Tíminn - 08.08.1964, Blaðsíða 15
TIL NÍGERÍU
Framhald af 16. síðu.
mikla starfsemi í sambandi við
fyrstu hjálp. Þá hafa þeir í Sví-
þjóð svokallaða elliþjónustu, þ.e.
fólk innan véba;ada Rauða kross-
ins, sem heimsækir gamalt fólk
er býr eitt sér. Sænski Rauði
krossinn telur um 550 þúsund
meðlimi.
Nú er á leiðinni suður til Ni-
geriu í Afríku, norskur maður,
major Isaksen,« og mun hann
verða þar næstu tvö árin, sem
ráðgefandi aðili við Rauða kross
starfsemina þar í landi, Isaksen
fer þarna suður á kostnað Finn-
lands, Svíþjóðar, og Noregs, og
einnig styrkir íslénzki Rauði kross-
inn för hans nokkuð.
^EITUM HJÁLP
Framhald af 6. síðu.
ættu íslenzkir viðskipta-
menn að sjó sóma sinn í
því að eiga engin viðskipti
við hatursstjórn fasista í
Suður-Afríku, enda fullvíst,
að hægt er að reka þau við-
skipti við aðrar þjóðir, á
jafn hagkvæman hátt.
Erfiðle'ikar vanþróaðra ríkja
eru ásborun til íslendinga að
taka höndum saman og hjálpa
öðrum þjóðum til sjálfshjálpar.
Þótt við séum fámenn þjóð,
getum við komið mörgu í verk.
Verkefnin biða! Hefjumst
handa sem fyrst!
STÓRAUKIN VIÐSKIPTI
Framhald af 6. síðu.
andstæð stjórn-arskránni. Margt
bendir því til þess, að þjóð-
félagsfyrirkomulag það, sem
Verwoerd og kumpánar hans
hafa kom'ið á í Suður-Afríku,
sé hugsjónaríki Goldwaters.
Þar geta hvítir menn ráðið öllu
og verið ríkir og voldugir, horf
ið “aftur til hinna „gömlu Qg
góðu daga“ þegar blökkumenn
voru þrælar.
Það er augljóst, að þessi
sami andi ríkir meðal þeirra,
sem hvað ákafast auka viðskipti
sín við Suður-Afríku. Aðdáun
þeirra á Goldwater, Verwoerd
og öðrum öfgafullum fasistum
er öllum augljós. Hún er bæði
hættuleg og viðbjóðsleg.
Skynsamir og öfgalausir ís-
lettd'ingar verða að reyna eftir
mætti áð stemma stigu fyrir
framgöngu hennar. Það gera
þeir m.a. með því að neita að
kaupa vörur frá Suður-Afríku. j
KÍNVERJAR SVARA
Framhald af 16. síðu. .
en .hann birti yfirlýsingu sína í|
morgun.
Báðar deildir Bandaríkjaþings
héldu fundi í dag og samþykktuj
ályktun , þar sem lýst var yfir i
stuðningi við aðgerðir Johnsonsj
forseta í Vietnam-málinu. Full-'
trúadeildin samþykkti ályktunina'
mótatkvæðalaust, en í öldunga-|
deildinni greiddu tveir þingmenn|
atkvæði gegn henni. Annar þeirra,1
Wayne Morse frá Oregon, sagði að 1
ályktunin gæfi forsetanum vald til!
að hefja styrjöld upp á eigin spýt-i
ur, en hinn, Ernest Gruening fráj
Alaska, sagði að Vietnam væri!
ekki þess virði, að einum banda-j
rískum hermanni væri fórnað j
þess vegna. Leiðtogar beggja þing-j
flokka mæltu hins vegar fastlegaj
með samþykkt ályktunarinnar, og
Johnson forseti sagði að lokinni ^
samþykktinni, að atkvæðagreiðsl j
an sýndi, að Bandaríkjaþjóðin
væri einhuga í því að verja her-j
afla sinn og koma í veg fyrir á-
rásir og vinna einarðlega að friði
og öryggi í Suðaustur-Asíu.
Tilkynnt var í Washington íj
dag, að Henry Cabot-Lodge, semj
til skamms tíma var sendiherraj
Bandaríkjanna í Saigon, muni inn-1
an skamms ferðast til höfuðborga
ýmissa bandalagsríkja Bandaríkj-
annatil að skýra stefnu Bandaríkj-
anna í málefnum Suðaustur-Asíu.
