Tíminn - 18.10.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.10.1964, Blaðsíða 2
2_ r TfllVSBNN SUNNUDAGUR 18. október 1964 ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Bindindissamtök kristinna safnaöa Það finnst sumum fjarstæða, að kirkjan sé að vafsast í ein- hverjum veraldarmálum, eins og það er stundum orðað. Hún eígi fyrst og fremst að efla eilífðarvitund mannshjartans og sáluhjálp. Það þykir því sjálfsagt ein- liverjum víxlspor, að bindind- isstarfsemi þjóðarinnar sé sér- staklega minnst í kirkjum landsins og söfnuðir, já helzt hver einasti söfnuður í land- inu eigi sinn bindindisdag, sem helgaður sé baráttunni við áfengisbölið í landinu. Vafa- laust verður þá rifjað upp, að jafnvel Kristur sjálfur hafi ekki verið bindindismaður, og setningín fræga, sem á að vera úr biblíunni, en er reynd- ar röng tilvitnun í skáldsög- unni „Manni og konu,“ að hóflega drukkið vín gleðji mannsins hjarta verður á hvers manns vörum. En sannleikurinn er sá, að hér á landi verður naumast barizt gegn hinu illa í heimi hér, nema setja áfengisnautn og víndrykkju landsmanna efst á lista yfir óvinina. Og ætti ég að nefna þann djöful, sem stærstu og mestu böli veldur jafnt í sálum og samfélagi ís- lendinga, þá mundi ég án um- hugsunar, og þó eftir margra ára reynslu við samfélagsstörf nefna: Áfengið. Það er orsök flestra hjóna- skilnaða. Það er meginþáttur fjár- svika. Það er aðalástæða allra slysa. Það er uppspretta flestra glæpa. Það er frumþáttur í afbrot- um barna og unglinga. Það eyðileggur hjörtun og heímilin. Það étur upp persónuleika mannsvitundar. Það ærir hugsun, drepur til- finningu og slævir viljann. Það breytir gleði og ást í harma og hatur. Það gerir góða og glæsilega manneskju að viðbjóðslegu villidýri. Enginn mundi með rökum geta neitað þessum tíu full- yrðingum. En samt er líkt og kirkjan dragi það við sig að ganga til liðs við þau öfl, sem berjast gegn áfengisbölinu. Samt getur það dóms- og menntamálaráðuneyti, sem ver hundruð milljónum kr. árlega að sjálfsögðu í að byggja skóla, launa fræðara og stunda vis- indi og efla löggæzlu, dauf- heyrzt ár eftir ár við því að loka áfengisverzlun íslenzka ríkisins!! um stuttan tíma til þess að unnt væri að athuga og rannsaka á vísindalegan hátt áhrif og orsakir áfengis- nautnar í landinu. Og þetta gerist eða öllu heldur gerist ekki á sama tíma sem beitt er alls konar smá- munasemi um heilsugát og slysahættu, t.d. þegar ekki má kenna í stórum hluta nýrra og fallegra húsa af því að þar sé ekki lögleg!! hæð undir loft eða eitthvað þessháttar eða kömrum ekki rétt fyrir kom- ið. Geta ekki allir séð fávizkuna og skilningsleysið í þessu? Það er líkast því að lambi væri slátrað af því, að það gæti hnubbað barnið, en tígrisdýr látið ganga laust af því að það gæti tætt barnið sundur. Það er því full ástæða til fyrir kirkjuna og prestana og kristni landsins yfirleitt að skera upp herör gegn ósóm- anum, ekki gegn fólkinu eða fórnardýrum áfengisins og ásaka þar og skammast, lítils- virða og fyrirlíta. Það bætir engan. Heldur til að bjarga því sem bjargað verður, þótt ekki væri annað en eyma- snepill lambsins úr gini óvætt- arins. Til að leíta hins týnda og frelsa það. Þar er sannar- lega gengið á hólm við anda- verur vonzkunnar í himin- geimnum og barizt við illa anda eins og Kristur gerði. Og í andstöðunni gegn áfenginu er áreiðanlega andi hans að verki. En þar þarf líka að bírtast kraftur hans, sann- leiki og frelsisást. Bindindissamtök kristinna safnaða