Tíminn - 30.09.1964, Side 7
Útgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri Kristián Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb) Andrés Kristiánsson. lón Helgason og Indriði
G Þorsteinsson Fulltrú) ritstiórnar- Tómas Karlsson Frétta
st.ióri Jónas Kristiánsson Auglýsingasti.: Steingrimur Gíslason.
Ritstiórnarskrifstofur i Eddu-húsinu simar 18300—18305 Skrit
stofur Bankastr 7 Afgr.slml 12323 Augl slml 19523 Aðrar
skrifstofur. simi 18300 Askriftargjald kr 90.00 á mán tnnan
lands - t lausasölu kr 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.l.
Hvað er eftir af
„viðreisnarstefnunni‘ ‘?
Sjálfstæðisflokkurinn barðist ssm kunnugt er mjög
barkalega gegn efnahagsmálastefnu vinstri stjórnarinn-
ar og fleiri ríkisstjórna á undan, sem hann átti ekki
þátt í og taldi það stjórnarfar spillt og öfugsnúið.
Ákveðna þætti stjórnarstefnunnar taldi hann þá öðru
íremur óalandi og óferjandi og beina undirrót dýrtíðar-
aukningar og alls konar ófarnaðar. Einkum réðst flokk-
urinn hart á niðurgreiðslur vöruverðs og verðuppbætur
útflutningsvara, afskipti stjórnarvalda af kjaradeilum,
skuldasöfnun við útlönd og opinberar framkvæmdir úti
um land, sem hann kallaði ..pólitíska fjárfestingu“. Þeg-
ar Sjálfstæðisflokkurinn tók svo við ríkisstjórn byggði
hann stefnuna upp fyrst og fremst með það fyrir augum
að afnema þessa ,,spillingu“, og þetta kallaði hann ,,við-
reisnarstefnu“, sem í því væri fólgin að stöðva dýrt’ð-
ina, afnema uppbótarkerfið, varast stjórnarafskipti af
kjaradeilum, hætta skuldasöfnun við útlönd og lækka
skatta og álögur á almenningi.
Nú hefur ríkisstjórnin setið við að framkvæma „við-
reisnarstefnuna“ í fimm ár, og hvernig hefur til tek-
izt um framkvæmd þessarar yfirlýstu viðreisnarstefnu:
Hefur dýrtíðin ekki verið stöðvuð? Hún hefur magn-
azt meira en í tíð nokkurrar annarrar ríkisstjórnar, siðan
„nýsköpunarstjórnin“ leið.
Hefur uppbótarkerfið ekki verið afnumið? Niður-
greiðslur á vöruverði eiga sér nú st.að 1 stórum stíl, lík-
lega meiri en nokkru sinni fyrr, og útflutningsuppbætur
eru nú greiddar á allar helztu útflutningsvörur.
Líklega hefur stjórnin þó ekki skipt sér af kjaradeil-
um? Jú, hún hefur neyðzt til þess að eiga beinan og
óbeinan hlut að samningum hvað eftir annað, meira að
segja gengið svo langt, að forsætisráðherrann skrifaði
undir kjarasamninga við hlið forseta Alþýðusambauds-
ins, og gefið skriflegar yfirlýsingar í sambandi við samn-
inga um búvöruverðið.
En skuldirnar við útlönd, eru þær ekki horfnar? Stað-
reyndin er sú, að þær eru nú hærri en nokkru sinni
fyrr og hafa aukizt stórlega síðan 1958, þótt engin stór-
virki, svo sem raforkuver eða verksmiðja hafi verið
gerð, og á þessu ári er viðskiptajöfnuður orðinn mjög
óhagstæður þrátt fyrir uppgripa afla- met í útflutoingi
og hækkandi verð á söluvörum okkar
En „pólitíska fjárfestinginí'? Þar hefur sljórmn þumb
azt einna lengst við, en nú hefur hun orðið að láta und-
an síga og verið er að undirbúa nokkra opínbera fjár-
festingu í síldariðnaði úti á landi.
