Tíminn - 10.07.1964, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.07.1964, Blaðsíða 8
ÓLAFUR JÓHANNESSON FRÁ SVÍNHÓLI: Vinnuhagræðing og starfsgleði IIPPHAF OG ÁHRIF T.W.I.-KERFISINS Strax á fyrstu árum síðustu heimstyrjaldar urðu til margvís- leg vandamál á sviði iðnaðar- framleiðslunnar, ekki sízt 1 her- gagnaframleiðslunni, sem þá þurfti allt í einu að auka, þjálfa þurfti mikinn fjölda fólks, á stutlum tíma, til nýrra starfa, á ýmsum sviðum atvinnulífsins. Á þessum árum varð til í Bandaríkjunum hið svo kallaða, T.W.I. kerfi (Training Within Industry): er hófst með því, að yfirmönnum og verkstjórum, hinna ýmsu verkstofnana (aðal- lega verksm.) var gefinn kostur á, að sækja stutt námskeið (lOst.) og njóta þar tilsagnar á verk- stjóm (forsögn verka), og nokk- urrar persónulegrar verkþjálfun- ar. Þessi stuttu verkþjálfunar- námskeið þóttu ná tilætluðum árangri, og um 1945 höfðu t.d. 1. millj. verkstjóra í Bandaríkj- unum notið þeirra. Með tilkomu þessa „T.W.I. kerfis“ hefst hin mikla áhugaalda fyrir vinnuhag- ræðingu, er síðan opnaði augu manna fyrir vaxandi möguleikum aukinnar framleiðslu og fram- lciðni. Hinir jákvæðu, fljótvirku ár- angrar þessa nýja verkþjálfunar- kerfis, verða þegar kunnir, og áhríf þeirra berast vítt um lönd. íslendingar smitast. Til íslands mun vitneskja — og áhugi — á þessum málum (hagræðingar) sérstaklega hafa borizt frá Noregi (einnig 'Bandar.) Norðmenn eru miklir áhuga- menn á þessu sviði, og halda uppi miklurn áróðri, um vinnurann sóknir og önnur hagræðingarmál, er snerta helztu atvinnugreinar þjóðarinnar. Árið 1949, kom til fslands — og dvaldi um nokkurt skeið — norskur maður Rolf Waatne. Hann kynntist aðstæðum á ýms- um vinnustöðum, smitaði áhuga og fræddi um verkstjórnar og- og hagræðingarmál. í framhaldi af dvöl Rolfs hér og þess áhuga, er hann hafði vakið þáðu íslendingar boð Norðmanna um að senda mann til Noregs, er kynnast skyldi því helzta, er að þessum málum laut. Til þessarar kynnis- og fræðsluferðar, valdist Sigurðuí1 Ingimundarson, verkfr. og núverandi alþingismaður. Norðmenn eru taldir standa framarlega og lýðræðislega hvað snertir verkstjórnarfræðslu og margvísleg hagræðingarmál. Þeir aðilar, er helzt standa að og hafa forgöngu um slík mál þar í landi eru: Ríkið, atvinnurekend- ur, alþýðusambönd og bréfaskóli. Bréfaskólinn einn, tekur t.d. til meðferðar 23 námsgreinar í verk- stjórnarfræðum. Hvað er framleiðni? Með tilkomu hinnar öru tækni- þróunar verða til ýms nýyrði í ísl. máli, er stundum valda mis- skilningi, hvað merkingu þeirra snertir. Sumir halda jafnvel, að hér séu á ferðinni „fín orð“, sem stjómmálamenn temji sér öðr- um fremur og hafi yndi af að leggja sér í munn, t.d. orðin hag- ræðing, framleiðni, (og skynvæð- ing!) o.fl. Enn hættir mörgum til þess að rugla saman orðunum: framleiðsla og framleiðni og halda jafnvel, að þau merki það sama. Allir vita hvað framleiðsla þýðir. Framleiðni er hins vegar hlutfall milli framleiðsumagns og tilkostnaðar (á framl. ein.). Dæmi: a. Framleiðslumagn eykst, en framleiðslutilk. stendur í stað, er framleiðní, eða b. Fram- leiðslumagn er hið sama, en til- kostnaður minnkar er: fram- leiðni. Ef við getum framleitt t.d. 100 stóla fyrir 50 þús. kr. og 200 stóla fyrir 100 þús. kr., þá er það aukin framleiðsla, en ekki fram- leiðni. = 100 