Alþýðublaðið - 22.09.1953, Blaðsíða 8
áffclferofœr vsrkalýSssamtakanna am ankiaa
kaupmátt laima, fulla nýtingu allra. atvinnu-
tækja og samféíída atvinnu handa öllu vir.nu
faeru fólki við þjóð'nýt fxamleiðsiustörf njóta
fyllsta stuðnings Alþýðuflokksins.
Verðlækkunarstefna alþýöasamtakanna w 8B)
um launamönnum til bcinna hagsbóta, jafmá
verzlunarfólki og opinberum starfsmönnumá
sem verkafólkinu sjálfu. Þetta er farsæ! !«ai
át úr ágöngum dýrtíðarinnar, j
m
íjóðleikhúsið byrjar leikárið meðlvær 10 og 11 ára slúikur í R
sýningu á „Einkalífi” efíir Coward al kosna sér upp býffugnabú
Frumsýning verður annað kvöid. Leik
stjóri er Gunnar R. Hansen.
FYKSTA LEIKRIT- Þjóðleikhússins á því leikári, sem nú
er að hefjast, verSur frumsýnt annað kvöld. Er það „EINKA.
LÍF“ eftir Noel Coward, einn þekktasta leikritahöfúnd Breta.
Sigurður Grímsson þýddi leikritið. Leikstjóri verður Gunnar
K. Hansen og verðnr þetta fyrsta viðfangsefni hans hjá Þjóð-
leikhúsimi. Le'iktjöld befur Magnús Pálsson málað.
Aðalleikendur .vérða Einar ^
Pálsson og Ir.ga Þórðardóttir. |
Er þetta fyrsta stóra hlutverk- j
ið, er Einar fær hjá þjóðleik- 1
húsinu, en áður ’tiafði hann
leikið í „Konu ofaukið“ á
fyrsta ári þjóðleikhússins. Aðr
ir leikendur verða Róbert Arn
finnsson, Bryndís Pétursdóttir
og Hildur Kalman.
‘ „Einkalíf" er gamanleikur.
Það gerist á suðurströnd Frakk
lánds og í París. Persónur leiks
ins eru þó flestar enskar. Leik-
ritið er í þrem þáttum, en frek
ar stutt, aðeins rúmir 2 tírriar.
FJÖLIIÆFUE HÖFUNDUR
Höfundur leiksins, Noel Co-
ward, er einn þekktasti leik-
ritahöfundur Breta. En hann
hefur ekki aðeins fengizt við
leikritagerð. Hann er einr.ig
tónskáld, leikari, söngvari, pí-
anóleikari og baiiettdansari.
Einnig hefur hann fengizt við
að semja kvikmyndahandrit og
smásögur. Noel Coward skrif-
aði ,.Einkalíf“ um 1930. Leik-
ritið hefur verið sýnt mikið er
Iendis og líkað afbragðsvel. í
London var það mikið leikið og
fyrir 2—3 árum var það sýnt í
„Det nye Teater“ í Kaup-
•mannahöfn og gekk þá mjög
ler.gi. Einnig hefur það verið
sýnt í Noregi og Svíþjóð við
góðar undirtektir.
,,PILTUR GG STÚLKA“
JÓI.AIÆIKRIT
Næsta viðfangsefni þjóðleik-
hússins verður svo „Sumri
hallar“, á frummálinu „Summ-
er and Smoke“ eftir Tennesee
Williams. Aðalleikendur í því
leikriti verða þau Katrín Thors
og Baldvin Halldórsson. Leik-
.stjóri verður Indriði Waage.
Þriðja leikritið verður svo
„Valtýr á grænni treyju“ eftir
Jón Björnsson. Leikstjóri þess
verður Lárus Pálsson. Þá verð
ur bandaríska ieikritið „Har-
vay“ eftir Marv Chrase tekið
þar næst til meðferðar.
Jólaleikrit þjóðleikhússins í
ár verður „Piltur og stúlka“ .
eftir handriti Emils Thorodd-
sen.
ENGUM BÆTT VIÐ
í LEIKSKÓLANN
Önnur starfsemi þjóðleik-
hússins verður með líkum
hætti í vetur og undanfarin ár.
