Alþýðublaðið - 16.12.1952, Síða 7
w ©
Þar höfum við fyrirliggjandi mikið úrval af vönduðum og ódýruum RAFMAGNSÁHÖLDUM, svo sem
Framhald af 5. síðu.
arfæraverzlanir og aðra slíka
viðskiptaaðilá. útgerðarinnar,
sem hagnazt á þeirra tapi. Fyr-
ir utan þá miklu röskun, sem
,ég drap á fyrr í ræðu minni.
VINNUSTÖÐVUNIN.
Ýmsir háttvirtir ræðumenn
hafa vikið að vinnustöðvun-
inni. Það er sízt að ástæðu-
lausu, og er rétt að gera sér
nokkra grein fyrir, af hverju
hún er sprottin. Eg hygg, að
það geti ekki orkað tvímælis,
að vinnustöðvunin nú er
bein, rökrétt og óhjákvæmi-
leg afleiðing af stefnu og
framkvæmdum eða fram-
kvæmdalej'si hæstvirtrar
ríkiSstjórnar. Hún er nauð-
vörn verkalýðsins, sem hefur
séð og fundið kaupmótt
launa sinna rýrna með hverj-
um fmauuði, samtimis jþví,
sem aðrar stéttir auka sínar
tekjur eftir vild og geðþótta,
eins og ég áðan benti á.
Eitt er sérkennilegt við þessa
deilu: Báðir aðilar virðast
sammála um: í fyrsta lagi, að
liún sé eðlileg og réttmæt, þvi
að verkalýðurinn þurfi og
verði að fá kauphækkun, ef
hann á að li'fa marinsæmandi
lífi: og í öðru lagi, að viðhlít-
andi lausn á deilunni sé varia
hægt að finna hema ríkisstjór.i
in geri sitt til að styðja að
þeirri lausn.
Deilan er um það, hvernig
eigi að skipta tekjum þjóðar-
innar, þeim verðmætum, sem
fólkið framleiðir með vinnu
sinni. Og deila-n er, fyrir að-
gerðir ríkisstjót'narinnar, að
þessu sinni, ekki einasta milli
‘y.erkamarinanna og þeirra,. sem
kallaðir eru atvinnurekendur.
Deilan er um stærra atriði.
Hún er um það, hvernig eigi
að . skipta þjóðartekjunum
þanrtig, að þeir, sem hingað
til liafa borið mirinstan hlut
í frá borði, fái nokkrar hætur
kjara sinna, hliðstæða við
tekjuauka annarra stétta.
Hæstvirt ríkisstjórn hefur í
þs?sum umræðum hér ekki
látið annað til sín heyra um
afskipti -af vinnudeilunni held
ur en það eitt, sem skilja má
sem hótun um, að ef verkalýð-
urinn fái bót á kjörum sínum,
þá verði það notað sem tilefni
til nýrrar gengislækkunar,
nýrra skrefa á þeirri óheilla-
braut, sein hæstvirt ríkisstjórn
hefur fetað undanfarin ár.
Mætti ætla, að hæstvirtri ríkis
stjórn væri það ekki fjarri
skapi, ef marka má af hennar
fyrri aðgerðurn. Því miður.
Augiýsið í AB
n
(Frh. af 1. síðu.)
að verkfallið fengi fjárhagsleg
an stuðning frá alþjóðasam.
bandi frjálsra verkalýðsfélaga
í Briissel eða öðru.ra verkalýðs
samtökum lýðræðislandanna,
sem nú auðvitað frétta það,
um leið og til þeirra er leitað,
að búið sá að biðja um — og
-þiggja, að því er Eðvarð upp-
lýsir, — fjárhagslega aðstoð
frá alþjóðasambandi kommún
ista í Wien! Enda var Þjóð-
viljinn hfóðugur á sunnudag-
j inn y-fir þessum vel heppnaða
leik að baki íslenzks verkalýðs
og þeirra tugþúsunda, sem í
verkfallinu standa, — og lét á
sér skilja, að dráttur gæti orð-
ið á fjárhagslegri aðstoð
„klofningssambands AB-
I manna“; en svo kaílar hann
| alþjóðasamband frjálsra verka
! lýðsfélaga í Bríissel, sem Al-
þýðusamband íslands er í og
i verkalýðsfélögin sömdu í upp-
hafi um, að til skyldi leitað.
gleði morgunblaðins.
Það er áreiðanlegt, að með
undirferli og slettirekuskap
Björns Bjarnasonar og ann-
arra kommúnista í þessu máli,
, hefur engttm verið þjónað
nema andstæðingum verkfalls
ins; enda var gleði Morgun-
blaðsins rnikil á sunnudaginn.
En á íslenzk verkalýðssamtök,
sem ekki hafa verið að spurð,
er varpað ómaklegum grun
uin, að þau séu handbendi
kommúnista og husbænda
þeirra austur í heimi; og getur
enginn sagt, hvern skaða þau
kunna að hafa af því.
