Tíminn - 22.07.1964, Page 3

Tíminn - 22.07.1964, Page 3
ISPEGLITÍMANS Þessi mikli sjónvarpsturn verður hæsta bygging í Bret- landi, 619 fet að hæð. Smíði turnsins hefur gengið mjög vel og verður byggingin tekin í notkun alveg á næstunni. Þarna rís fyrsta hreyfanlega veitingastofan í Bretlandi, efst í turninum. Má búast við, að hún verði vel sótt af ferða- mönnum, sem fá þarna ákjós- anlega útsýn yfir milljónaborg- ina Lundúni, og það sem meira er, með því að fara efst upp í turninn kemst fólk upp úr hinni hræðilegu Lundúnaþoku. Þeir eru vigalegir kafararn- ir þarna á myndinni, sem hafa fengið það óskemmtilega verk til framkvæmdar að kafa til botns í Mississippif 1 j óti til að leita að líkum stúdentanna þriggja, sem hurfu sporlaust á dögunum í Mississippi. Eins og áður hefur verið skýrt frá í fréttum bar þessi leit árangur, því miður, er óhætt að segja, því kafararnir fluttu upp af botni árinnar sundurtætt lík þremenning- anna. Er þá komið á daginn, það sem flestir höfðu óttazt, að stúdentarnir hafa verið myrtir á hinn hroðalegasta hátt. Rann sókn á morðunum stendur enn yfir, en eins og kunnugt er börðust hinir ungu menn fremstir i flokki fyrir jafnrétti hvítra manna og svartra í Bandarríkjunum. Um þessar mundir starfar hópur brezkra lækna að und- irbúningi skurðaðgerðar, sem ef hún heppnast, mun marka tímamót í sögu skurðlækning- anna. Hér er um að ræða að flytja hjarta úr nýdánum manni yfir í lifandi mann, sem þjáist af alvarlegum hjartasjúkdómi. Læknar um heim allan bíða spenntir eftir fréttum af þess ari einstæðu skurðaðgerð, enda að vonum, því að ef hinum brezku læknum tekst þetta opn ast möguleikar fyrir milljón- ir hjartasjúklinga um að fá bót á heilsluleysi sínu. Skurðaðgerð in verður framkvæmd á sjúkra húsi sem þegar er þekkt fyrir velheppnaðar aðgerðir við til- flutning á nýrum manna. Að undanförnu hafa verið gerðar umfangsmiklar tilraunir á dýr- um til undirbúnings hinni ein- stæðu skurðaðgerð. Þessar til raunir hafa heppnazt svo vel, að læknar telja tímabært að gera slíka hjartaaðgerð á mönn um. Hins vegar leyna læknar þvi ekki, að hér geti brugðizt til beggja vona með árangur, en þá er á það að líta, að sjúkling urinn sem um ræðir þjáist af ólæknandi hjartasjúkdómi. Eina von hans er því, að þessi skurðaðgerð heppnist. ★ Tassfréttastofan sovézka skýrði frá því nýlega, að mað- ur einn, Aleksej Medusjenko hafi leikið á fiðlu sína í 40 ár. án þess að vita um, að hún var virði sjálfrar sín í gulli. Fyrir nokkrum dögum veittu kunningjar Medusjenko, sem er úkrainskur bóndi. athygli ítalskri áletrun á fiðlu hans. Töldu þeir bónda á að láta rannsaka þetta nánar og kom ust sérfræðinear að þeirri nið urstöðu, að fiðluna hefði Nic- olo Amati smíðað árið 1945 en hann var heimsfrægur fiðlu smiður og átti stórt fyrirtæki. Þessi maður kenndi einmitt Antonio Stradivari að smíða fiðlur, en við nafn hans kann ast flestir fiðluleikarar a. m. k. Það er ekki undarlegt að bónda brygði í brún við þessar upplýsingar og hefur hann nú látið safni fiðlu sína í té tii varðveizlu. ★ Ekki er öll vitleysan eins. „Stríplingasamtök" ein í Lund únum hafa nú ráðist harkalega gegn hinni svokölluðu ,,topp- lausu tízku“ í baðfatnaði og segja hana tilræði við samtök sín. Formælendur samtakanna segja, að betra sé að ganga hreint til verks og ganga hrein lega í samtökin. Þeir, sem vilja njóta náttúrunnar í nekt sinni séu hvergi betur komnir en í samtökunum og hér sé því verið að ,.stela“ hugsjónum ..stríplinga". Annars hafa mörg skemmti- leg atvik orðið í sambandi við hina „topplausu tízku“ Ný- lega festi grænmetiskaupmað- ur einn á Wales upp auglýs- ingu, þar sem hann býður þeim kvenmanni ókeypis vörur sem fyrst verði til að koma að sækja þær i .topplausum bikini' Ekki stóð á viðskiptavinunum Snemma næsta dag birtist stúlka ein klædd samkvæmt skilyrðum auglýsingarinnar og bað um ávexti til að hafa í veizlu í tilefni af þriggja ára afmæli sínu! Konan nér á myndinni heit- ir frú Henry E. Bleasing, 44 ára að aldri og hefur hún nú gengizt við því að vera laun- dóttir Warren G. Harding, fyrr verandi forseta Bandaríkjanna, sem