Tíminn - 27.08.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 27.08.1964, Blaðsíða 2
McCarthy vill Humphrey sem varaforsetaefni! MIÐVIKUDAGUR, 26. ágúst. NTB London. — Mikil hita- bylgja gengur nú yfir stóran hluta Vestur- og MiS-Evrópu og í Lundúnum mældist hitinn í dag 31 stig í skugga. Sköpuð- ust mikil umferðarvandræði af völdum liilans, aðallega vegna ]>ess, að járnbrautarteinar þönd ust út í hitanum, svo ekki var hægt að aka eftir þeim. — f Vestur-Þýzkalandi var hitinn svipaður, og hefur komið fólki mjög á óvart. NTB-Munchen. — Tvö austur þýzk börn, 12 og 13 ára björg- uðu í dag föður sínum, sem í flóttatilraun hafði stigið á jarð sprengju og lá stórslasaður og ósjálfbjarga rétt fyrir framan nefið á austur-þýzkum vörðum. Börrún voru komin yfir landa- mærin og tókst að gera vestur- þýzkum vörðum aðvart, setn tókst að fá manninn til að skríða yfir á vestur-þýzkt land- svæði, þrátt fyrir hótanir aust- ur-þýzkra varða um að þeir myndu skjóta hann, ef hann hreyfði sig. NTB-Stokkhólmi. — Fjórir fórust, þar á meðal ung hjón «g sex mánaða gamalt barn þeirra, og einn maður slasaðist lffshættulega í miklum bflaá- rekstri skammt fyrir utan Mar- lestad á sunnudag. NTB-Washington. — Hæsti- réttur Bandaríkjanna tilkynnti í dag, að rétturinn muni taka til meðferðar hinn 5. október spurninguna um, hvort einstök atriði -í borgararéttindalögun- um, sem banna kynþáttamis- rétti á veitingastöðum og í verzlunum, brjóti í bága við stjórnarskrána. NTB-Róm. — ítalski komm- únistaflokkurinn valdi í dag Luigi Longo sem eftirmann Togliattis í formannsstöðu flokksins. Sagði Longo eftir kjörið, að hann myndi stjórna flokknum í anda hins látna leið toga, en fréttamenn segja, að Longo njóti ekki eins mikillar hylli innan flokksins og fyrir- rennari hans. NTB-Miami. — Hvirfilvindur inn Cleo, sem geisað hefur á Karabíska hafinu síðustu viku, nólgaðist Kúbu í dag, með sama hraða og áður. Samtímis vör- uðu bandarískar veðurstofur við því, að fellibylurinn gæti aukizt enn og þá valdið tjóni á Florida. NTB-Jóhannesarborg. Dóm- stóll einn í Jóhannesarborg neitaði í dag að Iáta lausar 2 hvítar konur, gegn tryggingu, en konur þessar hafa byrjað hungurverkfall til að mótmæla fangelsisvistinni. — Sömuleið- is neitaði dómstóllinn að sleppa lausum ungum blaðamanni, sem situr inni ásamt sjö öðrum, sem allir eru sakaðir um kom- múnistastarfsemi í Suður-Afr- íku. NTB-Atlantic City, 26. ágúst. Hubert Humphrey, sem flestir telja að hafi mesta möguleika á að verða varaforsetaefni demo- krata, fékk I dag óvæntan stuðn- ing frá aðalkeppinaut sínum, Eugene McCarthy, aðeins nokkr um klukkustundum áður en geng ið verður til kjörs á flokksþing- inu í Convention Hall. Sendi hann Johnson, forseta, símskeyti, þar sem hann segir, að Humphrey eigi að koma fyrstur til álita sem vara forsetaefni, þar sem hann uppfylli allar þær kröfur, sem forsetinn geri til varaforseta. í kvöld lauk undirbúningi und- ir atkvæðagreiðsluna, sem fer fram um forsetaefní flokksins kl. um 2 í nótt eftir íslenzkum tíma, en varaforsetaefnið mun verða val ið nokkrum klukkustundum seinna. Johnson, forseti, kemur ekki til flokksþingsins fyrr en á morgun, á 56. afmælisdaginn sinn og mun hann þá flytja lokaræð- una á þinginu. Búast má við, að deilumar um kynþáttastefnu flokksins kunni að varpa nokkrum skugga á atkvæða greiðslurnar. Allir fulltrúar Mississippi yf- irgáfu fundarsalinn í gær, en önn ur sendinefnd, eingöngu skipuð svertingjum gekk þegar í stað í fundarsalinn og tók sér hin auðu sæti. Ekki hafði þetta nein áhrif á samþykkt stefnuskrárinnar, sem tekið var með almennum fagnaðar látum. VERÐUR KHANH ENDURKJÖRINN? NTB-Saigon, 26. ágúst. Herráðið í S-Vietnam hélt í dag margra klukkustunda fund, án þess að samkomulag næðist um nýjan forseta í stað Nguyen Héraðsmót í Strandasýslu Héraðsmót Framsóknarmanna í Strandasýslu verður haldið að Sæ- vangi laugardaginn 29. ágúst og hefst það kl. 8.30 s.d. f Ræður og ávörp flytja Sigurvin Einarsson, alþm. og Snorri Þor- steinsson, yfirkennari. Erlingur Vigfússon, óperusöngv- ari syngur og Valur Gíslason, leikari, skemmtir. Hljómsveit Jóhannesar Péturssonar leikur fyr- ir dansi. Héraðsmót að Bií- röst í Borgarfirði Framsóknarmenn í Mýrasýslu halda héraðsmót að Bifröst í Borg- arfirði sunnudaginn 30. ágúst og hefst það kl. 9. 