Alþýðublaðið - 25.01.1953, Side 4

Alþýðublaðið - 25.01.1953, Side 4
í Otgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: s * W- ? : Hannibal Valdimarsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. S Blaðamenn: Loftur Guðmundsson og Páll Beck. Auglýsinga-S ^stjóri: Emma Möller. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Aug-^ Flokkavald og verkalýðshreyfing í JANÚAR og febrúar fara fram stjórnarkosningar í flestum verkilýðsfélögum landsins. Um þessa helgi fer fram stjórnairkosning í Vöru- bílstjórafélaginu Þrótti hér í Reykjavik, og siðan koma fé- lögin hvert af öðru með aðal fundi sína. Það er þegar auðséð, að máigögn íhaldsins og komm- únista vilja gera stjórnar- kosningar verkalýðsfélaganna hér í Reykjavík að minnsta kosti, að harðvítugu flokks- pólitísku reiptogi sín á milli. Út af kosningunni í Þrótti skrifa bæði þessi blöð langt mál og hart og spara hvorki brigzl né blekkingar. Moir.g- unblaðið í gær flutti t. d. áróðursgrein undir þriggja dálka fyrirsögn fytrir sigri A-listans, sem algerlega er flokkslisti, skipaður íhalds- mönnum einvörðungu. En ekki nóg með þsð. Blaðið veitti þessu máli meira rúm. Önnur síðan — einkasíða dómsmálaráðherrans — var líka tekin öll undir flokksleg- an áróður fyrir sigri þessa framboðslista Sjálfstæðis- flokksins. Alþýðublaðið hefur hins vegar aðeins birt framboðs- lista, sem Þróttarmenn ósk- uðu birtingar á, og síðan, einn ig að ósk Þróttarmanna, birt stuttorða hvatningu um kosninguna. Þannig á þetta líka að vera. Stéttarfélögin eiga að hafa fullt frelsi um sín innri mál. Þetta frelsi eiga þau aldrei að láta frá sér taka. Sízt af öllu eiga þau að láta pólitísku flokknnum takast að hlrifsa það frá sér. Því að takist þeim það, hætta verka lýðsfélrgin að vera heilbrigð og heiisteypt félagsheild og verða brotasilfur pólitískra afla og oftast leiksoppur þeirra. Af bessu leiðir oftast bað, að sjálf stéitarbaráttan, þ. e. menningar- og hagsbóta- starfið, sem félögunum er ætl að að rækia umfram allt ann að, verður aukahlutverk — stundum meira að segja að- eins auðvirðilegt aukahlut- verk. Þegar félagsmenn í verka- lýðsfélagi hafa sjálfir tekið ákvörðun um sín mál. hvort sem það er stiórnarkosning eða annað, er ekkert eðlilegra en að leitað sé til opinþerra blaða til að gera grein fyrir málefninu á þann veg, er fé- lagsmenn sjálfir óska. Verka lýðsfélögin gefa ekki sjálf útj dagblöð, og væ'ru því illa sett,' ef þeim væri synjað um þetta. I Það er þetta sjálfsagða hlut-: verk, sem Alþýðublaðið ætl-1 ar að rækja fyrir stéttarfélög in samkvæmt ósk i>eirra. Það. er þjónusta við þau, semj verkalýðsblaði er skylt að' láta í té. — Hin blöðin munu i svo gera það upp við sig,! hvort bau ætla sér að fara út fyrir þessi eðlilegu takmörk í sambandi við stjórnarkjör í verkalýðsfélögunum — Þau um það. En rangt er það engu að síður, ef þau gera það. Og Það hafa bæði Morgunblaðið og Þjóðviljinn gert nú þegar. Það er í mikið óefni komið í verkalýðsfélögunum, ef stjórnendur þeiria líta fvrst og fremst á sig sem þjóna pólitísku