Tíminn - 23.09.1964, Page 8

Tíminn - 23.09.1964, Page 8
Gagnfræðaskókkennarar mótí lengingu námstímans Álítsgerð frá Félagi gagnfræðaskólakennara BREF TIL BLAÐSINS Að undanförnu hefur mjög ver ið rætt um lengingu á skólaárinu, og er ljós sú stefna forráðamanna barna-' og unglingafræðslunnar í Reykjavík, að breyting þessi komi til framkvæmda sem fyrst. Er þeg- ar orðin nokkur lenging á s'kóla- ári barnastigs. Með því að lenging þessi hlýt- ur að snerta mjög bæði nemend- ur og starfslið skólanna, telur Félag gagnfræðaskólakennara í Reykjavík sér skylt að senda fræðslumálastjffra álit sitt á mál- inu. Félagi gagnfræðaskólakennara í Reykjavík er fyllilega ljóst, að ýmissa umbóta er þörf á fræðslu tilhögun gagnfræðastigs. Hefur félagið oftsinnis um þau mál fjall- að, og staðið að álykt.unum þar að lútandi, sem ekki er þörf að rekja hér. Aðrir aðilar hafa og lýst skoð unum sínum á því, hverjar breyt- ingar væru æskilegastar innan skólakerfisins, og nægir í því sambandi að geta skólamálanefnd- ar þeirrar, sem menntamálaráð- hera skipaði í júní 1958, en mög athyglisverð atriði eru í tillögum þeirrar nefndar. Einnig má benda á samþykktir kennarasamtakanna á ýmsum tímum, svo sem fræðslu- yfirvöldunum mun flestum betur kunnugt, hafa samkundur kennara ævinlega sent frá sér ályktanir um það, hvað teljast mætti til bóta í skölákerfinu, ef breytt yrði. Tillögur um lengingu árlegs skólatíma hafa mjög sjaldan verið lagðar fram, ef frá er talin álykt- un 13. uppeldisrrtálaþings S.f.B. og L.S.F.K. 1963, en þar er stungið upp á lengingu skólastarfstíma, sem einum lið endurbóta á fræðslu tilhögun. Þeim lið tillögunnar, sem urn lengingu fjallar, hefur mest verið haldið á lofti undan- farið, og á það bent, að þar komi fram vilji kennarasamtakanna. Hvort svo er, skal ósagt látið, en vel væri, ef í framtíðinni yrði svo skjótt brugðið við að láta að vilja samtakanna um ýmislegt, er þau telja nemendum í íslenzkum skól um til meira hagræðis en þetta. Það er skoðun Félags gagnfræða skólakennara í Reykjavík, að leng ing starfstíma í s'kólum gagnfræða stigs hér í borginni sé stórt skref, að mikils undirbúnings og margra breytinga sé þörf, áður en það er stigið. Félagið telur, að rasað sé um ráð fram, ef byrjað er á að lengja starfstíma skólanna, og síð- an hafizt handa um að athuga, hvernig bezt megi nýta hinn ný- fengna viðauka. Má í þessu sam- bandi vitna í orð námsstjóra gagn fræðastigs í Reykjavík, hr. Magnús ar Gíslasonar, í Alþýðublaðinu 12. apríi 1964, en hann segir m.a.: „Það væri að mínum dómi mjög æskilegt að gera tilraun þegar í haust með að hefja kennslu í gagnfræðastigsskólum í Reykjavík fyrr en verið hefur, t.d. um 20. september. En ég mundi vilja leggja áherzlu á, að samtímis því, að hróflað yrði við hinum hefð- bundnu mörkum námstímans, yrði þess freistað að breyta starfstil- högun í skólunum. Fyrst og fremst þurfum við að gera okkur ljóst með gaumgæfilegri atugun á því, hvort skólamir miðli þeirri fræðslu og þeim persónulega þroska, sem ungt nútímafólk þarfn ast — Það þarf samtímis að end- urskoða námsefni barna- og gagn- fræða-, menntaskóla- og sérskóla- stigs í heild, — meta og vega hverju mætti sleppa, hvað nauð- synlegt er að taka og hverju þarf að auka við.