Alþýðublaðið - 04.01.1953, Blaðsíða 3
OTYARP REYKJÁYIK
11 Minningarathöfn í Dóm-
kirkjunni um Jn nnar liétign
Alexandrine drotthingu.
13.15 Erindi: Þjóðir og tungu-
mál; fyrra erindi (Árni Böðv
arsson cand. mag.).
14 Messa í Hallgrímskirkju.
15.30 Miðdegistónleikar (pl.).
18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö.
Stephensen).
19.30 Tónleikar: José Iturbi
leikur á píanó (plotur).
20.20 Tónleikar: Einar B.
Waage leikur,á kontrabassa
iþrjú lög eftir Baoh.
20.30 Upplestur: Fr.irakvæmda
hugur og auðhyggja Einars
Benediktssonar (Steingrímur
J. Þorsteinsson prófeissor).
21.05 Frá söngmóti kirkjukóra
sambandanna í Borgarfjarð-
ar-, Mýra-, Snæfellsness- og
Dalapr óf astsdæm um.
21.45 Upplestur: ,,Á breytinga-
tímum“, smásaga eftir Jens
Benediktss. (J. Aoils leikari).
22.05 Danslög (þlötur).
f “■
HANNES Á HORNINU ->
Vettvangur dagsins
'4*!'
illlll!!l!!l!!l!!!l!llll!!ll!l!l!HllUlll!!ll!!!!!llll!i;
lll!ll!nilll!jlÍ!ll!!Hl!|l!!HI!U!llllllll!l(!lliBn!l!ll!ll!!!!!!!!l!!l!lí!!!!ll!!!l!l!!l!!lil|ll!lllll!!l!!l
. . Ofbeldið — einángrunin og tortrygnin á sigur-
göngu — Bandaríkjamenn fara að dæmi Rússa
— íslenzkir sjómenn fá tilkynningar.
Krossgáan
Nr. 309.
r i 9 S
6
”T~
æ:; IO n
i>% í (3
ifS* s lb
f ** '
Lárétt: 1 viðkvæmur, 6 lítil,
7 fugl, 9 forsetning, T0 rödd, 12
húsdýr þf., 14 stillur, 15 ó-
hreinka, 17 skerir.
Lóðrétt: 1 ‘líkamshlutar, 2
'úrgangsefni, 3 tveir eins, 4
álát, 5 ákveðinn,, 8 nokkuð, 11
dragi, 13 utanhúss, 16 tónn.
Lausn á krossgátu m. 308.
Lárétt: 1 seitill, 6 núa, 7 un-
un, .9 tu, 10 rok, 12 fé, 14 tina,
15. att, 17 ratinn.
Lóðrétt: 1 saumfar, 2 iður,
3 in, 4 lút, ð.laugar, 8 not, 11
kinn, 13 éta, 16 tt-
FRJÁLST FÓLK er að
klemmast á milli tveggja stór-
velcla, sem bíða grá fyrir járn-
um, skelkuð hvort við annað og
full af tortryggni og hatri. Og
svæðið milli þeirra er ekki
stórt. Það virðist fara minnk-
andi með hverjum degi. Rúss-
land er lokað land, árum sam-
an hafa menn ekki fengið að
fara frjálsir ferða sinna um
það. Erlendir sjómenn hafa ekki
fengið að ganga á iand frjálsir
og Öháði'r. Öllum hefur verið
bönnuð landganga.
OG ÞESSI HÁTTUE HEFUR
verið tekinn upp í öllum þeim.
löndum, sem hin rússneska yf-
irráðastefna. hefur lagt undir
hramm sinn. Einstaka sjómenn
hafa þó fengið að gaga á land,
til dasmis í pólskum höfnum. en
það hefur verið stórhættulegt,
énda hafa margir horfið, ein-
sfaka hefur verið sleppt effir
marga mánuði og jafnvel mörg
ár eftir að þeim hafði verið
misþyrmt og verið hraktir fró
einum ,,dómara“ til annars.
ÞETTA er rússneskf komm-
únistasystem. Og nú hafa Banda
ríkin leitt í lög, að erlendir
sjómenn skuli ekki fá land-
gönguleyfi fyrr en þeir hafi
verið yfirheyrðir og því aðeins
að þeir fengju sérstakar áritan
ir á vegabréf sín. Þetta snertir
einnig íslenzka sjómenn. Um
þessar mundir er verið að rann
saka æviferil skipshafna á Eim
skipafélagsskipunum. Einstaka
manni er tilkynnt, að hann fái
ekki að sigla á Ameríku.
