Alþýðublaðið - 21.09.1952, Síða 5

Alþýðublaðið - 21.09.1952, Síða 5
Sœimmdur I DAG nokkurn snemma í ág- íustmánuði vakna ég við vökul- an klið maríuerlunnar klukkan tsex að morgni á efri hæðinni í sæiuhúsi Ferðafélags íslands á Hveravöllum. ..Mál er að rísn iúr rekkju,“ segir maríuerlan. Ég hlýði kalli og fer á fætur. Sólin er komin hátt á loft. Hofsjökull grípur geisla henn- ar. sundrar þeim á sínum foreiðu brjóstum og endursend- ar þá út í fagurhreinan geim- 3nn. Hvergi er skýskaf á lofti. Berfættur og léttklgiddur rölti ég' út í sumardýrðina. Hvinn- yerjadalirnir eru baðaðir morg ‘iundögginni. Gufuna úr hverun- ' ‘íum leggur vestur á hraunin wndan hægum austanandvara: Döggin er svöl, en loftið er jbægilega milt. Ég nýt morgungöngunnar sm hríð einn í óbyggðakyrrð- inni. Ferðafélagarnri sofa enn- jþá og árgalinn er hljóðnaður, eins og takmark hans með jnorgunsöngnum hafi verið það eitt að vekja mig. Að morgun- göngunm lokinni held ég 9,heim“ og kveiki á „prímusn- aim“, sem stendur tilbúinn á eldhúsborðinu og býður ótreg- air þjónustu sína. Ferðafélagarnir fara að Srumska og hraða sér út í góða Veðrið. Morgunverkin byrja á jþví, að baða sig i baðlauginni, Sem er undir húsveggnum. Sumir kjósa heldur gufubáð ajppi á hverasvæðinu. Mér- þyk- ir laugin of köld og leita því að fceitara vatni til þess að í. Syðst á hverasvæðinu finn œg kulnaðan hver á stærð við íbaðker. í honum er þægilegt ®ð liggja og láta ylvolgt vatnið Streyma um sig á leið þess frá Shverunum niður í hveralæn- una, sem baðlaugin er byggð í. £g skýri legustaðinn í höfuðið á mér, og hraundrang, sem er skammt frá og ég nota fyrir fatahengi, kalla ég Elías. Eftir Ifeerlaugina tek ég gufubað við Bláhver, með tilheyrandi sól- foaði. ' „Heima“ í sæluhúsinu bíður ilmandi morgunkaffið, lagað'úr Sbínu víðfræga Vaðneskaffi, og gómsætt Esjukex, sem ferðafé- lagarnir kalla Sæmund mér til 'heiðurs. Frúrnar bera réttina á 'foorð í viðhafnarstofunni og Þorsteinn veitir koníak. Um dagmálabilið er lagt af Stað í báðum bílunum. Ferð- jnni er heitið í Þjófadali. R 4760 rennur léttilega á undan uýiegan veginn vestur að Stél- foratt og Station-vagninn fylg- Jr fast á eftir „meðan allar göt- llr eru greiðar“. En „þegar taka holtin við og heiðar, held- tir fer að kárna reiðargaman" hjá honum, .og fyrir austan Stélbratt gefs-t hann upp í þýf- Snu. og allir ferðafélagarnir, fsex að tqlu, setjast í jeppann, sem malar í hægðum sínurn Vestur yfir hæðirnar, eins cg leið liggur vestur í Tjarnar- dali. Leiðin er órudd, krókótt og seinfarin. Oft verða félagarnir ao fara út úr bílnum tii þess ®ð létta á honum í brekku og Velja veginn. Þegar allir eru í íbílnum er mikið sungið, því skapið er létt og engar áhyggj- »r. Lífið er allt baðað í sumn Og sól. j Þegar kemur vestur í Tjarna ídalina er leiðin greiðfær, alle íleið suðvestur að Þröskuldi, en yfir hann er vont að' aka. Þó er það líklega hægt, með því áð fara upp í brekkurnar fýrir í Þjófadölum: Fjallið í baksýn er Hrútafell. austan Þröskuld, en það er ekki reynt að þessu sinni. Austan á Þröskuldi skiljast leiðir að sinni. Þorsteinn og frúrnar fara gangandi vestur yfir Þröskuld og niður í Þjófa- daii. Okkur Björg\in fýsir að reyna að aka alla leið vestur í dalinn, og ákveðum að freista þess að komast á bílnum suður- fy.Jir Þjófafell og inn í dalina að sunnan. Eftir nokkra vafn- inga komumst við suður að Þjófafelli yfir lágan háls, s.em í Þjófadölum: Rauðkollur. gengur í suðaustur úr Þrösk- uldi. Niður af hálsinum er aU- bratt. Leiðin suður með Þjófa- felli er greiðfær í fyrstu. Hún liggur á milli Kjalhrauns og fellsins. Við suðurhorn Þjófa- fellsins er leiðin ógreiðfær vegna þess, að urðirnar við fells ræturnar eru.nokkuð stórgrýtt ar. Torfærur eru þar þó engar. Með Þjófafellinu að sunnan og vestan er greiðfært. Víða er hægt að aka á sléttum melum, söndum og grasbölum. Leiðin inn Þjófadalina er greiðfær eftir Þjófadalaánni upp