eru nú samtök þess- arar starfsemi, án allra heita og þvingana, sem gerir stúku- starf óvinsælt. Og nú vilja þessi nýstofnuðu samtök fara að dæmi annarra menningarþjóða t.d. frændþjóðanna á Norður- löndum og gera sitt tíl að stemma á að ósi. Fyrst og fremst með áróðri og vakandi vissu og íhugun þess, sem skilur hættuna, en flýtur ekki sofandi að feigðar- ósi eins og stjórnmálamenn og stjórnendur hafa yfirleitt gjört til þessa á þessu sviði. Þar næst með því að efla markvisst bindindisstarf eink- um meðal unga fólksins, stofna barnastúkur og ungtemplara- félög innan safnaða með starfs miðstöð við safnararheimili kirknanna og styðja slík sam- tök þar sem þau eru fyrir. Þá með því að hafa bind- indisdag árlega eða oftar við kirkjuna, þar sem orð og at- hafnir veki tíl íhugunar og átaka í þessu vandamáli. Og að síðustu það sem gæti einnig verið fyrst, með því að veita stuðning þeim fórnardýr um drykkjuskaparins, sem á einhvern hátt væri unnt að bjarga bæði með ráðum og dáð. En það er erfitt og marg- þætt starf, eins og áfengisflóð- ið er nú í stöðugri aukningu. Eirðarlaust fólk, einmana og rótslitið, munaðarlaus börn, drykkjusjúklingar, rangnefnd- ar skemmtanir, niðurbrotin heimili eru líkt og eftir sprengjuárás víðsvegar um borg og bæi. En ekki tjáir að gefast upp né leggja árar í bát þótt við ofurefli sé að etja. Það sæmír að minnsta kosti ekki kristinni kirkju, sem tel- ur meira að segja og með réttu að hún eigi að bæta úr hverju böli. En þarna tjáir engin kyrr- seta og kredduþvarg. Það tjáir lítið að kunna trúarjátningu, boðorð og kærleiksboðorð, ef framkvæmdir sjást hvergi. Hér dugir engin skrifstofuspeki og spekulantar með alla sína út- reikninga meðan bærinn brennur eða barnið drukknar Hér dugir aðeins að bregða snart við og stinga sér með fórnarlund og sjálfsgleými hins kristna kærleiksríka manns eftir drukknandí barn- inu, sem hefur dottið í djúp- ið. Engin predikun, engin játn ing, engin orS, heldur átök upp á líf og dauða. Heill þeim söfnuðum, heíll þeirri kirkju, sem þarna skilur hlutverk sitt. Þar fylgir blessun Guðs. Árelíus Níelsson. Sunnudagur 18. október. 1.30 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir og itdráttur úr forustugreinum dag- ilaðanna. 9.20 Morguntónleikar. 11. 10 Messa í Neskirkju. Prestur: Séra, Srímur Grímsson. Organleikari: fón ísleifsson. 12.15 Hádegisútvarp. :4.00 Miðdegistónleikar. 15.30 Sunnu lagslögin. 16.30 Guðsþjónusta Fíla- lelflusafnaðarins i útvarpssal. Ás- nundur Eiríksson prédikar. Kór iafnaðarins syngur undir stjórn íma Arinbjarnarsonar. Einsöngvari ;r Hafliði Guðjónsson. 17.30 Barna tími (Skeggi Ásbjarnarson). 18.30 ,Fuglinn i fjörunni": Gömlu lögin iungin og leikin. 19.30 Fréttir. 20.00 Aðeins einu sinni": Lög úr kvik nyndum. — Þýzkir listamenn flytja. 20.10 „Við fjallavötnin fagurblá": Sigurjón Rist talar um Þórisvatn og itbrigði íslenzkra vatna. 20.40 Pianó ónleikar í útvarpssal: Halldór Har- ildsson leikur sónötu í g-moll, op. !2, eftir Schumann. 21.00 Með æsku jöri: Andrés Indriðason og Ragn- íeiður Heiðreksdóttir sjá um þátt nn. 21.40 Undir suðrænni sól: Bost m Pops hljómsveitin leikur lög af éttara taginu. 22.0(j Fréttir og veður ’regnir. 22.10 Danslög (valin af Heið iri Ástvaldssyni danskennara). 23. S0 Dagskrárlok. Mánudagur 19. október (.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisút- rarp 13.00 „Við vinnuna": Tónleik- ír. 15.00 Síðdegisútvarp. 18.30 Þing- fréttir. 19.30 Fréttir. 20.00 Um dag inn og veginn. Eiður Guðnason blaðamaður. 