Alþýðublaðið - 21.11.1953, Síða 7
jLaugardagur 21. nóv. 1953.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Mái' og menning tók upp þá nýbreytni í fyrra að gefa út í einu lagi níu bækur, sem félagsmönnum var
gefinn kostur á að velja um, þrjár eða fleiri, fyrir einstaklega lágt verð. Þessi nýjung vakti athygli og
hlaut vinsældir félagsmanna, og sumar bækur úr þeim flokki eru nú með öllu ófáanlegar.
í gær kom út nýr bókaflokkur, jafnvel enn fjölbreyttari að efni og glæsilegri að frágangi.
BÆKURNAR EEU ÞESSAR:
1. ¥«sSS®o.dinpr
eftir Lúðvík
Ki'istjánsson.
I riti þessu, sem verð-
ur í tveimur bindum
er rakin saga hinnar
stórmerku framfara-
og menningarvakning-
ar í Breiðafirði og á
Vestfjörðum á tíma-
bili-nu 1830—1860. — Hér sjáum við
fólkið. sem stóð að baki Jóni Sigurðs-
syni °g skóp sögu aldarinnar.
Höfundur bókarinnar, Lúðvík Krist-
jánsson ritstjóri Ægis. er kunnur fyrir
ritstörf sín, ekki sízt hina vinsælu sevi-
sögu Knuds Zimsen, Við fjörð og vík
og Úr bæ í borg.
2, íslenzka þjóðveldið
r
eftir Björn
Þorsteinsson.
Þjóðveldið forna er
glæsilegasta tímabil ís-
lenzkrar þjóðarsögu —
Bókin rekur þróun
þess í skýrum drátt-
um fram til ársins
1264 og bregður á það
Ijósi nýrrar þekkingar í sagnfræði og
þjóðfélagsvísindum. — Höfundur þessa
rits, Björn Þorsteinsson er orðinn kunn-
ur bæði sem fræðimaður og rithöfund-
ur. Að loknu prófi í íslenzkum fræð-
um hér við háskólann stundaði hann
framhaldSnám í sagnfræði í Bretlandi
og hefur gert merkilegar rannsók-air á
verzlunarviðskiptum íslands og Bret-
lands fyrr á öldum.
svari fsiff er sfufl
skáldsaga eftir Agnar
Þórðarson.
Þessi nýja skáldsaga
Agnars gerist í Reykja-
vík á okkar dögum.
Höfuðpersónan er ung-
ur maður af borgara-
ættum sem tekur við
fyrirtæki eftir föður
sinn og kemst að því að hann hefur
verið flæktur í fjármálahneyksli og í
rauninni aldirei verið frjáls maður.Son
urinn á um að velja að halda. áfram á
sömu braut eða veita viðspyrnu og fá
uppreist fyrir minningu ioður sins.
4. HliarbræÓur
eftir Eyjólf Guðmundsson
Eyjólfur Guðmundsson á Hvoli er þjóð-
kunnur fyrir endurminningar sínar, rit-
in Afi og amma, Pabbi og mamma og
Lengi man til iítilla stunda. Nú kem-
ur í ljós að harya heíur einnig fengizt
við skáldskap. Frumdrögin að sögunni
Illíðarbræður hefur Eyjólfur gert laust
eftir aldamótin, en endurritað hana fyr-
ir nokkrum árum. Hún gerist í sveit
nálægt aldamótum og segir frá árekstr-
um sem áttu sér stað milli gamla og
nýja tímans um það leyti sem ung-
mennafélagshreyfingin með ýmsum nýj -
ungum var að berast út í sveitirnar.
eftir Helga Hálfdánarson.
Höfundur er íslenzkum lesendum að.
góðn kunnur, þótt ekki hafi enn birzt
á vprenti nema fá sýnishorn af kvæð-
um hans, margir hyggja gott til að fá
fleira að sjá frá he'íidi þessa orðhaga
og formsnjalla skálds. í ljóðaþýðingum
Helga er leitað víða til fangs, en sér-
stöku ástfóstri hefur hann tekið við
stórskáldin ensku á fyrra helmingi 19.
aldar, Keats, Shelly, Byron og Wods-
worth, og íslenzkað sum af mestu og
frægustu kvæðum þeirra. Einnig hef-
ur hann þýtt nokkrar af sonnettum
Shakespeares, og þrjú af leikritum
hans, en söngvar úr þeim og fleiri leik-
ritum Shakespeares eru í bókinni.
6, írskar fornsögur,
þýddar og valdar a£
Hermanni Pálssyni.
írskar og’ íslenzkar
fornsögur skipa önd-
vegissess. í miðaldabók
me'nntum Evrópu. —
Fræðimenn hafa fært
að því skynsamleg rök
» ® að íslenzk sagnalist
eigi rætur sínar að rekja til írlandsí
enda yrði uppruni hennar torskýrður
með öðrum hætti. — írskar íornsögur
eru hér i fyrsta sinn kynntar íslenzkum
lesendum, og þýddar beint úr frummál-
inu. Hermann Pálsson, norrænufræðing-
ur og lektor við háskólann í Edinborg,
mun vera fyrsti íslendingurinn, sem
lagt hefur stund á keltnesk fræði. Hann
hefur valið sögurnar til útgáfu og ritar
ýtarlegan inngang að bókinni um írsk-
ar fornbókmenntir.
7.
eftir Peter Cotes og
Thelma Nikulaus.
Margar bækur hafa
verið ritaðar um þenn
an einstæða snilling,
vinsælasta lista-
mann sem uppi hefur
verið. Bók sú, er i^ú
kemur á íslenzku, er
ein hin nýjasta, gefin út í Lundúnum
1951. Skiptist hún í tvo meginþætti, sá
fyrri er ævisaga Chaplins, mjög sögu-
leg, sá síðari fjallar um list hans. Þá
eru í bókinni margar ljósmyndir úr
kvikmyndum Chaplins og einkalífi, skrá
yfir allar kvikmyndir hans og synis-
horn úr ritum hans. — Magnús Kjart-
ansson ritstjóri, hefur þýtt bókina.
skáldsaga eftir
Pjotr Pavlenko.
Ný sovétskáldsaga,
sem gefur ljósa hug-
mynd um það mikla
átak er sovétþjóðirnar
gerðu til að reisa land
sitt úr i’ústum eftir
‘ síðustu heimsstyrjöld.
-Höfundurinn hlaut fyrir hana Stálin-
verðlaun 1947. Hún hefur verið þýtt á
ýmiss erlend mál. — Geir Kristjánsson
riístjóri MÍR þýddi söguna úr frum-
málinu.
9, Talað viö dýrin.
eftir Konrad Z.
Lorenz.
Plér er á ferðinni ó-
venju merkilegt og
skemmtilegt rit, er
kom fyrst út á þýzku
1950, en hefur síðan
verið þýtt á mörg mál
og hvarvetna orðið
mjög vinsælt. Höfundurinn er austur-
-^Crískur og einn kunnasti dýrafræðingur
sem nú er uppi. — Allt er hann segir
frá, birtist í nýju ljósi, fær líf og lit,
jafnvel nokkrir smáfiskar í keri verða
heill heimur furðuverks. — Símon Jóh.
Ágústsson prófessor hefur þýtt bókina
og Finnur Guðmundsson náttúrufræð-
rngur, ritar formála fyrir henni. Hitt
er skreytt fjölmörgum skemmtilegum
teikningum eftir höfundinn.
hefur opnað
nnum a
Skólavörðustíg 21
iíið inn í nýju verzlunina - Skoðið nýja bókaflokkinn
Mál og menning
Skólavörðustíg 21, sími 5055.