Alþýðublaðið - 04.12.1953, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.12.1953, Blaðsíða 4
ALÞYÐUBLAÐID Föstuáagtf/: :4."'ðésÖitíb'fer >-í-19S3sfiÍ Útgefandi: Alþýðuflokkurima. Ritstióri og ábyrgðarmaSur: Hanttibai ValdimarSsoa ' Meðritstjóri: Helgi Sæinundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. BlaðameiKi: Loftur Guð- mtmdsson og Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. Auglýsinga- sími; 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðjan, Hvg. 8—10. Ásbriftarverð 15,00 á mán. I lausasölu: 1,00. Ljóshringurinn kring um ísland ÞANN 1. desember síðastlið- itin voru liðin rétt 75 ár síðan kveikt var á fyrsta vitanum bér á Iandi. Þegar þessa mexka atburðar var minnzt, skýr’ði Emil Jóns- son vitamálastjóri í'rá því, að um þessar mundir væri þeim áfanga náð í vitatnálunum, að hægt væri í góðu veðri að sigla í samfelldu vitaljósi kringum alit landið. Þessi áfangi héfði náðst, þegar búið væri að kveikja á þeim þremur vitum, sem byggðir voru í sumar. Með þeim atburði lokaðist Ijóshring urinn kringum ísland, sagði vitamálastjórinn. Það er ekki aðeins íslenzk sjómannastétt, sem fagnar þess um atburði og minnist þess sem mikils merkisatburðar, þegar fýrssíi vitinn var byggður á Reykjanesi. Þess atburðar minnist þjóðin öll, og þróun seinustu 75 ára er tákn ein- béitts þjóðarvilja. Eyþjóðin skildi, að hún átti allt sitt und- ir sjósókn og siglingum. Henni var því ekkert ljúfara en að leggja fram fé til að lýsa upp ströndina og vísa þannig far- skipi og fiskibát leiðina að larnli. Islendingar skildu nauðsyn vitabygginga frá öndverðu og hreyfðu málínu sírax, er al- þingi hafði ver’ð endurreist. Eft þá var íslenzka þióðin ekki fjár síns rá'ðandi. Þá var tími háenaskrá,nna. Þá utðu fulltrú- ar íslendinga að hiðja dcnsk stjórnarvöld um fé tií allra framkvæmda. Þetta var auð- vitað fyrsta skrefið, ér hug- myndin um vitahyggingu á Eeykjanesi hafði verið rædd hér heima. A.lþingi samhykkti vitabygginguna bg sendi beiðni um fjárveitingu úr ríkissjóði Dána. Svo var beðið eftir svari f Ivö ár. Og þegar svarið kom, vár það á bessa letð: A Islaridi þarf enga vita. Þar <er samfelld- birta um sumaríímann, en á vetrum er engin sigling íi! landsins. Enn leið nokkur tími. Islend I ingar héldu áfram að hamra á ; málinu, og þar kom, að dönsk stjórnarvöld létu sannfærast og veittu fé til vitans. Reykja- nesvitinn var byggður, og á honum var kveikt fyrsta vita- ljósfð á íslandi þann 1. desem- her árið 1878. | Síðan höfum við átt örum ; framförum að fagna í vitamál- 1 unum undir forustu vitaniála- stjóranna Th. Krabbe og Emils Jónssonar. Þar hafa verið réttir ■■ menn á réttum stað. Og þeim er það ekki sízt að þakka, að ljósbaugar vitanna ná nú sam- an, þrátt fyrir óralanga strand- lengju okkar vogskorna lands. En þrátt fyrir þann glæsi- lega árangur, sem náðst hefur, skyldi enginn láta sér detta í hug, að lokatakmarki sé náð, og ( nú megi leggja árar í bát í vita j