stólar fyrir 50 þús. kr., 200 stólar fyrir 100 þús. kr. = Framleiðsla. = 200 stólar = framleiðslumagn 75. þús. kr., = tilkostnaður = Framleiðni. (Ath. 25. þús. kr., minna en áður) Ef fjármagn, efni, vinnuafl og markaður eru fyrir hendi, er framleiðsluaukningu lítil takmörk sett: hinsvegar þarf margs að gæta og vandinn vex, ef auka skal framleiðnina. Nú er mikið um það rætt, og að því stefnt, að auka bæði, fram- leiðslu og framleiðni. Aukin framleiðni ýtir undir aukna framleiðslu, og gerir hana mögulega. Vaxandi framleiðsla eykur neyzlu og atvinnu, og á þess vegna að bæta afkomu, og menningu, ef rétt er á haldið. Vinnuhagræðing eða Bakka- bræðraskipulag? Vinnuhagræðing (vinnueinföld un) er m.a. fólgin í því, að beita sem mest þeim aðferðum í starfi, sem bezt hafa reynzt, samkvæmt vísindalegum prófunum, raða rétt og skipulega verkefnum (einnig hlutum, vélum, vörumagni, o.s. frv.) og koma þannig í veg fyrir handahófsvinnubrögð. Margs kon- ar verkkannanir og tímamæling- ar stuðla að hagkvæmari vínnu- brögðum, draga úr — eða fyrir- byggja- óþarfa tímasóun, sem allt of víða á sér stað, en margir gera sér tæpast grein fyrir, þótt aðrir myndu telja svo langt gengið, að um nokkurskonar „verk-leysis- starblindu" væri að ræða eða „Bakkabræðraskipulag“!. Verkstjórar hafa afskipti af stórum hluta þjóðarinnar. En verkstjóri er reyndar hver sá, sem yfir starfsfólki ræður, enda þótt hann sé í sumum tilfellum kallaður: deildarstjóri, sölustjóri, framkvæmdarstjóri o.s.frv. Hann þyrfti helzt að vera nokkur skipu- lagsstjóri, og mannþekkjari. Skort ur á reglu, og góðu skipulagi get- ur orðið svo mikill vani, að verk- menu þjálfi sig loks upp í því, að gera sig ánægða með skipu- lagsleysið! Eða: Þeir verða að sætta sig við það. ( = Örþrifasátt") Nauðsyn vinnuhagræðingar er hægt að sanna með tölum (tíma- mælingar o. fl.) Þannig að aug- ljóst verður, að það er betra, að vinna verkið, svona en ekki ein- hvern vegin öðruvísí! og að nauð- synlegt er, að vita hina auðförn- ustu rás þeirra. Einnig, að verk séu ekki, að þarflausu, slitin úr tengslum við þá heild, sem þau tilheyra, o.s.frv. Starfsleiði eða „starfsgleði“. Erindislaust erfiði skapar starfs leiða og þreytu, en hugkvæmnin, hagræðingin og áhuginn eykur ánægjuna, og styrkir aflgjafa nýrra framfara. Gott skipulag ger- ir kröfu til þess, að tekið sé til- lit til heildaraðstæðna sömu verk- stofnunnar. Sé ekki liöfð í huga heildarmynd þess starfs, sem vinna á, eða þess kerfis, sem öll störfin þarfnast, hættir mörgum til þess, að framkvæma í snatri, hverja þá hugmynd, sem þeím finnst í augnablikinu vera mjög snjöll, en síðar kemur e.t.v. í ljós, að hugmyndin, og fram- kvæmdin er mjög neikvæð, gagn- vart öðrum atriðum, er snerta heildarskipulagið. Allt of víða gætir þess, að störf eru illa eða ekki undirbúin, og verða af þeim sökum handa- hófskennd, og í flestum tilfellum erfiðari og verr unnin, en vera þurfti. — Þeir sem hafa horft á skurðaðgerð, fá Ijósa mynd af því, hversu nauðsynlegt er, að undirbúá verk. Fyrirfram er ætl- azt til þess, að verkið taki sem stytztan tíma, og heppnist sem bezt. Allt, sem nota þarf, er haft við höndina, og á réttum stað. Stefnt er að sem mestu öryggi, og samverkandi aðgerðum. Þegar þannig er unnið, verður oftast komið í veg fyrir mistök, og slys, og gildir hér hið