flokkanna, og telja sig því fremur eiga að lúta boði og banni flokksforingj- anna, heldur en sjálfra félags mannanna, sem kjósa þá. Og enn alvarlegri öfugþró- un er það, ef þar við bætist, að pólitískir flokkar telji stjórnendur stærri sambanda og jafnvel landssamtaka vera þjóna sína og undirtyllur. Alþýðusamband íslands má aldrei gerast ambátt póli- tísku flokkanna. Stjórn þess verður að vera óháð öllum öðrum en umbjóðendum sín- um, íslenzkri alþýðu. Frá henni og henni einni mega stjórnendur Alþýðusambands ins taka við fyrirmælum. .Að öðrum kosti eru alþýðusam- tökin ekki það, sem. þau eiga að vera: Frjáls hagsmunasam tök vinnandi fólks til bar- áttu fyrir bættum. kjörum og auknum réttindum. En þetta hindrar engan mann í því að geta jafnframt verið góður flokksmaður. Ef hann í trún- aðarstö'rfunum í verkalýðsfé- laginu, fulltrúaráðinu eða í heildarsamtökunum sýnir bað, að hann er fyrst og frernst þjónn stéttarhagsmun anna, þá gleyma flestir, hvar í flokki hann stendur og treysta honum fúslega fyrir sínum málum. Á þann veg' ey nú mikil þörf að unnið sé að verkalýðsmálunum á ís- landi. VKF Framsókn jhefur skemmtifund þniðjudaginxt 27. þ. im. ;M. 8,30 síðd. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Skemmtiatriði: 1. Félagsvist, — 2. Verðlaun veitt. — 3. Kaffidrykkja ofl. Konur, fjölmennið, takið gesti með ykkur. Hafið spil með. Tilkynnið þátttöku mánudag kl. 4—6 eftir hád. Sími 2931. * Skemmtinefndin. Alþýðublaðið SJÁVARUTVEGURINN EITT þýðingarmesta atriðið fyrir okkur Hafnfirðinga er af koma sjávarútvegsins. Eins og nú horfir við, virðist markað- ur fyrir íslenzkar sjáva.afurð- ir m.jög ískyggilegur, nema þá harðfisk. Þegar þetta er ritað er óselt um helmingur freð- fisksframleiðslunnar frá s.l. áci. Liggur það í Ameríku (ca. 5000 tonn) og hér heima í frystihúsum. Ítalía er landið, sem mest kaupir af okkar salt- fiski. Þar liggja sabfiskbirgðir, sem taldar eru nógar fram á seinni hluta þessa árs. Brezki markaðurinn er íslendingum lokaður og óvíst hve lengi. Mun allt þetta torvelda fram leiðsluhætti íslendinga í ár, og mun það ekki sízt vald.a erfið- leikum hjá þeim bæjum og þorpum, sem mest eiga sitt undir vexti og viðgangi sjávar- útvegsins. Hvað er þá til ráða? Ýmsar ieiðir eru til úrbóta. Harðíisk- verkun mun t. 'd. fara mjög í vöxt, enda vaxandi markaður fyrir hann í Afríku og verð ekki lækkað enn sem komið er. Er hann greiddur í fjálsum gjaldeyri. Til Hafnarf jarðar hefur komið mikið af hjalla- efni og má gera ráS fyrir að framleiðsla á harðfiski meira en tvöfaldist hér á þessu ári. Er nú unnið að frekari hjalla- innkaupum til Hafnarfjarðar, en innflutningsyfirvöldin eru erfið í þeim viðskiptum, þó merkilegt sé. Helzt er útlit fyrir að selja verði hraðfrysla fiskinn mikið í vöruskiptum í ár, og er það ill leið til úrbóta, sem þó verð- ur ekki komizt hjá. Mun það hækka vöruverð í landinu. Annars vegar er svo tilraun til þess að viðhalda atvinnunni í frystihúsunum. Mun því verða lagt kapp á að frysta það af bátaaflanum, sem hægt er. Hins vegar mun afli