Tíminn - 09.07.1964, Side 2
MIÐVIKUDAGUR, 8. júlí.
NTB-London. — Afríkanskir
fulltrúar á samveldaráðstefn-
unni, sem hófst í Lundúnum f
dag unnu sinn fyrsta sigur í
dag með því að fá því fram-
gengt, að málefni S.-Rhodesiu
yrðu sett í annað sæti á mál-
efnalistanum, sem liggur fyrir
ráðstcfnunni. Munu málefni S.-
Rhodesiu verða tekin fyrir á
Uðstefnunni á morgun.
NTB-Berlín. — Snemma í
morgun handtóku austur-þýzk-
ir landamæraverðir einn félaga
sinn og tvo óbreytta borgara,
sem gerðu tilraun til að flýja
yfir borgarmðrkin í Berlfn, yf-
ir á bandarfska hemámssvæð-
ið.
NTB-Genf. — Alþjóðlega lög-
fræðinganefndin, sem nú held
ur fundi f Genf, deildi hart á
Sovétstjórnina í dag, fyrir of-
sóknir hennar gegn Gyðingum,
sem miða að því að kenna þeim
um fjármálaspillinguna f land-
inu. f greinargerð lögfræðinga
nefndarinnar segir, að tilgang-
urinn með aðgerðum Sovét-
stjómarinnar sé að leyna hin-
um kapitalísku tilhneigingum,
sem jafnvel verður vart innan
sjálfs kommúnistaflokksins.
NTB-Mexico-borg. — Björg-
unarstarf er nú í fullum gangi
á jarðskjálftasvæðinu um 160
km. suð-vestur af Mexico-borg,
þar sem mörg þorp hreinlega
jöfnuðust við jörðu í miklum
jarðskjálftum í fyrradag. —f
opinberri skýrslu segir, að 31
enaður hafi farizt, en fjölda er
saknað og enn fleiri eru slasað
ir. Sum þorpanna á hálendinu
hrundu gjörsamlega til grunna,
en önnur skoluðust burtu, er
Balsa-fljótið skipti um farveg
vegna jarðhræringanna.
NTB-Moskvu. — Nikita Krúst
joff, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, sagði í ræðu í Kreml
í dag, að það væri krafa Sovét-
ríkjanna, að allt brezkt herlið
og aðrir erlendir liermenn
yrðu fluttir þegar í stað brott
frá Kýpur, svo að bundinn
yrði endir á erlend afskipti í
deilu eyjaskeggja, og þeim
gert fært að ráða málum sínum
til lykta af eigin rammleik.
NTB-New York og Saigon. —
U Thant, framkvæmdastjóri SÞ
sagði á blaðamannafundi í dag.
að ekki væri unnt að leysa
vandamál S.Vietnam með vopna
valdi og lagði til, að haldin
yrði ráðstefna i Genf á nýjan
leik, þar sem reynt yrði að
finna pólitíska lausn á vand-
«num.
NTB-New York. — Banda-
rísk blöð hafa látið í ljós van-
trú á heilindum Sovétríkjanna
bak við tillögu þeirra um stofn
un fasts öryggisliðs Sameinuðu
þjóðanna. T. d. segir Ncw York
Times í dag, að Sovétríkin
verði að sýna áþreifanlega, að
tillagan sé ekki aðeins bragð
til þess að leyna kommúnist-
ískum Trojuhestum innan
landamæra hins frjálsa heims.
%
HEIMSÓKN ADELMANN GREIFA
Hér er nú í tveggja daga heimsókn Raban Adelmann/greifi, forstöðumaður upplýsingadeildar Atiantshafs-
bandaiagsins. Á sunnudagskvöldið hélt Adelmann fyrirlestur um Atlantshafsbandalagið i Hótel Sögu og er
myndin tekin að honum loknum. Á henni sjást talið frá vlnstri Hörður Helgason, Björgvin Vilmundarson,
Pétur Benediktsson, (baksvipur) Adelmann og Pétur Thorsteinsson.
Féll úr Hallgrímskirkju
og slasaðist
EJ-Reykjavík, 8. júlí.
Það slys vildi til um hádegi í
gær, að maður, sem var að störf-
um við Hallgrímskirkju, féll nið
ur og slasaðist illa á höfði. Var
talið, áð hann hefði höfuðkúpu-
brotnað.
