Tíminn - 04.10.1964, Qupperneq 3
ISPEGLITIMANS
Myndiin er af forsíðuteikningu á nýrri bók eftir hinn vinsæla
danska skáldsagnahöfund Ib Henrik Cavling og kallast hún
„Júdasarkossinin“, en forstjóri nokkur, John Andersen að nafni,
reynir nú hvað han getur til þess að fá prentun kápunnar stöð-
vaða. Hainn er nefnilega síður en svo hrifin af því, að nakta konan
á myndinni er ongin önnur en konan hans!
Forsaga þessa máls er sú, að konan hans, Inge LeVin, sem er
bæði sýningarstúlka og Ijósmyndafyrirsæta, var beðin um að
láta taka mynd'ir af sér fyrir aulýsigafyrirtæki eitt, og skyldu
þær myndir hafðar til hliðsjónar þegar káputeikningin á nýjustu
bók Cavlings yrði gcrð. Myndirnar voru síðan tckmar bæði í létt-
um sumarkjól og bikini. Síðan gerði teiknarinn sér lítið fyrir
og teiknaði þessa mynd, sem líkist henni það mikið, að enginn
vafi er á því hver fyrirmyndin er. Þetta vill hvorki Inge né mað
ur hennar sætta sig við, og munu nú fara lagaleiðina til þess að
fá útgáfu káputnnar stöðvaða.
Scotland Yard og aðrar lög-
regludeildir í Brctlandi fá til
meðferðar á hverju ári um 800
morð og drápsmál. Þetta þykir
vafalaust meira en nóg, en
hvað segja menn þá, þegar
margir lialda því fram að raun
verulega séu framin árlega
sex sinnum fleiri morð og
dráp í Bretlandi, eða um 5000
og að aðcins um 800 af þeim
komist í hcndur lögrcglunnar?
Glæpasérfræðingar í Bret-
landi héldu þessu fram nýlega,
og flestir telja, að þeir hafi
rétt fyrir sér, m.a. hefur brezki
innanríkismálaráðh. Henry
Brooke, þegar skipað nefnd.
sem gera á tillögur eins fljótt
og mögulegt er um, á hvern
hátt hægt sé að afhjúpa þenn
an mikla fjölda „fullkominna
glæpa.“
Það mun aðallega vera ' æg-
ast sagt lélegt eftirlit með
dauðaorsökum, sem veldur því,
að svona mikill fjöldi morða
kemst aldrci í hendur yfirvald
anna. Samkvæmt upplýsingum
brezka Iæknasambandsins. eru
árlega gefin út rúmlega 100.000
dauðavottorð án þess ?ð hinn
látni sé rannsakaður
Brezku yfirvöldin munu nú
grípa til ýmissa aðgerða til
þess að bæta úr þessu ástandi,
m.a. herða mjög reglurnar um
rannsókn og krufn/ngu líka
Rómversk-katólska kirkjan
hefur mú fcngið sína fyrstu
afrísku dýrlinga. Þessir dýr-
lingar eru 22 að tölu og áttu
hcima í Uganda. Þeir voru
drepnir af höfðingja nokkrum
árin 1885—1887 eftir að þeir
höfðu tekið kristni.
Þau tvö kraftaverk, sem róm-
verzk-katólska kirkjan krefst
til þess að menui séu gerðið að
dýrlingum, áttu sér stað árið
1941, þegar tvær evrópskar
nunnur lifðu af farsótt eina á
sjúkrahúsi í Rubaga, en Iækn-
un þeirra er talið verk himna
22 látnu Ugandamanna.
SIR EDMUND IIILLARY, sá
sem fyrstur sigraði Mont Ev-
erest, er cnn á ný að klifra í
Everest-fjallgarðinum. Að
þcssu sinni er hann með 21
manns Iciðangur og ætlar að
sigrast á Mount Tamaserku,
sem er 6512 mctrar á hæð og
hefur aldrei verið klifið áður
Nýlega fór fram í Tokyo brúðkaup Yoshi prins og Hanako Tsugaru, en prinsinn er yngri bróð-
ir japanska kcisaraus. Brúðkaupið fór fram eftir ströngustu reglum, sem urn keisaraleg brúð-
kaup gilda þar í landi, og á myndinni sjáum við brúðhjónin í brúðarklæðum sínum, sem virð
ast nokkuð þung í vöfum.
r'jnnnl
if 'IJMÍ
!L
. . •:.!
Á myndiumi sjáum við nýjustu stjörnuna í Bandaríkjunum,
Elizabeth Ashley, 24 ára gamla. Hún hefur verið leikkona í fimm
ár, en fyrst á þessu ári sló hún í gegn. Fyrst lék hún aukahlut-
verk í The Carpetbaggers, en svo fékk hún stórt hlutverk i
„Ship of Fools“, og myndiin hér að ofan er einmitt tekin af
einu villtu dansatriði í þeirri mynd. Elizabeth hafði skrifað
undir samning um að halda áfram að leika í „Barefoot in the
Park“, sem nú er sýnt á Broadway og náð hefur geysimiklum
vinsældum. En þá kom ástin inn í spilið. Hennar heittelskaði
þessa r-tundina dvelur við kvikmyndatöku i London og hún gat
ekki hugsað sér að dvelja lengi fjarri honum. Þess vegna keypti
hún sig út úr samningnum og varð í því sambandj að greiða
35.000 $. En það fiiwiast henni vera smápeningar þegar um ástina
er að ræða!
Það er mjög vinsælt i hverj
um kosniingum, að birta myndir
af flokksforingjum og ráð-
herrum þegar þeir greiða at
kvæði sitt En brezkir íhalds-
mcnn geta þó ekki gert það
að þessu sinni, vegna þess, að
Sir Alec Douglas-Home, for-
sætisráðherra, gleymdi að Iáta
'krá sig á kjörskrá!
Eins og kumiugt er, afsalaði
Sir Alec sér jarlstign sinni, en
sem slíkur hafði hann þá ekki
atkvæðisrétt við kosningar til
ueðri deildar. Og hann hrein
lega gleymdi að láta skrá sig
þegar hann varð venjulegur
borgari. Þetta hefur þó engin
áhrif á rétt hans til þess að
bjóða sig fram til þingsins.
því samkvæmt brezkum lög-
um þarf þingmaður ekki að
hafa atkvæðisrétt.
M I N tinnudagur 4. október 1964.
3