Lodge fer í þessa för að tilmælum
Johnsons forseta, en hann átti
tveggja tíma samtal við forsetann
í dag. Hann mun leggja af stað í
förina eftir viku, en enn hefur
ekki verið tilkynnt til hvaða landa
hann muni fara. Þó er talið víst
að hann komi til Parísar og ein-
hverra fleiri höfuðborga í Vestur-
Evrópu.
Hin opinbera fréttastofa í Norð-
ur-Vietnam tilkynnti í dag, að
bandarískar flugvélar hefðu hvað
eftir annað farið inn í lofthelgi
landsins í dag, en verið reknar á
braut með loftvarnaskothríð. Yfir-
herstjórn landsins hefur sent al-
þjóðlegu eftirlitsnefndinni mót-
mæli gegn þessum skýlausu brot-
um á Genfarsáttmálanum um mál-
efni landsins, sem herstjórnin
kallar svo. Frá Formósu berast
þær fregnir, að miklir liðsflutn-
irigar eigi sér nú stað frá Kína til
Norður-Vietnam, þar á meðal hafi
fast að því hundrað orrustuþotur
af MlG-gerð verið fluttar til
Hanoi frá Kína.
í Peking fór fram í dag fjölda
ganga til að mótmæla aðgerðum
Badaríkjanna í Norður--Vietnam.
Gangan sem var fimm kílómetra
löng og milljónir tóku þátt í, gekk
fram hjá sendiráði Norður-Viet-
nam í Peking og þáru göngumenn
fána og spjöld, þar sem aðgerðirn
ar gegn Norður-Vietnam voru for-
dæmdar Um svipað leyti tilkynnL
kínverska fréttastofan Nýja Kína,
að ríkisstjórn Norður-Vietnam
hefði birt boðskap til þjóðarinn-
ar, þar sem henni væri þakkað
hugrekki sitt og varnarvilji.
Viðbrögð við atburðunum í Viet-
nam skiptast í tvö horn. Rauði
kross Sovétríkjanna fordæmdi í
dag, það sem hann kallaði ,þær
miskunnarlausu árásir á Norður-
Vietnam, sem bandarískar flugvél
ar hefðu gert“. Frá Kaíró er til-
kynnt að egypzk stjórnarvöld lít’
svo á, að allir aðilar að dcilunum
í Suðaustur-Asíu verði nú a& láta
af öllum hernaðaraðgerðum til að
varðveita heimsfriðinn. Heimspek
ingurinn aldni Bertrand Russel,
hefur skorað á Sameinuðu þjóðirn
ar að fá Bandaríkin til að sækja
14 velda ráðstefnu um Vietnam-
málin. Hann segir í tiímælum sín
um, að aðgerðir Bandaríkianna
hafi ekki verið réttlætaanlegar og
þær hafi verið alvarleg ógn við
heimsfriðinn. Bandaríska blaðið
Washington Post segir í leiðara
í dag að Kína og Norður-Vietnam
hafi nú að velja milli varfærni og
stolts er þessi lönd ákvarði, hvern
ig aðgerðum Bandaríkjanna skuli
svarað. Blaðið kveður Bandaríkja-
menn verða að vona að deilumar
verði leiddar til lykta með við-
ræðum en um leið þurfi þó að
vera vel á verði gagnvart nýjum
yfirgagi í Indókína. New York
Herald Tribune segir. að það væri
óskynsamlegt að taka ekki hótanir
Kínverja alvarlega og þýzka blaðið
Die Welt í Hamborg skrifar. að
aðgerðir Bandarfkjanna hafi sýnt,
að það traust sem þau Asíeríki.
er ekki fylgi kommúnistum, hafi j
borið til Bandaríkjanna sé verð j
skuldað og aðgerðirnar hafi valdið ,
efasemdum og óöryggi i herbúðurn j
kommúnista
Óryggisráðið hélt fund um Viet j
nam-málið í kvöld. í fundarbyrjun j
tilkynnti formaður ráðsins, Norð'
maðurinn Sivert Nielsen, að með-!
limir ráðsim hefðu orðið sammáH j
um að bjóða bæði Norður- og Suð- j
ur-Vietnam að gefa upplýsingár í
sambandi við kæru Bandarík;anna .
