Tíminn - 27.08.1964, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.08.1964, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarmn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar- Tómas Karlsson Frétta stjóri: Jónas Krisijánsson Auglýsingastj. Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur l Eddu-húsinu simar 18300—18J05 Skrii stofur Bankastr 7 Afgr.sími 12323 Augl simi 19523 Aðraj skrifstofur. simi 18300 Áskriftargjald kr 90.00 a > mán innan lands — f lausasölu kr 5.00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.i Skattaafsláttur? Þær fregnir bárust frá ríkisstjórninni í fyrradag. að hún hefði fallizt á það í viðræðum við fulltrúa Alþýðu- sambandsins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, að þessir aðilar þrír skipuðu sameiginlega nefnd til þess að „athuga alla möguleika á því að veita aíslátt og frekari greiðslufrest á álögðum, opinberum gjöldum“. eins og segir 1 tilkynningu ríkisstjórnarinnar. Þetta eru góð tíðindi, að ríkisstjórnin skuli hafa látið undan síga fyrir sókn launafólksins, sem nú er að sligast undir skattabyrðunum og vonandi sér ríkisstjórnin enn betur að sér og fellst á raunhæfar lækkunaraðgerðir. Hitt ber að víta stjórnina harðlega fyrir, að hún sk.yldi ekki þegar fallast á tillögur Framsóknarflokksins um samstarfsnefnd til þess að leita að lausn vandans. Finnst mönnum sem ríkisstjórnin hefði átt að hugsa sig betur um áður en hún gaf hið hrokafulla svar við tillögu Framsóknarmanna. Tillaga Framsóknarflokksins kom fram þegar eftir álagninguna, og hefði þá þegar verið brugðizt við mái- inu á þennan hátt, hefðu meiri vonir verið til þess, að úrbótaráðstafanir kæmu að haldi. Hins vegar verða allar slíkar ráðstafanir erfiðari og gagnsminni eftir því sem l.engra líður á skattárið. Almenningur verður þó að vænta þess, að nú sé ríkisstjórnin búin að sjá svo að sér, að hún sé heil í málinu og vilji samþykkja einhverjar umbætur, þótt seint sé, en sé ekki aðeins að reyna að tefja tímann og draga málið á langinn, þangað til of seint sé að kippa nokkru í lag á þessu ári. Jarðfræðideild Það er löngu kunugt, að ísland er einstakt land að náttúrufari, og í fáum löndum heims eru betri skilyrði til jarðfræðirannsókna vegna nýlegrar myndunar lands- ins, eldgosa og merkilegra jarðlaga. Siðasta rannsóknar- efnið er Surtsey. Vegna sérstöðu landsins ætti að setja hér á stofn jarðfræðideild við háskólann og spara ekkert til að efla hana sem bezt. Vegna hinna einstæðu og nærtæku rann- sóknarefna mundi slík deild, sem vel væri að búið, fljót- lega verða eitt af höfuðsetrum jarðfræðirannsókna í heiminum. Þar mundu erlendir vísindamenn fá rann- sóknaraðstöðu ogíslenzkir jarðfræðingar hafa forvstu um rannsóknir sem ekki aðeins yrðu íslendingum í hag held- ur mikilvægt, alþjóðlegt vísindaframlag af Islands hálfu. Kartöfluræktin Mikil kartöflurækt er íslendingum nauðsyn. Uppskera er hins vegar oft tvísýn, og frostnætur í ágúst skerða hana oft stórlega til tjóns fyrir bændur og þjóðina alla. Mikil nauðsyn er á vísindarannsóknum og tilraunum til þess að komast hjá þessum .vanda að einhverju leyti. Á þeim vegi erum við allt of skammt komnir enn, og ekki gætir nægilegs skilnings þings og stiórnar á þessu mikil- væga máli. Hér á landi starfar t. d. ágætur vísindamaður, sem gerir að mestu á eigin spýtur merkilegar t.ilraunir með blöndun íslenzkra kartöfluafbrigða við frostþolnRr kartöflur frá Perú og hefur náð athvglisverðum árangri. En hann nýtur ekki eðlilegs stuðmngs hins opinbera vSkaði sá, sem nú á þessu sumri hefur enn einu sinni orðið á kartöfluuppskeru af einni eða tveimur frostnóttum. g.