Alþýðublaðið - 05.11.1953, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐfÐ
Fimmtudagur 5. nóv. 1953
Útgeíancli: Alþýðuflokkurirm. Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hannibal Valdimarssoa Meðritstjóri: Helgi Sæmundsson.
Fréttasíjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamemn: Loítur Guð.
mundsson og Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri;
Emma Möiler. Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. Auglýsinga-
sími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðjan,
Hvg. 8—10. Áskriftarverð 15,00 á mán. í lausasölu: 1,00.
Samtal við Sigurjón Jónssoti:
Sýndu í verki vilja þinn
JAFNVÆGI í byggð lands-1
ins. Um þetta efni fluítu nokkr
■ir íhaldsþingmenn tillögu til
þingsályktunar á kosninga- j
þinginu í fyrra. TiIJagan var
j samþykkt. Ekki vantaði það.
Stjórnin átti samkvæmt tillög- ■
unni áð láta rannsaka, hvað
gera þyrfti til að varðveita.
jafnvægi í byggð landsins. En
þéssi rannsókn hefur ekki farið
frám ennþá. Það hefur gleymzt
að' framkvæma hanal í
En þrátt fyrir það hafa ýmsir
myndað sér skoðun um, hvað
gera þurfi til að viðhalda og
koma aftur á aukmi jafnvægi í
byggð landsins. Þessir menn
telja, að fyrst og fremst þurfi
að stjórna bankamálum og öðr .
um f jármálum þjó’ðarinnar i
svo, að atvinnuvegirnir eigi *
jafn auðveldan aðgang að nauð
synlegu fjármagni, hvar sem
atvinnntækin eru staðsett. Ef
þessa er ekki gætt og öll þau
fyrirtæki, sem mesía þýðingu
hafa, eru staðsett innan þess
þrönga hrings, sem greiðastan j
aðgang á að fjármagninu, þá
sjá menn í hendi sér að slíkt
hlýtur að raska jafnvæginu í(
hyggð landsins. Ef heilir lands
hlutar eru settir hjá um svo
eftirsótt gæði sem næga og ó-
dýra raforku, þá stuðlar slíkt
ekki áð varðveizJu jafnvægis í
byggð Iandsins. Ef ungu fólki
er tryggður mismunandi greið
ur aðgangur að æðri menntun
eftir því hvar það er húsptt, þá
hlýtur hað á sama hátt að raska
jafnvæsri í bvgírð landsins. Og
enn má nefna það, að geróJík
hiónusta bjóðfélaesins í heil- j
hrigðismálum, eftir því, hyar
menn eru búsettir á landinu,
stuðlar ekki að því áð jafnvægi
baldist í byggð landsins/
AHt þetta sjá menn og viður-
kenna án þess nokkur rann-
sókn hafi farið fram.
En livað er þá gert til að
skapa aukið jafnvægi? Ekkert,
hókstaflega ekkert.
Saganu
heimildðr he
Ir
na.r-og til
ont
ngur
Náléga allt fjármagn þjóðar
innar héfur sína hringrás í
Reykjavík og næsta nágrenni
hennar. Og sífelit er haldið á-
fram að staðsetja þar öll þýð-
ingarmestu atvinnutækin. Aust
firðir og Vestfirðir eru látnir
vera áfram raforknlausir.
Sömu landshlutum er neitað
um litla menntaskóla, þegar á-
formu'ð er 30 mílljón króna
menntaskólabygging í Reykja-
vík, auk gamla menntaskólans
og Verzlunarskólans. sem einn
ig útskrifar stúdenta, og auk
fjórða menntaskólans, sem nú
er tekinn til starfa í nágrenni
Reykjavíkur. Þetta er nú jafn
vægisgrundvöllurinn á þessu
sviði.
Og svo er það jafnréttisað-
staðan í heilbrigðismálunum.
Landsspítalinn er rekinn á rík
isins kostnað og er þó að mestu
bæjarsjúkrahús fyrir Reykja-
vík. Þetta kostar gjaldþegnana
milljónir. A sama tíma verða
ýms bæjarfélög að kosta sjálf
sín eigin sjúkrahús og bera af
rekstri þeirra mörg hundruð
þúsund króna halla vegna
veittrar heilbrigðisþjónustu
fyrir önnur héruð.
Nú liggur fyrir alþingi frum
varp til Iaga um fullkomna
Landsspítaladeild, er ríkið
kosti í hverjum landsfjórðungi.
Samþykkt þess mundi þýða
mikla framför í réttlætisátt.
Hún mundi ver'ða eina viðun-
andi lausnin á ríkjandi misrétti
í heilbrigðismálunum.
Og livað segja þeir nú —
mennirnir, sem hæst hafa gal-
að fyrir kosningar um aukið
iafnvægi í byggð Iandsins?