á hendur Norður-Viet.nam. Nielsen |
sagði. að Norður-Viptnam gæ‘:
skýrt málstað sinn með þvi .
sækja fund ráðsins eða á annan i
hátt, hann sagði eðlileel að Suður- j
Vietnam fengi sama rétt Siðan i
hófust umræður um málið og tók'
fulltrúi Tékkóslóvakíu fyrstur til
máls og sakaði Bandaríkin um að
hafa farið í heimildarleysi inn í
landhelgi Norður-Vietnam. Hann
kvað Bandaríkjamenn styðja sið-
spillta og ruddalega stjórn í Suður
Vietnam sern þjóðin myndi steypa
af stóli samstundis og Bandaríkja
menn slepptu af henni hendinni,
og hann hvatti ráðið til að fordæma
aðgerðir Bandaríkjanna í Vietnam
'Adlai Stevenson fulltiúi Banda-
ríkjanna vísaði»þessum ásökunum
tékkneska fulltrúans á bug. Hann
kvað tundurskeytabáta frá Norð-
ur-Vietnam hafa gert fyrirvará
lausa árás á bandarísk herskip og
mótaðgerðir Bandaríkjanna hafi
verið réttmætar. Fulltrúi Frakk-
lands í ráðinu sagði atburði síð-
ustu daga í Suðaustur-Asíu vera
uggvekjandi. Hann kvað Frakka
leggja áherzlu á að samkomulagið
frá 1954 um framtíð Indókína
verði virt og komið verði á varan-
legum friði í því landi setn áður
laut franskri stjórn. Hann lagði ti1
að samningaviðræðurnar yrðu þeg
ar látnar fara fram um málið.
Til sölu
Henti hnullungum
inn um gluggana
KJ-Reykjavík, 7. ágúst.
í nótt fór maður nokur um göt-
ur Reykjavíkur og kastaði grjóti
og öskutunnuloki inn um glugga á
íbúðarhúsum. Lögreglan skipu
lagði leit að manninum, og fannst
hann að lokum inni í Laugardal,
en var þá ekki á því að láta lög-
regluna handtaka sig.
Lögreglunni barst tilkynning
um að tvær rúður hefðu verið
brotnar í Höfðaborginni, með
grjótkasti, um tvöleytið. Skömmu
síðar barst lögreglunni tilkynn-
ing um rúðubrot með grjótkasti
innan af Sundlaugavegi, og þótti
sýnt að hér væri að verki einn og
sami maðurinn. Þessi sami maður
henti líka öskutunnuloki inn um
glugga hjá bróður sínum. Lög-
reglan gerði út mikinn leitarleið-
angur aö manninum, og var leitin
hafin inni í Laugardal, þar sem
síðast sást til hans. Eftir nokkurn
tíma fannst svo maðurinn, og í
Laugardalnum, liggjandi á milli
tveggja skúra. Hann var ekki á því
að láta handtaka sig, en lögregl-
unni tókst þó að koma á hann
handjárnum og flytja hann í Síðu-
múlann.
Lítil 2ja herbergja ibúð f
ágætu standi við miðbæinn
Einbýlishús á góðum stað í
í Kópavogi útborgur. 180
þús.
2ja herbeigja iarðh eð við
Blönduhuð
4ra herbergja íbúðarhæð með
þvottahúsi á hæðinni.
2ja herbergja kiallaraíbúð
Vesturbænum *
3ja hcrbergja hæð við Grett
isgötu
2ja herbergja íbúð með stóruir
svölum
Hæð og ris í Túnunúm alls t
herbergi
5 herbergia 1. hæð í^miðbæn
um.
3ja herbergja íbúð góðu stand
í Skerjafirði séi hiti oe séi
inngangur
Fokhelt 2ja hæða hús á falleg
um stað í Kópavogi
3ja herbergia iarðhæð á Sel
tjarnarnesi.
3ja herbeigja risíbút, við Á‘>-
vallagötu.
Einbýlishus á einni hæð f Kóp?
vogi
Risíbúð vii) Lindargötu sér hiti
og sér inngangui
Stór íbúðarhæð rið Kambsveg
íbúðir við Skipasuno og Suður
landsbraut
Rannveig
Þorsteinsdóftir,
hæstaréttarlögmaður,
Laufásvegi 2.