Maðurinn, Kristján Arason, Suð
urlandsbraut 82, var þegar flutt
ur í Landakotsspítala.
Varð undir heyvagni
EJ-Reykjavík, 8. júlí.
Um klukkan þrjú í gær varð
það slys á bænum Skálakoti, Vest
ur-Eyjafjöllum, að 16 ára gömul
stúlka, Rúna Bjarnadóttir varð
undir heyvagni.
Lögreglan á Selfossi flutti Rúnu
á sjúkrahúsið á Selfossi í kvöld.
Mun heyvagninn hafa lent á
mjöðm hennar, en ekki er enn
vitað hvort hún hefur mjaðma-
brotnað.
Héraðsmót
í Atlavík
Framsóknarmenn á Austurlandi
halda héraðsmót sitt í Atlavík um
næstu helgi. Eins og venjulega,
verður dansað laugardagskvöldið.
Sunnudaginn kl. 2 e.h. hefst svo
aðalhátíðin. Þar flytja ræður Ey-
steinn Jónsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, og Ágúst Þor-
valdsson allþingismaður.
Meðal skemintiatriða eru: Ein-
söngur Jóns Sigurbjörnssonar
óperusöngvara. Ilaukur Morthens
og hljómsveit skemmta og Jón
Gunnlaugsson gamanleikari fer
með skemmtiþátt og Hjálmar
Gíslason gamanleikari skemmtir.
— Að lokum verður dansað. Hauk
ur Morthens og hljómsveit leika
fyrir dansinum bæði kvöldin.
ÁSGEIR STEINGRÍMUR
Héraðsmót
í Dalasýslu
Héraðsmót Framsóknarmanna í
Dalasýslu verður haldið laugar- i
daginn 11. júlí n.k., o,g hefst ki. |
9 s.d. í félagsheimilinu Tjarnar-
lundi í Saurbæ. Ræður flytja Ás-'
gcir Bjarnason, alþingismaður,
og Steingrímur Hermannsson fram,
kvæmdastjóri. — Árni Jónsson:
tenórsöngvari syngur og Emilía
Jónasdóttir leikkona, skemmtir.'
Góð hljómsveit leikur fyrir dansi.
200 hestar keppa
á Þingvallamótinu
KH-Reykjavík, 8. júlí.
Verði veðurguðirniir í góðu
skapi á sunnudaginn kemur, má
búast við miklum fjölda manna
og hesta á Þ'ingvöllum , því að
þar ætla yfir 200 hestar að fara
á kostum, "keppa í stökki, skeiði,
brokki og jafnvel tölti. Hafa marg
'ir þekktir garpair verið skráðir til
leiks, en að mótinu stainda 6 fé-
lög í landnámi Ingólfs, o'g er til-
gangurinn með mótinu einkum sá
að nýta þennan ágæta mótsstað,
sem Landssamband hestamanna á
í Skógarhólum, og ennfremur að
afla fjár t'il viðhalds staðarins.
Hestamannamótið hefst í Skóg-
arhólum kl. 1 á sunnudaginn kem-
ur með hópreið félaganna inn á
svæðið. Hvert félag sendir í hóp-
reiðina 21 mann og hest undir
hann, og hvert félag verður með
sinn búning. Formaður fram-
kvæmdanefndar mótsins, Pétur
Hólmsson, sagði á blaðamanna-
fundi í dag, að lögð yrði áherzla
á, að knaparnir yrðu ekki hestum
sínum til skammar.
Einar Sæmundsen, form. Lands-
sambandsins, setur mótið, og síð-
an hefur sr. Eiríkur J. Eiríksson
stutta hclgistund Þá dæmir dóm-
nefnd hópreiðina og veitir bezta
flokknum viðurkenningu. 16 hest-
ar eru skráðið til keppni í skeiði,
sem verður með nýju sniði, þann-
ig að hestarnir eiga að skeiða
150 m og frjáls aðferð er 100
metra. Fyrstu verðlaun eru 5 þús.
kr. og áletraður silfurpeningur.
20 hestar munu taka þátt í 300 m
tölti, sem verður nú í annað sinni
keppnisgrein á hestamannamóti
hér.
20 hestar eru skráðir í 300 metra
stökk, og í 800 m stökk eru skráð-
ir 16 hestar, m.a. Gulur á Laug-
(Framhald á 12. siðu).
Árs fangelsi fyrir nauðgunartilraun
EJ-Reykjavík, 8. júlí.
