Tíminn - 10.07.1964, Page 15
RITSTJoRI OLGA 'ÁG’ÚSTSD'ÓTTIR
Nauðsynlegt að konur
sinni leikfimi meira
Rætt við Kristjönu Jónsdóttur, sem sér um húsmæðraleikfimi í útvarpinu
Góðan daginn, komið þið sælar.
Nu skulum við taka 4 spor á
staðnum. Yfir til vinstri og yfir
tíl hægri —--------Við heyrum
óminn af húsmæðraleikfiminni,
sem vekur þær, sem sofa áfram,
klukkan hálftíu á morgnana.
Sú, sem annast húsmæðraleik-
fimina, heitir Kristjana Jónsdóttir
og er vestfirzk í húð og hár. Við
náum tali af henni sem snöggv-
ast meðan hún staldrar við í bæn-
um, því að hún á í mörg horn að
líta. h$u hjónin eru nýkomin
heim frá Laugum í Þingeyjar-
sýslu, þar sem þau liafa staðið
fyrir íþróttanámskeiði og Krist-
jana er senn á förum til Dan-
merkur, þar sem hún ætlar að
sækja námskeið, sem sérstaklega
er ætlað fyrir danska íþróttakenn-
ara.
— Hvernig stendur á því, að
þú ert farin að stjórna morgun-
leikfiminni og byrjar ekki fyrr
en hálftíu á morgnana?
— Það er nú vegna þess, að
Valdimar Örnólfsson sér um 'leik-
fimina á veturna, en hefur ekki
tíma til þess á sumrin, þar sem
hann er alltaf uppi í Kerlingar-
fjöllum, og því hringdu þeir einn
daginn frá útvarpinu og báðu mig
að annast um kennsluna. Valdi-
mar segist ekki hafa vísað á mig,
þeir hafa líklega séð til okkar í
leikfimishúsinu hans Jóns Þor-
steinssonar á Lindargötunni, en
úr gluggunum á nærliggjandi hús
um er hægt að sjá inn í leikfim-
issalinn. Ég er fastráðinn kennari
við Kvennaskólann í Reykjavík,
og leikfimin fyrir þann skóla fer
fram í Lindargötusalnum. Það er
gott að kenna stúlkunum í þeim
skóla, skróp eru fátið og stúlkurn-
ar duglegar.
Ástæðan fyrir þvi, að þessi þátt
ur byrjar ekki fyrr en hálftíu á
morgnana er sú, að margar kon-
ur hringdu til útvarpsins og báðu
um að tímanum yrði breytt. Leik-
fimin hefur verið rétt fyrir klukk
an átta á morgnana, en það er
sá tími, sem húsmæðurnar eru
önnum kafnar við að koma börn-
unum í skólann, og svo fara menn
irnir í vinnuna og ekki komin
kyrrð á fyrr en klukkan hálftíu,
það getur líka verið að einhverjar
vakni ekki fyrr, en bágt á ég með
að trúa því. Þessi tími er því hent-
ugur og konurnar vilja gjarnan
vera í friði og helzt ekki láta
neinn sjá til sín, þegar þær eru
að gera æfingarnar. Þá geta þær
fyrst einbeitt sér og reynt eitt-
hvað á sig.
— Varztu ekkert óstyrk, þegar
þú byrjaðir fyrst með þennan
þátt?
— Jú, ég var það, og er það
reyndar alltaf að einhverju leyti.
Það er ekki hægt að skrifa allt
nákvæmlega niður, sem sagt er
við svona kennslu, þá væri allt
saman ósköp dauft og líflítið. Það
liggur heilmikil vinna á bak við
þessar tíu mínútur, sem þáttur-
inn er í hvert skipti. Ég þarf fyrst
að taka æfingarnar saman og
finna æfingu fyrir sem flesta
vöðva, svo þarf að raða þeim nið-
ur og jafnframt að reyna að hafa
æfingarnar sem fjölbreyttastar,
og ekki alltaf bær sömu, þó að
Framhald á bls. 16
Kristjana Jónsdóttir
— Á hinum myndunum á síðunnl
sýnir hún æfingar, sem hún leggur
fyrir húsmæður í msrgunleikfim-
inni.
(Ljósmyndir: Timlnn-GE).
ÍS er hægt að búa til á marg-
an hátt: Kremís er mjólk, egg
og rjómi. Það er ódýrasti ísinn.
