Alþýðublaðið - 18.10.1953, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Sunnudagur 19. okíóber 1953
ÞAÐ voru merkilegar upp-
lýsingar, sem fram komu á
alþingi á miðvikudag í tilefni
af fyrirspum Gylfa Þ. Gíslason
ar um stóreignaskattinn. Gylfi
minnti á, að 1947 hefðu verið
sett lög um dýrtíðarráðstafan-
ir, enda steðjaði þá mikill
vandi að íslenzku atvinnulífi.
í þeim var vísitöluuppbót á
laun launþega takmörkuð við
300, eins og allir muna. Þar
voru ákveðnar uppbætur á út-
fluttan fisk, og lagður á sölu-
skattur til þess að afla fjár,
en nokkrar ráðstafanir gerðar
til Iækkunar vísitölu. Almenn-
ingur varð því að taka á sig
þungar byrðar, bæði í fornji
lækkaðrar vísitöluuppbótar og
söluskattsins. Löggjafanum
fannst því sjálfsagt, a'ð hinir
1 ríku Iétu Iíka nokkuð af hendi
rakna. Þess vegna vom ákvæði
í lögunum um eignaaukaskatt.
Atti hann að leggjast á eigna-
aulca síðan 1940. Þeir, sem
hlotið höfðu stríðsgróða, skyldu
því taka á sín íbreiðu bök tals-
verðan hluta af þeim byrðum,
sem þjóðin varð að bera vegna
erfiðs árfei’ðis að stríði loknu.
Þessi stríðsgróði hafði verið
mikill. Hlutur stríðsgróða-
mannanna lilaut því að verða
stór.!
Vísitöluuppbótin var lækkuð
samkvæmt lögunum. Söluskatt
urinn var innheimtur. Nokkr-
ar ráðstafanir vora gerðar til
verðlækkunar, og fiskuppbæt-
ur voru greiddar. Almenning-
ur var látinn bera þann hluta,
sem honum var ætlaður. En
stórgróðamennirnir? Var eigna
aukaskatturinn ekki innheimt
ur með oddi og egg? Ónei! Eitt
ári'ð leið af öðru, og aldrei var
eignaaukaskatturinn innheimt-
ur. Stríðsgróðamennirnir voru
ekki látnir greiða sinn hlut.
Svo kom gengislækkunin
1950. Þá var enn stórkostleg-
am byrðum velt yfir á herðar
almennings. Enn var talið rétt
að hafa í Iagasetningunni á-
kvæði um. að stóreignamenn-
irnir skyldu gfreiða stórar
fúlgur. Stórdignaskattur var
lögtekinn og ákveðið að eigna
aukaskatturinn, sem aldrei var
innheimtur, skyldi renna sam
an við hann. Og nú skvldi stór
eignamönnunum fá að blæða!
Þeir höí'ðu fengið að vera £.
friði síðan 1940 með allan sinnj
stríðsgróða. Nú væri komið að
skuldadögunum! Svo var sagt,
meðan verið var að sannfæra
aflmenning úm nauðsyn þess,
að hann tæki á sig byrðarnar
af fféngislækkuninni.
Þetta var árið 1950. Og nú
er komið haust á árinu. 1953.
Þá er snurt um það á albingi.
hva'ð stóreignamönnunum hafi
verið gert að ereiða mikið af
gróða sínmn síðan 1940, hversu
mikið hafí verið la^t á hin
breiðu bökin í samanburði við
Ö1I milliónahundniðin, sem bxí-
?ð pr a'ð leggja á almenning í
Iandinu.
TJnn stmdur þá á alþingi
l'?á ‘-málará’ðhcrra þjóðarinnar,
maður, sem er kunnur að dugn
aðí við skattheimtu og víðfræg
ur fyrir mikla umhyggju fyrir
hag ríkissjóðs, og skýrir frá
því, að stóreignaskattur sá,
sem lagður hafi verið á sam-
kvæmt gengislækkunarlögum
Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokksins, muni nema 49 millj-
ónum króna, en stóreignamenn
irnir séu þó ekki búnir að
borga nema 42 milljónir, þeir
skuldi 7 milljónir!!