sama, þótt ekki sé um svo vandgerð verk að ræða, sem hér var nefnt. Störf eiga að vera vel undir- búin, og vel unnin, og góður verkstjóri styður þá nauðsyn. Hann vinnur einnig að því að, að einstaklingar innan sömu verk- stofnunar njóti ekki sérréttinda, né hæipri launa, vegna kunnings- skapar, né annarlegra sjónarmiða, en tekur tillit til hæfni og starfs- afkasta, eftir því sem aðstæður leyfa. Þar sem ekki er um vinnu- rannsóknir, starfsmat né ákvæðis- vínnufyrirkomulag að ræða, verð- ur vandi yfirmanna þeim mun meiri, að sjá um að verkefni dreyfist sem réttlátast á starfs- fólk. Samkennd starfsfólks í verk- stofnun, og andinn á vinnustaðn- um þarf að vera traustvekjandi, og skapa eitt jákvæðasta aflið til starfsgleðinnar, og hollustu til verkstofnunarinnar. Ef slíkur hug blær er ríkjandi meðal starfs- fólksins, eru einnig miklar líkur til þess, að það skili miklum og góðum störfum. Margir eyða nú miklum hluta æfi sinnar á vinnustað, utan heim- ilis síns. Það er þVí mikils um vert, að þeir njóti þar sem mestra hollustuhátta, í bezta skilningi þess orðs, en bíði ekki tjón á heilsu sinni, né fargi starfsorku á skömmum tíma, vegna vanhugs- aðra vinnubragða. Enda er það trú mín, að bið verði á framleiðn- inni, ef vinnan verður einstak- lingnum böl. ólafur Jóhannesson Þess vegna þarf með skynsam- legri vinnuhagræðingu, og öðr- um ráðum, að treysta þann heil- brigða hugsanarhátt, að ekkert starf sé svo einfalt, að það borgi sig ekki að leggja sig allan í það. Hitt er svo aftur mikill skaðvald- ur, ef fyrirhyggjuleysi og fjar- stæðukennd vinnubrögð trufla skaphætti tilfinníngamannsins, og verður þrándur í götu hins hug- myndaríka athafnamanns. Vinnu- sálarfræðin minnir á þessar stað- reyndir. Ég vil í þessu sambandi skírskota til hinnar ágætu bókar „Hugur og hönd“ eftir danska sálfræðinginn Poul Bahnsen, sem Broddi Jóhannesson skólastjóri kennaraskólans hefur þýtt af mik- illi snilld. Bók þessi er notuð sem kennslubók í vinnusálarfræði, og á erindi til allra þeirra, er láta sig varða vinnuvísindi, , í tengslum við félagsleg og heilsu- fræðisleg samskipti manna. Tortryggni til vinnurannsókna. Nokkurrar andúðar verður stundum vart til þeirra nýjunga, sem á dagskrá eru, ekki sízt, ef þær eru tengdar vísindalegum rannsóknum, snerta e.t.v. einstak- linginn, og knýja á um breyting- ar er ná til venjulegra auðveldra starfa, eins og það er orðað. Þeg- ar þess er gætt, að skammt er liðið frá því að hin svokölluðu hagræðingarmál voru fyrst á dag- skrá, hér á landi, er skiljanlegt, að enn sé ekki fyrir hendi al- mennur áhugi, en vænta má mik- ils í þessu sambandi, þar sem ís- lendingar eru fljótir að tileinka sér nútímatækni, og góð vinnu- brögð, þegar áhuginn er vakinn. Það mætti ætla, að löng leið væri frá „vanþróuðu kotríki'1, til „Velferðarríkis". En í skjóli þekk- ingar, með aðstoð raunvísinda, á skipulögðum grunni, verður að leita öruggra leiða, þjóðinni til velfarnaðar. rðnaðarmálastofnun íslands. Ilefur hafið baráttu fyrir auk- inni skipulagshæfni, og verkmenn ingu, m.a. með kvikmyndastarf- sem erindaflutningi, bókasafni (Tæknibókasafni I.M.S.