Alþýðublaðið - 09.12.1953, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 09.12.1953, Blaðsíða 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ Miðviliudagur 9. cfes. 1953. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hanitibal Valdimarsson Meðritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttasíjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenin: Loftur Guð- mundsson og Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. Auglýsinga- símí: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aiþýðuprentsmiðjan, Hvg. 8—10. Áskriftarverð 15,00 á mán. í lausasölu: 1,00. Umbófatillögur Álþýðufiokksins ÖNNUR UMRÆÐA um fjár lögin liöfst á alþingi í gær og mun henni liafa loki'ð í nótt. Alþýðuflokkurinn hefur lagt fram margar og merkar breyt- • ingartillögur við frumvarpið. Mörg undanfarin ár hefur fulltrúi Alþýðuflokksins í fjár- veitinganefnd sýnt fram á það, að áætlunin um tekjurnar væri allt of iág. Þetta hefur reynslan staðfest jafn oft, og liggur það nú fyrir á borðinu, að tekjuáætlun Alþýðuflokks- ins hefur reynzt varleg og staðizt í öllum atriðum. - Eins og undanfarin ár, hef- ur Alþýðuflokkurinn rannsak- að vandlega, hvað hver tekju- liður fjáriaga faefur orðjð hár nokkur seinustu árin, og einn- ig hva'ð innkomnar tekjur yfir standandi árs væru orðnar há- ar fram að þeim tíma, er geng ið er frá fjárlögum, og með fullri hliðsjón jaf þessu hafa svo tekjuliðirnir verið áætlað- ir á næsta ári. Þessi vinnubrögð hafa auð- vitað einnig verið viðhöfð nú. Kemur þá í Ijós, að variegt er a'ð áætla tekjuraar á næsta ári 30—35 milijónum hærri en fjármálaráðherra hefur gert, þegar hann Iagði frumvarpið fram. Nú hefur meirihluti fjár veitinganefndar Ííka í fullu samráði við ráðherrann viður- kennt, að óhætt sé að áætla tekjurnar 16—17 milljónum hærra, og hefur meirihluti nefndarinanr íbor.ið fram til- lögur um það. Fullviss þess, að áætlanir Alþýðuflokksíns sfandast að þessu sinni, eins og undanfar- in ár, hefur flokkurinn borið fram tillögur um fjárveitingar til ýmiss konar nauðsynlegra framkvæmda, og eru þessar þær helztu. Ríkissjóður Ieggi fram til al- mannatrygglnganna 6,3 snillj. króna viýibótarframlag til þess áð gera tryggingunum fært að standa í skilum um bótagreiðsl ur. Fiskveiðasjóði ’/erði séð fyr- ir 5 milljónum króna, svo að hann geti annast lánastarfsemi fyrir vélbátaútveginn, þar á meðal vegna bátasmíði innan lands, en sjóðurinn er nú mjög aðþrengdur vegna fjárskorts. Þá Ieggur Alþýðuflokkurinn til, að 750 000 krónum verði varið til að koma upp verka- mannaskýlum í hafnarbæjum gegn tvöföldu framlagi annars staðar að. Er hér um nýmæli að ræ’ða, enda er nauðsynin brýn. Til þess að steypa og mal- bika götur I kaupstöðum og kauptúnum vfill Alþýðúflokk- urinn að varið verði einni millj ón króna, í stað 100 þúsund króna, sem til þessa hafa verið ætlaðar í mörg ár á fjáriögum. Bœkur og höfimdar: Hefur enginn kaupstaður treyst sér til að géra neitt með slíkri smáupphæð, en með 900 