Alþýðublaðið - 24.10.1953, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.10.1953, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Laugardagur 24. október 1953. Útgefandi: Alþýðuflokkurin'n. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Haimibal Valdimarsson Meðritstjóri: Helgi Sæniundsson. Fréttasíióri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenu: Loft.ur Guð- mundsson og Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. Auglýsinga- sími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðjan, Hvg. 8—10. Áskriftarverð 15,00 á mán. í lausasölu: 1,00. Samtal við Guðmund Gíslason Hagalín: Sömu Iðun kvenna og karla FYRIR nokkrum dögum fluttu Alþýðuflokksmenn í neðri deild alþingis frumvarp til laga um sömu laun kvenna og karla. I vær var írumvarpið íil fyrstu umræðu, og var því vísað til nefndar. í fyrstu grein frumvarpsins er ákvæði um, að vi'ð öll störf, embætti og sýslanir bjá ríki og sveitafélögum skuli koniun greidd sömu laun <>g körlum. Það eru ekki nema fáir ára- tugir síðan konur fengu rétt að lögum til embætta hjá ís- Ienzka ríkinu. Konur áttu sem sé engan rétt til embætta fram til ársins 1911. En síðan þær öðluðust þennan rétt hefur sú venja skapazt góðu heilli, að embættislaun værn hin sömu, hvort sem embæftismaðurinn væri karl eða kona. Ef til vill hefur gleymzt að setja lagaá- kvæði um lægri embættislaun kvenna, þegar fyrstu konurnar urðu embættismenn. Nú mundi enginn láta sér detta þa'ð í hug, að ríkið gæti sparað sér útgjöld með bví að ætla kvenembættis- mönnum lægri embættislaun en körlum. Hver sá, sem fram kæmi með tillögu um i slíkt, yrði naumast talinn nieð öllum mjalla. En sama er ekki hægt að segja um margvísleg störf og sýslanir hjá ríki og sveitafélög um. Þar cr bað meginreglan, að konur búi við miklu lægri laun en starfsbræður þeirra. Þetta er auðvitað algert rang- læti. í þessu er æpandi ósam- ræmi, sem skylt er að Iaga lii'ð bráðasta. I annari grein frumvarpsins er tekið fram, að við færslu milli launaflokka skuli sömu reglur gilda fyrir konur sem karla. Ymsir gætu ætlað, að þetta! væri óþarft ákvæði. Og það skal játað, að það ÆTTI að vera óþarft. En því miður er það ekki svo. Það er einmitt mjög þý'ðingarmikið ákvæði, því að þrátt fyrir ótvíræðan anda gildandi launalaga í þá átt að draga úr launamismunj kvenna og karla, hefur launa-' mismuninum einmitt hvað, helzt verið haldið við með því að færa konur ekki milli launa flokka eftir sömu reglum og starfsbræður þeirra. Á þetta handahóf og ranglæti verður þannig að binda endi með ótví- ræðum lagaákvæðum. I þri'ðju grein frumvarpsins er lagt til, að við öll skrifstofu- störf og afgreiðslustörf í verzl- unum skuli konum greitt sama kaup og körlum. Þá eru að lokmn í f jórðu greininni ákvæði um fullkom-j inn launajöfnuð kvenna og karla í iðju og iðnaði, í hrað- frystihúsum og öll daglauna- störf, sem falla undir launa- samninga stéttafélaga. Er gert ráð fyrir, að öll sérákvæði í kaupgjaldssamningum stéttar- félaga um lægri laun kvenna skuli falla úr gildi við gildis- töku frumvarpsins. Ekki er því að neita, a'ð mikil breyting yrði á þjóðfélaginu, ef ákvæði þessa