Alþýðublaðið - 15.07.1953, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 15.07.1953, Blaðsíða 8
/USálkrofur verkalý'Sssamfalsanna um aukiuu kawpmáít lauma^ fulla nýtingu ailra atvinnu- tækja og samfeílda atvinnu handa öllu vinnu færu fölki viö þjóðnýt framleiðsiustörf njóta fyllsta stuðnings Alþýðuflokksins. Vcrðlækkunarstefna alþýðusamfakanna er öIB um launamönnum til bcinna hagsbóta, jafnð verzlunarfólki og opinberum starfsmönnam sem verkafólkinu sjálfu. Þetta. er farsæl leið út úr ógöngum dýrtíðarinnar. ieilaS fil Áfengisvamarsföðv- iiia 16 m stúiku manns haífa leitað til stöðvarinnar síðan í janúar s.L 230 MANNS. hafa leitað til Áfengisvarnastöðvarinnar frá því hún var opnuð í janúar í vetur. Flest af þessu fólki er kar.1 menn. Leitað hefur verið til stöðvarinnar vegna nokkurra ung linga. Það háir mjög síarfsemi stö’S>varinna4 að ekkf. er til spítala- eða hælispláss handa fólki, sem leitar til stöðvar- innar, að þvi er Alfreð Gísla- son, læknir, tjáði blaðinu í gær. Er þegar allstór hópur, sem ekkert er hægt að gera fyrir vegna þessa skorts á Hæl- um og sjúkrahúsum. I fínnskl mef 8 EINS OG GETIB VAR um hér nýlega í blaðinu, hefur bandarískur íþvóttaflokkur undanfarið verið \7ið keppni í Finnlandi. Góður árangur náð- ist í 'ýmsum greinum. Ame- rÉkumaðurinn George Mattos sfökk 4,35 m. í stangarstökki, en Finninn Valto Olenius stökk 4,31 m., sem er finnskt met. Þriðji varð Finninn aLnd- ström með 4,22 m. Ameríkumðaurinn Parry O'Brien vann kúluvarpið með l'?,09 m. kasti, en Finninn Rask kastaði 14,69 m. Ameríku- maðurinn Shelton stökk 2,00 m. í hástökki en Finninn Elóskinen stökk 1,85 m. 4 íbúðarhús I smíðum f Oerðum Fregn til Alþýðublaðsins. GERÐIJM í gær. VERIÐ er að byggja hér 4 fhúðarhús. Vinna er næg, enda margir við vinnu á Keflavíkur flugvelli. Saltfiskþurrkun úti stendur nú yfir. PÁ. BER A DRYKKJUSKAP A UNGLINGUM. Nokkuð hefur verið leitað til áfengisvarnarstöðvarinnar vegna drykkj uskapar unglinga, oft ungra stúlkna. Mun vera einna erfiðast að eiga við þau tilfelli, þar eð hvorki er til hæli né vilja unglingarnir viðurkenna. að nokkuð sé að. 16 ÁRA STÚLKA. Til dæmis má iaka stúlku, sem cr nýlega 16 ára gömul. Móðir hennar er í stökustu vandræðum með hana. Stúlkan hverfur stundum heiiu sólarhringana, og hef- ur móðirin haft spurnir af því, að hún hafi lent í kjall- aranum hjá lögreglunni. Hefur hún verið send tvisvar í sveit, en komið jafnjharðan aftur. í slium tilfellum gæti hæli e. t. v. komið að notum, en þau eru engin fyrir höndum, sem fyrr getur. NÝ H.TÚKRUNARKONA. Vonazt er til að annarri hjúkrunarkonu verði bætt við og yrði hún ailan daginn og sæi þá aðallega um hina félagslegu hlið. Hingað til hafa starfað tveir læknar og ein hjúkrunarkona hálfan daginn, en störfin eru svo geysileg, að auka verður starfslið. STJÓRNAEVÖLDIN TÓMLÁT. Það, sem mest háir starf- semi stöðvarinnar nú, er sjúkrahúsa- og nælisskortur- inn og er þar tómlæti stjórnar- valdanna um að kenna. Mikil efiirspurn eflir lánum r hjá Iðnaðarbanka