Tíminn - 22.07.1964, Page 1
Túnín spretta úr sér en ekkert
heyhægtaðþurrka
— SYÐRA OG VESTRA EN UM LEIÐ ER
BRAKANDI ÞERRIR NYRÐRA OG EYSTRA
KH-Reykjavík, 21. júlí.
Nú horfir mjög illa með hey-
skap sunnan- og suðvestan lands.
Austan fjalls eru tún oröin svo
úr sér sprottin, að liggur við
skemmdum, og þar leyfir tíðin ( og austan lands kveður alveg við
ekki einu sinni, að liirt sé í vot-! annan tón. Þar hafa menn rifið
hey. Vestan- og suðvestan lands upp vel verkuð hey undanfarna
er mjög mikið óslegið, og þurrk- daga i sunnanþurrki og hita, til
leysi hindrar heyverkun. Norðan
dæmis komst hitinn upp í 26 stig
í forsælu einn daginn á Héraði.
Margir bændur norðan og austan
lands eru langt til búnir með
fyrri slátt. Veðurstofan spáir
engri hreytingu veðurs á næst-
unni.
Tíminn talaði við bændur víðs
vegar uni landið í dag og skiptist
algerlega á ánægju- og áhyggju-
tónn í símanum. í Hornafirði er
mikið óslegið enn þá, tún spruttu
seint, en eru allsæmilega sprottin
núna. Veðrið hangir þurrt, en
þurrkur hefur ekki verið lengi.
Á Kirkjubæjarklaustri var rosi
í dag og undanfarna daga hefur
suddi tafið heyskap þar um slóð
ir. Annars hélt fréttaritari, að út
litið væri þar betra en víða ann
ars staðar sunnan lands og bænd
ur ókvíðnir, ef þessi óþurrkatíð
stendur ekki lengi.
Bændur á Suðurlandsundirlendi
eru annars mjög uggandi. Þar
hefur verið stöðugur óþurrkur að
undanförnu og lítil von á breyt-
ingu í bráð. í stuttum þurrkakafla
um daginn náðu nokkrir bændur
saman dálitlu af heyi, en sumir
eiga mikið flatt og flestir mikið
óslegið. Tún eru nú orðin svo úr
sér sprottin, að til vandræða horf
l'ramh a bls is
Þessi mynd, sem KJ tók við skólagarðana sunnan Miklubrautar í gær,
gefur góða hugmynd um heyskapinn sunnan- og vestanlands. Túnsprett-
an er svo geysileg, að múgarnir eru þykkir garðar — og svo rignir ofan í
allt saman.
SKORDYRI BRUARFOSSI
K.l-Reykjavík 21. júlí.
M.s. Brúarfoss kom írá Banda-
ríkjunum 15 júlí s. 1. til Reykja-
víkur. og var með nokkurt magn
af kornvörum, bæði til tnanneldis
og skepnufóðurs. Er verið var að
skipa upp úr skipinu í dag fóður
komi kom í ljós að í korninu voru
skordýr. Þegar vart varð við skor-
dýrin var búið að flytja nokkurt
magn af korninu í geymslu og var
ákveðið að flytja það aftur um
borð í skipið, þar sem eyðing verð
ur framkvæmd á skordýrunum.
Ekki tókst að fá uppgefið í kvöld
: hvers kyns skordýr væri hér um
j að ræða. en aftur á mó.ti að þau
Framh. á bls 15
Þfíili ¥®riur síioardæðuskip
OLÍUSKIPIÐ FER SENN TIL AUSTFJARÐA BÚIÐ DÆLUM OG SNIGLI TIL SÍLDARLÖNDUNAR
KJ-Rcykjavík 21. júlí.
Síldarflutningarnir frá Ausi
[jarðahöfnum til Norðurlands
hafna standa nú sem hæst, og
hafa síldarflutningaskipin ærið
að starfa þegar mikið berzt að
landi. Landað er í síldarflutn
ingaskipin inni á höfnum, eða
lygnum fjörðum, og fer lönd-
unin fram með „kröbbum“ eða
háfum. Getur vcrið seinlegt að
landa á þennan hátt á milli
skipa, svo menn hafa velt þvi
fyrir sér hvort þetta mætti ekki
framkvæma á hagkvæmari og
fijótlegri hátt. í þessu sam-
bandi hefur ríkisstjórnin gefið
leyfi sitt til þess að nota olíu
fiutningaskipið Þyril við til-
raunir með löndun síldar úr
síldarbátum með dæluútbún-
aði.
Síldar- og fiskimóölsverk-
smiðja Einars Guðfinnssonar h.
f. í Bolungavík stendur fyrir
tilraun þessari, sem mun vara
í um það bil einn mánuð.
Dæla er á leið frá Bandaríkj-
unutn, ti) notkunar við til-
raunina, og önnur er íyrir
hendi hér á landi. Eru dælur
þessar svokallaðar loftþrýsti-
dælur (Vacumdælur) Lands-
smiðjan hefur með höndum
breytingar á skipinu, og mun
einnig sjá um að koma dælun
um fyrir í því. Þá hefur Lands
smiðjan einnig smíðað snigil
sem verður um borð í Þyrli og
mun taka við síldinni úr dælun
um og flytja hana í geytna
skipsins. Hér verður að sjálf-
sögðu eingöngu um flutninga
á bræðslusíld að ræða.
Framh. á bls lf>