Alþýðublaðið - 05.04.1952, Síða 8
iiag effir íslenzk! fónslái fer
urför um alla Evré
^Domino44, sem gefið var út f París 1950,
mun vera eftir Skúla Halldórsson,
---------------------«---------
ALLT BENDIR TIL ÞESS, að lag eftir ungt íslenzkt tón-
iikáld fari nú sigurför um alla Evró’pu, en undir nafni annars
manns. Lagið kom fyrst oiíinberlega fram í París árið 1950 og
liefur breiðst út þaðan með ótrúlegum hraða, og er nú Ieikið og
svngið í öllum Evrópuíöndum, cinnig hér á Islandi, en þetta
er dægurlagið ,.Domino". Var lagið m. a. sungið í „Oskastund-
inni“ síðast með nýjum íslenzkum texta, hélguðum „Oska-
.,tu ndinui.“
Höfundur lagsins er,Skúli Hall*"
dórsson, sem tónlistamönnum
er. kunnur fyrir mörg ágæt lög'.
AB snéri sér' til tónskáldsins í
gær og' spurði það um þetta
mál.
„Ég, get ekki annað heyr-t. en
að hér sé um mitt lag að ræða",
sagði Skúli. „Ég heí aldrei. géfið
lagið út. En ég tók áfrit af því
ár:ð 1947, en ég saradi lagið fyr
ir 16 árum. Afritið afhenti ég
kunningja mínum, sem fór m,eð
'pað vestur til Ameriku, og' vissi
ég ekkert um afdrif þess siðan.
’Hn svo bar það við citt sinn, er
ég kom heim til mín að borða,
að ég heyrði að 14 ára gamall
sonur minn var að leika iagið
á píanóið. Ég leit ;nn til hans
og sagði dálítið undrandi: „Hvað
er þetta, ertu farinn að leika
valsinn minn“. Drengurinn
snéri sér líka undrandi að mér
og svaraði: „Hvað er þetta,
pabbi, þetta er útlerú lag', sem
allir eru að syngja og leika“.
„Eftir að ég hafðí rannsakað
málið“ ,sagði Skuli ennfremur,
„komst ég' að því, að lagið hafði
verið.gefið út í Parfs árið 3950,
að höfundur þess nefndi sig
Houis Ferrari, og að lagið nyti
á.kaflega mikilla vinsælda; væri
sungið og spilað um alla Evrópu,
og í þann veginn að nema land
Ameríku“.
,,Ég náði í lagið og lét tón
Wstarsérfræðling rannsaka það
• neð mér „bætti Skúli við. „Dóm
ur hans var sá, að ekki væri
annað hægt að sjá, en að þetta
væri mitt lag, stefiö er nákvæm
iega eins en á einstaka stað eru
smávægilegar breytingar á
.•ythma. Þá skal ég geta þess, að
allir, sem þekktu mitt lag og
heyra nú þetta lag, álíta að eng
inn vafi sé á því, að hér sé um
mitt lag' að ræða.
AB spurði Skúla, hvort hann
teldi sig geta sannað höfunda-
rétt sinn að laginu. Hann svar
aði:
„Ég veit það ekki, en það væri
miklis virði fyrir mig, því að
auk annars er hér um mikla fjár
upphæð að ræða. Ég hef snúið
mér til 'STEFS og beðið um að
stoð þess, og ég mun ekki skilj
ast við málið fyrr en í fulla
hnefana. Verst er að ekki er
hægt að rekja hver hafa orðið
örlög afritsins, sem íór til Ame
ríku, en ég hef skrifað manni
þeim, sem fékk afritið, og beðið
hann að senda það til mín undir
eins. Bíð ég nú eftir svari frá
'honum.“
Fiðlutónleikar
á Akureyri
Einkaskeyti til AB
AKUREYPJ í gær.
TÓNLEIKAR Tónlistarfélags
Akureyrar 1952 voru haldnir í
Nja bíói í gærkvöldi. Lék Ruth
Hermann á fiðlu við undirleik
A.rna Kristjánsonar. Viðfangs-
efni hennar voru eftir Kreisler,
Mozart, Beethoven, Lalo og
V/ieniawsky.