togaranna á vertíðinni yfirleiít verða hert ur og saltaður. Um karfafrystingu verður ekki að ræða fyrr en í vor, í maí eða júní, og er þá gert ráð fyrir að selja fiskinn til Amer- íku. Fyrir Ameríkumarkað mun einnig verða fryst það, sem veiðist af ýsu, steinbít og eitthvað af þorski. Er þar eft- ispurn eftir ýsu og steinbít og verðið hagstætt. Mætti sú framleiðsla aukast að mun. Enda þótt dökkt sé í áiinn í bili, er engin ástæða til að ör- vænta. Verði mikil harðfisk- verkun í.bænum í ár, bátafisk- urinn frýstur, eitthvað af salt- fiski lagtá land og verkað eins og s.l. ár, karfavinnsla með líku sniði og áður, framkvæmd ir bæ.iarins svipaðar, má gera ráð fvritr svipaðri vinnu og s. 1. lár. Væri þá vel farið, en gott ,ef meira yrði. j Loks má geta þess. að vegna lokunar Faxaflóa fyrir botn- vörnu- og dragnótaveiði og út víkkunar landhe'lginnar má bú ast við vaxandi ú-tgerð hinna smærri báta vor oa sumar. Má fastlega gera ráð fyrir, að margur muni. nota sér þá að- stöðu. bæði hér í Hafnarfirði og víðar. Eitt verður íslenzk alþýða að Ieggja sér vel á minni, að það eru verk brezkra íhaldsafla. sem hafa lokað markaðinum í Englandi, það er brezka ríkis- stjórnin — sönn íhaldsstjórn —, sem leggur blessun sína yf- ir ofbeldisaðgerðir fámennrar útgerðarklíku. Hefði vcrka- mannastjórn í Bretlandi aldrei liðið slíkar aðgerðir. Slíkur er munur íhaldsaflanna annars vegar og stefnu A.lþýðuflökks- ins hins vevar í Bret’andi. E: þetta lærdómur út af fyrir sig. IÐNAÐURINN Annar aðalatvinnuvegur bæj arbúa er iðnaðurinn. Þessi at- vinnuvegur byggist svo mjög á afkomu sjávarútvegsins, að segja má um mikinn hluta hans. að hann falli með honum og að hann njóti hans og dafni, ef sjávarútveginum reiðir vel af., Ve"ður það með hverju ár- inu ábreifanlegra, að það, sem við Hafnfirðingar þurfum að keppa að fremur öllu öðru, eins og raunar allir bæir og þoi-p í landinu, er að efla og auka iðnaðinn og gera hann sem fjölbreyttastan. Dálítið hefur, þetta verið reynt hér i bæ og gefizt vel. Eru miklar líkur til, að auka mætti iðnaðinn mjög í bænum þegar meiri orka verður fyrir hendi. Ýmislegt bendir til þess, að Hafnfirðingar eigi auð æfi í jörðu, sem skapað gætu mikla atvinnu og verðmæti, ef við hefðum fullkomna þekk- ingu og fjármagn til þess að vinna að því. LANDBÚNAÐURIN N Þessi atvinnugrein er svo lít ið stunduð af bæjarbúum, að hennar gætir næsta lítið. Er það miður farið, því það er víst, að með því að stunda land búnað meira en sert er. gætu bæjarbúar létt m:kið undir og bætt afkomu sína. Kemur þar margt til g eina. Skilyrði eru hér að vísu erfið til ræklunar, eins og er þar sem umhverfi bæjarins er mest hraun. Nokkr ar líkur eru bó fvrir því. 'að ekkí sé iafn erfitt að rækta það og ætlað er.'Það hefur ekki far ið fram hjá mönnum, að þar sem hraunið hefur verið slétt- að með jarðýtum og fiskhjallar reistir, hefur mvndazt jarðveg ur og grasið botið upp, hafi það nokkum frið fengið. Bendar þetta til þess, að ekki muni frá leitt að takat megi að græða upp hraunið og geira það þar með hið arðbærasta, ef rétt væri að farið og r.