Tíminn - 04.10.1964, Side 9

Tíminn - 04.10.1964, Side 9
hafði lækkað í áhni og fannst okk ur það strax í rétta átt. Ekkert gátum við kannað ána um kvöld- ið, því að báturinn varð ekki til- búinn og litli báturinn ekki fær i stóra álinn. Nú voru þrír menn með vöðlur til að geta kannað botninn betur, en það varð að bíða næsta dags, því að ekki þótti ráðlegt að hafa ekki bát við hend- ina, er farið yrði að vaða. Næsta morgun var enn haldið áfram bátasmíðinni og voru þeir fremst- ir við það, Guðmundur Jónasson, foringi fararinnar og Hallgrímur Jónasson kennarí. Fyrst um klukk an 10 var farið að kanna og þrír menn sendir í ána á víð og dreif, og var Egill Kristbjörnsson fyrir þeim. Þeir óðu nú þarna fram og aftur og líka nokkru neðar en við Halldór höfðum áætlað bezta vaðið, enda reyndist dýpið öllu meita þar. Stundum fengu þeir bátinn með sér og héldu þá í borðstokkinn þar sem dýpið var mest, því þar var straumþunginn meiri. Eftir hér um bil tveggja stunda athugun var tekin ákvörðun um að reyna að komast yfir á bílnum og völdu þeir sama staðinn og við höfðum talið líklegastan í fyrri ferðinni var nú stóri bíllinn út- búinn fyrir köfun, breitt eitthvað utan með vélinní og púströrið leitt upp með pallinum. Nú voru send- ir tveir menn á undan á bátnum til að reyna að ná myndum og þá hófst ferðin yfir. Guðmundur var seztur við stýrið, hin stóra stund var upprunnin, skyldi þeim heppnast að komast yfir? Það var töluvert í húfi, tæki voru ekki við hendina til að draga bílínn upp úr, ef hann festi sig, eða ylti um koll. Líka var mest af fólkinu á palli bílsins og var þetta töluvert áhrifa mikil sjón fyrir okkur sem komnir vorum yfir og næstum of áhrifamikil sjón fyrir okkur, sem að ætlast til að víð næðum góðum myndum, því við vildum helzt ekki missa af einu augnabliki. Ekki var hægt að aka neitt undan að ráði. því að staðan var þannig. En er út á klöppina kom var nauðsyn- legt að halda dálítið í strauminn, enda var þar nokkru grynnra eins og áður er getið. Svo var það állinn við norðurlandið, hann varð að fara beínt og var hann einna dýpstur. En þetta gekk allt saman vel, bíllinn seig áfram hægt og gætilega og þar sem dýpið var | mest fór vélin næstum í kaf og vatnið braut á pallbrúninni. En nú vorum við komnir yfir og draumurinn orðinn að veruleika. Það var mögulegt að fara á bíl yfir Tungnaá. Og nú var glatt á hjalla þarna á eyrinni á meðan verið var að færa bílinn úr og setja á víftureimina. Velkominn yfir Guðmundur og til hamingju með sigurinn. Bíll- I inn fékk líka sína viðurkenningu, : hann hafði heldur ekki brugðizt! vonum okkar. Var því næst ekið : upp Hesttorfuna og tekin stefna ! inn á Búðarháls. Það væri gaman j úr því að við vorum komin yfir að bregða okkur inn á háháls og litast um. Verst að skyggni var ekki nærri gott. Þok- an byrgði allt útsýni inn eftir afréttinum. Það var haft á orði að fara alla leið að Dynk, innri fossinum í Þjórsá á þessum slóðum. En bæði var það að töluverður snjór var. er upp á Höfundur þessarar greinar er Guðlaug- ur lárusson, sem var með í fvrstu ferðinni vfir Tunenaá Hálsinn kom og hafði hann dreg- ið í skafla víða og skafið í gil og skoru'-. Svo var hitt að þokan va | svo dimm að lítið var að sjá. Þó var allgott skyggni suður til Heklufjalla og Loðmundar og Kirkjufells og allt austur á Sveins tind að við héldum. Áður en við yfirgáfum hæðina, sem við höfðum valið okkur til að skyggnast ofurlítið út yfir öræfin, þá birtust Hágöngur allt í einu augnablik, gamlir kunningjar frá fyrri tímum, þegar maður var að leita kínda þar á nálægum slóð- um. En nú var eftir að komast aftur suður yfir. Ókum við nú sömu leið niður