“ Félag gagnfræðaskólakennara í Reykjavík leggur áherzlu á, að athuganir þær sem námsstjóri vill láta fram fara, hl.ióti að koma fyrst, samkvæmt þeirri sjálfsögðu reglu, að athugun komi á undan athöfn. Félagið bendir einnig á tillögu fundar skólastjóra héraðs-, mið-, og gagnfræðaskóla sem haldinn var í Reykjavík í júní 1963, en meðal fjölmargra atriða til endur bóta á námstilhögun þessara skóla er stungið upp á no'kkurri leng- ingu hins árlega starfst. eða fjölg- un vikulegra kennslustunda. Virð- ist sízt ástæða til að leggja meira kapp á að framkvæma þennan lið tillagna skólastjóranna en ýmsa aðra, sem vísara verður að telja, að stefni til augljósra endurbóta á starfstilhögun skóla þeirra. Að rækilega athuguðu máli lýs- ir Félag gagnfræðaskólakennara í Reykjavík sig algerlega andvígt lengingu skólaársins, nema fyrst hafi óyggjandi verið sýnt fram á, að slík breyting sé til ótvíræðra bóta fyrir neimendur, fullt tillit sé tekið til þeirrar aðstöðubreyting ar kennara, sem af lengingu hlýzt. Félagið telur svo mörg rök mæla á móti breytingu þessari, bæði fjárhagsleg og félagsleg, að ekki sé gerl'egt'&ð ráðást í hana, nema fullt samkomulag ’ só milli allra málsaðiía. En málsaðilar hljóta hér að tejast foreldrar, fræðslu- yfirvöld og kennarar. Aðalrök forsvarsmanna lenging- arinnar virðast þeessi: 1. Að með lengingu árlegs skóla tíma styttist námstími þeirra, er búa sig undir langskólanám. 2. Námstími í útlöndum og þá sérstaklega á Norðurlöndum, sé lengri, Varðandi fyrri röksemdina má benda á fjölda greinargerða, þar sem stungið er upp á leiðum til að flýta fyrir þeim, sem augljós- lega eru hæfir til langskólanáms. Væri auðvelt að stuðla að því, að þeir tækju stúdentspróf a.m.k. ári fyrr en nú er, með því einfald- lega, að láta nemendur þessa halda þeim hraða gegnum skóla, sem eðlilegur námsþroski þeirra leyfir. Hvað síðari röksemdina snertir, er það skoðun Félags gagnfræða- skólakennara í Reykjavík, að ís- lenzkt skólakerfi beri að miða við íslenzkar aðstæður og fráleitt sé, að miða fjölda skóladaga á Islandi við skóladaga í öðru landi, nema að tekin sé upp að öðru leyti sú fræðslutilhögun, sem í því landi gildir. Eins og áður var á drepið, tel- ur féíagið rök mæla gegn hinni fyrirhuguðu lengingu skólaársins, Þau helztu eru þessi: 1. Fram til þessa hefur það verið talið íslenzkum unglingum heilsufarsleg nauðsyn að njóta úti- veru skamms sumars eftir skóla- setu langan vetur. Slíkt svigrúm til frjálsra starfa mundi þrengj- ast, sem lengingu skólaárs nemur. 2. Það er kunnara, en frá þurfi að segja, að samkvæmt núgildandi kennslutilhögun eiga allir nemend ur skyldunáms að skila svipuðum afköstum í aðalgreinum, án veru legs tillits til mismunandi getu þeirra og þroska. Án þess að hér verði nánar fjallað um þessa firru, skal þess getið, að hún er óefað ein I aðalorsök námsleiða nokkurs hluta nemenda í íslenzkum skól- um. Að öðrum aðstæðum óbreytt- um verður ekki annað ætlað, en j námsleiði þessi mundi aukast við j lengingu skólatíima. 