lézt árið 1923, og Nan Britton, sem enn er á lífi og býr í Chicaco Móðirin, Britt on hefur nú skýrt frá því, að hún hafi verið ástkona forset nns allt frá árinu 1906 til ársins 1922. Mál þetta hefur vakið mikla athygli, enda þótt á sínum tíma hafi verið ýmsar sögur á kreiki um kvenhylli og kvensemi Harding, forseta. ¥ Enn hljómar rödd hins myrta forseta, John F. Kennedy á öld um ljósvakans um allan heim. Hann er stöðugt hið stóra nafn austan járntjalds og með vin- sælustu dagskrárefnum i stutt- bylgjusendingum bandaríska út varpsfyrirtækisins Voice of America eru kaflar úr ræð- um hans, en stuttbylgjusend ingar þessar ná til Sovétríkj- anna. Voice of America hefur upp á síðkastið leikið af plötu kafla úr nokkrum ræðum hins látna forseta og í framhaldi af því tilkynnt í útvarpsstöðin að hún sendi Kennedy-frímerki ókeypis til hlustenda sinna, er bæðu um slíkt. Það stóð ekki á bréfunum og þau 100 fyrstu voru frá sovézkum útvarpshlust endum. ★ Sá atburður gerðist nýlega í Lundúnum, að úr sjónvarps- mynd var klippt atriði þar sem svartur kvenlæknir kyssti hvít an starfsbróður Að sjálfsögðu þarf ekki að spyrja um ástæð una, atriðið þótti í hæsta máta ósæmilegt. Svarta kvenlækninn lék hin 25 ára gacnla leikkona frá Jamaica, Joan Hooley, en starfs bróður hennar lék John White. J I í M I N N, miðvikudagur 22, júlí 1964. — Eftirlit með laga- framkvæmd Ólafur Jóhainnesson, prófess- or, ritaði mjög athyiglisverða grein hér í blaðið í gæir um það, hvort hér sé nauðsyn á því, að Alþingi komi á skipulegu eftirliti með því, hvernig lögum þeim, sem þ'ingið setur, er fram fylgt, hvernig þau koma niður á b'orgurunum og hvernig opin- berir embættismenn, sem starfa í krafti laganna, gegina störf- um sínum — sem sagt að reyna að auka jafnrétti borgaranna fyri.r lögunum. Alþingi hefur þegar allmikið slíkt eftirlit með nefndum, yfir- skoðunarmönnum og fyrir- sipurnum þingmanna, en hér hlýtur mjög að koma til álita, hvort rétt sé og nauðsynlegt að Alþingi geri þetta eft'irlit eða þætti þess að föstu eftir- Iitsembætti, og jafnvel að það nái einnig til bæjarmálefna og fari þar sv'ipaða Ieið og hin-ar Norðurlandaþjó'ðirnar. Réttaröryggi ein- staklingsins í grein sinni scgir Ólafur Jð- haunesson m.a.: „Opinber sýsla verður æ umfangsmeiri. Velferðarríkið krefst auki.nna ríkisafskipta á ýmsum sviðum. Verkefni al- mannavaldsins verða alltaf fleiri og margþættari. Opin- berum starfsmönnum er stöð- ugt að fjölga. Við þvílíkar að- stæður er vaxandi þörf á rau'n- hæfu eft'irliti með hvers konar embættisfærslu og annarri op- inbenri sýslu, þar á meðal sjálf stæðum ríkisstofnunum, ekki aðeins á vegum ríkisstjórnar og stjórnarráðs, heldur og af hálfu þjóðþingsins. Slíks eftirlits er e'igí aðeins þörf vegna þjóðfé- lagshagsmuna, svo sem til þess að tryggja festu í stjónnar- framkvæmdum, hagsýni og spairnað í opinberum rekstri o.s.frv. heldur einnig — og jafnvel fyrst og fremst — til þess að tryggja réttaröryggi einstaklingsins. En á tímum mikilla ríkisafskipta þarf að gæta þess, að hlutur einstakl- ingsins sé ekki fyrir borð bor- inn — að réttaröryggi hans sé ekki fórnað á altari landsföður- legrar umhyggju“ Góð raun í Danmörku Síðan lýsir Ólafur nokkuð störfum og verksviði umboðs- mannanna svonefndu á Norð- urlöndum, starfssviði þeirra og starfsháttum. Um danska „um- boðsmanninn“ segir hann: „Folketingets ombudsmand tók til stairfa í Danmörku 1955. Umboðsmaðurinn er trúnaðar- maður þjóðþingsins, er velur hann á fyrsta þingi eftir hverj- ar almennar þjóðþingskosning- ar. Umboðsmaður má ekki vera þingmaður. Þjóðþlngið getur vikið umboðsmanm fró. Vald danska þjóðþingsumboðsmanns- ins nær til ráðherra og allra annarra ríkisstarfsmanna nema dómara. Sveitarstjórnir og samstarfsmenn þeirra voru i fyrstu undanþegnir eftirliti um- boðsmannsins, en með laga- breytingu 1961 var starfssvið umboðsmannsins rýmkað og nær nú með nokkrum takmörk unum einnig til sveitarstjórn- armálefna. Umboðsmaðuriun á cinkum að hafa eftirllt með því, að opinberir starfsmenn Framhalc e 15 siðu 3

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.