Og nú hljóta menn að spyrja? Hvað er þá orðið eftir
af ,.viðreisnarstefnunni?“ Stjórnin hefur nú beinlínis
neyðzt til þess að taka upp allt það, sem hún fordærndi
mest og kvaðst mundi afnema. Og hún hefur misst tök
á dýrtíðinni og hækkað skuldir við útlönd Hún er nú
farin að stjórna að miklu leyti gegn hinni upphaflegu
,, viðr eisnar stef nu “,
En það er eitt, sem hefur tekizt, bó að bað væri ekki
opinber stefnuyfirlýsing. Stjórninni hefur tekizt með
okurvaxtapólitík og sérstakri skattránsstefnu í skjóli
blekkinga að margfalda álögur á almenningi færa skat.ta
byrðarnar af gróðamönnum og auðjöfrum ytir á herðar
hins almenna borgara og styðja mest.u gróðamenn
landsins til enn meiri auðsöfnunar. Henni hefur íekizt að
gróðursetja á ný hatrama íhaldsstefnu. sem áðnr hafði
verið að nokkru upprætt. Það er líka sú „viðreisn* sem
bún taldi einhverju máli skipta.
Þórarinn Þórarinsson:
Elzta höf uöborg Rússlands
RÚSSAVELDI hefur haft
þrjár höfuðborgir um dagana,
Kiev, Moskvu og Leningrad.
Kiev var fyrsta höfuðborgin og
er langelzt þessara borga Því
kemur aðkomumanni á óvart,
að hún er langsamlega ungleg-
ust þeirra að útliti. Ástiyð
an er sú, að Þjóðverjar löpðu
hana að mestu í rústir, þegar
þeir voru hraktir þaðan í stríðs
lokin. Á undanhaldi sínu
reyndu Þjóðverjar að evði-
leggja allt, sem þeir gátu í
Sovétríkjunum, m.a. til að tefja
eftirför Rússa. Þó mun Kiev
hafa verið einna verst leikin.
Nær strax éftir stvrjöMina
hófust Úkraníumenn handa um
að byggja höfuðborg sína að
nýju. Þeir byggðu helztu Ir.rki-
ur og aðrar sögulegar stórbygg
ingar upp í sama stíl og áöur,
;n oreyttu að öðru leyti öllu
ikipulagi og útliti boigarinn-
ar. í mið'oorginni voru bvggð-
ir -miklar stórbyggingar, götur
nafðar mjög breiðar, trjágróðri
og blómareitum ætlað gott
•ými meðfram þeim, og víða
komið fyrir smekklegum görð
um eða opnum svæðum. Kiev
er því að dó-mi flestra erlendra
ferðamanna fallegasta stór-
borg Sovétríkjanna í dag, og
jafnframt sú borgin, þar sem
íbúunum fjölgar einna mest,
næst Moskvu. Það mun ekki
langt þangað til, að þar verða
| tvær milljónir íbúa. í úthverf-
um borgarinnar er nú byggt
mikið, jafnframt þvi, sem verið
er að reisa alveg. nv 'borgar-
hverfi. Nokkur þeirra er verið
að byggja austan Dnjepr en
áður var borgin öll vestan meg-
in.
KIEV á Dnjeprfljótinu ”PP
runa sinn að þakka. Það var
mikil samgönguleið fyrr á öld
um og er raunar enn. Kiev reis
upp á hæðum, vestan megin
fljótsins, þar sem gott þótti til
varnar og eftirlits með ferðum.
í byrjun áttundu aldar fara
sögur af henni sem allmiklu-m
verzlunarstað, en þá lá þar um
helzta verzlunarleiðin milli
Eystrasalts og Svartahafs. Það
var um þetta leyti, er sænskir
víkingar stofnsettu fyrsta ríkið
í Rússlandi í Novgorod, en mið
stöð þess fluttist til Kiev
nokkru fyrir aldamótin 900. Síð
an var Kiev höfuðborg Rúss
lands á fjórðu öld, eðf til 240
er Tatarar komu að austan og
lögðu hana og allan suðurhluta
Rússlands undir sig. Þeir lögðu
Kiev að mestu í rústir. Rúm-
lega 100 árum síðar féll Kiev
undir yfirráð Litháa og síðan
Pólverja. Á siðari hluía 1? ald
ar varð Kiev fyrst rússnesk aft
ur og var um skeið höfuðborg
kósakkaríkis, er heyrði undir
Rússaveldi. Síðar hvarf þetta
ríki alveg ínn i Rússaveldi, en
Kiev hélt stöðu sinni sem aðal-
borg hins rússneska hluta
Úkraníu. Borgin rétti mikið við
á 18. og 19. öld og eru t.d.