Rjómaís; í rjómann er þá
blanúað alls konar bragðefnum,
ávöxtum, súkkulaði, nougat og
ýmsu öðru. Rjóma-eggjaís; það
er þeyttur rjómi, sem þeyttri
eggjarauðu og hvítu er blandað
í. í þennan ís eru sett alls kon-
ar bragðefni, t.d. vín, sykur,
súkkulaði, möndlur og margt
fleira. Vatnsís; það er ávaxta-
safi eða saft, sem þá er oftast
borðaður með þeyttum rjóma
til bragðbætis.
Ávaxtaís.
3—4 appelsínur
2 sykurmolar
V\ 1. vatn
ca. 20. gr. sykur
1 dl. rjómi.
Sykur og vatn er soðið sam-
i Appelsínumar eru þvegnar
og sykurmolunum nuddað við
börkinn og síðan látnir í sykur-
lögin. Safinn er pressaður úr
appelsínunum og blandað í syk
urlögin. Síðan er Iögurinn
kældur, og frystur eins og van-
illuís. Appelsínubörkurinn er
hreinsaður og gerður úr hon-
um fallegar körfur, sem fylltar
eru með ísnum, sem tekinn er
upp úr með skeið. Skreyttur
með þeyttum, grænum rjóma.
Borðaður með smákökum. Á
þennan hátt er búinn til alls
konar ávaxtaís. Séu notaðir
niðursoðnir ávextir, er safinn
settur saman við sykurlögin og
ávöxtunum nuddað gegnum
sigti. Einnig er hægt að setia
smábita af ávöxtum út í. Oft
er vín sett í þessa ísa og einnig
er fallegt að lita þá mismun
andi litum. Borinn inn í gler
skálum. ísinn ber nafn þeirra
ávaxta, sem í hann eru notað
ir. T. d. má hafa sítrónusafa.
Vanilluís.
V2 1. mjólk eða rjómabland
V2 stöng vanilla
3 eggjarauður
1 egg
100 gr. sykur
borðvín
6 kg. ís og 2 kg. salt
Vanilluísinn er tvímælalaust
vinsælastur. Hann er búinn tii
MRnBBBMs&ansauflsunjuti.
is
RÉTTIR
pannig: Mjólkin er iátin í pott
inn. Kornin eru skafinn úr van
illustönginni og látin í mjólkina
og vanillustöngin líka Hitað
3 eggjarauður og 1 egg
er
hrært með sykrinum, þar til
það er ljóst og létt. Þegar
mjólkin sýður, er henni- smátt
og smátt hrært í,en má ekki
sjóða. Hellt í skál og kælt
Hrært í því annað slagið. ís-
inn er smámulinn. Blandaður
saltinu og látinn í óþéttan
kassa og emeleruð fata í miðj
una. Þar í er kremið látið. Nú
er hrært í fötunni og henni
snúið, þar til innihaldið byrj
ar að þykkna. Þá er þeytti
rjóminn látinn í og borðvínið.
sem bezt er að sé líkjör, sherry
eða madeira. Nú er hrært á
fram, þar til þetta er enn þykk
ara. Þá er það látið í ísmót
sem skolað er innan úr köldu
vatni og stráð sykri. Prent
pappír er vafið utan um mótið *
og látið niður í salt og ís f 4
—5 klukkutíma. Það fer eftir
stærð mótsins. Tekið upp og
mótinu haldið undir köldu
vatni augnablik Hvolft á kring
lótt fat með krotuðum bréfpentu
dúk. Skreytt með þeyttum
rjóma, sem fallegt er að hafa
mislitann.
fskökum raðað utan um ís-
inn og flagg sett í miðjuna.
Súkkulaðiís.
Vá 1. rjómabland
3 egg
2 eggjarauður
V2 stöng vanilla
125 gr. súkkulaði
25 gr. sykur
V\ 1 rjómi
Hitað er súkkulaði, vanilla ag
rjómab]and. Eggin aðskilin og
rauðuirnar hrærðar með sykrin
um. Þegar rjómablandið sýður,
er því hrært út i eggjarauðurn-
ar, hitað aftur, en má ekki
sjóða. Kælt, og þegar það er
alveg kalt, er stífþeyttu eggja
hvítunum og rjóma blandað
saman við. Fryst, Skreytt með
þeyttum rjóma, og eggjahvítu-
kökur bornar með, en þær eru
búnar til úr hvítunum, sem
gengu af.
T í M I N N, föstudagur 10. júlí 1964. —
15