Húsfyllir var og listamönn-
unum ákaft fagnað. Bárust
þeirA margir blómvendir.
Máskólafyririesiur
um innréiiingar
Skúla Magnússonar
SfUNNUDAGINN 6. apríl kl.
2 e. h. flytur prófessor Þorekll
Jóhannessou fyrirlestur í há-
tíðasal háskólans. Fjallar fyrir-
lesturinn um Skúla Magnússon
og Innréttingarnar, en nú í vor
eru liðin 200 ár frá stofnun inn
réttinganna að forgöngu Skúla.
Hér verður greint frá aðdrag-
anda þessara atburða og lýst
nokkuð áhrifum þeirra á hagi
þjóðarlnnar, er m. a. leiddu til
þess að verzlun ,ahdsins var
leyst úr viðjum einokunarinnar.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
MÁLFUNDAFLOKKUR
FUJ í Hafnarfirði kemur sam-
an á mánudagskvöld kl. 8,30 í
Alþýðuhúsinu. Rætt verður um
áfengismál og heilbrigðismál.
Rússnesk cirkus-
mynd í Sfjörnubío
í DAG hefur Stjörnubíó
sýningar á rúsnneskri „sirkus“
kvikmynd, tekinni í Agfa-lit-
um. Mynd þessi er ekki aðeins
stórfengleg hvað skraut og í-
burð snertir, heldur getur þar
að líta hinar furðulegustu list-
ir, leiknar af mönnum og skepn
um, og mun margur eiga örð-
ugt með að trúa sínum eigin
augum, sem á þær. horfir. Má
' þar til dæmis nefna listleik-
, fimi (plastic) og glæfrafim-
leika (akroþatic), sem bæði
einstaklingar og flokkar sýna.
Er það sérkennilegt, hvað sýn-
ingar rússneskra leikfimitrúðk
liggja á takmörkum vestrænn-
ar sýningarleikfimi, bæði hvað
stökk, jafnvægisleikfimi og á-
haldafimleika snertir, 'en sýnu
minni áherzla er lögð þar á
glæfrabrellur, heldur en tíðk-
ast í vestrænum sirkusum. Þá
eru ýmiss konar listir, sem
riddarar leika á hestbaki, hin-
ar furðulegustu; enda byggja
Rússar þar á íþrótt kósakka-
riddaranna, sem voru á sinni
tíð frægustu menn sinnar
greinar í Evrópu. Þá eru og
ýmis dýr, sem leika þarna hin-
ar ótrúlegustu listir undir
stjórn dýrtemjara, og er þar
eitthvað að sjá fyrir áhorfend-
ur í öllum aldursflokkum.
Myndin er mjög vel tekin og
litirnir einkar sannfærandi.
LAGÐUR HEFUR VERIÐ
fram uppdráttur að viðbót við
smáíbúðahverfi vestan Grens-
ássvegar.
ALÞYBUB LA9IB
Þjóðþrifa starf
HIN yfirlætislausa skýrsla,
sem birt var um starfsemi
ferðaskrifstofu ríkisins hér í
blaðinu á sunnudaginn var,
ber það með sér, svo að eng-
inn þarf um að villast, hve
umfangsmikið þjcðnytjastarf
sú stofnun vinnur. Hún gerir
hvort tveggja í senn auk
margs annars, að auðvelda fé-
litlum almenningi ferðalög' á
landi hér og til annarra landa
— og á hinn bóginn að vekja
athygli á kostum landsins sem
ferðamannalands, jafnframt
því sem hún greiðir eins og
frekast er unnt fyrir ferðalög-
um erlendra manna á landinu.
FERÐASKRIFSTOFAN hefur
líka hlotið viðurkenningu al-
mennings, og flestum mun nú
Ijóst, að það er ekki á færi
neins annars aðila hér á landi
að vinna störf hennar eða
hluta af þeim með jafngóðum
árangri og jafnlitlum tilkostn-
aði. Fyrir því var það öld-
ungis hárrétt ráðstöfun, er
lögin um ferðaskrifstofu rík-
isins voru sett, að veita henni
einkarétt á f-erðaskrifstofu-
starfsemi hér. Þær raddir hafa
þó heyrzt, að svipta beri ferða
skrifstofuna þessum rétti, en
naumast verður hjá því kom-
izt að álykta, eins vel og ferða
skrifstofan hefur óumdeilan-
lega gegnt hlutverki sínu, að
þar standi á bak við menn,
sem einhverja hagnaðarvon
hafa af einkarekstri á fyrir-
greiðslu fyrir ferðamenn.