Enn eru þeir þögulir, en von-
andi sýna þeir það í verki að1
þeir vilji styðiaj að jafnréttí
þegnanna í atvinnumálum,
menningarmálum og heilbrigð
ismálum, því að auðvitað er
það eina leiðin til aukins jafn-
vægis í hyggð landsins.
Tiíhæfulausf með öllu
TIMINN er hinn úrillasti út
af því, að Alþýðublaðið sagði
frá þeim orðrómi, sem áður hef
ur komið fram í blöðum, að
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram
sóknarflokkurinn kynnu að
vera búnir að semja sín á milli
um samvinnu eftir bæjarstjórn
arkosningarnar.
Því fór fjarri, að Alþýðublað
ið viki einu orði að því, að orð-
rómur þessi mundi vera sann-
ur. iHíns vegfjr var það álit
blaðsins, að ekki væri slík sam
vinna líkleg til að tryggja í-
haldinu áframhaldandi meiri-
hlutavöld yfir borginni.
En nú hefur Tíminn neitað
j því í styggum tóu, áð nokkur
| fótur sé fyrir þessurn orðrómi.
1 Segir blaðið þetta vera hreinan
uppspuna.
Er ekkert nema gott um það
að segja, og er gott að þessi
Ieiði orðrómur skuli þar með
vera sleginn niður á mjög af-
dráttarlausan hátt. En hitt er á
stæðulaust af Tímanum að láta
sem slík samvinna hefði verið
alveg óhugsandi. Það er þó ann
að kjörtímabilið í röð, sem
Framsókn sængar með íhald-
inu í ríkisstjórn, og gat því vel
hugsazt að hugir þessara flokka
hneigðust einnig saman í bæj-
armálum Reykjavíkur.
Útbreiðið Alþýðuhlaðið
ALÞYÐUBLAÐIÐ hefur áð-
ur skýrt frá því, áð Sigurjón
Jónsson hafi skrifað skáldsögu
um Gauk Trandilsson, en hug-
ur margra rithöfundar okkar
mun hafa staðið til þess við-
fangsefnis, þó að ekki hafi orð
ið úr framkvæmdum hingað
til. Þessi skáldsaga Sigurjóns
mun koma út eftir nokkra
daga, en höfundur hennar er
löngu þjóðkunnur fyrir rit-
störf sín og jók hroður sinn-að
miklum mun með tveggja binda
skáldsögu sinni um Yngvildi
fögurkinþ. Hiún hlatut ágæta
dóma og vakti. mikla athygli.
Er því ástæða til að ætJa,. að..
marga fýsi að kynnast þessari
nýju skáldsögu Sigurjóns Jóns
sonar.
Sigurjón ’hefur góðfúslega
orðið við þeim tilmælum Al-
þýðublaðsins að svara nokkr-
umi spurningum, sem það lagði'
fyrir hann um skáidsögu hans!
og tiléfni 'hennar. Fer samtal
þetta hér á eftir:
— Hvert er efni sögunnar?
„Efnið er fornsögulegt. Og á
sagan að hafa getað gerzt fyrir ■
þúsund árum hér á landi. Hún
er um strit og stríð mann-1
anna, gaman. og alvara, hatur
og ást“.
— Hvaða heimildir eru til
um Gauk Trandilsson?
„í landnámabókunum er
sagt, að Gaúkur í Stöng hafi
verið sonur Þorkels trandils, er
var sonur Handnámsmannsins
í Þjórsárdal, Þorbjörns laxa-
karls. Aðrar upplýsingar um
Gauk eru ekki í Landnámu.
Oddur Arngeirsson í Hraun- _
höfn og Þuríður systir hans J
eru nefnd í 20. kafla þriðja
hluta Landnámu. En þau koma .
bæði við sögu.
í Njálu er Gauks getið á
tveimur stöðum, fyrst í 26.
kafla þannig: „Gaukur Tran-
dilsson var fóstbróðir Ásgríms,
er fræknastur maður hefur ver
ið ok bezt að sér gjörr. Þar
varð illa með þeim Ásgrími,
því að Ásgrímur varð banamað
ur Gauks“. Er auðfundið, að
höfundur Njálu mælir hér af
mikilli hlífisemi við Ásgrím og
dregur fjöður yfir ámælisverð
an atburð. Þykir mér sennilegt,
að hann geri það vegna niðja
Ásgríms eða vegna biskupanna
f Skálholti af Mosfellingakyni.
í 139. 1' "n Njáln. er Gauks
aftur getið, þegar Skafti Þór-
oddsson minnir Ásgrím á, að
hann hafi drepið Gauk fóst-
bróður sinn. Finnst mér hið
reiðilega svar Ásgríms þá lýsa
minnimáttarkennd og óverj-
andi málstað.