málunum. Það væri hinn mesti j misskilningur. j Nei, verkefnin framundan ! eru bæði niörg og stór. Næst kallar að að auka ljósmagn flestra vitanna. Ýmsum þeirra þarf að breyta og suma að end- urbyggja algerlega. Þessu fylg ir nauðsyn aukinnar vita- vörzlu, og eykur það reksturs- í kostnað vitanna stórlega. Hjá því verður ekki komizt. Þá er líka þörf á að byggja marga ! radíóvita í viðbót við þá, sem ; þegar hafa verið byggðir. j Sjómenn okkar, sem stundað , hafa fiskveiðar við Grænland (seinustu árin, hafa fengið að kynnast því, hversu dauflegt er ■ að vera í námunda við myrka í strönd, þar sem enginn viti lýs- ! ir á annesjum og útskerjum. Þeir hafa því fengið aukinn j skilning á gihli þess vitakerfis, sem íslenzkur þjóðarvilji og i þjóðmálaforusta hefur byggt upp i sameiningu á seinustu 75 árum. Og það er víst, að þjó'ðin vill, að áfram sé haldið, unz Islend- ingar standa þjóða fremst í vitamálum: Eiga samfellt kerfi sterkra ljósvita og fullkominna radíóvita, sem vísa sjóm.örjnum okkar heim til hafnar. \ „Frjálsa verzlunin” í framkvæmd: „FRJÁLSA VERZLUN- IN“, sem íhalclíblöðin eru alltaf að lofsyngja af því að hún er • vafn á myllu heildsalanna og braskar- anna, leiðir til þess í sívax- andi mæli, að j:in eru flutt- ar útlendar vörutegundir, er keppa við íslenzka fram- leiðslu. Útlendu vörurnar eru iðulega mun dýrari en íslenzka framleiðslan og oft og tíðum gæðaminni. En íhaldið er ekki að hugsa neitt um slííkt. Aukinn gróði skjól stæðinganna er því auðv.tað aðalatriðið. ENSKI SMJÖROSTURINN Nú er kominn á markað- inn enskur smjörostur. Hundrað grömm af honum kosta í búðum 9,15, en jafn mikið af óniðurgreiddu ís- lenzku smjöri kostar 4,85 og agætum íslenzkum osti 2,50. Innflutningurirm á osti þess um á engan rétt á sér. ís- lenzk landbúnaðarfraxn- leiðsla hefur hlaðizt upp undanfarið og þyrfti aðstoð- ar við en ekki samkeppni. Auk þess mun enginn dóm- bær aðili halda því fram, að þessi enski smjörostur sé betri en íslenzkt smjör eða ostur. En viðkomandi heild sali er ekki að hugsa um slíkt. Hann telur líkur á því, að broddborgurunum þyki fínna að snæða enskan smjör ost en íslenzkt smjör og ís- lenzkan ost og lifir sjálfsagt í þeirri trú, að hægt sé að fá fólk með auglýsingaher- ferð til að kaupa smjörost- inn, þar eð mjög ber á því, að íslendingar séu ginn- keyptir fyrir útlendum vör um. GLEYMNIR BÆNDAVINIR Núverandi viðskiptamála- ráðherra er úr bændadeild íhaldsins. Ingólfur Jónsson þykist vera einlægur bænda vinur, þegar hann falast eft- ir fylgi kjósenda sinna austur í Rangárþingi. Hins vegar horfir hann upp á það aðgerðarlaus, að stofnað sé til samkeppni við íslenzkar landbúnaðarafurðir eins og hér á sér stað. Það er engu líkara en hann gleymi bænda vináttunni á Hellisheiði, þegar hann fer til Reykja- víkur að þjóna hagsmunum hinna raunverulegu hús- bænda sinna í Sjálfstæðis- flokknum. Og enn hefur þess ekki orðið vart, að bænda- vinirnir í Framsóknarflokkn um gefi því