æti snúizt í gróða, ef hann vrði til þess, að mál þQssi vrðo tekin nýjum og fastari tökum. T i M I N N, fimmtudaginn 27. ágúst 1964 — “B SOKA GAKKA! nýtt trúar- og stjdrnmálaaf! í Japan Hin furðulega fjöldahreyfing, sem vinnur einn kosningasigurinn af öörum undir vígorðinu: „Hamingja fyrir alla“ „LÍFIÐ er skipuleg barátta fyrir aukinni hamingju“. Þetta er kjörorð Soka Gak- kaihreyfingarinnar, sem er að verða einhver mest áberandi trúarhreyfingin í Japan og jafn framt í þann veginn að verða þriðja úrslitaaflið í stjórnmál- unum, mitt á milli frjálslyndra demokrata, sem með völdin fara, og sósíalista, sem eru í stjórnarandstöðu. Soka Gakkai heitir áhang- endum sínum vernd gegn mænusótt og krabbameini, lof- ar þeim bættu starfi og hækk- uðu kaupi, góðum árangri í viðskiptum og ástum og loks pólitískum áhrifum. Það þarf því engan að undra, þó að hreyfingin nái nú orðið til 10— 15 milljóna manna. Meðal þeirra eru ótrúlega margir af bandarísku hermönunum, sem starfa í herstöðvunum í Japan. Og forustumenn hreyfingarinn ar halda því fram, að fjölgun- in í hreyfingunni sé um 100 þúsund á mánuði. EFTIR kjarnorkusprenging- una í Hiroshima risu upp mörg hundruð hreyfingar í Japan og glæddu nýjar vonir meðal þess arar örvilnuðu 95 milljón manna þjóðar. Ein hreyfingin boðaði eins konar rafmagnstrú og tignaði Thomas Edison sem hálfgerðan guð. Samkvæmt kenningu annarrar hreyfingar átti kynlífið að vera eina heilsulindin, bæði fyrir líkama og sál. Soka Gakkai er búddisk hreyfing og sagt er, að munk- ur að nafni Nichiren hafi stofn- að hana á þrettándu öld. Tönn úr honum er geymd í feikna stóru, steinsteyptu musteri við rætur fjallsins Fusijama og þar er hún tilbeðin sým helgur dómur. Þetta er þó aðeins eitt þeirra mustera, er Soka Gakkai- hreyfingin hefir látið byggja víðs vegar um Japan, en þau eru talin um hálft annað hundr að að tölu. ÁRSTILLÖG áhangendanna, hreyfingunni til framdráttar, svara til 370 milljóna íslenzkra króna. Hreyfingin gefur út blað, sem prentað er þrisvar í viku og eintakatalan er 2,6 milljónir. Stjórn hreyflngar- innar hefir aðsetur í nýjum skýjakljúf í Tokio. Soka Gakkai-hreyfingm er að því leyti sérstaks eðlis og annan veg farið en öðrum trú- arhreyfingum, að hún lýtur að ýmsu leyti hernaðarlegu skipu lagi. Útbreiðsluhættir hreyf- ingarinnar eru ákaflega að- gangsharðir og pólitísk áhrif hennaur aukast stöðugt. Hreyfingin er byggð á sellu- kerfinu. í hverri sellu eru 15 Soka Gakkai-fjölskyldur, í hverri fylkingu eru sex sellur, fimmtán fylkingar í hverri hverfisdeild og 30 hverfisdeild- ir í héraðssamtökunum. Efst er svo leiðtogi hreyfingarinnar og nefnist hann „fræðarinn“, blaðaútgefandi að nafni Dai- saki Ikeda, 35 ára að aldri. INNAN hreyfingarinnar eru starfandi æskulýðssamtök, sem ná til rúmlega milljón pilta og um 7750 þúsund stúlkna. Ungl- ingarnir klæðast ,mjög skraut- legum búningum og setja mik- inn svip á útisamkomur hreyf- ingarinnar og annast þar hljóð- færaleik og trumbuslátt. Fjölda samkomurnar eru oft haldnar á íþróttavöllum, enda eru íþróttaiðkanir eitt af því, sem hreyfingin leggur áherzlu á í æskulýðsstarfinu. Útbreiðslustarfsemi hreyfing arinnar er mjög öflug og áleit- in í starfsháttum. Oft kemur fyrir að „innrásarsveitir' hreyfingarinnar ráðast inn á einkaheimili og eyðileggja shinto-ölturu og buddhamyndir trúarhreyfinga, sem barizt er gegn. Hreyfingin berst ákaft gegn kristninni, sem telst „trúarbrögð snobbara, karl- manna í tweed-fötum, franskra kvikmynda og bandarísks whiskys". SOKA GAKKAI hefir reynzt sigursæl pólitík, og það veldur mestum áhyggjum meðal jap- anskra stjórnmálamanna, og meðal fylgjenda gömlu stjórn- málaflokkanna í Japan yfir- leitt. Árið 1950 hóf hreyfingin fyrst afskipti af stjórnmálum og bauð fram við sveitar- stjórnarkosningar. Kosningu hlutu 377 fulltrúar af þeim 363, sem boðnir voru fram alls. í þingkosningunum 1962 voru 15 fulltrúar Soka Gakkai-hreyf- ingarinnar kjörnir til efri deildar japanska þingsins. í sveitarstjórnarkosningun- um 1963 átti hreyfingin 1008 frambjóðendur og 1004 af þeim hlutu kosningu. Nú hefir hreyfingin tilkynnt að hún muni bjóða fram 30 manns við væntanlegar kosningar til full- trúadeildar þingsins. Heita má fullvíst fyrir fram, að þeir nái allir kosningu. ERFITT er að koma auga á, hvað það eiginlega er, sem hreyfingin berst fyrir í stjórn- málunum. Hún boðar frið, er andstæð kjarnorkuhervæðingu, sem efalaust táknar eins konar hlutleysi. Jafnframt boðar hún vinsamlega sambúð bæði við Bandaríkin og Kína kommún- istanna. Þá krefst hreyfingin í senn þingræðis og lýðræðis og sterkrar stjórnar. Hún krefst Framnala a síðu 13 Einn af fjöldafundum SOKA GAKKAI á olympíska leikvanginum I Tokio. 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.