ægjanlegt væri fyrir hendi af hentugym og réttum áburði. AÐ LOKUM Bæjarbúar þurfa allir sem einn að beita sér fyrir skyn- samlegustu og beztu ieiðinni til þess að gera atvinnu bæjar- búa sem fjölbreyttasta og víð- feðmasta. Við búum í barð- býlu landi, sem býður þó upp á mikla og margþætta mögu- leika, ef vit, kiarkur og mann- dómur er fyrir hendi. Við meg um ekki vera ómagar útlendjra ríkja, hvorki í aU-Stri né vestri. Við eigum að auka sfköst okk- ar, manndóm og þekkingu og nýta til hins ýtrasta gæði lands og sjávar, svo við getum lifað betra og fegurra 3ifi en nokk- urn tíma áður. Fréttabréf frá Keflavík: ódar en affi heldur ndi frá bvf, sem var Útlendingarnir undrast veírarveðrin á íslandi: Eng- inn snjór og enginn ís — nema rjómaís! I KEFLAVÍK hafa 23 bátar hafið róðra. Gæftir hafa verið góðar og frátök lítil. Heldur hefur afli tregðazt frá því, sem var í byrjun vertíðar, eða er nú þetta 5—6 tonn í róðri. FÍSKUR FLUTTUR ÚT Kæliskipið Drangjökull var hér í vikunni og tók fisk hjá hraðfrystihúsum til útflutn- ings. Frá Keflavík h.f. voru teknir um 1500 kassar af fiski og 10 tonn af lúðu, frá Jökli h.f. voru teknir 900 kassar af fiski og 7 tonn af lúðu og frá Hraðfrysti'húsi Keflavíkur h.f. 375 kassar af fiski. Láta mun nærri að það magn, sem þarna var tekið, sé það magn, sem fryst hefur verið það sem af er þessu ári, svo að betur má, því að fyrir er magn xrá fyrra ári, sem nauðsyn er að losna við. Von er á Vatnajökli nú ein- hvern næstu daga, og standa vonir til, að hann taki veru- legt magn, svo að um það ætti að muna. VERTÍÐARSVIPUR Á BÆNUM Nú er kominn fullur vertíð- arsvipur á bæinn. Bílar, hlaðn- ir fiski eru á ferð um göturn- ar, sjómenn með bifakassann sinn undir hendinni, •— allt gerir sitt, en mest er um að vera við höfnina. Þar eru bát- ar í hverju löndunairplássi á þeim tíma sólarhringsins, sem þeir koma að landi. Loftið blandið reykjarsvælu og in- dælli lykt af ferskum fiski, en hlustirnar. fylla mótorskellir. Fiskinum, þessu verðmætasta af þeim verðmætum, sem við byggjum þjóðarbúskap okkar á, er fleygt á land og fluttur frá skipshlið til aðgerðarhúsa, þar sem landmenn bátanna gera að honum, sem kallað er. Þaðan er hann enn íluttur í frystihús_ eða á söltunarstað — allt eftir því hverja verkun hann skal fá. Landmennimir taka frá skipshlið þá línu, sem notuð hefur verið í róðrinum og flytja hana heim í beilning- arskúrinn, þar sem þeir aftur taka beitta línu og fara nieð um borð í skipið, og skal hún notuð í næsta róðri. Hin línan er svo beitt, meðan skipið er í róðri, og þannig koll af kolli. Beitning er ærið vandasamt starf, þótt fljótt á litið virðist það ekki vera svo. Mikið er undir því komið að línan ekki flókni í lögn, en ef svo fer, þá styttir það þá línu, sem mögu- leiki er að fiska á, minnkar aflamöguleikana. FLUGVÖLLURINN Það hefur helzt til tíðinda borið á Keflavíkurflugvelli, að komið hafa til íramkværnda reglur um takmörkun á um- (Frh. á 7. síðu.) ,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.