að sæluhúsi Ferðafélagsins. Eftir hálfs annars tíma ferð hittum við ferðafélagana aftur við sæluhúsið. Þeir liggja allir í sólbaði undir húsveggnum í sólskini og hita. Leiðina af Hveradölum í Þjófadali er hægt að gera færa flestum bílum með litlum til- kostnaði. Það þarf að velja veginn, varða hann eða merkja á annan hátt og ryðja hnullung um úr akbrautinni á stöku stað. Leiðina suður fyrir Þjófa- fell er auðvelt að gera vel ak- færa með því að kasta stærstu hnullungunum úr veginum. Heppilegast held ég vera aS leggja veginn beint frá hvera- svæðinu á Hveravöllum vestur í Tjarnadaii, fyrir austan Sté1.- bratt, og fara suður dalina alla leið suður að Þröskuldi og suð- ur fvrir Þjófafell. Frá Þjófafelli er hægt að aka vestur sandana, og ef vað finnst á Fúlukvísl, er akfært vestur á mílli Sandfella og sennilega suður í Jökuldal. Á þessum slóðum er fagurt um að litast. Víðsýnið mikið, fjallahringurinn stórbrotinn og andstæðurnar í landslagi og gróðri miklar. í nábýli við Langjökul eru Tjarnadalirnir, víðlendir og grösugir. Þjófadalirnir eru umluktir vinalegum fjöllum og grónum hálsum á þrjá vegu. Svipmesta fjallið er Rauðkollur. Dalirnir eru opnir til suðausturs. Úr þeim vestanverðum er ágætt útsýni yfir Kjalhraun og Kjöl til Kerlingarfjalla. í suðri gnæfir Hrútafell, mikilúðlegt og fagurt með fannhvítan jök- ulskallann. Af vesturhálsinum er gott útsýni í Jökulkrókinn, en þar er landslag hrikalegt. Þangað er stutt að fara úr Þjófadölum. Miðsumarsdagur í sólskim Framhald á 7. síðu. í Þjófadölum: Útsýn til Rcrlingarfjalla. skili þeim vinsamlegast í afgreiðslu Aíþýðu- blaðsins; ; Sjómnnafélag Reykfavíkur. j lélagsíundur : i. ' r verður haldinn sunnudaginn 21. þ. m. klúkkan 8,30 ; e'. h,- I‘Iðnó (niðri). - ý y D A G S K R Á : • l" 1. Félagsmál. 2. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á 23. þing * Alþýðusambanús íslands. 3- Rætt um uppsögn samninga. ’ 4. Önnur mál. Fundurinn er aðeins fyrir félagsmenn, er sýni dyraverði skírteini. ' • ' j STJÓRNIN. ' . j Hskðflinn í fúlí minni en sama mánuði í fyrra -------«------- FISKAFLINN í júlí 1952 tdirð alls 22.691 smál. þar af siM 6.858 smál., en til sarnanburðar má geta þéss að í júlí 1951 VM' fiskafíinn 64.362 smaí. þar af síld 33.418 smál. Fiskaflinn frá 1. janúar til* 31. júlí 1952 varð 220.500 smál., þar áf síld 6858 smál, en á sama tíma 1951 var fiskaflinn 251.710 smál, þar af síld 34.125 srnál., og 1950 var áflirin 199.567 smá- lestir, þar af síld 15.646 smál.. ■ Hagnýting aálans var sém hér segir (talið í smál.): ísaður fískur 20.535 Til frystingar 97.715 Til söltunar 78.409 Til herzlu 14.037 í fiskimjölsverksm. 1.363 Annað 1.583 Síld til söltunar 3.457 Sr'ld til frystingar 728 Síld til bræðslu 2.61.9 Síld til aniíars 54 Þungi fisksins er miðaður við slægðan fisk með haus að undanskilinni síld og þeim fiski, sem. fór til fiskimjölsverk- srniðju, en hann er óslægður. Skipting aflans milli veiði- skipa til júlíloka varð (talið í smálestum): Fiskur af bátum 113.559 Fiskur af togurum 100.083 Samtals 213.642 Síld af bátum 6.590 Síld af togurum 268 Samtals 6.858 Prófessor Trausti Eirn- arsson í fyrirlestra- ferð til Hoilands PRÓFESSOR dr. Ttraustl Einarsson fer seint í þessum mánuði í fyrirlestraferð til Hbl lands. Félagasambönd stúdehía í jarðfræði og námuverkfræoi standa fyrir heimboðinu í sam bandi við kennslumálaráðu- neyti Hollands. Ráðgert er að dr. Trausti flytji fyrirlestrA við jarðfræðideildir hásköi- anna í Amsterdam, Utrechf, Leyden og Delft fyrir stúaent.i ogk ennara, svo og fyrir land- fræðingafélaga og félag jaro- fræðinga og námuverkfræðinga í Haag. Fyrirlestrarnir munu fjalla um kafla úr jarðfræöi íslands og rannsóknir dr. Trausta á Heklugosinu síðasta. Þá muii hann sýna á sömu stöð um Heklukvikmynd Steinþórs í heitins Sigurðssonar og Arna ! Stefánssonar, er hann hefur fengið léða til farinnar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.