ýmsai merkar stórbyggingar
frá þessum tíma. aðallega þó
kirkjur Fyrst eftir byltinguna
virtist Kiev ætla að missa sögu
lega stöðu sína, því að Kharkov
var þá gerð höfuðborp Úkran
íulýðveldisins. Árið 1934 var
þessu breytt og Kiev gerð höf |
uðborg að nýju. Eftir styrjöld i
ina hefur Kiev bé fyrrt eidui
heimt hina fornu sög’degu
forustu sína. Borgin er nú ekki
aðeins aðsetur fyrir stjórn
Ukraníu, heldur miðstöð fyrir
margþætta mennta og vísinda-
starfsemi og mikinn og vax-
andi iðnað. Hvarvetna sjást
þar merki um mikla uppbygg
ingu. Lítið dæmi um það, er
hin nýja neðanjarðarbraut, sem
að vísu er ekki erns íburðar-
mikil og neðanjarðarbrautin í
Moskvu, en hins vegar m’ög
vistleg og smekkleg og hefur
það m. a. sér til frægðar, að þai
er að finna dýpstu nsðanjarð
arstöð sem til er.
BLÓMATÍÐ Kiev til forna
var ellefta öldin. Þá var Kiev
höfuðborg í mjög víðlendu ríki
Frá þeim tíma er að finna
merkar sögulegar minjar i
Kiev, Kristni var' lögtekin þar
um líkt leyti og á 18137101. Þá
verandi stórfursti i K.ev,
Vladimir, hafði verið mjög
slarkfengmn í uppvextinnm og
mikill harðstjóri. en gerðist trú
hneigðui með aidrinum. Um
skeið hugðist hann gerast
Muhameðstrúar, því að honum
leizt ekki illa á .jölkvætn en
féll þó frá þessu ráði, þegar
það fylgdi með að mega hvorki
neita víns né svínakjöts Hann
gerðist þá kristinnar 'úa: oe
lét skíra alla borgaröúa '•ama
daginn - Jnjepr Höfðingjarnii
fylgdu fljótt fordæmi furstans
og kepptust við að byggja kirkj
ur og er talið að næstu áratug
ina hafi verið byggðar 400
kirkjur i Kiev. Kiev varð heizta
kirkjulega miðstöðin í Rúss-
landi og ýtti það mjög undir
áhrif hennar. Mestur mun veg
ur borgarinnar hafa orðið í tíð
Jaroslavs, sem var einn af tólf
sonum Vladimirs, en þeir börð
ust um völdin, unz allir voru
fallnir, nema Jaroslav. Hann
færði út ríkið og setti aý íög,
sem um margt líktust foinnor
rænum lögum. Við fráfall sitt
skipti hann ríkinu meðal fimm
sona sinna, þótt einn héldi
aðalforustunni, en þetta leiddi
síðar til upplausnar og tog-
streitu sem gerði ’-íkið of veikt
og sundurþykkt til að mæta vax
andi ágangi þjóðflokka, sem
sóttu á að austan. Árið 1240
lögðu Tatarar Kiev undir sig og
eyðilögðu að mestu, eins og áð
ur segir. Áhrif Kiev héldust
þó nokkra stund enn, eða á með
an yfirmaður rússnesku kirkj
unnar hafði aðsetur þar. Þegar
hann flutti til Moskvu 1320
náði Moskva fyrst forustunni
sem hin nýja höfuðborg Rúss-
lands. Mcðan vegur Kiev var
mestur, var Moskva lítt þeKkt
smáborg.
EINN merkasti sögulegi stað
urinn í Kiev er Pechersky-
klaustrið, sem var stofnsett af
Vladimir stórfursta í byrjun
11. aldai og er hann gra’inn í
einni af kirkjum þess,
Klausturbyggingarnar na yfir
stórt svæði og eru sumar þeirra
frægar fyrir stíl sinn Þetta var
Framnaic a öðo -.i
Þættir frá Sovétríkjunum
T í M I N N , miðvikudaglnn 30. september 1964