.Ballettskólinn starfar áfram.
Mun Erik Bidsted koma bráð-
lega og stjórna honum eins og
í. fyrravetur. Um 70 sóttu ball-
eítskóiann í fyrra.
Þá starfar leikskólinn einnig
áfram. En engum nýjum nem-
endum verður bætt við í vetur.
Kammerfónleik-
ar í lisfasafninu
í KVÖLD verður útvarpað
kammertónleikum ríkisútvarps j
ins. Sá nýi háttur verður þá
tekinn upp, að útvarpað verð-
ur úr salarkynnum Listasafns
ríkisins í Þjóðminjasafnshús-
inu.
Þetta, að halda tónleika í
listasöfnum, hefur nú um skeið
verið gert í nokkrum öndveg-
issöfnum erlendis, t. d. í Ríkis
safninu í Amsterdam, í Wash-
ington og víðar.
Viðfangsefnin verða tvenn,
kvartett í C-dúr eftir Mozart
og oktett í Es-dúr op. 20, eftir
Mendelssohn. Hljóðfæraleikar-
arnir eru Björn Ólafsson, Jósef
Felzman, Jón Sen cg Einar Vig
fússon í kvartettinum, og í okt
ettinum auk þeirra Þorvaldur
Steingrímsson, Ingvar Jónas-
son, Sveinn Ólafsson og Jó-
hannes Eggertsson.
Þessir flokkar eru þættir í
Tiridfjallajökull hefur lœkkað
kringum f jörutíu metra
Sex brezkir stúdentar hafa kortlagt jökulinn í sumar.
SEX BREZKIR STÚDENTAR vom í sumar rúmlega hálfs
annars mánaðar tíma við rannsóknir á Tindafjallajökli. Gerðu
þeir uppdrátt af jöklinum og mældu snjóleysingu. Ekki er til
ífulls búið að vinna úr mælingum þeirra, en komið hefur í ljós,
að jökullinn hefur lækkað um eitthvað í kringum 10 metra
miðað við gamla kortið.
Að iþví er Jón Eyþórsson
skýrði blaðinu frá í gær, voru
stúdentar þessir hér á vegum
Jöklarannsóknafélagsins. Þeir
komu um miðjan júlí og fóru
héðan í byrjun september.
Höfðu þeir sama og enga við-
dvöl í Reykjavík.
Klettastrýtur standa upp úr
hábungu Tindfj allajökuls, en
hún mun hafa lækkað síðustu
árin, samkvæmt mælingum.
stúdentanna. Telur Jón, að
ekki geti verið urn skekkju á
eldri mælingum að ræða. Leys
ingarmælingarnar voru hafnar
um páskana í vor af mönnum
úr Jöklarannsóknafélagi ís-
lands, og héldu stúdentarnir
þeim áfram.
3 stúlkur hafa lærf
býrækt hjá frú
Melitu Urbancic.
Anna Haraldsdóttir sýnir bývöfflu í býflugnabúi frú Urbancic.
Ljósm.: Guðm. Hannesson.
Fru Urbancic sýnir gestum íslenzkt hunang. Hin nýfengna skil-
vinda er fremst á myndinni. Til hægri stendur Geir Gígja skor-
dýrafræðingur, formaður Býræktarfélags íslands. Ljósm. G. H.
gagnfræðaskóium hér í vetur
1250 uoglinganna eru enn á skóla-
skyldualdri. Hinir búa sig undir lands
próf og gagnfræöapróf.
GAGNFRÆÐASKÓLARNIR í REYKJAVÍK taka nú bráð-
ÞRJAR stúlkur hafa veriff
að læra býrækt li.iá frú Melittœ
Urbancic, og hyggjást tvær
þeirra koma upp hýflugnabú-
um heima hjá sér að sumri, Tii!
eru nú tvö býflugnabú í 'Rvíky
býflugnabú frú Urbanclc ogf
annað.á frú Hlín Eiríksdóttir..
Virðist áhugi á býrækt faræ
vaxandi.
Býræktarfélag Islands hefur
nú fengið frá útlöndum skil-
vindu til að ná hunangi úr bý-
vöfflunum. Hefur skilvindan.
verið reynd og í tilefni af þvl
ræddi blaðamaður Alþýðu-
blaðsins við frú Urbaneic um.
býrækt hennar.