3. Undanfarna áratugi hefur hér j verið næg atvinna á sumrum fyrir ! alla, sem vinna vilja. Svo er enn, í og vonandi verður ekki breyting á því um langan aldur. Þetta hefur þýtt, að sumartekjur skólaæskunn ar hafa orðið henni drjúgar í Pyngju, enda hefur stór hluti námsmanna getað unnið fyrir sér með þessum hætti þegar á unga aldri. Ef þessi aflatími náms- manns er styttur, minnka að sjálf sögðu tmöguleikar hans til að vera frjáls og óháður í námi sínu, og jafnframt er stuðlað að því, að lærdómur sé munaður þeirra ung- menna, sem eiga efnaða að.. 4. í beinu framhaldi af næsta lið hér á undan skal það undirstrik að, að sumarvinna islenzkrar skóla æsku við hin ýmsu framleiðslu- störf til lands og sjávar hefur haft það í för með sér, að þekking þessarar æsku á störfum og kjör um þjóðar sinnar á sér enga hlið stæðu í þeiim löndum, sem okkur er tamast að miða við. Hið félags lega gildi þessa atriðis er ómetan legt, enda hefur það hamlað á árangursrí'kan hátt gegn skiptingu þjóðarinnar í hástéttir og lágstétt ir. 5. Sé það ætlunin að lengja ár- lega skólavist allra nemenda allt að stúdentsprófi, má ætla, að at- vinnuvegum landsmanna yrði það nokkur skellur að missa e.t.v. fjórðung sumarvinnu þessa hóps. Félag gagnfræðaskólakennara i jReykjvík er að sjálfsögðu mótfall- ið taumlausri þrælkun æs'.ufólks. en gerir sér hins vegar fullljóst, að margar árstíimabundnar atvinnu greinar miða við ráðningu skóla- fólks til sumarstarfa. Auðvelt ætti að vera að reikna út, hvert tap þjóðarframleiðslu íslendinga yrði að missi þessara þúsunda frá starfi einn sumarmánuð. 6. Lenging þessi á skólaárinu mundi að líkindum aðeins koma til framkvæmda í Reykjavík, en hér er nú þegar lengra skólaár en víðast hvar annars staðar á landinu. Mundi því bilið enn breikka á milli höfuðstaðarins og landsbyggðarinnar, svo að í óefni væri stefnt. Að lengdu skólaári hér um einn mánuð mundi reykvísk- ur unglingur, sem sendur væri á héraðsskóla, ljúka árlegum náms tíma sínum á allt að tveim mán- uðum skemmri tíma en félagi hans í Reykjavík. Þarf ekki getum að því að leiða, hvílíkt kapphlaup yrði um það að vista ungimenni höfuðborgarinnar í slíkum skólum, og mun þó aðsókn að iieim þegar teljast nóg. 7. Saimsvarandi mismunur myndi að sjálfsögðu einnig gæta í árlegum starfstíma gagnfræða- stigskennara í Reykjavík og úti á landi. 9 mánaða starfstími hér, allt að 2 mánuðum skemmri úti á landi. 8. Að lokum skal á það bent að lenging skólaárs hlýtur að hafa í för með sér stóraukin útgjöld hins opinbera til fræðslumála. Sé fé það, sem til þarf, fyrir hendi, svo sem gera verður ráð fyrir. er álitamál, hvort því er ekki bet- ur varið á annan hátt til endur- >>óta á framkvæmd íslenzkrar ungl ingafræðslu. Félag gagnfræðaskólakennara í Ási á Vingulmörk, 16.9. 