Þetta var þá það, sem breiðu
bökunum er ætlað að bera.
Þetta er það, sem stórgró’ðta-
og stríðsgróðamönnunum. er
ætlað að skila aftur af því, sem
þcir hafa grætt síðan 1940. Það
er liðlega helmingur þess, sem
almenningi er ætlað að greiða
í söluskatt á næsta ári.
Til þess að sýna, livílíkur
smápeningur þetta væri fyrir
stóreignamennina, minnti Gylfi
Þ. Gíslason á það í umræðun-
um, að á síðasta ári hefðu eign
ir 20 ríkustu eiustaklinga og
20 ríkustu félaga í Reykjavík
numið 556 milljónum króna.
Það, sem öllum stóreignamönn
um í landinu er því gert að
greiða, á móti öllum þeim
byrðum, sem Iagðar hafa verið
á almenning á undanförnum
árum, er innan við 10% af því,
sem 40 einstaklingar og fé'Iög
í Reykjavík eiga! Þannig eru
hugmyndir ríkisstjórnarinnar
um það, hvernig eigi að dreifa
byrðunum á rílca og fátæka.
Það er svo kapítuli út af
fyrir sig, að gengislækkunar-
Iögin voru svo vitlaus, að inn-
heimta stóreignaskattsins hef-
ur teki'ð á sig kostulegustu
myndir. Það hefur nefnilega
komið í ljós, að sumum gjald-
endum hefur tekizt að græða á
því, að lagður var á þá stór-
eignaskattur. Einn þeirra láns-
sömu manna hefur reynzt
Björn Ólafsson, fyrrverandi
viðskiptamálaráðherra. Hann
var svo heppinn, að á hann var
lagður 126.000 kr. stóreigna'-j
skattur vegna verksmiðju þeirr(
ar, sem framleiðir Kóka-kóla.
Upp úr þessu hafði hann það,j
að Iiann losna'ði við skúr, sem
átt; að rífa. Hann borgaði
skr ttinn með skúrnum, o" k«m
þannig skvIcT'>nní t.íl að rífa
skúrinn yfir á ríkið. Ríkissjóð-.
ur varð að greiða 22.000 kr.
fvrir að rífa skúrinn, en hafði,
áður haft af honum 17.000 kr.
Ieigutekjur. Ríkissjóður fékk
hví en«an stóreignaskn.tt hjá(
Birni Ólafssyni eða Kóka-kóla,
verksmiðjunni. Ríkið varð
hvert á móti að borga 5000 kr.
fyrir há ósvinnu að hafa ætlað
sér að Ip.srsrja stóreignaskatt á
Björn. Ólafsson og Kóka-kóla-
fyrirtækið!
Það. sem Biörn Ólafsson og
Kóka-kóla-verksmiðjan skiliiði
af gróða sínum síðan 1940, var
m. ö. o. 5000 kr. reikningur á
ríkissjóð fvrir að rífa skúr,
sem var orðinn fyrir hæjaryf-
irvöldunum!
Það virðist vera allt annað
en árennilegt að ætla sér að
skattleggja stóreignamenn á
íslandi.
Ráðuneyti Hans Hedtofts, sem tók við völdum í Danmörku um síðustu mánaðamot.
Utan úr heimi: j
Jafnaðarmannastjórnin i
ALÞÝÐUFLOKKURINN er
aftur við völd. í Danmörlku.