í íslendingadrápu Hauks
Valdísarsonar er einn vísu-
helmingur um Gauk á þá leið,
að hann hafi verið gunnreif
hetja. Annað er það ekki. Og
eru nú taldar allar heimildir
um Gauk, sem fornritin geyma.
Um 1860 fundust rúnaristur
klappaðar í stein á Hrossey í
Orkneyjum. Segist rúnameist-
arinn hafa rist þessar rúnir
„með þeirri öxi, er átti Gauk-
ur Trandilsson fyrir sunnan
land“. Aðrar upplýsingar er
þar ekki að hafa. Og gefur það
auga enga leið.
Sigurjón Jónsson.
Vísa ein, sennilega viðlag
úr dansi frá fimmtándu öld,
hefur geymzt. Þá vísu hafa all
ir heyrt: „Önnur var öldin, er
Gaukur bjó í Stöng; þá var ei
til Steinastaða leiðin löng“.
Litlar upplýsingar gefur þetta.
En það vekur manni trega, hve
mikið hefur týnzt. Nú segja
fræðimenn, að fullsannað sé,
að skráð saga hafi verið til af
Gauki Trandilssyni, eða Þjórs
árdælasaga. En hún hefur al-
gerlega glatazt éins og fleira á
langri Ieið.
Um Gauk Trandilsson og
eyðingu Þjórsárdals hafa ýms-
ir, lei'kir og lærðir, skrifað
fjölda ritgerða á síð’ari tímum
í bækur og tímarit. Ég hef
elt þetta uppi og lesið það allt.
Mest er það stagl og getgátur
um þessar fáskrúðugu heimild
ir. Á einum staö eru flestar
þessar ritgeroir í hókinni
„Forntida Gaardar i Island“,
sem kom út á vegum Ejnars
Munksgaards í Kaupmanna-
höfn 1943. Góð bók. Þá eru
margar ritgerðir :im þetta efni
i Árbók fornleifaféíagsins. Þor
valdur Thoroddsen minnist á
Þjórsárdal á nokkrum stöðum í
sínum stóru bókum. Sigurður
Skúlason hefur skrifað langa
ritgerð um Gauk og Þjórsárdal
í Tímarit Þióðræknisfélagsins
1925, Jón Ófeigsson í Árbók
ferðafélagsins 1928, Guðni
Jónsson í Skírni 1931, Ólafur
Lárus.-on í „Byggð og sögu.“ og
Magnús Helgason í „Kvöldræð
um“. Og hefur þetta mörgum
verið hugleikið efni-. Ég hef
haft mjög gaman af að lesa
þessar ritgerðir og ef til vill
nokkurt gagn. En heimildir
fyrir minni sögu get ég ekki
talið þær“.
— Er sagan sannscguleg?
,Já, að því er snertir nöfn
aðalpersónanna, staði og tíma.
Ég ætlast til, að sagan sé sann
söguleg í aðalatriðum um þjóð
hætti, hugsunarhátt, trúar-
brögð og hjátrú fólksins í land
inu á þessum tíma. Skáldsögu
verður að kalla hana, þótt eigi
verði hún sögð sagnfræðileg.
Efnismeðferð og ályktanir sög
unnar eru aðeins gerðar eftir
mínum geðþótta og nauðsyn
sögunnar sjálfrar“.
— Hefur sagan verið iengi í
smíðum?
„Efni þessarar sögu hefur
lengi verið mér hugstætt. Og
nú í heilt ár hef ég ekki hugs-
að um annað en þessa sögu,
lesið allt, sem skrifað hefur
verið um efnið, farið tvær
ferðir í Þjórsárdal, skrifað og
fleygt og skrifað afiur. Ég var
ár með hana“.
-—- Og hefur þú svo eitthvað
nýtt á prjónunum?
„Margt býr í huganum. Og
nóg eru verkefnin. En hvort
meira verður gefið út af þessu
tæi, fer nokltuð eftir því, hvern
ig þessari sögu verður tekið,
því að „allt verður að bera
Sig“.
Aðalf undur
Flugfélags íslands h.f. verður haldinn í Kaupþingssaln-
um í Reykjavík föstudaginn 11. desember 1953 og hefst
hann klukkan 2 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Aðgöngu- og atkvæðamiðar fyrir fundinn verða afhentir
í skrifstofu félagsi'ns, Lækjargötu 4, dagana 9. og 10.
desember.
STJÓRNIN.
AlþýSubEaðið
vantar unglinga til að bera blaðið til kaupenda í
þessum hverfum:
Digranesháls
Talíð við afgreiðsluna. - Sími 4900.