1964 Hr. ritstjóri. Tíminn prentaði fyrir einum þremur vikum þýðingu á grein minni í Dagblaðinu í Osló, sem ég kallaði: „Menningarmorð á ís- landi“. Með einni undanteknnigu er þýðingin efnislega rétt. Undir lokin segir: „Þegar hins vegar er um að ræða menningu þjóðarinnar, er hvergi slakað á klónni. Margir spyrja nú, hvort það sé skapgerð- arveila stjórnmálaleiðtoganna, sem veldur þrákelkninni, eða á- kveðin valdamikil öfl í landinu hafa gert bandalag við erlent vald og taki á sig þá áhættu að fórna íslenzkri menningu í þeirra valda- baráttu. Norðmenn vita vel, að slíkt hefur gerzt fyrr í þjóðarsögu. Slíkar landráðahugmyndir eru ekki ótíðar á okkar tímum, og af eðlilegum ástæðum er örðugt að sanna réttmæli þeirra.“ Síðasta málsgreinin var svo orð- uð á norsku: „Slike landsvikan- tydninger er ikke uvanlige i vár tid og de lar sig av naturlige grunner vanskelig pávise.“ Á an- tyde þýðir að gefa í skyn. Rétt þýtt væri því: „Ekki er ótítt á okkar dögum, að gefið sé i skyn, að menn hyggi á landráð, eðlilega er örðugt að sanna réttmæti slíkra aðdróttana" Mér þykir vænt um þær viðtök- ur, sem grein mín fékk í Noregi og heima. Tveir landar hafa þó orðið til að hirta mig fyrir. Guð- mundur vinur minn Jósafatsson frá Austurhlíð skrifar í bréfi: „Af þeirri einföldu ástæðu, að ég efa mjög að aðrir verði til þess að hirta þig fyrir framkomu þína við okkar góða Guðmund í. virðist mér, að ég sé knúður til þess. Sérðu nú ekki hvílík fádæma ó- kind þú ert? Þú rassskellir mann- skömmina í veizlu. Svo flónzkur ertu ekki, að þú skiljir • ekki, að leika hann svona grátt, meira að segja í sparibuxunum, er ekk- ert líkt og þegar íslendingarnir flengdu Lárus H. Bjarnason forð- um. Þeir létu sér nægja að fara með hann inn í húsasund þar sem enginn sá til. Það er ólíkt drengi- legra.“ Morgunblaðinu þykir sorglegt, að ungir og efnilegir menn taki upp háttu kommúnista að rægja land sitt og þjóð. Ég get ekki svarað þeim Guð- mundi og Eykoni öðru vísi en svo: Þeir Norðurlandabúar, sem láta sig varða ísland nokkru, vita að fjöldi íslendinga glápir á amerískt hermannasjónvarp. Við þekkjum viðbrögðin. íslandsvinum finnst þetta ískyggilegt, til skammar, meira að segja djöfulsins forsmán. Sú forsmán verður ekki nema með einu móti aftur tekin. Hitt vissu menn ekki, að langt !frá því allir íslendingar flatmaga jfyrir dátasjónvarpinu, að yfirleitt ; allir þeir, sem láta sig framtíð íslenzkrar menningar miklu skipta, eru kvíðafullir vegna sjónvarps- ins, að þeir, sem stóðu að óhappa- verkinu urðu að beita blekkingu og lygum til að fá sínu framgengt, að sumir þeir, sem ábyrgðina , bera hafa slæma samvizku. Allt ! þetta kom fram í Dagblaðsgrein minni. Norðmenn vita því nú, að j ísland er ekki sokkið enn, þó | þjóðvillingarnir séu margir. Eykon skrifar í Morgunblaðið, að ég hafi látið greiða mér fyrir að skrifa lofgreinina um hina 60. Eftir rúman mánuð er greiðslan ókomin. Ég verð nú að gera gang- skör að því að fá greinina greidda. Upphæðina nota ég svo til að styrkja samtök þeirra, sem berj- ast gegn þjóðvillunni. Ekki veit- ir af. Rjöm Stefánsson. Reykjavík vill að síðustu endur taka það álit sitt, að