OG ÞAÐ ER á vissan hátt at-
hyglisvert, að í þessu sam-
bandi hefur ferðaskrifstofan
verið gagnrýnd fyrir það að
hafa ekki aukið ferðamanna-
strauminn meira en raun er á
nú, þegar þess er gætt, að við
höfum í rauninni ekkert að
bjóða erlendum ferðamönn-
um annað en fegurð landsins,
og ekki nægir hún ein, þótt ó-
metanleg sé. Ferðaskrifstofan
gæti nefnilega margfaldað
ferðamannastrauminn til
landsins á skömmum tíma, ef
gistihúsavandamálið væri
ekki óleyst enn. Reykjavíkur-
bær er til dæmis verr staddur
í þessum efnum en hann var
fyrir stríð, þrátt fyrir geysi-
lega stækkun, og líka sögu er
að segja af landinu í heild.
Það eru gistihúsavandræðin,
sem fram að þessu haf tor-
veldað stórlega aukningu
ferðamannastraumsins, en það
er ferðaskrifstofunni að
þakka, að hann er þó orðinn
það, sem hann er.
Þjóðleikhúskjallarinn skreyttur;
myndum íslenzkra lisímálara
--------fy------
35 myndir eftir Jón Engilberts Sistmáb
ara ti! sýnis |>ar næsto vikurnar.
--------*-------
SALIRNIR í ÞJÓÐLEIKIIÚSINU hafa nú yerið mynd-
skreyttir. Þar hefur verið komið fyrir 35 myndum eftir Jón
Engilberts listmálara, og mun þetta fyrsti opinbcri veitingastáð
urinn hér á Iandi, sem tekur myndlistamennina í þjónustu sína
á þennan hátt. Er hér um algera nýjung að ræða, og í tilefni
af því verður þjóðleikhúskjallarinn opinn fyrir almenning á
sunnudaginn um miðdagskaffileytið, og getur fólk þá notið
myndanna um leið og það drekkur kaffið'.
---------------------• Annars munu myndir Jóns
Ifðsfélagsins
Júgandi'
Frá fréttaritara AB.
SÚGANDAFIRÐI.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ
„Súgandi“ hélt aðalfund sinn
föstúdaginn 21. þ. m. Stjórn fé-
lagsins var að mestu endurkos-
in og skipa hana nú þessir
menn: Formaður Bjarni G. Frið
riksson, varaform. Páll J. Þórð
arsojr, ritari Högni Egilsson og
gjaldkari Salberg Guðmunds-
son. Meðstjórnendur voru kosn
ir Guðni Ólafsson og Ásgrímur
.Jónsson.
Fásinir miðar fásl
enn aS danslnum
FÁEINIR MIÐAR eru enn
óseldir ''að dansinum að
loknu bor'ðhaldinu á árshá-
tíð Alþýðuflokksfélaganna í
kvöld. Þeir fást í skrifstofu
flokksins í Alþýðuhúsinu,
sími 5020, og í Alþýðubrauð
gerðinni, Laugavegi 61, sími
1606.
Félagsstjórnirnar vilja
vekja athygli fólks á því, aið
árshátíðin byrjar alvcg rétt-
Situndis.
Skólabðrn í Hafnar-
ffrðihaldaopinbera
skemmhin í dag
í DAG halda barnaskólabörn
í Hafnarfirði fjölbreytta
skemmtun fyrir almenning.
Skemmtiatriðin eru: drengja-
flokkur og telpnaflokkur sýnir
leikfimi; sýndir verða þjóð-
dansar; tvær stuttar leiksýn-
ingar, smábörn sýna stutta
skemmtiþætti, barnakór syng-
ur; samleikur á hljóðfæri,
töfraþáttur og fleira. Börnin
hafa lagt sig mjög fram um að
gera skemmtun sína sem bezt
úr garði, og hafa þau unnið að
öllu sjálf, en undir eftirliti
kennara og með aðstoð þeirra.