frumvarps fengj- ust lögfest. Og fari svo, að and- mælum verði hreyft gegn þessu frumvarpi, mun það óef- að verða á þeini grundvelli, að þjóðfélagið hafi ekki efni á svo stórfelldum og almennum launahækkunum, sem hér yrði um að ræða. Sama röksemd var jafnan á takteinum hjá atvinnurekend- um fyrir nokkrum árum, þegar launakjörum var þannig hagað vi'ð daglaunastörfiu, að hæsta kaupið var í Reykjavík, nokkru lægra í stærstu kaup- stöðunum út um lánd og miklu lægra í kauptúnum og sveit- um. Atvinnureksturinn mundi ekki þola það, ef kaupið yrði alls staðar jafnt, hann mundi fara í rúst á smærri stöðunum, ef kaupið yrði hækkað. En nú er þessi launamismunur að mestu leyti horfinn. Og það undarlega hefur gerzt, að nú telja allir sjálfsagt, að kaupið sé hi'ð sama í smáþorpi úti á landi og í stærri kaupstöðun- um. Og þá fyrst fór atvinnulíf cmáþorpanna að ná sér úr kútn um, er þessi kaupgjaldsbreyt ing hafði átt sér stað. Er nú augljóst mál, að af þessari kaupgjaldsbreytingu hefur leitt mikla blessun. * Jafn fráleitur og launamis- munurinn milli staða var áður, er launamismunur kvenna og karla nú, ef ekki enn fráleitari. Enda er það víst, að Iagfæring á því ranglæti muu í framtíð- inni verða talin jafn sjálfsögð og í hinu fyrra tilfclli. I þessu sambandi er ástæða til að minna á, að í sambandi vi'ð setningu gengislækkunar- laganna féllst alþingi á að ó- tækt væri að skella afleiðing- um gengisfallsins á verkafólk með jafn Iiróplega mismunandi kaupi og þá gilti á ýmsum stöð um á landinu. Fékk Alþýðu- flokkurinn b'á á seinustu stundu samþykkta breytingar-; tillögu, sem ákvað hækkun á_ grunnkaupi allt frá 6 krónum og 40 aurum á klst. upp í 9 krónur. Kostaði það að vísu nokkurt hik og þinghlé, cn/ þetia gerði alþingi samt og hef ur aldrei he; vzt. að þar haii víxlspor verið stigið. , Það er eklci langt sí’ðan kon- ur höfðu ekki rétt til náms í æðri skólum ríkisins, ekki rétt til þess að ganga undir próf,' er réttindi veittu, höfðu ekkt, rétt til embætta hjá íslenzka ríkinu og höfðu heldur ekki kosningarétt né kjörgengi. Af öllu þessu réttleysi og mis rétti hefur verið gengið dauðu með lagasetningu. Og allir við- urkenna, að allar þessar réttar- bætur hafi í rauninni verið sjálfsagðar. Eins verður þa'ð með launamisrétti kvenna. Þeg ar það hefur fengizt afnumið, munu allir telja það sjálfsagð- an hlut. Og reynir nú á, hvort alþingi skilur þá skyldu sína að koma til liðs við réttan mál stað, og" eyða miklu misrétti með lagasetningu, sem aðeins getur orði'ð Islandi til sóma. NÚ í HAUST kcir.ur út hjá Bókfellsútgáfunni þriðja bind- ið af sjálfsævisögu Guðmund- ar Gíslasonar Hagaiíns. en hún verour bersýnilega öndvegis- rit sinnar tegundar í nútíma- bókmenntum okkar íslendinga. Ritdómarar hafa svo til Iokið upp einum munni um gildi tveggja fyrstu bindanna og al- menningur tekið þeim tveim höndum. Munu því margir bíöa framhaldsins með ó- þreyju. Alþýðublaðið hefur átt stutt samtal við Hagalín um meginefni þriðja bindisins, og fer það hér á eftir: — Hvað heitir bókin? „Ilmur liðinna daga“. — Er hún svipuð á stærð og hinar, sem út eru komnar? „Já, svipuð og Ég veit ekki betur“. — Hvar