000 króna hækkun, gaeti fjár veitingin komi'ð að gagni. Stærsta vandamál kaupstað anna nú er húsnæðisskortur- inn. Þess vegna leggur AI- þýðuflokkurinn áherzlu á það, að byggingasjóði verkamanna verði séð fyrir 5 milljón króna tekjum á næsta ári, í stað 1,6 milljón, sem sjóðnum er nú ætlað á frumvarpinu. Ef þessi tillaga fengizt samþykkt, gæti komizt nokkur skriður á bygg ingu verkamannabústaða, og er nú þess vert að fólk fylgist með því af gaumgæfni, hvaða und- irtektir þessi tillaga fær hjá hinum flokkunum. Byrjað er á mikilli viðbygg- ingu vi‘ð Landsspítalann, og mun sú stækkun kosta milljóna tugi. Nokkurt fé er fyrir hendi frá barnaspítalasjóði, en samt er ekki annað sjáanlegt, en að byggingin taki mörg ár, nema hún fái ríflegar fjárveitingar. Alþýðuflokkurinn leggur til, að veittar verði 2,8 milljónir til stækkunar Landsspítalans á næsta ári, og er honum þó ljóst, að þetta er í rauninni allt of lág upphæð. Enn fremur leggur Alþýðu- flokkurinn til, að framlag til Slysavarnafélags íslands hækki um 125 000 krónur, þar af 100 þús. kr. til almennra slysa- varna og 25 000 til umferðar- slysavarna. Þá vill Alþýðuflokkurinn, að styrkur til Alþýðusaníbands fslands bæfcki úr 50 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Og að Lánasjóður stúdenta verði efldur með 600 þúsund króna fjárveitingu. Enn fremur hefur Alþýðu- flokkurinn lagt til, a'ð allt að helmingnum af tekjuafgangi ríkissjóðs á yfirstandandi ári verði varið tíl greiðslu á skuld um ríkissjóðs vegna skólabygg inga, sjúkrahúsa og hafnar-! mannvirkja, en nú mun vanta um 20 milljónir króna til að rík ssjóður hafi getað staðið í ski'nm að sínum hluta Jö'nxm samkvæmt móti sveitafélögun um. Því miður skortir Alþýðu-f flokkinn afl atkvæða á alþingi til að tryggja þessum góðu mál um framgang. — En hann mun beita sér eins og hann getur fyrir framgangi þeirra, og hann hefur sannað, að það er hægt a'ð gera þetta allt á næsta ári, án þess að lagðir séu nein' ir nýir tollar eða skattar á ís- Ienzka skattborgara. Aðeins ef tekjur ríkisr/óðs eru áætlaðar nærri lagi — og vilji er fyrir hendi til að láta þessi verk- efni ganga fyrir öðrum. Útbreiðið Alþýðublaðið MANNI finnst furðuieg:. að Guðmundur Gíslason Hagalín skuli ekki fyrir löngu hafa skrifað barnabók. Hann hefur lýst börnum og unglingum af jmnileik og hugkvæmni í mörg um bókum sínum, og þau vinnubrögð hans eru að ýmsu leyti aðalatriðið í skáldsögunni ,,Blítt lætur veröld!.n“, sem er úrvalssaga. Þó er það ekki fyrr en nú, að hann skrifar bók handa þroskuðum börnum, ung lingum og foreldrum, eins og hann kemst sjálfur að orði. Hún heitir „Útiiegubörnin í Fannadal“ og er gefin út af Æskunni, en það eru út af fyrir sig ærin meðmæli. Sagan er skemmtf.eg og jafn frarnt athyglisverð, enda fjall- ar hún um einn þátt þess vanda máls, sem höfundurinn telur mesta vandamál íslenzku bjóð- arinnar eins og nú standa sak- ir. Bókin er ekki aðeins til dægrastyttingar, heldur vekur hún lesandann til umhugsunar og