Islands Eo 15 oiillj. kr. ókomnar frá stjórninni IÐNAÐARBANKINN hefur nú starfað í um það bil 3 vik ur. Hefur starfsemi bankans stöðugt farið vaxandi. Innlög hafa stöðugt aukizt og útlán hafizt. Fréttamaður blaðsins ræddi*" í gær við Helga Hermann Eiríksson bankastjóra um starfsémi bankans fyrstu vik- urnar. INNLÓG HAFA AUKIZT. Helgi kvað innlög hafa stöð- ugt farið vaxandi og hafa ver- íð opnaðir margir nýir reikn- ingar bæði sparisjóðsreikn- dngar og hlaupareikningar. ÚTLÁN ERU HAFIN. Útlán hófust 28. júní. Hafa ; . Framhald ai 7. síðu. Sæmiiegur aíli7 þegar nýrrð síld er beitf Fregn til Alþýðublaðsins. HOFSÓSI í gær. SÆMILEGUR afli er hér hjá bátum, ef ný síld fæst til beitu, og smásíld hefu£. nú ein mitt veiðzt á Skagafirði. Nú á að fara að breikka gömlu bryggjuna, hefst verkið í vikunni. ÞH. ^Skemniíiferð 11, s \ hverfisins s 11. HVERFI Alþýðu-s S flokksfélags Re.ykjavikur S ^cínir til skemmtiferðar umS • Snæfellsnes um næstu helgió ; Lagt verður af stað á; ^ föstudagskvöld kl. 7,30 frá • ^ í\Iþýðuhúsinu. Ekið verður ? S fyrsf til Stykkishólms. Á ^ S laugardag verður farið út S Breiðafjarðareyjar, gengið^ S á Helgafell og farið út ís S Bjarnarhöfn. Á sunnudagS S verðu r ekið um Skóga-S ^ strönd og um Dalina heim. S ; Allt Alþýðuflokksfólk er^ • velkomið. Þátttaka tilkynn-^ ^ ist í síma 1159. Farmiðar^ ^ verða afhentir í skrifstofu J ^ AÍhýðuflokksins í AJþýðu- • S húsinu á S 5—6. S fimmtudag kl. Er Beria fangi eða fékst um al flýja fif Georgíu Stóð rauði herinn á bak við brottvikn' ingu Beria frá völdum? SÚ SKOÐUN styrkist sífellt í Vestur Evrópu, að fréttin uœn fall Beria í Rússlandi tákni innanlands reikningsuppgjör, sem ekkert hafi með utanríkispólitík Rússa að gera. Einkum vekuir það athygli, hve ákærurnar á hendur yfirmanni öryggislögregS unnar, Beria, líkjast ákærum þeim, sem Vishinsky bar á sínuJHi tíma fram á hendur Bukharin og öðrum kommúnistakempum í hinum alræmdu réttarhöldum í Moskva. Sums staðar er svo til um upptuggu að ræða. Fréttaritari brezka kommún-' sem hindruð var af flokknum. istablaðsins „Daily Worker“ í Enginn annar erlendur blaða- Moskvu, sem ætti að vera vel maður í Moskva iiefur þorað heima í hinum hugsjónalega' að ganga svo langt í skeytumi bakgrunni, sendi blaði sínu' sínum. „Daily Worker“ slær skeyti, þar sem segir, að því hinsvegar föstu í 6 dálka Beria hafi hvorki meira né fyrirsögn, að Beria hafi reynt minna ætlað að gera byltingu, að hrifsa til sín völdin. Állsherjar berklarannsókn fór r fram á Isafirði fyrir skömmu Berklaraonsóko fór fram í mörgum þorpum á Vesffjörðum NÝLEGA er lokið berklarannsókn á Vestfjörðum. Sigurður Sigurðsson berklayfirlæknir stóð fyrir rannsókninni, sem var með svipuðu sniði og undanfarin ár.' Rannsóknin hófst fimmtu- daginn 2. júlí og stóð í 10 daga. ALLSHERJAR RANNSÓKN Á ÍSAFIRÐI. Allsherjar berklaskoðun fór eingöngu fram á ísafirði. Voru þar allir fullorðnir röntgen- myndaðir en öll börn voru berklaprófuð. Öli börn sem Verkakvennafélag sfofnað í Keflavfk VERKAKVENNAFÉLAG