„Allra stéffa flokkurimT
Framh. af 2. síðu.
hvað nægir þeim þá til rétts
| skilnings á Sjálfsíæðisflokkn-
um?
Verkamenn! Það er gömul
og ný reynsla, að máttarstoð-
ir Sjálfstæðisflokksins tryllast
gegn verkalýðssamtökunum í
hvert skipti, sem þau sækja
fram eða búast til varnar hags
munum vinnandi fólks. Þess
vegna getiu" enginn sannur
verkalýðssinni verið sjálfstæð
ismaður.
XXX.
HANNES Á IIORNINU.
Framhald af 3. síöu.
hvert tækifæri til Þess að ní-la
samtökin o,g veikja afstöðu
þeirra, er formaður í stóru
stéttarfélagi, en á hjna hliðina
skemmdarvérkamenn, sem af
slægð sinni, reyna með öllum
ráðum, að nota verkalýðinn í
eigin annarlegum. spekulasjóft-
um.
Hannes á horninu.
I Hraðsuðukatlar
f og könnur
: verð kr. 169,00, 219,50 og
j 279,00
íHitapoka,
l verð kr. 137,00
"Rafmagnsofna.
1000 og 1500 w. verð kr.
189,00 og 195,00.
RafmaSnshellur,
verð kr. 140,00 og 179,00
Rafmagns vöf iuj árn
verð kr. 280,00 og .479,00
Brauðristar,
verð kr. 227,00 og 436 00
Straujárn,
5 gerðir, verð kr. 139,00,
140,00 178,00, 180,00 og
425,00
(gufustraujárn)
Ryksugur,
verð kr. 483,50 og 1048,00
Rafmagnspönnur,
verð kr. 117,00
Loftkúlur
í eldhús og baðherbergi,
kr. 26,75
Glerkúpa í ganga.
Glerskálar í stofur.
Flestar gerðir
og stærðir af ódýrum Ijósa
-perum, t. d. 25 w perur á
aðeins kr. 3,00
Ljósakrónur og lampa
frá Málmiðjunni undir
verksmiðjuverði.
Einnig allar gerðir
af hinum fallegu og vönd-
uðu ljósakrónum og lömp
um frá Verksm. Ámunda
Sigurðssonar.
Smáborð o£ borðlamPa
frá Ýrésmiðju Gunnars
Snorrasonar.
Standlampa og borð
frá Húsgagnaverzlun
Þorsteinssonar.
Þorsteins Sigurðssonar.
Geysimikið úrval
af Óllum tegundum af
skermum úr silki, perga-
ment og plasti frá Skerma-
búðinni Iðju.
Sjógarpurinn og bóndinn
SÍGURÐUR í GÖRÐUNUM
Endurminningar níræðs atorkumanns, sem lifað
hefur og starfað við Skerjafjörð alla sína ævi. —
Skrásett hefur Vilhjálmur S. Viihjálmsson.
Skipstjórinn og bóndinn, Sigurður í Görðunum,
hefur fylgzt með þróun og vexti Reykjavíkur leng-
ur en nokkur annar núlifandi maður. Saga hans
er að öðrum þræði alþýðleg, saga Reykjavíkur Og
nágrennis, saga löngu horfinna manna og atburða,
slysfara og svaðilfara á sjó og landi.
Fjöldi manna kemur hér við sögu, jafnt stór-
brotnir höfðingjar og athafnamenn sem umkomu-
lausir sérvitringar og auðnuleysingjar.
Af mikilli skarpskyggni og mannviti segir Sig-
urður í Görðunum sérstæða sögu samtíðar sinnar.
En saga hans er stuttorð og kjarnyrt að hætti ís-
lenzkrar málvenju.
Jón Björnsson:
ELDRAUNIN
gerist á 17. öld, þeirri öld, er vakið hefur ógn-
þrungna skelfingu margra kynslóða.
Eldraunin lýsir daglegu lífi fólksins, baráttunni
fyrir lífi og frelsi, drengskap og fórnfúsri hetju-
lpnd. Margar sérkennilegar persónur eru leiddar
fram. Frásögnin ‘ er áhrifarík og spennandi og
drarýatískur kraftur leikur um allt sögusviðið.
Sagan hrífur lesandann frá byrjun og leiðir haiiri
inn í blámóðu horfinna alda, um leið og hún gef-
ur honum ærið umhugsunarefni.
maður.og mold
eftir Sóley í Hlíö. Nokkur eintök af þessari vin-
sælu bók, sem hefur verið ófáanleg um tveggja
ára skeið, eru komin í bókaverzlanir.
Bókaútgáfan
NORÐRI
Sendum cjep póstkröíu um land allt.
Iðja II Laugavegi 63 sími 81066 -■ Lækjargölti 10 sími 6441
AB 7