afstöðu. Sagan er prýðilega gerð og sannar glöggt fjölhæfni Hagalíns. Stíllinn er hófsamleg ur, en meitlaður, og myndir frá sagnarinnar reynast hver ann- arri skýrari. Hagalín hefur hér enn fært út ríki sitt með ágæt- um árangri. Vonandi á hann eftir að skrifa fleiri bækur handa börnum, unglingum og foreldrum. Barnabókmenntum okkar er það mikil nauðsyn, að snjöllustu rithöfundarnir á hverjum tíma rækti akur þeirra. Og sannarlega geta barnabækur einnig veríð á- hrifamikill og listrænn skáld- skapur, þó að íslendingar hafi enn ekki gert sér þá grein fyrir því, sem skyldi. Bókin er ágætlega gefin út af Æskunni og Alþýðuprent- smiðjunni og álitleg sameign barnanna os foreldranna. Þá víkur sögunni að „Þreki í þrautum“, sem i'lytur sannar sögur og þætti og getur með sanni kallast alþýðubók. Þætt- irnir eru þrír og heita Missæl er þjóðin, Útilegumaður á Vest fjörðum og' Undir grænum hlíð um. Raunverulega eru þetta ævisöguþættir Guðlaugar nokk urrar Árnadóttur, Guðmundar Einarssonar refaskyttu og Guð mundar Guðmundssonar skó- smiðs í Vík í Mýrdal. — Þætt- irnir eru hver öðrum betri. Missæl er þjóðin fjallar um þrjár hrakningsferðir skaft- fellskrar unglingsstúlku og lýs- ir á óglevmanlegaii hátt kjör- um og baráttu íslenzkrar al- þýðu fyrir þremur aldarfjórð- ungum. Gerð þáttarins er svo listileg, að helzt minr.ir á smá- sögu. Þátturinn af Guðmundi refaskyttu er miklu ýtarlegri og efnismeiri, enda hefur Haga lín lengi haft augastað á þess- um veiðigarpi og útilegumanni vorra tíma til fróðleiks og frá- sagnar. Hann leikur sér að því að rekja ferðir og afrek Guð- mundar, og refa’skyttan stend- ur lesandanum Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum að lestrinum loknum. Þetta er ein af gleggstu mannlýsingum Haga- 1‘íns. og frásögnin skemmti- leg eins og spennandi skáld- skapur. Þó er undirrituðum næst að halda, að Haga- lín hafi lagt mesta rækt við þáttinn af Guðmundi Guomundssyni í Vík í Mýrdal. Atburðirnir eru m.argir og -um ir stórbrotnir, en mestu skiptir, að Guðmundur hefur 1 if a.ð fögru en harmi slungnu lí'i og er táknrænn fulltrúi sunn- lenzkrar alþýðu og orlaga henn breytir.g héfúr orði'ð' á íslandi síðustu þrjá aldarfiórðunga. En lífið yrkir nýjar harmsögur. Efnið er breytt. en bragarhátt- urinn samur. Enn höfum við fátækt, öryggi.sléysi og kúgun. Gegn þeim ófreskjum er háð hörð og tvisýn barátta. Bók eíns og „Þrek í þrautum“ er s'am- tíðinni eggjun að muna fortío- plÍ! ina og hyggja að íramtíðinni. Til þess eru vítin að vatast þau, þó að mynd ytra borðsins sé breytt. Bókaútgáfan Norðri og prentsmiðjan Edda hafa búið bókinni látlausah en snotiran búning. Hún fer upp í skápinn við hliðina á „Virkum dögum:‘, „Sögu Eldeyjar-Hjalta“ ogI„Á torgi lífsins", og það er skemmtilegur félagsskapur. Ilelgi Sæmundsson. Guðm. Gíslason Hagalín. ar í sambýli lands og hafs. Und irritaður vissi fyrir iöngu, að af Guðmundi Guðmundssyni var' mikil saga. Þó kemur þáttur Hagalíns á óvart. Hann rekur dyggilega feril Guðmundar, en