Tíminn - 30.09.1964, Page 1
Vatnið sparað — ekkert vatn á bílaþvottastæðunum
MYNDIN hér aS ofan er tekin á stærsta bílaþvottastæði borgarinnar um mesta annatímann, en þar er
ekki nokkur bíll, enda vatnið ekkert, Myndin hér til hliðar er af borhoiunni nýju og dælunni við Gvend-
arbrunna, en hún hefur orðið til að draga úr vatns skortinum. (Tímamynd-GE).
Vatnið er fariö
aö aukast aftur
HF-Reykjavík, 29. september.
Siðustu vikuna hefur vatns-
magnið í Gvendarbrunnum
staðið í stað, og er nú rétt
byrjað að aukast aftur, svo að
ástandið i vatnsmálum Reykja-
víkur virðist vera að batna. Nú
er einnig d-ælt úr aukaborholu,
rétt hjá brunnunum, og borgar
búar hafa lagt vatnsveitunni
mikið Iið, með því áð bregð-
ast vel við tilmælum um að
eyða ekki vatn’i í óhófi. Nú má
búast við rigningu innan
skamms og leystist þetta vanda-
mál þá af sjálfu sér, en nú
hefur verið alvarlegur vatns-
skortur á aðra viku.
Á sunnudaginn var byrjað
að dæla í brunnana úr borholu,
sem er þar rétt hjá. Úr henni
koma um 50 sekúndulítrar af
vatni og hefur það bætt ástand-
ið mikið. Fyrir nokkru voru
boraðar einar 15 holur þarna í
nágrenninu til að athuga
streymi neðanjarðarvatnsins.
Aðeins ein þeirra, sú, sem
er í gangi núna mun verða
virkjuð Síðar er svo ætlunin,
að nota sem mest neðanjarðar
vatn til neyzlu, þar sem brunn-
arnir eru þegar fullnýttir.
Ef alvarlegra ástand skapað-
íst í vatnsmálum borgarinnar,
en nú rfíkir, má alltaf grípa til
þess ráðs, að leiða vatn í
brunnana frá uppsprettunni
við Jaðar. í fyrstu var búizt
við, að svo þyrfti að gera núna,
en sú varð ekki raunin á. Til
að draga úr óhóflegri neyzlu
Hramhalo a ift -ihu
hendingu handritanna!
ANDSTÆÐIN6AR AFHENDINGARINNAR SAFNA FÉ AF MIKLU KAPPI
BG—Reykjavík, 29. sept.
Handritamálið er nú komið aft
| ur mjög á dagskrá, m.a. með shrlf
um danskra blaða, sem segja, að
handritamálið verði eítt fyrsta
verkefni hins nýja þjóðþings Dana
Þá kemur og fram. að andstæð
ingar afhendingarinnar séu reiðn
búnir til að leggja fram miklar
fjárfúlgur til málareksturs fyri.
dómstólum, verði lagafrumvarpið
um afhendinguna, sem samþvkkt
var árið 1901, samþvkkt á nýjan
leik og lögin komi *il fram-
kvæmda. Sé nú tilbúin sérstök
stofnun til að sjá fyrir fjár-
liagshliðinni á þeim málarekstri.
Hér fara á eftir úrdrættir úr
einkaskeyti frá Aðils fréttaritara
Tímans i Kaupmannahöfn og frá
sögn norsku fréttastofunnar NTB
um þetta mál.
I í dag birtir Berliuske APena-
i vis forsíðugrein um nandritamálið
I undir fyrirsögninni: Stofnun reiðu
j búin að verja miklum fjármmum
í í dómsmál. Þá tilfærir Dlaðið um-
I mæli danska kennslumálaráðherr
Framh á 15 síðu
SPRENGIR KÍNA?
Bjarni riddari heitir MNikulás<á
KJ-Reykjavík, 29. sept.
EFTIR tvo tll þrjá daga mun
Nikulás láta úr Reykjavíkurhöfn.
en Bjarna riddara hefur nú ver-
ið gefið nafn að nýju og það
skráð á kinnung skipsins að
griskum hætti. Myndin hér að
ofan var tekin á dögunum i
Reykjavíkurhöfn, og sést á henni
hvernlg Grikkir skrifa nafnið
Nikulás.
NTB-Washington, 29. sept.
DEAN RUSK, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna segir í sérstakri yf
irlýsingu, sem birt var í dag, að
Kínverjar muni gera fyrstu tií-
raun sína með kjarnorkusprengju
ir.nan tíðar.
Bandaríkin munu þegar í stað
fá vitneskju um það, ef slík kjarn
orkusprenging verði framkvæmd
og muni stjórnin þa gefa út yfir-
lýsingu um málið. Rusk bætir við,
að enda þótt slík tiiraun gefi enga
ástæðu til að ætla, að Kína eigi
í fórum sínum birgðir af kjarn-
orkusprengjum, hafi Bandaríkin
gert sér fulla grein fyrir, að Kín-
verjar leggja áherzlu á að komast
í raðir kjarnorkuvelda. Sagði
Rusk, að Bandaríkin hefðu reikn-
að tneð alla tíð, að Kínverjar
myndu afla sér kjarnorkuvopna í
sambandi við herbúnaðaráætlanir
sínar.