Hálsinn. Það má heita ágætur vegur mest af leið- inni og víða brautir eftir bíla frá árinu áður og líka allskírar götur eftir fyrri tíma leitarmenn. Við bjuggum nú bílinn út eins og áð- ur og reyndum að þræða sömu leíð yfir ána. Það gekk vel eins og fyrra skiptið og náðum við heilu og höldnu í tjaldstað. Það fór nú að kvisast manna á meðal þarna í tjöldunum á með- an við vorum að borða, að mein- ingin væri að bregða sér í Hrafn- tinnuhraun austur undir Kalda- klofsjökul. Það var nú kominn það mikill snjór á öræfin, að ekki var víst að fært væri þangað. Víða á þeirri leið eru brattar brekkur og djúpir skorningar, eins og þeir vita sem farið hafa þar um og sums staðar tæpur vegur líka. Var nú báturinn fluttur á bíln um upp í Hald að flutningnum og gengið frá honum eins og áður og haldið þaðan suður Fitina og Leirdalinn á enda. Við Rigmar og Halldór vorum í stóra bílnum eins og í fyrrí ferðinni og var hann á undan. Nú heyrðum við hljóð- merki frá Vodsinum, sem hafði stanzað nokkru innar. Við héld- um nú að eitthvað væri að og fór- um að ráðgera að snúa við til að- stoðar. Þegar þeir allt í einu beygðu til vinstri út af brautinni ''g tóku stefnu beint austur á ör- æfin neðan Valafells. Seinna fréttum við að þegar Guðmundur nam staðgr hafði hann orð á því að sér virtist sem hann sæi menn við Áfangagil. Og á meðan félagar hans voru að rýna þangað til að reyna að koma auga á þessa menn þá var Guð- mundur efalaust að skima athugul um augum austur yfir hraunið til að finna nýja og styttri leið eins og hans var von og vísa. Þetta munaði okkur töluverðu á tíma, því annars hefðum við orðið að fara alla leið niður fyrir Rangár- botna á fjallabaksleið. Okkur gekk vel þessa nýju leið og var stóri bíllinn ýmist á undan eða eftir og stundum fóru þeir Guðmundur og Halldór sitt hvora leið. Þeir virtust þekkja veginn vel og geta farið ýmsar leiðir ef þeim sýndist svo. Þegar víð komum austur á móts við Rauðufossa var farið að bregða birtu allverulega. Við höfðum orð ið síðbúnir frá ánni, enda eytt um fjórum stundum innan árinnar. Heldur fannst mér óhugsanlega bratt þarna á köflum og tæpur vegurinn sums staðar. Svarta þoka var á annað veifið og gerði það leiðina töluvert ægilegri í augum okkar sem ekki höfðum farið þetta áður. Við urðum að aka upp snarbrött fjöll og svo aftur nið- ur hinum megin. Mér varð oft á að hugsa, skyldu bílarnir draga hér upp aftur, því töluverður i snjór var víða og urðum við að sniðskera upp bröttustu fjöllin, þar sem brautin annars lá beint upp. Við vildum ekki fara að setja á keðjur fyrr en í síðustu lög. Sérstaklega fannst mér teflt í tví sýnu er við stungum okkur niður af Litla Höfðanum í 1000 m. hæð í svarta þoku, því þá var líka orð- ið fulldimmt. Annars var tungl í fyllingu og dásamlega fagurt er við komum niður úr þokunní, því léttskýjað var og stafalogn. Þetta fer nú að styttast svaraði Halldór ætíð, er við vorum að spyrja hvað langt væri eftir. Þarna ókum við yfií Markárfljót og var það furðu vatnslítið, enda nálægt upptökum þess. Það eru víst nokkra kvíslar, sem koma þarna upp á hverasvæðinu norð- an Hrafntinnuhrauns. Loks vorum við komin á staðinn, þar sem vænta mátti Hrafntinnu og var þá kl. orðin um 9. Það fór nú að glitta í stein hér og þar, og lýstum við hrúgurnar upp með bílaljósunum. Nú áttí að ganga greiðlega að hlaða bílinn, því nóg- ur mannafli var fyrir hendi og höfðu þeir áldrei áður haft svo marga menn í vinnu á þessum slóðum. Það væri líka í fyrsta sinn að stúlka hefði farið með í slíkan leiðangur. Rigmor var því fyrsta og eina stúlkan sem hafði farið Tungnaá á bíl. Það var ekkí svo lítið varið í að bregða sér