um við gleymt þessu. Þar til allt í einu að við erum minnt á að dauðinn er okkur öllum nálægur er einhver ættingi eða vinur er burtu kallaður, — og' enginn veit hvenær hann ber að okkar eigin dyrum. Þegar mér barst til eyrna andlátsfregn Jónínu Tómas- dóttur, fann ég að það snerti hjá mér einhvern viðkvæman streng, þó að sú fregn kæmi mér ekki á óvart. I dag verður hún lögð til hinztu hvíldar. En þótt hinar jarðnesku leifar séu í jörðu huldar, þá lifir andinn frjáls o" óháður. þar sem ..sælusum- pt< bh'it, sífellt skín, í löndum betri“.. Jónína var fædd að Sanda- koti undir Ey.jafjöllum, en fárra vikna gömul var hún tek in til fósturs að Sauðhúsvelli í sömu sveit. Þar ólst hún upp hjá fósturforeldru.m sínum, Kristbjörgu Guðmundsdóttur og ísleifi Guðmundssyni, og hjá þeim dvaldi hún alla tíð, meðan þau lifðu; Minntist hún þeirra ávallt með virðingu ög kærleika. Árið 1926 fluttist hún til Hafnarfjarðar, ásamt tveim fóstursvstkinum sínum, og þar dva’di hún síðan til dauðadags. Ég. sem þessar línur rita, kynntist Jónínu, fyrst, þegar hún var nýlega flutt til Hafn- arfjarðar, hefur okkar kunn- ingskapur haldist æ síðan, og eftir því, sem lengra hefur lið- ið, hefur mér lærst alltaf bet- ur og betur að meta hennar Framhald á 7. síðu. AB 5 i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.