ÍSLENZKAE DROTTNINGAK
Frú Urbancic heíur býflugna
bú sitt í garði sínum. Þar erui
fjögur fylki af býflugum og
þrír græðlingar, þ. e. verðandi
fylki. Aðeins tvær drottning-
anna eru útlendar, hinar erir.
fæddar og uppaldar hér á landi:
í býflugnabúi frúarinnar.
HAFA NÓG FYRIR SIG
AÐ LEGGJA
Frúin hefur í garði sínura
ýmsar jurtir, sem eru hunangs-
ríkar, en hér á landi eru taldar
nægar slíkar jurtir, t. d. í lyng:
móum, enda er ætlunin að
flytja búin út fyrir bæinn að
vori, og hefur verið rætt uitc
Heiðmörk í því sambandi, Bý-
flugur munu auka þroska gróð
urs, og ættu býflugurnar bví
að vera aufúsugestir út í sveit-
irnar.
■ ÁRVÍSS ATVINNUVEGUR?
Frú Urbancic hefur nú rækt
að. býflugur í 3 ár. Hefur húra
mjög lagt sig fram iil að korn--
ast að raun um, hvernig bezt
verði hagað býrækt hér á.
landi. Hún hefur ræktað bý-
flugur í þrjú ár, en telur, a'ð
eftir önnur þrjú ár verði hægt
að segja með nokkurri vissu
um árangurinn. Enga hættu:
telur hún á því, að menn tapr
því fé, sem þeir leggja í bý-
rækt, og mikla ánægju megi af
því hafa. Munu vera líkur fyr-
ir því, að býrækt verði árviss
atvinnuvegur hér.
lega til starfa. Verða í þeim í vetur um það bil 1845 unglingar,
þar af eru 1250 nemendur í 1. og 2. bekk gagnfræðaskólanna,
þ. e. á skólaskyldualdri. Hinir eru við undirbúning undir lands
próf og gagnfræðapróf.
170 VILJA UNDIRBÚA SIG
UNDIR LANDSPRÓF
Um 170 nemendur hafa sótt
um nám í landsprófsdeildum í
vetur. Munu þó einhverijr
þeirra falla úr skaftinu þar eð
innganga í landsprófsdeildir er
takmörkuð.
230 hafa sótt um nám í fram
haldsdeildum 3. og 4. bekkjar.
Og tæplega 200 nemendur hafa
sótt um nám í verknámsdeild-
um.
SKÓLAHVERFI I. OG
II. BEKKJAR
Skólahverfi gagnfræðaskól-
anna verða óbreytt að öðru
leyti en því, að sá bluti Njáls-
götu, sem áður heyrði til Gagn
fræðaskóla Austurbæjar, fellur
nú undir Gagnfræðaskólann
við Lindargötu. Á það þó að-
eins við um nemendur 1.
bekkjar.
Þeir nemendur, sem voru í
fyrstu bekkjum gagnfræðaskól
anna s.l. vetur, sæki sömu
skóla á vetri komanda, nema
þeir hafi flutzt milli hverfa.
Gagnfræðadeild Laugarnes-
skóla sækja allir r.emendur bú
Frh, á 7. síðu.
ÁHUGASAMIR' NEMENDUK
Stúlkurnar, sem eru að læra
býrækt hjá frúnni, eru Anna
Haraldsdóttir, 11 ára, Ragn-
heiður Óskarsdóttir, 10 ára, og
Ingunn Ragnarsdóttir, 9 ára..
Segir frúin, að þær séu áhuga-
samir nemendur, og hve mikið
yndi þær hafa af býræktinnx
sést á því, að þær ætla tvær að
koma upp búi sjálfar. Þær læra:
öll verk við býræktina, og þær
grindur undir bývöfflur, sera
þær búa til, fá þær að eiga
sjálfar, og dýrin, sem setjast,aS
í þeim.
ÞOLA VEL KULDA,
EN ILLA XÆÐINGA
Nú fara býflugurnar að búai
sig undir veturinn. Þola þæt*
Frh. á 7. síðu. J