gætur. að þessi enski smjörostur sé kominn á markaðinn og eigi að þjóna því hlutverki að draga úr kaupum 'á íslenzkum land- búnaðarafurðum. HYORT LÓÐIÐ ÞYNGRA? í þessu máli fara saman hagsmunir bænda og neyt- endanna í bæjunum, enda eru þessar stéttir nátengdar í lífsbaráttunni. þó að mjög sé reynt af pólitískum æv- intýramönnum að auka á sundrung með þeim. Almenn kaup á enska smjörostinum yrðu auðvitað úi ■ þess, að sala á íslenzku smjöri og íslenzkum osti minnkaði stórlega. Auk þess er enski smjörosturinn rándýr og með öllu ástæðulaust að láta harni koma í . staðinn fyrir íslenzkt smjör og íslenzkan ost. Hér er verkefni fyrir viðskiptamálaráðherrann, ef hann vill heldur vinna fyrir bændur en þjóna hagsmun- um eins íhaldsheildsala. Auð vitað ber honum að stöðva innflutning á enska mjólk- urostinum. Honum ætti að vera það í lófa lagið, svo margir sem hinir sjálf- kjörnu bændavinir eru á al- þingi. En hlutaðeigandi heild sali myndi sjálfsagt reiðast þeirri ráðsmennsku, og er ekki velþóknun eins heild-. sala meira virði en hags- munir íslenzku bændastétt- arinnar? Ingólfur Jónsson kemst ekki hjá því að velta þeirri spur.ninyu fvrir sér næstu daga. Við bíðum og sjáum, að ihvaða niður- stöðu viðskiptamálaráðherr- ann kemst. Herjólfur. Bœkur og höfundar: Hetja f slrfði vinnandi stétfa Merkar ræður fyrsfa desember HÁTÍÐAHÖLDIN fyrsta tles ember fóru vel í'ram og voru stúdentum til sóma. Þeir höfðu sýn-t víðsýni um efnisval Stúd- entablaðsins, enda var það þróttmikið og vel skrifað. Rit- skoðuð verk hafa sjalaan gagn legan e'ða kraftmikinn boðskap að flytja. Ræður voru fluf.tar þennan dag, sem vöktu þjóðarathygli. Sérstaklega hefur hin gagn- merka ræða prófessors Jó- hanns Sæmundssonar verið um ræðuefni manna um allt íand, síðan hún var flutt. Prófessor Jóhann Sæmunds- son hafnaði eindregið haturs- kenningum kommúnista og sýndi fram á fánýti hlutlevsis- draumóra, eins og ísland væri sett og ásíaít væri í heiminum. En hann flutti þunga og magn- þrungna ádeilu á framkvæntd vainarmálanna og ýms samn- ingsákvæði. Hvatti hann til endurskoðunar á varnarsamn- ingnum og krafðisí ráðstafana til að draga úr hættu, sem her- stöðvarnar gætu leiít yfir ca. 80 000 íslendinga, ef til ófrið- ar kæmi. Benti hann á að Reykjavík væri í miðpunkti hættusvæðisins, ef baugur væri dreginn um Keflávík og Hvalfjör’ð. Taldi prófessorinn mikillar fræðslu þörf til að draga úr manntjóni, ef landið drægist inn í atómstyrjöld. Upplýsti hann, að þann tlag hefði verið stofnaður féiags- skapur í því skyni. — Ræða Jóhanns Sæntundssonar var öfgalaus áminning til þjóðar- innar um að vera vakandi og gera skyldu sína hæðí við sjólfa sig og aðrar þjóðir. Vilhjálmur S. Vilhjálnts- son: Kaldur á köflum. Endurminningar Eyjólfs frá Dröngum. Ævisagna- útgáfan. Alþýðuprentsmiðj an. Hafnarfirði 1953. UNDIRRITAÐUR fékk auga stað á bók þessari, meðan hún var enn í íhandriti, því að Eyj- ólfur frá Dröngum er tvímæla laust táknrænn