lyftir frásögninni öðru hvoru eins og í æðra veldi. Kostir þáttarins minna heizt á snjöll- ustu kaflana í „Virkum dög- um“ og „Sögu Eldeyjar- Hjalta“, -— hvorki meira né minna. „Þrek í þrautum" leiðir í Ijós, að mikil og heillavænleg Hrðkninpr og heiða- vegfr, fíl. bindír kotttii. ÚT ‘ER KOMIÐ þriðja bínd ið af safnritinu Hrakningar og heiðavegir, sem þeir taka saman og rita Pálmi Hannes- son rektor og Jón Eyþórsson veðurfræðingur. Þetta bindi er 253 blaðsíður aðstærð. í því eru íerðasagnir af öræfum, frásagnir um svað- ilfarir og þættir úr landfræði- sögu íslands. Bókaútgáfan Norðri gefur bókina út, en hún er prentuð í Prentverki Odds Björnsson- ar á Akureyri. Samsöngur JFostbrœðra* KARLAKÓRINN „Fóstbræð ur“ hélt þrjá samsöngva í síð- astliðinni viku í Austurbæjar- bíói, undir stjórn Jóns Þórarins sonar, söngstjóra kórsins. Einsöngvarar voru Ásgeir Hallsson, Gunnar Kristinsson og Sigurður Björnsson, en Ernst Normann lék með á flautu í laginu „Næturgalinn“ eftir Fr. Pacius, og Carl Billich annaðist píanóundirleik í „Báts för í Feneyjum11 eftir Franz Schubert. Á söngskránni voru lög og karlakórs útsetningar eftir þrjá íslenzka höfunda. og sjö er- lenda. Hið hressjlega lag Páls ísólfssonar „Söngbræður" naut sín mjög vel í meðferð kórsins. Sama má segja um hið fíngerða og seiðandi lag Sigfúsar Einars sonar, „Af himninum háa" og „Bára blá“ í útsetningu hans, nxeð látlausum en axar geðþekk um einsöng Sigurðar Björns- sonar. Fjórða íslenzka lagið var „Blástjarnan“ í tilfinningarík- um og hugðnæmum karlakórs- búningi Emils Thoroddsen. Erlendu lögin voru „Pehr svina'herde", sænskt þjóðlag með áhrifamiklum einsöngs- bassa Ásgeirs Hallssonar. Væri óskandi að þessi ágæti söngvari Iegði meiri „leik" í túlkun sína. í laginu .,,Vorsól“ eftir E. Kre- mser gætti um of þvingunar í fyrstu tenórum, en yfirleitt virtust tenórarnir standa allmik að að baki hinum glæsi-legu bassaröddum kórsins. Mun hér eflaust vera um þjálfunarat- riði að ræða, því það leyndisér ekki að kórinn býr yfir dæma- fárri mýkt, og hlutfallslega á- gætri hljómfyllingu ef svo ber undir. „Bátsför í Feneyjum“ eftir Schubert naut sín einna bezt af útlendu löguaum. „Næt urgala söngurinn“ eftir Fr. Pa- cius var í flutningnum meir og minna misheppnuð nýjungar- tilraun, sem sízt skyldi þurfa að henda í sambandi við hið snjalla finnska tónskáld. „Móð- urmálið" éftir E. S. Engelsberg naut sín ekki með einsöng Gunnars Kristinssonar, en laga flokkur Augusts Söderman: ,,Et bondbröllop" (í fjórum köflum) var flutt af lífi og sál. Þar komu fyrst hinir miklu og góðu eiginleikar þessa ágæta karlakórs í ljós. En enn eru þeir góðu söng- svanir í sárum eftir foringja- missinn, og bíða hans víst seint bætur. Þórarinn Jónsson. Kvenfélag Hallgrímskirkju efnir til jólasamkomu, fimmtudagskvöldið 10. "des kl. 8,30 í Hallgrímskirkju. Efnisskrá: Kórsöngur. Jólahugleiðing. Einsöngur, Allir velkomnir. Takið sálmabækur með. Stjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.