gerist hún? „Vestur í fjörðum, en sein- asti kaflinn heitir Reykjavík fyrir stafni. í lengsta kaflan- um segir frá vist minni á segl skipinu Dýra, og er þar meðal annars lýst þeim mesta háska, sem mér bar að höndum á sjó. Snernma í aprílmánuði lentum við í iþví, að stórseglið bilaði og rak skipið síðan fyrir sjó og veðri í kolsvarta myrkri, blind byl, hörkustormi og reginfrosti. Við 'hírðumst í ísköldum háseta klefa, og annað veifið gekk sjórinn niður um klefagatið. Skipið hékk ofansjávar, og við björguðum'st í höfn, en einn af skipverjum fékk lungna- bólgu, sem dró hann til dauða. Eg frétti það seinna, að skip- stiórinn hefði gert ráð fyrir, að við mundum farast, enda munum við allir hafa búizt við bví, að skipið færi niður þá og begar“. — Varstu hræddui ? „Nei, en ég var mjög for- vitinn — um það, sem var að gerast, og hvað við kynni að taka“. — Geturðu ekki sagt mér eitthvað meira? „Víst gæti ég það, en þú lest nú bókina. Ég segi þarna frá nárhi mínu og skáldskaparór- um, fyrstu ástum og þeim ó- mildu tökum, sem veruleikinn tók á fiðrildisvængjum barns- legra hughrifa, rómantískra drauma og hrífandi gyllinga . . . Þarna er líka drepið á viðihorfin við ýmsu því, sem gcrul.-t ocf við alla kom. Ég lýsi heimainingslegri afstöðu til heimsstyrjaldarinnar fyrri, gef hugmynd um þann fögnuð, sem það vakti í brjóstum manna að sjá gamla Gullfoss, sem sigldi 'á hverja höfn Wað- inn nauðsynjum, en fyrst og fremst þó þjóðarmetnaði og Iangþráðri fyllingu fagurra vona og drauma. Enn fremur vík ég að þeirri diúpu og ein- Iægu hrifni, sem bað vakti í brjóstum okkar, íslenzkra sjó- manna, þegar íslenzki fáninn var í fvrsta sinn dreginn að hún á fleytunum okkar. Með öðrum orðum: És lýsi ekki að- eins mínu eigin lífi og mínum eigin viðhrögðnm við því, sem gerist, heldur líka þeirra, sem ég vinn með og kvnnist". — Persónur í bókinni? ..Þær eru marsar. og fæstar þeirra hafa komið til sögunnar Guðmundur Gíslason Hagalín. áður. Þarna er sagt frá hin- um sérstæða og merkilega kennara og persónuleika, Ól- afi Ólafssyni, sem lengi hefur verið skólastjóri á Þingeyri, hinum duglega og merka fræð ara og klerki, séra Böðvari á Hrafnseyri, stúlkum, sem hrifu mig, skipstjórum og sjó- mönnum, sem ég var samtíða, riámsfélögum mínum og sér- kennilegum mönnum, sem ég hitti, svo sem Ástar-Brandi, sem stundaði sjó vestra á þsss um árum, og hinum nú þjóð- fræga ritsnillingi, Þórbergi Þórðarsyni". —- Koma ekki þarna fram menn, sem þú 'hefur áður lýst i skáldsögum þínum? „Jú. margir, einkum þeir, sem frá er sagt í Við Maríu- menn“. — Hyggur þú, að bókin sé . eins skemmtileg og hinaí fyrri? „Auðvitáð. Svojia bók á að vera eins og líf lieilbrigðs og fjörmikiis æskumanns, sem vill gerai sér eins mikið úr hverju einu og unnt er, marg- breytileg, þrungin órum og ástarþrá, áhuga á að kynnast sem flestu og lifa ei'tthvað stór brotið —- og ofin öðrum þræði glettni og gamansemi. Ef hún væri ekki þannig, þá væri húh lygi, tilbúningur fullorðinS manns um æsku sína. Og að minni hyggju fer ævisaga aldrei nærri því raunverulega, ef höfundurinn ’heldur sér aðé eins við höfuðdrætti hinna stærstu atvika og