30 s.d. I Khanh hershöfðingja, sem sviptur var völdum I gær. Khanh sagði sjálfur eftir fundinn, að ástandið væri mjög alvarlegt, en herforingj arnir urðu að ræða vandamálin mjög gaumgæfilega, áður en lausn yrði lögð fram fyrir þjóð- ina. í millitíðinni hafa þau tíðindi orðið, að Búddatrúarmenn hafa lýst yfir stuðningi við Khanh, en eins og kunnugt er varð hann að segja af sér, vegna margra daga mótmælaaðgerða stúdenta og Búddatrúarmanna, sem þá héldu því jafnvel fram, að Khanh hefði hafið ofsókn gegn þeim. Þessi afstöðubreyting Búdda- trúarmanna, sem komið hefur á óvart, er nú talin geta valdið því, að Khanh verði endurkjörinn for- seti eða forsætisráðherra. Þá er og komið á daginn, að herráðið klofnaði í afstöðunni til krafna stúdentanna og Búddatrú Framh á bls ir 'Hljótt hefur verlð um atburð þann, sem myndin hér aS ofan er frá. Þegar flokksþing demókrata var sett í Gonvention Hall í New Jersey, hugSist flokkur einkennlsklæddra bandarískra nazista koma af staS uppþoti fyrir framan bygginguna. Lentu nazistarnir brátt í handaiögmáli viS hóp fólks, sem safnazt hafSi saman fyrir utan bygginguna til aS fylgjast meS fréttum af þinginu og varS aS kalla lögregluna á vettvang. Eftir töluverS slagsmál tókst henni aS stilla tll friSar og á myndinni sést hvar lögreglan hefur raSaS nazlstunum upp vlS vegg meS hendur á lofti og bökin í skamm- byssukjaftana. Greinilega má sjá nazistamerkiS á handleggsborSa þess, er næst er á myndinni. TILBÚNIÁBURÐURINN HÆTTULEGUR GRÓÐRI? Ræður og ávörp flytja alþingis mennirnir Helgi Bergs og Halldór E. Sigurðsson. Erlingur Vigfússon, óperusöngv ari, syngur og Jón Gunnlaugsson, gamanleikari skemmtir. Dúmbósextettinn og Steini leika ag syngja fyrir dansi. HF-Reykjavík, 26. ágúst. Fyrir rúmu ári kom út bók í Bandarikjunum, sem bar nafnið „Silent sprkig“. Fjallaði hún um hættur þær, er stöfuðu af notkun ýmissa gerviefna, sem notuð eru til að útrýma skorkvikindum og ýmsum jurtasjúkdómum. Eins og nafn bókarinnar bendir til, fjallar hún um það vor, þegar mann- lífið á jörðuinni er dáið út, vegna ofnotkunar ýmjssa gervi- efna. Bók þessi vakti marga til umhugsunar, og nú hefur Nátt- úrulækningafélag íslands feng- ið hingað til lands Svíann Hans Krekel-Christemsen, en hann er þessum málum mjög kunnur og mun fræða og leið- beina íslendingum á þessu sviði. Eftir að áðurnefnd bók kom út í Bandaríkjunum, veitti Kennedy heitinn forseti styrk til þess, að þær staðhæfragar, sem þar komu fram, yrðu rannsakaðar nánar. Kom þá í ljós, að sterkar líkur eru til þess, að stóraukin notkun til- búins áburðar orsaki sjúkdóma, bæði í jurtum og búpeningi. Síðustu áratugina hafa í flest- um löndum heims verið gerðai tilraunir með lífrænan áburð, það er úrgang frá heimilum görðum og ökrum, ennfremur illgresi, þang. hálm og fleira, sem safnað er í hauga og látið ummyndast fyrir tilstilli gerla og orma. Þessar aðferðir eru engin nýjung í veraldarsögunni, en þær hafa leitt í ljós, að með þessu tekst að útrýma jurta- sjúkdómum að mestu leyti og einnig sjúkdómum í búpeningi. Hans Krekel-Christensen er framarlega í flokki þeirra manna, sem berjast fyrir notk un lífræns áburðar á Norður- löndum. Segir hann, að það sé að vísu nokkuð dýrara að nota lífrænan áburð en ólífrænan, en kostirnir við notkun lífræns áburðar séu m.a.: Jarðvegur- inn verður auðugri og gróður- moldin þolir betur langvarandi þurrka. Menn spara kaup á varnarlyfjum og vinnu við að dreifa þeim. Rýrnun á upp- skeru, vcgna sjúkdóma, verður lítil eða engin, og uppskeran þolir betur geymslu. Aðalkost- urinn er svo sá, að bæði menn og skepnur fá hollara fæði. Hér á landi er nýfarið að bera þó nokkuð á beinaveiki í kúm og þekkja menn ekki eðli Framhald á síðu 15 2 T í M I N N, fimmtudaginn 27. ágúst 1964

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.