Kosningarnar 22. september
höfðu ekki miklar breytingar í
för með sér, en þó nóg til þess,
að aðstaðan varð Alþýðuflokkn
um í hag. Hann á nú 74 full-
trúa ií danska þinginu, en það
er tveimur fleira en flokkarnir,
sem stóðu að fráfarandi stjórn
Eriks Eriksens. Vinstri flokkur
inn á 42 fulltrúa í þinginu, en
íhaldsfilokkurinn 30. Er því á-
stæða til að ætla, að minni-
hlutastjórn Hedtofts reynist
Efseig eins og umhorfs er í
dönskum stjórnmálum í dag.
ÓÐFÚSIR AÐ SITJA
íhaldsflokkarnir tveir voru
óðfúsir að sitja áfrom við völd,
og gerði Erik Eriksen hverja
tilraunina af annarri með það
fyrir augum. Hann neitaði að
segja af ,sér þangað ti! á síð-
ustu stundu, og var þóf hans
orðið ærið spaugilegt. þar eð
augljóst var, að úrslit kosning-
anna hlutu að hafa í för með
sér, að jafnaðarmenn hefðu for
ustu um myndun nýrrar rikis-
stjórnar, annaðhvort upp á
sitt eindæmi eða í samvinnu
við róttæka flokkmn. Kjósend
urnir höfðu talað. En íhalds-
flokkarnir héldu lengi vel, að
þeir gætu lafað áfram við völd,
þilátt fyrir þau dómsorð. Þófi
þessu lauk um mánaðamótin.
Þ'á fól Friðrik Danakonungur
Ilar.c Hsdtóft.. formanm Alþvðn
íl&Aiksins, stjórnarmyndun eít-
ir að Erik Eriksen. hafði loks-
ins gefizt upp ásami kumpán-
um sínum.
RÓTTÆKIR NEITUÐU
Hans Hedtoft reyndi í fyrstu
að mynda stjórn Alþýðufiokks
ins og róttæka flokksins, en
forustumenn hins síðarnefnda
hafnuðu samvinnunlboði jafn-
aðarmanna, svo að Hedtoft
myndaði flokksstjórn, þó að
hún styðjist við minnihluta í
danska þinginu. Miíkil blaða-
skriif hafa orðið um afstöðu rót
tæka flokksins. Neitun hans
við samvinnutilboði jaifnaðar-
manna kom mörgum á óvart,
enda vitað, að deilur urðu um
hana meðal forustumannanna.
Virðist það helzt hafa ráðið úr-
slitum, að róttæki flokkurinn
beið tilfinnanlegan ósígur í
kosningunum. Hins vegar ligg-
ur í augum uppi ,að hann stend
ur nær Alþýðuflokknum en
íhaldsflokkunum, sem studdu
fráfarandi ríkisstjórn. Hann
léði þó aðeins máls á samvinnu
um ríkisstjórn, sem Alþýðu-
flokkurinn og vinstri flokkur-
inn stæðu að ásarnt róttæka
flökknuiti, en slíkt kom ekki
HANS HEDTOFT, for
maður danska Alþýðuflokks ?
ins, myndaði minnihluta- •
stjórn um síðustu mánaða- ^
mót eftir að samstjórn^
vinstri flokksins og íhalds-^
flokksins baðst Iausnar\
vegna þeirrar breytingar, erS
varð í dönskum stjórnmál-S
um vi'ð kosningarnar 22. S
september, en hún reyndistS
Alþýðuflokknum í vil. í S
grein þessari er rakinn að-^
dragandi stjórnarmyndunar >
Hedtofts og gerð grein fyrir^
ráðuneyti hans. ^
* til greina, hvorki af hálíu Al-
þýðuflokksins né vinstri flokks
ins. Sannleikurinn er liíka sá,
að vinstri flokkurinn dans;ki er
' orðinn hryggilega íhaldssam-
ur, enda fulltrúi af rurhaldssam
| asta hluta bændástéttarinnar.
j Sambúð hans og Alþýðuflokks
Íins heifur því ekki verið með
neinum vináttublæ, en tengsli
vinstri flokksins við íhaldið ná
in og bróðurleg, svo að erfitt
er að greina þar á miili.