var stofnað fyrir Keflavík og Njarðvíkur á föstudagskvöld að tilhlutan Kvenfélags Al- þýðuflokksins. Hér hefur aldrei verið verkakvennafélag fyrr, en eitt sinn var deild verkakvenna í verkalýðs- félaginu' Stjórn félagsins skipa: Vil- borg Auðunsdóttir kennari for- maður, Þuríður Halldórsdóttir varaformaður, Guðmunda Frið- riksdóttir ritari, Soffía Þor- kelsdóttir gjaldkeri og Hulda Brynjólfsdóttir fjarmálaritari. Varastjórn: Vilborg Guðna- dóttir og Elín Þórðardóttir, endurskoðendur. Margrét Guðleifsdóttir og Dagbjört Ólafsdóttir. 44 konur eru stofnfélagar. Félagið samþykkti að sækja um inntöku í Alþýðusamband fslands. > -f|!) reyndust jákvæð við berkla- prófunina voru einnig' röntgen- mynduð. RANNSÓKN VÍÐA Á VESTFJÖRÐUM. í Bolungavík og Súðavík var berklaskoðunin ekki eins víð- tæk og á ísafirði en þó voru þar allmargir röntgenmynd- aðir líka. Berklaskoðun fór og fram víðar á Vestfjörðum. RANNSÓKN LOKIÐ í FLESTUM KAUPSTÖÐUM. Allt frá því að allsherjar- berklarannsóknin fór fram í Reykjavík fyrir nokkrum ár- um, hefur ætíð á hverju ári j farið fram berklarannsókn ein- hversstaðar úti á landi. Er nú ' svo komið að íbúar flestra i kaupstaða hafa verið rann- sakaðir. HVAR ER BERIA? Tilkynnt hefur verið, a'5 Beria hafi verið tekinn fastur í dögun 27. júní, en þá segja sumar fréttir, að skriðdrekar og vörubílar hafi ekið utra Moskva og síðan burtu nokkru; síðar. Hinsvegar gengur þrá— látur orðrómur um það í blöð- um erlendis, að Maienkov haf.I: alls ekki náð Beria, heldur sé hann kominn til Gcorgíu, en þaðan er hann ættaður. RAUÐI HERINN. Þá vaknar spurningin: hvar stendur rauði herinn? Varl-a er hægt við því að búast, að lögregla Beria hafi verið hon- um ótrú, einkum þegar það er Framhald á 7. síðu Kirkjuhygging hafin í Borgarnesi Fregn til AlþýSublaSsins. BORGARNESI í gær. HÉR er nú hafín kirkjn' bygging, en kirkja hefur aldrei verið í Borgarnesi. Langt er komið að ganga frá grunnin. um, en hann hefur að mestu, verið gerður í sjálfboðavinnui. Ætlunin er að koma kirkjunní. undir þak fyrir haustið. IE. Veðril í dag Norðvestan gola og kaldi víðast lcttskýjað. Engin bein fundusf, er grafiS yar í Englendingadysjar Rætt um að grafa meira, en ekki ákveðið Fregn til Alþýðublaðsins. HOFSÓSI í gær. EKKERT kom í Ijós, er grafið var í Englerwlingadysjar í. gær. Telja þeir Kristján Eldjárn þjóðminjavörður og Jón Stef£ ensen prófessor óvíst, að munnmælin um dysjarnar hafi við rök að styðjast. Fannst þeim, að þarna væri órótuð jörð. þá, ef af verður, að vera hægt að ganga úr skugga um, hvort nokkur bein eru þarna í jörð. Englendingadysjar eru tveir malarhaugar og líta mjög líkt út og um raunverulegar dysjar sé að ræða. Talað var um í gærkvöldi að grafa meira í dysjarnar og jafnvel rætt um, að sjálfboðaliðar frá Hofs- ósi færu þangað í hópi í kvöld til að róta þar öllu um. Ætti GREINILEG MUNNMÆLI, Endaþótt mikill vafi leiki á sannleiksgildi munnmælanna, eru þau þó greinileg og ör- Framhald á 7. aí&i, ,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.