20.20 íslenzk tónlist: Áskell Snorrason leikur frumsam- in lög á orgel Kópavogskirkju. 20.40 Pósthólf 120: Gísli J Ástþórsson les úr bréfum frá hlustendum. 21.00 Tónleikar: „Stabat Mater“ eftir Francis Pdulenc. 21.30 Útvarpssag an: „Leiðin lá til Vesturheims" eftir Stefán Júlíusson. Höf. les. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Bún aðarþáttur: Við veturnætur. Glsli Kristjánsson ritstjóri. 22.30 Kammer tónleikar: frá tónllstarhátíðinn í Mar ais i Frakklandi. 23.20 Dagskrárlok. Þriðjudagur 20. október. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisút varp. 13.00 „Við vinnuna": Tónieikar. 15.00 Síðdegisiitvarp. 17.00 Fréttir. 18.30 Þingfréttir. 18.45 Tilkynningar 19.30 Fréttir. 20.00 Einsöngur: Pet er Pears syngur þjóðlög; Benjamin Britten leikur undir. 20.20 Spjall um leiklist í Lund- únaborg. Agnar Þórðarson rithöf- undur. 20.40 Tón- leikar: Diverti- mento i. F-dúr, K253 eftir Mozart. Blásarasveit Lundúna leikur; Jack Brymer stj. 21.00 Þriðjudags- leikrtið „Ambrose í París1 eftir Philip Levene: III. þátt Agnar ur: Eigandinn. Þýðandi: Ámi Gunn arsson. — Leikstj.: Klemens Jóns- son. Leikendur: Rúrik Haraldsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Róbert Am- finnsson, Guðbjörg Þorbjarnardótt- ir, Haraldur Björnsson, Erlingur Gíslason, Briet Héðinsdóttir, Jón Aðils, Valur Gislason. 21.45 Tónleik ar: Konsert nr. 1 í G-dúr eftir Perg olesi 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöidsagan: Pabbi, mamma og við" eftir Johan Borgen, VII, sögu lok Margrét R. Bjarnason þýðir og les. 22.30 Létt músik á siðkvöldi: 23.15 Dagskrárlok. Miðvlkudagur 21. október 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisút varp 13.00 „Við vinnuna':: Tónleikar. 15.00 Síðdegisútvarp. 18.30 Þing- fréttir. 18.45 Tilkynningar. 19.20 Veð i urfregnir. 19.30 Fréttir 20.00 Erindi: 1 Ferð undir Eyjafjöii. Jónas St. Lúð- I víksson. 20.25 Johnny Matias syngur i rómantísk lög. 20.45 Sumarvaka. a) Svipast um á eyðislóðum: Hesteyri Birgir Aibertsson kennari. b) fs lenzk tónlist: ,Söngur frá sumri" Guðrún Tómasdóttir syngur; Ólaf ur Vignir Albertsson leikur undir, c) Fimm kvæði, ljóðaþáttur valinn af Helga Sæmundssyni. Andrés Björnsson les. 21.45 Frímerkjaþátt ur. Sigurður Þorsteinsson flytur. 22. 00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Þýtt og endursagt.: ,Matarlyst“ eftir Wiihelm Stekel. Ragnar Jóhannes- son cand. mag. flytur. 22.30 Lög unga fólksins. Bergur Guðnason kj'nnir. 23.20 Dagskrárlok. Fimmtudagur 22. október. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisút- varp. 13.00 „Á frívaktinni", sjómanna þáttur. (Sigriður Hagalín). 15.00 Síð degisútvarp. 18.30 Þingfréttir 19.30 Fréttir. 20.00 Raddir skálda: Úr verkum Jakobs Thorarensens. Les- arar: Þorsteinn Ö. Stephensen og Ævar R. Kvaran. Ingólfur Kristjáns son annast þáttinn. 20.55 Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í Há- skólabíói; fyrri hluti. Stjórnandi: Páll Pampichler Páisson. Einleikari á sello: Anja Thauer. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22 10 Kvöldsagan: „Huldukonur Frakklands" og „Speg illinn* eftir Alphonse Daudet. Mál- friður Einarsdóttir þýðir. 22.25 Djass þáttur. Jón Múli Árnason. 23.00 Dag skrárlok. Föstudagur 23. október. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisút varp 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 ,Við vinnuna': Tónleikar. 15. 00 Síðdegisútvarp. 17. Fréttir. 18.30 Þingfr. 19.30 Fréttir. 