atburða — enginn veruleikablær yfir sög unni, ef sögumaðurinn greinir ekki tilsvör, naismunandi að orðalagi og innihaldi eftir þeirri manngerð, sem þau eru lögð í munn. Smáatriðin, sem kölluð eru, og tilsvör, sem bregða upp mynd þeirra, sem tala, gefa ævisögu eins og skáldsögu lit og ilm lífsins, og j það miklu fremur en allar spek [ ingslegar vangaveliur". I Svo er Hagalín farinn og þykist ekki mega vera að því að svara þeirri spurningu, hvor.t von sé á íieiri bókum eftir hann í haust. Hann segir, að um það sé kannski hægt að spjalla síðar. Svarið bendir til þess, að hann' hafi í ár tekið hendinni til fleira en skrifa þetta þriðja bindi sjálfsævi- sögu sinnar. H. S. Árbók ferðafélagsins 1953: Héraðið i fangið ÞORSTEINI SÝSLUMANNI tekst að skrifa héraðalýsingar þannig, að þær verða ekki að- eins landfræðilega saga, held- ur og saga atvinnuvega og þjóð lífs. Hann skrifaði um Dala- sýslu í árbók Ferðafélags ís- lands 1947, og minntist ég þá á þá bók og þótti flest vel um hana. Nú hefur hann skrifað um Mýrasýslu, ættarhérað sitt og æskustöðvar, og ekki hefur honum tekizt það miður. Hef- ur rúm hans þó nú verið tak- markað, þar eð stjórn ferðafé- lagsins bað hann í upphafi að koma efninu fyrir á átta örk- um, en sú takmörkun stafar af því, hve allur útgáfukostnaður hefur aukizt mjög hin síðari ár. Bókin um Mýrasýslu er að mínu áliti afburða vel gerð. Það er verra fyrir höfund að gefa lýsingu á ættarhéraði sínu í takmörkuðu rúmi heldur en skrifa um eitthvert annað hér- að, og veldur þar um, að fleira fyllir hugann, en, þó að ég sé ekki vel kunnugur á Mýr um, þá finnst mér, við lestur bókarkmar, að ég fái héraðið í fangið, sjái það og skilji það svo vel, að varla takist betur. Þetta hlýtur að stafa af því, hve vel höfundi hafi tekizt að velja og hafna. Bókinni er skipt í tólf aðal- kafla og hverjum aðalkafla skipt í fjöldamarga undirkafla. Hér er enginn kostur að rekja efni bókarinnar, svo víðfeðmt er það, en með fyrirsögnum að alkaflanna er hægt að gefa hug mynd um gerð bókarinnar og efni. Fyrsti kafli fjallar um hér að og heiðalönd, annar um sam göngur og aðdrætti, þriðji um hlunnindi, og er þar, til dæm- is, gerð glögg grein fyrir lax- veiðiám og laxveiði, fjórði iim Hvítársíðu, fimmti um Þverár hlíð, sjötti um Norðurárdal, sjö undi um Stafholtstungur, átt- undi um Borgarhrepp, níundi um Borgarnes, tíundi um_Álfta neshrepp, ellefti um líraun- hrepp ,gg tólfji um hella í Hall- mundarhrauni, en auk þessa að alefnis eru formáli stjórnar- manna ferðafélagsins og eftir- máli höfundar, en að auki ýmis gögn og skýrslur félagsins. Mýrasýsla er söguríkt hérað, en höfundur hefur lagt megin áherzlu á það að lýsa héraðinu, 'atvinnuvegum þess og lifnaðar háttum íbúanna, en láta held- ur, vegna takmarkana rúmsins, sagnfræðina sitja á hakanum. Ferðafélagsbækur Þorsteins Þorsteinssonar eru mikill feng ur, enda er auðfundið hve vandvirkur hann er og hve rík sú alúð, sem hann leggur í starfið. Lýsing Mýrasýslu er. enn drjúg viðbót við þann ómet anlega sjóð, sem íslenzka þjóð in hefur eignazt með árbókum, ferðafélagsins. VSV _

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.