Tíminn - 22.07.1964, Síða 16
,1
Miðvikudagur 22. júlí 1964
163. tbl.
48- árg.
Sprengisandsleið lagfærð
HF-Reykjavík, 21. júlí.
Nyrzti hluti Sprengisandsleiðar,
vegarspottinn frá Mýri í Bárðar-
ðal og upp að Kiðagili, hefur nú
verið lagfærður, þannig að hann
er vel fær öllum bílum, sem á
annað borð eru hæfir í fjallaferð-
ir. A þessum spotta voru ýinsar
torfærur, sem ollu því, að þetta
var einhver ógreiðfærasti hluti
Sprengisandsleiðarinnar.
Vegavinnuflokkur hefur unnið
að því alla síðustu viku að bæta
þennan hluta úr Sprengisands-
FYRSTA SAL TSILDIN FLUTT UT
FB-Raufarhöfn, 21. júlí.
Heigafellið hefur undanfarna
daga þrætt Austfirðina og alls
sáaðar tekið saltsíld til Finnlands.
Á mánudagskvöldið var verið að
lesta 4834 tunnum af saltsíld
Raufarhöfn, og fara þær allar til
Finnlands.
Þegar er töluvert magn farið
úr landi af síldarmjöli og síldar-
lýsi, afrakstri þessarar vertíðar,
og kemur það sér mjög vel fyrir
á framleiðendurna, því að víða er
til dæmis mjölskemmurýmið af
skornum akammti. Einna bezt er
það þó fyrir saltendurna að losna
við saltsíldina svona fljótt, því að
það sparar þeim mikið umstang
og erfiði við að umsalta á haust-
in, og svo þurfa þeir heldur ekki
að hafa áhyggjur af að sólin og
hitinn skemmi síldina í tunnu-
stæðunum. En oft vill sólin skína
heldur mikið, það er að segja fyr
ir saltendurna, og þá er hætta á
að síldin í tunnunum þráni. —
(Tímamynd FB).
leiðinni, sem nær irá Mýri, þaB
er fremsti bær í vestanverðum
Bárðardal, og upp að KiðagQi.
Verkinu lauk á sunnudagskvöldlð
var og hefur mikil umferð verið
þama um síðan. í gærkveldi fór
t. d. stór langferðabíll, fullur af
fólki, þessa leiðina og suður yfir
Sprengisandinn. Hér áður fyrr
var talinn 10 tíma lestargangur
yfir þennan vegarspotta. Verk-
stjóri flokksins, sem lagfærði veg
inn, var Leonard Albertsson.
TfU BARNASKÓLAR í SMÍÐUM
OG TVEIR KÚSMÆÐRASKÓLAR
•ait.
. ##' -■ 'B0 m ......... ..
HF-Reykjavík, 21. jálí. j verður jafnframt barnaskóli fyrirj ann í Garðahreppi, annan áfanga I þriðja áfanga, ásamt samkomusal
Ýmsar fratmkvæmdir verða á | heilt hverfi þarna ofarlega í Hlíð- j við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og I Framh. á bls i n
vegum húsameistara ríkisins íjunum. í framtíðinni er svo fyrir-J
sumar í sambandi við skólamál j hugað að reisa gagnfræðaskóla á |
landsins Ketnnaraskólinn hér í j sömu lóð og fyrir sama hverfi.
Reykjavík er enn í smíðum, þótt j Af þeim 10 barnaskólum, sem
byrjað sé að kenna þar, en í sum-jverið er að reisa úti á landi, eru
ar verður auk þess hafizt handa | 7 heinnavisturskólar, en þrír
Um byggingu íþróttahúss og æx- j heimangönguskólar. Heimavistar-
ingaskóla á lóðinni. f framtíðinni skólarnir verða að Hallormsstað,
er svo ætlunim, að þarna rísi einn- að Kolviðarneslaug, Leirá í Borg-
ig gagnfræðaskóli. Úti á landi eru; arfirði, SælingsdalsLaug í Dala-
10 barnaskóiar í smíðum, verið er'sýslu, Skútustöðum við Mývatn,
105INNI-
STÆÐU-
LAUSIR
TÉKKAR
Síðastliðinn laugardag fór fram
allsherjaruppgjöir ávísana á sama
hátt og áður
í ljós kom, að í umferð voru
105 ávísanir, samtals að fjárhæð
um kr. 807 þúsund, sem innstæða
reyndist ónóg fyrir.