20.00 „Hver á barrtið?" Erindi á vegum Barnavernd arfélags Reykja víkur. Valborg Bentsdóttir skrif- stofustjóri flytur. 20.20 Tónleikar: Herbert Downes leikur á víólu. 20. 40 Erindi um tóbaksnotkun. Stefán GUðnason læknir. 21.05 Einsöngur: Joel Berglund syngur lög eftir Wilhelm Stenhammar o. fl og óperíuaríur. 21.30 Útvarpssag an: Leiðin lá til Vesturheims" eftir Stefán Júlíusson. Höfundur les. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Erindi: „Guð í alheimsgeimi". Pét- ur Sigurðsson ritstjóri. 22.30 Tón- leikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói kvöldið áður, siðari SJÖ HÉRUÐ Framhald af 1. síðu. taka að sér störf úti á landsbyggð- inni stuttan tíma að loknu al- mennu námi, en sú skylda er ekki vel séð, að sögn landlæknis, enda eina ,,þegnskylduvinnan“ sem lögð er á háskólaborgara hérlendis. Er við spurðum landlækni um, hvort von væri á nokkrum úrbót- um, kvað hann nefnd þá, er ráð- herra hefði skipað á síðastliðnu sumri eftir ábendingu sinni til að gera tillögur til úrbóta í þessum málum, vera að ljúka störfum og yrðu tillögur heunar senn sendar ráðherra. BÁTUR SEKKUR Framnalo al 1 síðu Eftir þetta biðum við nokkra stund, en klukkutíma eftir að elds ins varð vart, eða í mesta lagi tæpum hálfum öðrum tíma, sökk Jötunn og Kári kom með okkur til Eyja klukkan hálf sjö í morg- un. — Hvað heldurðu að hafi kom- ið fyrir? — Ég hef ekki hugmynd um það, en Sigurður skipstjóri segir að það hafi orðið sprenging niðri í vélarrúmi og lúgan upp í stýris- húsið henzt upp og eldurinn gosið upp um leið. — Voruð þið ekkert hræddir við aðra sprengingu? — Því er ekki að neita, að við hugleiddum hættu á henni og vor um við því búnir að þurfa að yfir gefa skipið fyrirvaraiaust. Vélbáturinn Jötunn var 41 tonn, smiðaður úr eik í Vest- mannaeyjum árið 1947, en endur byggður fyrir nokkrum árum. IWK Valborg NAUMUR MEIRIHLUTI Framhalö af 1. síðu greiddu skipzt þannig milli flokka: Verkamannaflokkurinn 12.197. 456 (44.1%, höfðu 43,8), íhalds- flokkurinn 11.989.130 (43,4%, höfðu 49,4%), Frjálslyndir 3.086. 609 (11,2%, höfðu 5,9%), aðrir flokkar 348.914 (1,3%, höfðu 0,9%). hluti. Stjórnandi Páll Pampichler Pálsson. 23.10 Dagskrárlok. Laugardagur 24. október. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisút varp. 13.00 Óskalög sjúklinga (Kristín Anna Þórarinsdóttir) 14.00 Útvarp frá Háskólabíói: Háskólahátíðin 1964. a) Tónlist. b) Ræða. Prófés*or Ármann Snævarr, háskóla- rektor. 15.30 í vikulokin 17,00 Fréttir — Þétta vjl ég heyra: Jó- hannes Ólafsson skrifstofustj. 18. 00 Útvarpssaga barnanna: „Þórp- Háskólarektor ið sem svar, eftir M. P. de Ladebat. Unnur Eiríksdótt ir þýðir og les. 18.30 Söngvar í létt um tón. 19.30 Tréttir. 20.00 Vetrar- vaka: a) Hugleiðing við misseraskipt j in. Séra Sigurður Haukur Guðjóns | son. b) Einsöngur: Sigurður Björns | soh syngur íslenzk lög Vlð undirleik : Guðrúnar Kristinsdóttur. c) Viðtöl j Stefán Jónsson og Tryggvi Gíslason fréttamenn. d) Lagasyrpa eftir Bjarna Þorsteinsson. útsett af Jóni Þórarinssynl. e) Ný hljómplata: 1) Davíð Stefánsson skáld frá Fagra- skógi flytur eigin ljóð: „Hallfreður vandræðaskáld" og „Eg sigli í haust‘. 2) Halidór Kiljan Laxness nóbelsverðlaunaskáld les 27. kafla Brekkukotsannáls. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Dansskemmtun útvarpsins í vetrarbyrjun: Þar á með al leikur hljómsveit Guðjóns Pálsson ar. 02.ÖÓ Dagskrárlok. (Klukkan færð til ísl. meðaltíma, seinkað utn 1 stund).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.