Tíminn - 30.07.1964, Síða 7

Tíminn - 30.07.1964, Síða 7
Utgefandi PRAMSÓKNARFLOKKURINN Fimnkvæindastióri Kristján Benediktsson Ritst.iórar Þórarmn Þórarinsson ■ áb> Andrés Krist.iánsson .Jón Hel?ason og Indriði G Þorsieinsson Fulltrúi ritstiórnar Tómas Karlsson Prétta st.iórt Jónas Krisí'ánsson Auglýsingast). Sigurjón Daviðsson Ritstiórnarskrifstofui • Rridu húsinu simat 18300- 1830S Skrii stofui Bankastr 7 Afgr.simi 12323 iLugl sími 19523 Aðrar skrifstofut simi 18300 Askriftargjald kr 90.00 a mán innan lands - t lausasölu kr 5.00 eint - Prentsmiðjan EDDA h.l Mesta blekkingin í ELDHÚSUMRÆÐUNUM í vor. komst HeJgi Bergs svo að orði, að samkvæmt frásögnum þeirra Sjálfstæð’.s-- manna, væri núverandi fjármálaráðnerra alveg einstak- ur afreksmaður. Fvrst hefði hann unnið það afrek að af- nema alveg tekjuskatt á þurftatekjum og síðan hefði hann tækkað tvívegis skattinn, sem húið var að afnema' — Menn myndu svo í reynd kynnast þessum afrekum, þegar skattarnir hefðu verið lagðir á i sumar Nú er skattlagningu lokið og menn fá nú að kynn- ast í reynd þessum skattalækkunarafrekum Sjálfstæðis- manna. Reyndin er sú, að langflestir greiða nú stóru n hærri beina skatta en nokkru sinni fyrr. þrátt ívrir það. að greiðslugetan hefur ekki aukizt. — .Skatta lækkanir“ íhaldsins hafa verið fólgnar í því að tæra skattstigann nokkuð niður vegna hækkaðs karpgjalds af völdum dýrtíðarinnar, en þó jafnan alltof lítið til þess. að skattgreiðendur fengju aukinn frádrátt i samrænn við aukna dýrtíð. Afleiðingin er sú, að skattarnir hafa hækk- að, þó að greiðslugetan hafi ekki aukizt. Skattbvrðin er því tiltölulega þyngri nú en nokkru sinni fyrr. Þó er þetta ekki öll sagan. Hinir óbeinu skattar. b. e. tollar og söluskattar hafa hækkað miklu meira Þeir hafa samanlagt meira en þrefaldazt, Meðan dagkaup verkafólks og millistétta hefur hækkað um 60% hafa álögur ríkisins hækkað um 300—400%. Menn horfast hér í augu við bá stórfelldustu stiórn- málabíekkingu, sem nokkru sinni hefur verið framin á íslandi. Meðan fjármálastjórnin var í höndum Framsokn- armanna, hrópuðu leiðtogar Sjálfstæðisflokksins. að op- inberar álögur væru alltof háar. Þær slcyldu sannarlega lækka, þegar Sjálfstæðisflokkurinn fengi f jármálastiórn ma. Nú er Sjálfstæðisflokkurinn búínn að fara með fjáp málastjórnina í nær fimm ár. Hver er árangurinn" Á pappírunum hefur verið reynt að blekkja menn með því að látast vera að afnema og lækka skatta Niðurstað-m er hins vegar sú, að tolla- og skattabyrðin hefur marg faldazt. Dæmi um meira blygðunarleysi í málflutningi er ekki finnanlegt hér á landi. Það væri furðulegt, ef nýju skattarnir opnuðu ekki augu manna fyrir þessum vinnubrögðum Sjálfstæðis- flokksins og aðstoðarflokks hans. Albvðuflokksins Útsvörin í Reykjavík ÞAÐ ER EKKl aðeins ríkisstjórnin, sem hefur marg- faldað álögur seinustu árin. Borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík hefur ekk: iáuð hlut sinn liggja eftir í þeun efnum. Síðan 1962 hefur heildarupphæð útsvaranna ver- ið hvorki meira né minna en tvöfölduð. Þá var jafnað niður um 200 millj. kr., að viðbættu hinu enjuieea aukaálagi. Nú er jafnað niður 400 millj. kr. að viðbættu svipuðu aukaálagi. Utsvörin hafa hvorki meii a né minna en hækkað um 100% á þessum tveimur árum. Að vísu hafa orðið nokkrar hækkanir