Við uppgjör, sem fram fór 4.
júlí s.I. voru í umferð 158 ávísanir,
samtals að fjárhæð um 1,3 millj.
króna, án nægilegrar innstæðu og
virðist því misnotkun ávísana fara
nokkuð minnkandi, en ástandið í
málum þessum er þó enn algjör-
lega óviðunandi og mun því hin-
um samræmdu aðgerðum bank-
anna gegn misnotkun ávísana
haldið áfram eins og verið hefur.
(Fréttatilkynning frá Seðla-
bankanum).
aff byggja viðbót Við 4 héraðs-! Nesjahreppi í Hornafirði og að
skóla og einnig við barnaskóla j Ketilsstöðum í V.-Skaftafellssýslu.!
hér í nágrenni Reykjavíkur. Nýja: Heimangönguskólarnir verða í
húsmæðraskóla er verið að reisa
á tveimur stöðum á landin-u
Byggingu kennaraskólans er nú
að verða lokið, en eftir er að reisa
filamhaldsbyggingar við sjálft
aðalhúsið, eins og t.d. íþróttahús
og æfingaskóla. Æfingaskólinn
Bolungavík, Egilsstöðum og í
Stöðvarfirði. Jafnframt er verið
að byggja viðbót við íjóra barna-
skóla hér í nágrenni Reykjavíkur.
Verið er að byggja annan áfanga
við Mýrarhúsaskóla á Seltjarnar-
Ifogmær rak vii Þórshöín
HF-Reykjavík, 21. júlí.
Þessi illa útleikni fiskur á mynd
nesi, annan áfanga við barnaskól- \ inni heitir Vogmær og er hér
sjaldséður gestur, þótt hann vill-
ist stundum hér upp að landi.
Þessi fannst á Gunnarsstaðasandi
í Þórshöfn og var svartbakur bú-
inn að kroppa hann svona illilega
ofan til á höfðinu. Vogmærin er
djúpfiskur, sem lifir í hafinu á
milli íslands og Noregs og norðan
við Bretlandseyjar. Ekki er neitt
vitað um lifnaðarhætti hennar,
annað en það, að hún lifir á svif-
um og smokkfiski og öðrum smá-
sjávardýrum. Vogmærin hefur
iðulega fundizt hér við strendur,
eða komið í net hjá fiskimönn-
um, en hún er talin óæt. Þessa
Vogmær fann Bjarni Torfason, 13
ára gamall frá Akureyri, og er
hún 1,20 cm. á lengd. — Tíma-
mynd-FB).
VEIÐA BETRI
SÍLD NORÐAR
Kviknaöi í 90 ára stálskipi
KJ-Reykjavík, 21. júlí. I inni við Bátanaust við Elliðavog. I aður í Kaupmannahöfn 1875, og
Slökkviliðið kom fljótlega á vett- endurbyggður 1946. Hann er 93
Laust eftir hádegið í dag kom vang og slökkti eldinn. Skemmd- brúttólestir að stærð. Á mynd-
upp eldur í vélarrúmi mb. Vís- ir urðu óverulegar. Vísundur mun inni sést Vísundur í reykhafinu.
unó&, þar sem hann stóð á þurru I vera elzti stálbátur landsins, smið |
EJ-Reykjavík, 21. júlí.
Tveir bátar, Snæfellið og Eld-
borg GK, veiddu í dag samtals
1200 tunnur af sild á stói-u svæði
um 60—80 mílur NNA af Langa-
nesi. Þeir koinu með síldina til
Raufarhafnar í kvöld, og er hún
talin ágæt til söltunar, miðað við
þá síld, sem veiðzt hefur fyrir
austan til þessa.
Torfurnar voru, að sögn skip-
stjóranna, frekar smáar og á stóru
! svæði. Fengu bátarnir um 100
tunnur i kasti. Þó sagði fréttarit-
ari blaðsins á Raufarhöfn, að von
væri um góða veiði á þessu svæði,
en þarna varð mikil veiðitöm í
byrjun vertíðarinnar.
Bátarnir, sem ýmist voru á Aust
fjarðamiðum eða lágu í höfn, fóru
að sigla á þessi nýju mið síðdegis
í dag og í kvöld. Ekki var neitt
vitað um veiði hjá þeim, þegar
blaðið fór í prentun, en þó að út-
lit fyrir veiði á þessu svæði sé
gott, þá getur veiðin orðið minni
en vonir standa til, ef allur flot-
inn flykkist þangað í einu.