fulltrúi hetj- anna í stríði vinnandi stétta á íslandi, — þeirra, sem skap að hafa þjóðarauðinn með fram leiðslu og starfi til lands og sjávar, komið verkalýðshreyf- ingunni til þroska og áhrifa og tengt forna menningu alþýðu- fræðslu og menntun nút’ímans. Á.rns11 beirra er þjóðarsagan, begar brotin hafa mvr J*,ð heild og horfið er frá því að láta ein staklingana skyggja á fjöldann. Eyjólfur Stefánsson fæddist á Skarðsströnd, en ólst upp í Rauðseyjum og bjó í Geitar- eyjum og síðar að Dröngum á Skógarströnd. Hann fluttist til Hafnarfjarðar skömmu eftir fyrri beimsstyrjöldina og lifir þar en í hárri og íagurri elli. Eyjólfur rataði í marga mann raun strax í æsku, og lífsbar- átta han,s vestra var löngurn síorrnasöm og viðburðarík, þó að oft sæjust sólskinsblettir í heiði. í Hafnarfirði skipaði þessi breiðfirzki bóndi og sæ- garpur sér svo í fylkingarbrjóst alþýðusamtakanna og barátt- unnar fyrir hugsjónum jafnað arstefnunnar. Saga Eyjólfs speglar þannig óvenjulega glöggt þjóðarreynslu Islend- inga síðari hiuta fyrri aldar og þeirrar, sem nú er hálfnuð. Efni bókarinnar er sannarlega girni legt til fróðleiks. Vafalaust hafa margir íslend ingar lifað meira en.Eyjólfur frá Ðröngum. En hann er í ríkum mæli gæddur kostum góðra sögumanna, glöggur á fólk og atburðj, sjóðfróður, einarður og umburðarlyndur í senn og slyngur í beirri íþrótt að segja vel frá. Bókin ber ó- rækt vitni alls þessa. Hún er efnism'ikil og ágætlegaj' gerð. Lesandanum finnst hann orð- inn nákunnugur fóikinu og at- burðunum, sem um er fjallað, þó að hann hafi aldrei komizt lengra vestur á bóg:nn en að Fróðá. „Kaldur á köflum“ sýn- ir og sannar, að íslenzka al- þýðumenntunin hefur verið staðreynd en ekki aðeins hug- tak. Minnisstæðast þess, sem ber á góma í ævisögu Eyjóifs frá Dröngum, er mannlýsingarn- ar. Þetta á jafnt við um ein- staklingana og haúdina. Jón Rauðseyingur, kona háns og' heimilisfólk gæðast í frásögn- inni lífi og fjöri raunveruleik- ans. Sama gildir um Björn bróður Eyjólfs, en hann er sér- stætt og skemmtiiegt marm- tröll, Jón Mjirdal og Ilannes stutta, svo að nokkur dæmi.séu nefnd. Eyjólfur er ekki orð- margur í frásögn sinni af þessu fólki, ,en bregður upp glöggum myndum og hefur aöalatriðin kunnáttulega á valdi sínu. Sömu sögu er að segja, þegar til Hafnarfiarðar kemur. Lýs- ingin á Nisbe.t lækni, Fimri i Gíslasyni, Ágústi Flygenring, ' Einari Þorgilssyni, Ásgeiri G. i Stefánssyni, Birni Jóhannes- 1 syni og Kjartani Ólafssyni leið I ir skýrt í Ijós, hvað Eyjólfur ! er glöggur á sérkenni eldri og 1 yngri samferðamanna á lífsleið, ■ inni. Lesandinn gæti haldið. að hér gengi þjálfaður rithöfund ur til verks, en ekki slitinr. öldungur, sem er sáttur við allt og alla og mælir fram hinztu kveðju að bókarlokum. Samvinna Eyjólfs og Vil- hjálms S. Vdlhjálmssonar hef- ur tekizt með ágætum. Helzt mætti það að bókinni finna. að (Frh. á 7. síðu.y •

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.