ÝMSIR KUNNA að segja, að
það sé ekkert við því að segja,
þó að þetta hitti þá, sem trúa
á hið rússneska skipulag og
nota hvert tsekifæri til þess að
vinna fyrir það hér á landi. En
sagan er bara ekki öll sögð
með því. Oft eru , saklausir
menn hafðir fyrir rangri sök.
Hins vegar er það- ekki aðalat-
riðið, heldur hitt, aö þessi tor-
tryggni, þessi ein.angrunarstefna
er spor langt aftur í aldir.
FRJÁLSHUGA MENN, sem
virða vilja skoðanafrelsi og
hugsjónir, eiga erfitt með að
þola það, að óviðklomandi
menn spyrji um skoðanir þeirra
og lífsviðhorf. Þeir hafa ekki
getað þolað það af hinum rúss-
nesku valdhöfum og þeir þöla
það heldur ekki af öðrum.
ÞAÐ BER að harma það, að
einstáka ofstækismenn skuli
ráða svo miklu meðal banda-
rísku þjóðarinnar, sem raun er
á í sambandi við betta. En hins
vegar má ekki gleyma því, að
þessi vopn eru smíðuð í Rúss-
landi, að það er ,,rússnesk upp-
finning” — og mega hinir
kommúnistísku ofbeldismenn
gjarna stæra sig af því, ekki
síður en öðrum uppfinningum,
sem þeir hafa eignað sér.
EN HÖRMULEGT er þetta
og ekki til þess fallið að losa
menn við kvíða eða gera þá
bjartsýna á framfíðina, Skoð-
anafrelsið virðist ekki eiga upp
á pallborðið í nútímanum. Það
virðist ekki vera nema svolít-
111 hluti af Evrópu, sem enn er
frjáis.
Hannes á horninu.
1 e s a
AlþýÖuhlaÖi
'ð
í DAG er sunnudagurinn 4.
jjanúar 1953.
Næturvörður er í læknavarð
Btofunni, sími 5030.
Helgidagslæknir er Hulda
Sveinsson, Nýlendugötu 22,
sími 5336.
Næturvörður er í Ingólfs-
ö-póteki, sími 1330.
FLUGFERÐIR
Flugfélag íslands:
Flogið verður í dag til Akur-
jeyrár og Vestmannaeyja. Á
morgun, er áætlað aö fljúga til
Akureyrar, ísafjarðar, Patreks
fjarðar og Vestmannaeyja. —
Sími flugfélagsins er 6600.
SKIPAFRÉTTIR
Eimskipafélag Rvíkui' h.f.:
Katla er í Cartagena.
Ríkisskip:
Hekla er á Vestfjörðum á
norðurleið. Esja er á Austfjörð
um á norðurleið. Herðubréið
.var væntanleg til Réykjavíkur
i morgun frá Breiðafirði. Þyr-
511 er í Hvalfjrði.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell losar timbur á
Akureyri. Arhhrfell kemur við
í Kaupmannahöfn. í dag á leið
til Finnlands. Jökulfell lestar
frosinn fisk á Þingeyri.
Mishermi
var það í blaðinu í gær, að
Egill Thorarensen í Sigtúnum
væri einn af hluthöfum Gler-
steypunnar h.f. Var það á mis-
skilningi byggt, og harrnar
blaðið mistök sín, en vill að
öðru leyti taka fram, að gefnu
tileíni, að fréttin var ekki frá
neinum stjórnendum, eigend-
um eða starfsmönum fj>rirtæk
isins.
Frá Bæjarútgerff Reykjavíkur:
Bv. Ingólfur Arnarson fór á
saltfiskveiðar 26. des: Bv. Hall
veig Fróðadóttir er í vélar-
hreinsun í Reykjavik. Bv. Jón
ÞoiTá'ksson er í véíarhreinsun í
Reykjavík. Bv. Skúli Magnús-
son kom 29. des og landaði í
Reykjavík. Skipið fór aftur á
ísfiskveiðar 30. des. Bv. Þor-
sfeinn Ingólfsson fór á saltfisk
veiðar 11. des. Bv. Pétur Hall-
dórsson fór á saltfiskveiðar 28.