á rekstrar- kostnaði á þessum tveimur árum. Þær hækkanir eru þó vitanlega langt innan við 100% Útsvörin hafa því verið hækkuð langt umfram það. sem aukinn rekstrarkostnaður hefur krafizt Framkvæmdir hafa verið nokkuð auknar. en þó fer fjarri þvi. að þær hafi "vöfaldazt Það hpfur gerzt hér. sem oft nendir flokka. sem hafa lengi farið með völd og telia sig fasta i sessi — thaldsmeirihlutinn í borgarstjórninni telur ug svo ofl ugan. að hann þurfi ekkert tillit að taka til skattþegn- anna Útsvörin sýna það eins glöggt ig verða má. ÞAÐ ER almennt álit í Bandaríkjunum, að enginn leið- toga demokrata myndi hafa valdið betur hinu erfiða hlut- verki forsetans, en Lyndon B. SJohnson eftir hið sviplega frá- fall Kennedys á síðastl. hausti. Johnson hefur sýnt í forseta- embættinu frábæra hæfileika til að koma fram málum og fylkja saman sundurleitum öfl- um. Það er einnig álitið, að Goldwater hafi tekizt að reisa með sér öldu, sem erfitt myndi að vinna bug á, ef Johnson hefði ekki unnið sér alveg sér- staka tiltrú sem forseti. Að honum frágengnum, væri staða demokrata ekki sigurvænleg. Sá maður, sem raunverulega ræður því, að Johnson er nú merkisberi frjáislyndu aflanna í Bandaríkjunum, er Kennedy forseti Það var fvrst og fremst persónuieg ákvörðun hans, að •Tohnson var valinn varaforseta- efni demokrata 1960. Þar kom tvennt til Annað var það, að Kennedy hafði miklar mætur á Jöhnson, þótt þeir hefðu keppt hart um að vera forseta- efni Kunnur blaðamaður seg- ist háfa rætt við Kennedy nokkru fyrir flokksþing demo- krata og spurt hann að því, hvort hann teldi sig hæfari til framboðs en keppinauta hans meða) demokrata. eins og Humphrey, Symington, Harri- man, Jhoason o.s.frv. Eg tel mig færari þeim öllum. sagði Kennedy, nema Johnson, en hann getur ekki náð kosningu vegna þess, að hann er frá suð urríkjunum. Kennedy taldi. að það væri skylda forsetaefnis að tryggja sér góðan varamann, því að aldrei væri að vita. hvað gæti hent Þetta var önnur á- staéðan fyrir því. að Kennedy valdi .Johnson Hin ástæðan var sú, að Johnson var öllum líklegri til að halda fylgi demo krata í suðurríkjunum, en Kennedy var ekki líklegur til að ná kosningu. ef suðurríkm töpuðust, eins og líka Kom á daginn Fullvíst má telja, að Kennedv hefði ekki náð kosn- ingu, ef Johnson hefði ekki tryggt honum Texas og fleiri af suðurríkjunum. ALLMARGIR blaðamenn i Bandaríkjunum hafa að undan- förnu gert það að umtalsefni, hvérnig það gerðist, að John- son varð kjörinn varaforseti. Frásögn þeirra er í höfuðdrátt- um þessi: Þegar forsetaefnið var kjör- ið, komst Johnson langnæst Kennedy að fylgi, fékk rúmlega 400 atkv Lokabaráttan hafði staðið milli þeirra og hafði á ýmsan hátt verið óvægin. Engin ákvörðun hafði þá verið tekin um varaforsetaefni, en i hópi nánustu samstarfsmanna Kenn edys hafði helzt verið rætt um Freeman, fyrrum ríkisstjóra í Minnesota, Jackson. öldunga- deildarþingmann frá Washing- tonríki. og Symington, öld ungadeildarþingmann frá Mis souri Bræður Kennedys og flestir aðstoðarmenn hans höll- uðust helzt að Jackson Það kom þeim því mjög á óvart þegar Kennedy tilkynnti þeim. að hann hefði ákveðið að biðja Johnson um að verða meðfram- bjóðanda sinn Það fékk líka í fyrstu daufar undirtektir, m.a hjá Robert Kennedy, sem fylgdi Jackson Hins vegar naut þetta öflugs stuðnings föður Kenn edys, sem var að vísu ekki mættur á þinginu, en stöðugt hafður í ráðum BJÖRNINN var hins vegar ekki unninn, þótt Kennedy ðsk aði eftir Johnson sem meðfram bjóðanda. Bæði Johnson og kona hans höfðu verið sam mála um að Johnson skyldi held ur vera áfram foringi demokrata í öldungadeildinni en lara i framboð sem varaforsetaefni Þegar orðrómur barst um 9 kvörðun Kennedys. hringdi Raybur.n, foringi demokrata fulltrúadeildinni og um 1 angt skeið áhrifamesti stjórnmála maðurinn í Texas, í Johnson og hyatti hann eindregið ti' að hafna tilboði Kennedys. Sama gerði ríkisstjórinn í Tex as og aðrir fulltrúar þaðan Þegar Kennedy kom á fund Johnsons til þess að fala hann til framboðs, skýrði Johnson honum frá þessu og kvaðst ekki geta gefið kost á sé* undir þessum kringumstæðum. Kenn- edy spurði hann þá um, hvort hann vildi bíða með ákvörðun sína þangað til henn hefði tal- að við Rayburn. Kennedy ræddi síðan við Rayburn og fleiri af helztu stuðningsmönnum John sons. Niðurstaða þeirra við- ræðna var sú, að Rayburn hringdi aftur í Johnson og hvatti hann nú til að gefa kost á sér. Sama gerðu aðrir stuön ingsmenn hans. Johnson lét þá undan, en þó hálfnauðugur, þar sem hann kunni vel við starf sitt sem þingleiðtogi. Eftir að þetta varð kunnugt. reyndu <>nokkrir af stuðnings- mönnum Kennedys að rísa gegn þessu og efna til sér- staks framboðs gegn Johnson Kennedy fór þá aftur á stúfaoa til þess að bæla þessa uppreisn niður. Honum tókst það, au eftirmanns síns. það kostaði verulega fyrirhöfn. Johnson var síðan kosinn vara- forseti einróma. KENNEDY réði þannig mestu um það, ásamt föður sín- um. að Johnson varð varafor- seti. Þetta þykir nú bera ótví- ræðan vott um stjórnmála- þroska og framsýni Kennedýs Johnson hafði deilt hart á ICennedy meðan þeir kepptu um framboðið og mörgum nán- ustu samstarfsmönnum Kenn- edys var því orðið kalt til Johnsons Kennedy lét þetta hins vegar ekki ráða afstöðu | sinni Hann setti það ofar per I sónulegum sjónarmiðum að fá I þann meðframbjóðanda. er | styrkti bezt eininguna í flokkn- 1 um og myndi jafnframt reynast 8 beztur eftirmaður hans. ef g hann kynni að forfallast f Johnson má hins vegar segja f það til lofs, að hann sýndi Kennedy jafnan mikia tillits- semi. Áður hafði hann verið hinn áhrifamikli og dáði þing- leiðtogi. en sem varaforseta- efni og varaforseti varð hann að vera í skugga Kennedys. Johnson gætti þess svo vel, að hann hlaut lof fyrir Þetta gerði honum líka stórum auð- veldara að taka við af Kenn- Fyrir Johnson verður það á- reiðanlega mikill styrkur í kosningabaráttunni í haust. að hann hefur raunverulega verið valinn i það starf, sem hann gegnir nú, af hinum vinsæla fyrirrennara sínum En þó að Johnson minnist hans vel, minnist hann þó annars for- seta betur og vill helzt vera líkur honum. Það er Franklin D Roosevelt. Johnson er sagð- ur hafa skýrt samstarfsmönn- um sinum frá þvi fyrir nokkru að hann muni í kosningabarátt- unni í haust, taka sér Roose- velt mest til fyrirmyndar og haga baráttu sinni í anda hans. Hann mun leggja megináherzlu á eflingu friðarins og félagsleg ar framfarir Á grundvelli f Roosevelts ætlar hann sér að a standa eða falla. Þ.Þ. 5 • I ■u i"m:n fímmtudaginn 30. júlí 1964 — /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.