Skemmtunin hefst kl. 1,30 í
dag, og verður hún endurtekin
kl. 4. Á morgun verður skemmt
unin endurtekin og hefst þá
kl. 4 síðdegis og er eingöngu
ætluð fyrir fullorðna.
Engilberts verða á veggjum
þjóðleikhúskjallarans næstu
vikurnar, en síðar munu ef til
vill verða settar þangað myndir
eftir fleiri listamenn. Það mun
líka sannast mála, að eftir að
fólk hefur séð myndir. Jóns
Engilberts á veggjum þjóðleik
húskjallarans, mun því þykja
veggirnir eyðilegir, ec þær væru
teknar þaðan og .engar kæmu í
staðinn, því að raunverulega
hafa salirnir gersamlega breytt
um svip, v;ð myndirnar.
Myndirnar eftir Jón Egilbej-ts
eru aðalega, teikningar, tré-
skurðarmyndir, ra4eringar og
vatnslitamyndir, og voru þær
nær allar á sýningunni ej bann
hélt í sýningarsal Málarans í
desember í vetur. Myndirnar,
eru allar til sölu og er nafn og
verðs getið á hverri mynd.
Tilgangurinn með þessari ,ný|
ung í þjóðleikhúskjallaranum er
í fyrsta lagi sá, sagði Þorvaldur
Guðmundsson veitingastjóri, x
viðtali við blaðamenn í gær, að
gefa gestum þjóðleikhússins
kost á því að kyjmast verkum.
íslenzkra myndlistarmanna, í
öðru lagi að gefa Jistamönnun-
um tækifæri til að sýna verk sín,
og í þriðja lagi, að stuðla að viS
skiptum almennings við lista-
mennina.
Hreyfill fær bílasíma
og Vogahverfi
Einmuna gæitir
í marz og aflinn
í meðalagi
Frá fréttaritara AB
KEFLAVÍK í gær.
GÆFTIR voru einrnuna góðar
í marzmánuði og aflinn í me/jl
lagi vegna þeirra. Alfi bátanna
var eins og hér segir
marz:
lok
Ólafur Magnússon
Björgvin
Andvari
Heimir
Guðfinnur
Nonni
Vísir
Hilmir
gkíðblaðnir
Vonin
Jón Guðmundsson
Smári
Guðm. Þórðarson
Bjarni Ólafsson
Sæfari
Svanur
Björn
61
62
63
R Afli kg.
63 359.872
62 389.548
66 391.750
62 332.976
64 322.250
326.190
326.514
311.030
59 265.136
69. 309.398
60 402.710
59 293.336
59 309.652
54 235.206
45 165.068
45 250.911
39 180.262
BIFREIÐASTOÐIN HREFILL'
hefur nú samtals 7 stöðvar í
bænum, það er að segja stöðv
arnar tvær, við Kalkofnsveg og
á Hlemmtorgi, og fimm bíia-
síma, en bráðlega mun tveim-
ur bætt við, þannig að alls verðí
stöðvar HreyfiV.bílanna 9 í bæn
um.
Hinir tveir nýju bílasímar,
sem bætt verður við verða stað
settir í Bústaðahverfi og Voga-
hverfi. Áður hefur Hreyfiil
komið upp bílasímum á Sumiu
torgi, við Sundlaugaveg og
Hrísateig, við Lönguhlíð og
Miklubraut, á Miklatorgi og við
Hofsvallagötu og Grenimel.
7 fogarar sigldu úi
SÍÐARI hluta ms.rzmánaðar
sigldu 7 íslenzkir togarar ineð
saltfisk á erlendan markað.
Fimm seldu afla siiva í Esbjerg
í Danmörku, en tveir á Bret-
landi.
Bæjarútgerðartogararnir Jón
Baldvinsson og Skúli Magnús-
son seldu á Bretlandi, Jón í
Hull, en Skúli í Aberdeen, en í
Esbjerg seldu Ingólfur Arnar-
son frá Reykjavík, Elliði frá
Siglufirði, Sólborg frá ísafirði,
Keflvíkingur frá Keflavík og
ísborg frá ísafirði.