SAMVINNA I FRAMTÍÐINNI?
Foringjar Alþýðuflokksins
lögðu mikla áherzlu á nauðsyn
þess, að róttæki flokkurinn
(fengist til samstarfs á liíkum
grundvelli og átti sér stað á
, tímum Staunings og Munchs.
, Þeir eiga saman 83 fulltrúa í
' danska þinginu, og samvinna
þeirra myndi tryggja skipu-
lagða framkvæmd á mólefna-
j samningi, sem samikomulag
' næðist um. Bendir margt til
. þess, að sú stefna sigri í Dan-
miörku á næstu árum, þegar rót
tæki flokkurinn hefur nóð sér
| eftir kosningaósigurinn í ór og
gert sér ljóst, að hann verður
að Ieggja lóð sitt á vogarskál-
ina til þess að geta ráðið ein-
hverjum úrslitum.
RÁÐHERRARNIR FJÓRTÁN
Minnihlutastjórn Hedtofts er
skipuð fjórtán ráðherrum, en
það er einum fleiri en stjórn
Eriksens. Róðherrarnir eru
þessir:
Hans Hedtoft fcrsætisráð-
herra, H. C. Hansen utanríkis-
málaráðherra, Vjggo Kamp-
niann fjármálaráðherra. Hans
Hækkerup dómsmálaráðherra,
Jens Smörum landbúnaðarráð-
herra, Chr. Christiansen sjáv-
arútvegsmiálaráðherra, Johs.
Kjærböl innanríkis- og hús-
næðismálaráðherra, Jens Otto
Krag ráðherra án sérstakrar
stjórnardeildar, en hefur á
hendi yfirstjórn utanrikisverzl
unarinnar og samræmingu efna
hagsmálanna, Johan Ström
vinnu-i og félagsmálaráðherra,
Cnrl Petersien samgöngumála-
ráðherra, Bodil Koch kirkju-
[ málaráðherra, Julii.is Bomholt
i menntamálaráðherra, Rasmus
Hansen landvarnamálaráðherra
og Lis Groes viðskiptamiálaráð
herra.
i
EINS OG VIÐ VAR BÚIZT
Engum, sem fylgzt hefur
með diönskum sr.jórnmálum
undanífarið, kemur á óvart val
ráðherranna í meginatriðum.
H. C. Hansen hefur verið fjár-
! mála- og viðskiptamálarað-
herra í undanförnum jafnaðar-
j mannastjórnum í Danmörku,
en vitað mál, að hann hef.ur
síðustu árin búið sig undir að
verða utanríkismálaráðherra,
enda sætir skipun hans í það
ráðuneyti engri gagnrýni.
Viggo Kampmann varð fjár-
málaráðherra í síðustu stjórn
Hedtofts eftir að H. C. Hansen
varð viðskiptamálaráðiherra, og
hefur Kampmann síðan manna
mest mótað steifnu Albýðu-
flokksins í fjármálum. Smör-
um h.efur verið m.álsvari flokks
ins í landhúnaðarmálum. og
Ohristiansen, Kjærbö], Ström,
Carí Peters.en. Bodil Koch,
Bomholt og Rasmus Hansen
skioa öll ráðunevti. sem þau
hafa áður veitt fo>-stöðu.
JULIUS BOMIIOLT
OG HANDRlTAMAI.il)
Afstáða Hedtofts í handrita
málinu leiðir til þess, að íslend
ingar munu tfagna stjórnarfor-
Framhald á 6. siðu.
Fórn hinna ríku
Útgefandi: Alþýðuflokkurisn. Ritstjóri og áþyrgðarmaður:
Hannibal Valdimarsson Meðritstjóri: Helgi Sæmundsson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Loftur Guð-
mundsson og Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri:
Emma Möller. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Aug.ýsinga-
sími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðjan,
Hvg. 8—10. Áskriftarverð 15,00 á mán. í lausasölu: 1,00.