Sími 19960 og 13243.
EIMREIÐIM
Askr trtarsimi 1-61-51
Pósthólt 1127
Reykjavk. '
SKIPAtlTGCRÐ RÍKISINS
Ms. Esja
fer vestur um land í hringferð
13. ágúst. Vörumóttaka árdegis
á laugardag og mánudag til
Patreksfjarðar, Sveinseyrar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar,
Suðureyrar, ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Akureyrar, Húsavíkur
og Raufarhafnar. . Farseðlar
seldir á þriðjudag.
Skjaldbreið
fer austur um land í hringferð
12. ágúst. Vörumóttaka árdegis
á laugardag og mánudag til
Hornafjarðar, Djúpavogs, Breið
dalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyð
isfjarðar, Borgarfjarðar, Vopna
fjarðar, Bakkafjarðar, Þórs-
hafnar og Kópaskers.
Farseðlar seldir á þriðjudag.
íhúðir í smíðum
2ja—3ja og ira herb ibúðir
við Meistaravelli (vestur-
bær) íbúðirnar eru seldar
tilbúnar undir tréverk og
málningu. sameign f húsi
fullfrágengin Vélar i þvotta
húsi
Enn fremui íbúðir af ýmsum
stærðum1
Húsa & íbúðasalan
Laugavegi 18, IH, hæð
Sími 18429 og
eftix kL 7 10634
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu
mig með heimsóknum og hlýjum kveðjum á 95 ára
afmælinu.
Guð blessi ykkur öll.
Sigvaldi Guðmundsson frá Sandnesi.
Fél! afpokasiæSu
KJ-Refkjavík, 7. ágúst.
UM miðjan dag í dag féll pilt-
ur ofan af pokastæði í vöru- j
geymslu Jökla h.f. við Klepps-1
veg. Pilturinn Sigurjón Helgason |
Efstasundi 90 hlauc nokkur ;
meiðsli en ekki alvarieg.
Hjartans þakkir til barna minna, tengdabarna, barna-
barna og allra ættingja og vina, sem heiðruðu mig á
70 ára afmælisdegi mínum 25. júlí s.l. með heimsóknum,
heillaóskum, skeytum og gjöfum.
Guð blessi ykkur öll.
Jakob Einarsson,
Hátúni 8. Reykjavík
Hlaut verðlaun
fyrir málverk
Nýlega hélt Baltimore Museum
of Art 32. málverkasýningu sína,
en þar eru tekin til sýningar mál-|
verk frá listamönnum, sem eru
fæddir eða búsettir í Maryland-
ríki. Alls bárust til sýningar 1400
málverk, en af þeim voru aðeins
100 tekin á sýninguna.
Frú Ragnheiður Jónsdóttir, sem
búsett hefur verið vestra um all-
langt skeið, sendi tvö málverk á
sýninguna, og voru þau bæði tek-
in til sýningar. Frú Ragnheiður
hlaut ein af þremur hæstu verð-
laununum, sem safnið hefur veitt,
en verðlaun þessi voru öll jafnhá.
Frú Ragnheiður hefur stundað
málaralist nokkur undanfarin ár,
og haldið einkasýningar og tekið
þátt í málverkasýningum í Was-
hington
Menntamálaráðuneytið,
6. ágúst 1964.
JarSarför
Sigríðar Gísladóttur
frá Hafranesi er andaðist 27.7., fer fram miðvikudaginn 12.8. kl. 2.
Athöfnin fer fram frá Kolfreyjustaðarkirkju. — Jarðsett verður að
Hafranesi.
Börn, tengdabörn
og barnabörn.
Jarðarför konu minnar,
Guðnýjar Þorleifsdóttur
fer fram frá Norðtungukirkju mánudaginn '‘'óst kl. 2 síð-
degis.
Jón Þorstein:-'i
Hsm.'i.
Þökkum innilega öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð cg v'máttu
við andlát og jarðarför mannslns míns, föður okkar, íenncbföðlli'
og afa,
Jóns Gíslasonar
útgerðarmanns í Hafnarfirði, og heiðruðu minningu hans á margan
hátt. /
Anna Jónsdóttir,
Hallgerður Jónsdóttlr, Jón Jónsson,
Örn Ingólfsson og barnabörn.
T í M I N N, laugardaglnn 8. ágúst 1964 —
15