. des. Bv. Jón Baldvinsson kom
til Reykjavíkur 23. des. Bv.
Þorkell Máiii kom til R'eykja-
víkur 18; des, — I fiskverkun-
árstöðinni un'nnu um 70 manns
í þessari viku við ýmiss fram-
leiðslustörf.
SKIPAUTG6RÐ
RIKISINS
„Esja"
vestur um land i hringferð
hinn 10. þ. m. Tskið á móti
flutningi til áætiunarhafna
vestan Þói'shafnar á morgun
og þriðjudag. Farseðlar seldir
á fimmtudag.
SkðftfefSingur
Tekið á móti flutningi til Vest-
mannaeyja daglega.
FELAGSLIF
KR. Handknattleiksdeild. Æf-
ingar að Hálogalandi í dag.
Kl. 4.20—4.50 3. fl.'karla.
Kl. 4.50—5.20 meistara- og
2. fl. kvenna. Kl. 5.20—6.00
meistara-;, 1. og 2. flokkur
karla. Mætið öll. — Nefndin.
Enn hefur ekki verið vitjað eítirtalinna vinninga
í B-flokki Happdrættisláns ríkssjóðs.; sem út voru dregn-
ir þann 15. janúar 1950:
75.000 kfónur:
4561
15.000 krónur:
141671
2.000 krónur:
28455, 64780, 111423, 149617.
1.000 krónur:
9082.21976,40253,61068, 69082, 74297, 119477,
130556, 131074.
5Ö0 krónúr: j
4278, 5453, 21059, 25636, 35636, 32597, 36158, 47061, J
48486, 50616, 51684, 52303, 53671, 53829, 53857, 63731, j
64946, 70634, 88607, 92970, 94727, 94919, 98291, 111169, )
112782, 112698, 116298, 141999, 148038.
250 krónur: |
7319, 9303, 10396, 10400, 11651, 14786, 15231. 16597,
17661, 18227, 21123, 25895, 32242, 35368, 36242, 39441.
40892, 43793, 43952. 4-4945, 51279, 53653, 53970, 54996,
56804, 60375, 62764, 69468, 71452, 72625, 75122, 77257,
77268. 78375, 90667, 96347, 98347. 99822, 101503
105971, 101935, 106968, 107019, 107862, 110868, 117534,
119490,
119590, 125389, 130288, 130905, 131284, 131303, 133546,
133546, 134926, 137650, 142111.
Sé vinninga þessara ekki vitjað fyrir 15.
janúar 1953, verða þeir eign ríkissjóðs.
Fjármálaráðuneytið, 17. des. 1952.
ÍÍliilljlÍ^^Ml[iffSiRi«RÍWllimilHBmAllSMlKlflllinili™UH!!li;hlllliillllll|-ll^ ffllHllÉllMSlÍI' aiír
Nýkomnir tvöfaldir sænskír stálvaskar, 3 stærðir.
A - Jóhannsson &. Smiih h.f.
Bérgstaðastræti 52. — Sími 4616.
f,.
Jarðarför mannsins míns, föður, tengda- og fósturföður
SIGURGEIRS GÍSLASONAR,
fv. verkstjóra og sparisjóðsgjaldkera, fer fram mánudaginn 5.
jan. 1953 kl. 1,30 e,h, frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim. sem vildu minnast Mns
látna er vinsamlegast bent á ..Bindindismálasjóð Sigurgeirs*
Gíslasonar" eða líknarstofnanir.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Marín Jónsdóttir
Jensína Egiisdóttir Gísli Sigurgeirsson
Margrét Sigurjónsdóttir Halldór A. Sigurgeirssort
Þorvaldur Árnason Svanhvít Egilsdóttir
Kristján Sigurðsson.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarS—
arför móður og tengdamóður okkar
SÓLVEIGAR GUNNLAUGSDÓTTUR
lngibjörg H. Stefánsdóttir
Dagbjört Björnsdóttir
Elín Árnadóttir
Snjólaug Árnadóttir
Sólveig Björnsdóttir
Ingólfur J. Stefánsson.
Tfyggví Þ. Stefánsson.
Friðfinnur V. Stefánsson
Gunnláugur S. Stefánsson
Ásgeir G. Stefánsson
Alþýðublaðið — 3: