Tíminn - 30.07.1964, Page 15
Ný brú yfir
Miðfjarðará
FB—Reykjavík, 29. júlí
Fyrir skömmu var hafizt
handa um brúarsmíði á Mið-
fjarðará, skamrnt fyrir neðan
gömlu brúna við Ásbyrgi. Á
mjmdinni má sjá göngubrú yfir
ána, sem brúarsmiðirniir hafa
komið upp og veghefili sem er
að jafna ofaníburði, en í sam-
bandi við brúarsmíðina verður
veginum einnig breytt lítillega.
Gamla brúin á Miðfjarðará
var byggð árið 1926 og er nú
orðin heldur hrörleg, enda kom
in til ára sinna. Nýja brúin
verður 84 metra löng, með tvö
faldri akbraut 7 metra breiðri
eins og brýrnar á Blöndu og
Gljúfurá í Borgarfirði.
í sumar er áætlað að steypt
ir verði sökklar, og á þeim á-
fanga að verða lokið um mán-
aðamótin september-október, en
öllu verkinu mun Ijúka haustið
1935. Fjórtán fimmtán menn
vinna við brúarsmíðina, sam-
kvæmt upplýsingum frá Vega-
málaskrifstofunni, og er Jónas
Gíslason frá Hvammstanga yfir
smiður. (Tímamynd FB)
t5GS
SJÖ KER
Framhald af 1. síðu.
er á iðnaðarmönnum, trésmiðum
og járnsmiðum, og þó sér í lagi
járnsmiðum.
Tafir eru alltaf nokkrar við
hafnargerðina vegna veðurs, sagði
Steinar, en eftir öllum sólarmerkj
um að dæma, þá er búizt við að
áætlunin um framkvæmdirnar
standist.
9 AF 14
(Framhald af 2. síðul.
um, reyndust vera vegna stein-
skriðu inni í göngunum.
Gatið, sem matvælin voru send
niður í gegnum, var aðeins 7.5
cm. á breidd, en í dag og í kvöld
var unnið að því að bora 55 cm.
vítt gat, sem þýzka björgunartæk
ið verður síðan látið síga niður í
gegnum.
JÖRUNDUR III.
Framliaid ai i. siðu.
an voru væntanleg þangað í
kvöid eða nótt auk Jörundar III
svo búizt var við að söltun
héldi áfram í kvöld, en síldin
úr Sigurði Bjarnasyni fór í
salt, og var talið að nýtingin
væri 70—80%, sem er óvenju-
lega mikið á þessu sumri.
Að sögn fréttaritairans á
Raufarhöfn hagar sfldin sér
mjög undarlega. Sjómennirnir
segja, að hún sé mjög dreifð,
en svo þéttist hún allt í einu,
og fá þau skip, sem hitta á að
vera rétt hjá torfunum góð
köst, en hin fá ekkert.
NORNAMENN
Framhald af 1. síðu.
þorp verið brennd til grunna af
ofstækismönnunum.
Bæði landsstjórinn og Kaunda
forsætisráðherra hafa lagt á það
áherzlu, að grípa verði til víðtækra
og sérstakra ráðstafana til að koma
ofstækismönnunum fyrir kattarnéf
og hjálpa nauðstöddu fólki, en
fjöldi manns hefur leitað hælis í
trúboðsstöðvunum í nágrennin.
Ráðizt var á sterka lögregluher-
deild, sem var á gangi eftir stíg
einum í frumskóginum í dag. Að
tnínnsta kosti 50 áhangendur spá
konunnar réðust á lögveglumenn-
ina með spjótum, bogum og öðr-
um gamaldags vopnum. Einn brezk
ur liðsforingi var drepinn og ann-
ar særður, en minnst fimm of-
stækismanna létu lífið i bardag-
anum. Segir í skýrslu lógreglu-
mannanna, að ofstækismennirn'r
hafi ráðizt á þá af mikilli grimmd
án þess að taka nokkuii tillit til
þess, hvort þeir setta líf sitt í
hættu.
Landstjórinn hefur lýst yfir
ntyðarástandi í héraöinu.
Litskuggamyndir
i
" ‘’Ufe
Eftirtaldir flökkar litskuggamynda (24x35 mm) eru til
sölu í Fræðslumyndasafninu:
Ámessýsla, 27 myndir, kr. 375,00
Borgarfjörður, 17 — — 250 00
Skagafjörður, 21 — — 355.00
Eyjafjörður, 22 — — 375,00
N.-Múlasýsla, 28 — — 395,00
S.-Múlasýsla, 28 — — 485,00
ísl. jurtir I.—II., 60 — — 1.050,00
Myndirnar eru áletraðar og innrammaðar í gler.
Hver flokkur er í sérstakri merktri öskju.
Skýringabæklingur, brotinn niður í öskjuna, fylgir
hverjum flokki.
Myndirnar eru aðeins seldar í flokkum. — Sendar
gegn póstkröfu hvert á land sem er.
FRÆÐSLUMYNDASAFN
RÍKISINS
Borgartúni 7, Reykjavík.
Símar: 2-15-71 og 2-15-72.
SV^AWTGeRÖ RIK!«IN«:
Herjólfur
FERÐAÁÆTLUN
f BYRJUN ÁGÚST
1.8. laugard frá Ve. kl. 13 til
Þorlh., þaðan aftu.v kl. 18 til Ve.
Miðnæturferð til Surtseyjar kl.
23, farmiðar seldir fyrir hádegi.
2.8. sunnud. frá Ve. kl. 05, til
Þorlh., þaðan aftar kl. 09, til
Surtseyjar og Ve: þaðan kl. 20
til Þorlh. (23,30) og áfram til Rv
Frá 3.3— 5.8. verða ferðii eins
og venlulega, en þar sem mánud.
3.8. er frid. verzlunarmanna, er
reiknað :reð að íhja'h- sendi vör-
ur í hús útgerðarlnnar fyrir
áelgina Athugið einnig, að þá
eru að varða síðustu forvöð að
senda rorur til Ve fyrir þjóðhá-
tíð, því að miðvikudagsferðin
gefur minni möguleika um vöru
flutning.
6.8. fimm.d. kl. 17 frá Ve. til Þorl.
6.8. fimmd. kl. 21 frá Þorh. til Ve.
7.8. föstud. kl. 05 frá Ve. til Þorh.
7.8. föstud. kl. 09 frá Þorh. til Ve.
7.8. föstud, .kl. 14 frá Ve til Þorh.
7.8. föstud* kl. 18 frá Þorh. tll Ve.
7.8. föstud. kl. 22 frá Ve til Hornf
8.8. laugd. kl. 13-19 á Hornafj.
9.8. sunnud. kl. 10 frá Ve tll Þorh
9.8. sunnud. kl. 14 frá Þorh. til Ve i
9.8. sunnud. kl. 19 frá Ve tll Þ.orh |
og Rvík.
Æskiiegt er að fólk tryggi sér
farmiða i ofangreindar ferðir hjá
afgreiðslum skipsins á venjuieg-
um skrifitofutíma. þvi að tala
farþega i ferð er stranglega tak-
mörkuð, og óski fieiri fars en
hægt er að taka. er eðlileg-a -t að
þeir víki. sem exki hafa fa’-miða.
Annað fviirkomalag getur vald-
ið óþarf , fvrirhöfn og áoægind-
cm.
SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS
BORGARNES
Frambald af 16. síðu
og snyrtilegar olíudreyfingarstöðv
ar, sem væntanlega verður bæjar
prjði af. Stöðugt er unnið að nýj-
t.m íþróttavelli og veitir hreppur
inn árlega vissa fjárupphæð H1
þenrar framkværidar.
Hér var fyrir rokkrum árum
byggð sundlaug, og hafa verið tvö
sundnámskeið far i sumar. Að
loknum sundná'.-nskeiðunum tók til
staifa unglingavinna fyrir börn 10
ára og eldri, og hafa þau unnið að
fegrun og snyríingu þorpsins. —
Ieikvöllur er hér starfræktur og
eru þar yfir 50 börn á daginn. —
Kemui þetta sér einkar vel því
margar húsmæður vinna úti, og
hafa börn sín á leikvellinum.
Mikill ferðamanr.astraumur hef
ur verið í Borgarnesi í sumar, og
tnargir lagt leið sína í skrúðgarð
Borgnesinga — Skallagrimsgarð.
— Þar fyrir framan garðinn er
verið að steypa bilastæði. Aðsókn
að Hótel Borgarnr s hefur verið
góð í sumar, og mikið að gera þar.
B'yrir dyrum stendur endurnýj-
un á vatnsleiðslunni í þorpið, en
vatn fá Borgnesingar úr Hafnar-
fjalli, fyrir ofan Seleyri. Er vatn
ið leitt neðansjávar yfir fjSi-ðinn,
og það er neðansjávarldiðslan
sem endurnýja þarf. Efsi til leiðsl
unnar er á leiðinni tR. landsins.
KATLA
Framhalö af 16. stðu
af að ganga saman og springa um
leið. Ný sprunga vekif' engan ugg
hér hjá okkur.
— Eruð þið ekkert hrædd um,
að Katla geti farið að gjósa? Það
er nú langt síðan hún hefur látíð
heyra almennilega frá sér.
— Ja, það kom hlaup 1955, þeg
ar brýrnar tók af Hólmsá og
Skálm. Þá lækkaði í skálinni, og
hún ekki nærri því eins full
núna og hún hefur verið á und
an Kötlugosunum.
Þannig var hljóðið í húsfreyj-
unni á Þykkvabæjarklaustri.
SKRIFSTOFUSTARF
Skrifstofumenn
óskast
Viljum ráða menn til skrifstofustarfa strax-
Bókhaldskunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar gefur Starfsmannahald
SÍS., Sambandshúsinu.
STARFSMANNAHALD
íbúð til leigu
I I
Vil leigja í haust (sept. okt.) íbúðarhæð í Vogun-
um, 4 herb., eldhús og rúmgott hol. geymsla og
þvottahús í kjallara. Skilyrði fyrir góðri umgengni
og reglusemi. Fyrirframgreiðsla æskileg. Tilboð-
um sé skilað á afgreiðslu Tímans fyrir föscudaginn
31. þ. m. merkt „íbúð 101“.
LAUGARDALSVÖLLUR
í KVÖLD KL. 20,30 LEIKA
Þróttur — líe*!
i
Mótanefnd.
Eiginmaður minn,
Pálmi Skarphéðinsson
húsgagnasmiður, frá Oddsstöðum í Dölum,
lézt í Landspítalanum 23. júlí. Útför hefur verlS gerS.
GuSrún Guðmundsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúS við andlát og jarðarför móður
okkar,
Helgu Helgadóttur K
frá Flögu í Vafnsdal.
Elsa og Olga Magnúsdæfur.
T í M I N N, flmmtudaginn 30. júlí 1964 —
15