Í.) og margs konar stuðningi við ein- staklinga og stofnanir, sem áhuga hafa á tæknilegum hagræðingar- málum. Stofnunin hefir haldið mörg almenn verkstjórnarnám- skeið, sem vænta má að þróist i fastan verkstjórnarskóla. ER þess að vænta, að hér 4 landi hefjist lýðræðislegt sam-. starf, um þessi þýðingarmiklu mál, sem velferðarhugsjónir heild- arinnar mótist af. Lítum í kring um okkur. í borg og bæ, og víðs vegar ucn landið, á sér stað óhugnan- legt skipulagsleysi, úti og inni, sem orsakar það, að fjöldi fólks vinnur að stöðugum óþarfa flutn- ingi, fram og aftur með sjálft sig, . og þá hluti sem það handleikur.. Geysilegum tíma- og orku — er hér sóað, og gerir störfin oft erfið og leiðigjörn, sem annars gætu verið lífræn og skemmtileg. Þótt ekki sé beitt hagfræðileg- um aðferðum, né tímabundnum útreikningum, má oft gera vinn- una auðveldari, og skemmtilegrl og færa margt til betri vegar, jafnvel án teljandi tilkostnaðar, sé hugkvæmni og eftirtekt beitt. Það er t.d. eftirtektar vert, hér í R-vík, þar sem tekið hefur ver- ið upp „kjörbúðarfyrirkomulag", hversu takmarkað rými, er til fullnustu nýtt, og oft skemmti- lega. Aftur á móti eru ýmsir vöru- lagerar og efnisgeymslur, full- komin andstæða þess, sem vera þyrfti, og sumstaðar allt að því hryggðarmynd. Verðmæti glatast, og skaðleg huglæg áhrif verða jafnvel varanleg. Á ýmsum slík- um stöðum, er það venjulegur atburður að leita þurfi að hlut- unum. Hins vegar er það mörgum ráðgáta, hve sumir eru fundvís- ir í slikum leitarferðum. Þið, sem áhuga hafið á góðum vinnubrögðum, hagfelldu skipu- Iagi, og umgengismenningu, ger- ið ykkur ferðir þangað, sem þess- um málum er sýndur sómi og réttlátt hugarfar. Hafið samband við lækna, trún- aðarmenn og aðra ráðgefendur, hvað snertir vinnuheilsufræði, vinnusálarfræði o.s.frv. Gerið ykk ur grein fyrir beztri staðsetningu vinnuljósa, gerð vinnustóla, hæð vinnuborða og hvers konar stað- setningu manna gagnvart hinum ýmsu mismunandi störfum. Mér er kunnugt um að Iðnaðarmála- stofnun íslands er Ijúft að veita milligöngu, og stuðning í þessum efnum eftir því sem aðstæður leyfa. Þegar rætt er um reglusemi ’og góða umgengni, er þess oft get- ið, að nauðsynlegt sé, að hver hlutur eigi sinn ákveðna stað og sé á sínum stað. Víða vantar mikið á, að þann- ig sé þetta í reynd. Enda þótt svo væri, er ekki þar með sagt, að um gott skipulag væri að ræða. Gott skipulag er það, að hlut- unum sé valin réttur staður, með tilliti til þeirrar leiðar sem þeim er ætlað að fara, og með hlið- sjón af þeirrí heild, sem þeir eru settir í, og tengdir. Þetta er þeim mun mikilvæg ara ef húsrýmið er stórt, og þess vegna tiltölulega langt til enda- stöðva þeirrar leiðar (rásar) sem hluturinn (t.d. í verksm.?), eða vörumagnið (t.d. í sölufyrirtæki?) verður að fara. Gott skipulag er það, að verk stjóri hafi jafnan í hug sér ljósa mynd þess starfs, sem framund- an er, og hagfeldustu og helzt stytztu leið, að hverju marki, svo komizt verði hjá óþarfa hreyfi- orku (og kostnaöi). Hér er um það að ræða, að nýta sem bezt tíma, rúm, orku og fjármagn' = vinnuhagræðing. Vinnuhagræðingu verður ekki viðkomið, fyrr en húsrými og lög- un þess fullnægir þeirn kröfum sem gera þarf. Það er t.d. lítill vandi að dreyfa ákveðnu (eða óákveðnu) vörumagni, í nógu miklu rými, einhvernveginn! (Get ur jafnvel litið sæmilega út) Það á ekkert skylt við skipu lag né vinnuhagræðingu. Framhald á 11. síðu. 8 T í M I N N, föstudaeur 10. IÚM 1964.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.