þörf sé margra endurbóta á fræðslutilhög un barna og unglinga, og flestar þeirra endurbóta þýðingarmeiri en lenging skólaársins.. Félagið er ávallt reiðubúið til samstarfs við fræðsluyfirvöld, bæði bæjar og ríkis, og mun fús- lega gera nánari grein fyrir skoð unum sínum á hinum ýmsu þáttum fræðslumála, ef óskað er. Sá þáttur þeirra mála, sem hér hefur mest verið urr- fjallað, leng ing skólaársins, er að félagsins dómi neikvæður fyrir alla aðila á þessu stigi málsins. Félag gagnfræðaskólakennara í Reykjavík beinir þvi vinsamlegast þeim tilmælum til hæstvirts fræðslumálastjóra, að hann hafi meðal annars þessi sjónarmið í huga, er hann fjallar endanlega um mál þetta. Sigurður Jónsson frá Brún hef- ur sent Tímanum bréf, þar sem hann kvittar fyrir lækkun á út- svari. Einhver hefði sagt að lækkunin mætti ekki minni vera, ' og mun kvittunin eitthvað vera samkvæmt því. Sigurður er nú' nær sextíu og sjö ára og hefur margan galdinn fola setið á sinni ævi. Hann er hins vegar löngu hættur að sitja hesta. Aftur á móti var honum gert að greiða 40122 krónur í opinber gjöld í ár af næturvarðarlaunum. Rúmar sex þúsund kr. verður að taka af launum hans á mánuði, og er þá lítið eftir Gjöldin hafa ver- j ið lækkuð um rúmar fjög- ur þúsund krónur á Sigurði. Sjá- anlega ætlar viðreisnarótemjan að hossa honum nokkuð hastarlega I nauðugum viljugum. Sigurður skrifar kvörtun sína á þessa leið: „Ég undirritaður fékk fyrir nokkrum dögum tilkynningu um lækkun opinberra gjalda minna. Ég trúi því að þau gjöld, sem mér höfðu upphaflega verið út- ; hlutuð hafi tölfræðilega verið for- svaranleg að lögum og þá um leið því líka, að fyrst mér nú var sýndur litur á að taka tillit til fleiri atriða en dauðra talna, at- riða, sem einnig hafa áhrif á greiðsluþol, þá beri að geta þess, og þann verknað þakka ég hér með viðkomandi aðilum, sem sýndu þar mannlund og skilning ásamt hinni dauðu vélrænu, sem upphaflega reiknaði út útsvarið og joft einokar bæði vit og hjartalag ráðamanna einkum við opinber Sstörf og stórfyrirtæki, þar sem !— ókunnugleika og aflsmunar vegna — sjaldnast verður að nokkrum búið eftir efnum og að- ástæðum heldur samkvæmt löng- um fölsuðum skýrslum og skríl- mannlegum framtölum. En betur má ef duga skal. Það er vel gert að létta hröm- andi, hálfgerðum öryrkjum ótta um afkomu sína síðustu misserin, en hitt er enn nauðsynlegra að koma í veg fyrir að auðmenn láti fátæklinga — eða þótt bjargálna- merin séu — bera óeðlilega þunga bagga opinberra gjalda eins og nú reynist, þegar kunnir marg- milljónerar borga meira en fjöru- tíu sinnum minna sumir, nærfellt helmingi iægra en aðrir eða svo til jafnt þeir þriðju og lítið efn- aðir annarra þjónar. Slíkt háttalag framleiðir stór- fjölgandi kynslóðir þjóðfjárþjófa, aukna hundraðstölu gjálífra og gagnslausra „reiðarabarna' og hvers konai óþjóð aðra eKki að- eins þjóðinni heldur beinlinis sjálfum sér til svívirðu. tjóns og kvalar Framhalo a síðu 13 T í M I N N, miSvikodaaur 23. september 1964.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.