í fyrradag var kveðinn í Saka
dómi Reykjavíkur upp dómur í
máli tveggja manna, sem ákærðir
höfðu verið fyrir að ráðast á
mann á Hverfisgötu aðfaranótt 31.
ágúst 1963 og ræna hann úri og
400 krónum í peningum. Annar
þeirra var auk þess dæmdur fyr
ir innbrot, og hlutu þeir saman-
lagt 11 mánaða fangelsi og urðu
að greiða 5000 krónur í skaðabæt
ur.
Annar hinna ákærðu, Sigurþór
Heimir Sigurðsson, var sakfelld-
ur fyrir innbrot og fyrir að hafa
ráðizt á vegfaranda á Hverfisgötu
og slegið hann hvað eftir annað,
en slitið síðan armbandsúr af
handlegg mannsins og horfið á
brott með það. Hlaut hann átta
mánaða fangelsisdóm fyrir rán og
þjófnað.
Hinn sakborningurinn, Pétur
DÆMDIR FYRIR LIKAMSARAS
EJ-Reykjavík, 8. júlí.
1. júlí var kveðinn upp dómur
í máli þriggja pilta, sem ákærðir
voru fyrir að hafa sameiginlega
ráðizt á 15 ára gamla stúlku í
Hljómskáiagarðinum aðfaranótt
30. ágúst 1963 og reynt að, nauðga !
henni. Þyngsta refsing var eins* 1
árs fangelsi, en sú vægasta eins
árs skilorðsbundið fangelsi. Tveir
aðrir piltar sem einnig tóku þátt
í árásinni, voru innan sakhæfis-
aldurs og mál því elcki höfðað
gegn þeim.
Málsvextir voru þeir, að umrætt
kvöld um miðnætti hitti stúlkan
piltana fimm í miðbænum og gekk
með þeim um stund, enda þekkti
hún tvo þeirra vel. Gengu þeir
upp Tjarnargötu og síðan gegn-
um Hljómskálagarðinn undir því
yfirskini, að einn piltanna þyrfti
að ná í strætisvagn á Fríkirkju-
veginum. Á horni Bjarkargötu og
Skothúsvegar réðust piltarnir all
ir á hana og lögðu hana inn á
milli trjánna. Hélt einn um munn
hennar, annar fótunum en hinir
rifu af henni fötin. Tókst henni að
bíta í höndina, sem hélt um munn
inn, og sleppti pilturinn takinu,
en stúlkan tók að veina. Héldu
þeir henni þó enn um stund og
lagðist einn þeirra ofan á hana.
í sömu andrá flúðu tveir piltanna
og hinir fylgdu brátt á eftir. En
stúlkan hélt áfram að veina og
fjórir menn, sem voru að tína
maðka í garðinum, runnu á hljóð
ið og fundu stúlkuna. Voru pilt-
arnir handteknir og játuðu þeir
afbrot sitt.
Þórðarson, var sakfelldur fyrir að
hafa ráðizt á þennan sama mann,
sem hinn hafði rænt, og slegið
hann að tilefnislausu tvö högg í
andlitið með hnefa sínum. Ekki
var sannað að* hann hefði slegið
manninn í auðgunarskyni né tek
ið neitt verðmætt af honum. Var
hann því aðeins dæmdur fyrir
líkamsárás og hlaut þriggja mán-
aða fangelsi.
Báðum sakborningum var gert
skylt að greiða þeim, sem fyrir
afbrotum þeirra urðu, 5000 kr.
i skaðabætur.
Miðvikudaginn 8. júlí.
Upp úr hádegi í gær fór að
hvessa á sfldariniðunum fyrir
Austurlandi og leituðu skipin f
var. f morgun var enn óhagstætt
veður á miðunum um 7 vindstig
af norðaustri. Síldarleitinni var
kunnugt um afla 13 skipa samtals
7.400 mál og tunnur.
Dalatangi.
Guðmundur Þórðarson RE 450,
Sæfaxi AK 450, Vigri GK 350,
Smári ÞH 200, Steingrimur trölli
SU 500, Hannes Hafstein EA 500,
Grótta RE 600, Straumnes ÍS 350
Anna SI 150, Náttfari ÞH 400.
Raufarhöfn.
Engey RE 1150, Þórður Jónasson
RE 1200, Sigurður Bjarnason EA
1100.
T í M I N N, fimmtudagur 9. júlí 1964. —