í Hrafntinnuhraun og taka þátt í að hlaða bílinn í tungls ljósi og ævintýraljóma, því tinnu- hrúgurnar lýstu einkennilega í mánaskininu og einnig þegar bíla- ljósunum var beint á þær. Rigmor hafði a.m.k. aldrei upp- lifað neitt þessu líkt, því það var eins og eitthvert ótrúlegt og heill- andí ævintýri. Um kl. 10. vorum við búin að hlaða bílinn. Það varð líka að velja steina. Það var ekki nóg að þeir væru svartir og glampaði á þá í tungsljósinu. Það þurfti helzt að skoða innan í þá og heyra í þeim hljóðið, þeir urðu að hafa réttan hljóm, til þess að óhætt væri að treysta því að þeir væru 90% gler. Þetta sagði mér Guðm., sem búinn er að fara margar ferð- ir þarna Inn eftir og veit hvað hann er að gera. Þessu næst var fyrir honum 6 tíma ferð í nætur- húminu til að komast heim. Ekki settum við á keðjur, en treystum á kraft bílanna. Aðalhættan var við kvíslar Markarfljóts, þar var dálítil bleyta og niðurgrafið á köflum. „Ég fer á undan," sagði Guðm., sem stýrði 10 manna Vodginum og trukkurinn okkar skreið á eft- ir, nú orðinn nokkuð þungur á sér. En hann svamlaði yfir það án þess að taka sýnílega nærri sér. Nú var Vodginn aftur orðinn á eftir og nú stopp í alvöru, því nú hafði sprungið slanga og varð að skipta um hjólbarða. Við notuð um tímann á meðan til að horfa út yfir öræfin böðuð í mánaskini og stjörnuljóma. Það var ekki margt sem truflaði hrifinú áhorf- anda í þéssari snævi þöktu auðn. Kyrrðin var eitthvað svo djúp og heíllandi. Á vinstri hönd gnæfði Hrafntinnuhraun dökkleitt og dularfullt í tupglskininu, en á hina sást óljóst til Hverasvæðis- ins á Reykjadölum þar sem gufu- strókar af ýmsum stærðum teygðu sig upp í þessa hljóðu mánabjörtu öræfanótt. Það vildi vera dálitlum erfiðleikum bundið á köflum að komast upp úr smá kvíslum og lækjardrógum ef brekka tók við, því blautur snjórinn gerði braut- ina hála, en það tókst alltaf við aðra og þriðju tilraun. Upp Höfð- ann var reglulega gaman að sitja í stóra bílnum, hann fór ekki sér- lega hart, en hann færðist örugg- lega upp á við. Halldór sagði mér að í fyrra sumar, er hann var á heimleið á þessum sömu slóðum 1 með hlass á bílnum, þá hafði hann orðið að hjálpa þarna upp stórum vörubíl, sem líka var hlaðinn, en sem að vísu var í gangi, en dróg ekki upp á eigin spýtur. Enda er þetta einhver mesta brekka sem um er að ræða á þessari leið. Eftir að ég heyrði þetta, var ég ekkert hræddur um það lengur að við hefðum ekki upp. Bíllinn virtist heldur ekki taka sérlega nærri sér, jafnvel þó að snjórinn hlyti að gera honum erfiðara fyr- ir. Svo fór þá bráðlega að halla undan fæti og aðalerfiðið var í ., ■ .Gt-y'--:' Halldór er hér í fylgd með danskri konu, sem var með í ferðinni, en 1 þau standa við bátinn, sem notaður var til þess að kanna ána. ..... ...____________________ Bíllinn á leið norður vfi»- Tunanaá. Og hér er Hávarður kominn vfir, en það er nafn gamla Fordbílsins. Á Brúarhálsi. því fólgið að halda sér vakandi. Ökumennirnir höfðu a.m.k. ekki tíma til að sofa, það gerði minna til með okkur hin. Ferðin heim gekk eins og í sögu, það var aldrei minnzt á að stanza til að fá sér bita, það var víst ekki tími til þess, aðeins í Rangár- botnum var numið staðar andar tak og ég vissi til þess að sumir T í M I N N, sonnudagur 4. október 1964. — fengu sér þar tært uppsprettuvatn að drekka. í Skarði urðum við a? vekja upp tíl að fá benzín, þvi leiðin hafði orðið dálítið frek á því eins og gefur að skilja. Um kl. 4. síðla nætur náðum við heirs furðu hress eftir aila þessa löngu leið og auðvitað glöð og ánægð með svona velheppnaða og sögu lega ferð. §

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.