Tíminn - 06.11.1964, Qupperneq 2
2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 5. nóvember 1964
FIMMTUDGUR 5. nóvember.
MTB-New York. Fyrrum vara-
forseti, Richard Nixon, gagn-
rýndi í dag ríkisstjóra New
Ycrk-borgar, Nelson Rocke-
feller, harðlega fyrir að hafa
átt mestan þátt i klofningu
reptblikanaflokksins í kosn-
ingabaráttunni. Rockefeller
hefði skorizt úr leik, þegar
hann tapaði fyrir Goldwater,
og gnti því flokkuri'nn ekki
viðurkcnnt hann sem leiðtoga.
NTB-Washington. Gert er ráð
fyrir, að Johnson forseti, sem |
hvílir sig á búgrrði sínum í
Texas, muni í náinni framtíð
leggja mesta áherzlu á utan-
ríkispólitíkina. Tilkynnt hefur
verið í Washington, að vara-
utanrikisráðherrann, George
Ball, muni fara í tvær heim-
sóknir til Evrópu á næstu fjór-
um vikum. Einnig er ráðgert
að send'a varaforsetann Hubert
Humphrey í nokkurs konar
hringferð um höfuðborgir V.-
Evróipu.
NTB-Cape Kennedy, Banda-
ríkjamenn skutu í dag á loft
geimfari, sem á að fara einum
tvisvar sinnum fram hjá stjörn-
unni Mars og taka myndir, sem
jafnóðum verða sendar til jarð-
ar. Helzti tilgangur geimfars
ins er, að athuga þrýsting lofts-
ins í kringum stjörnuna, með
fyrirhugaða lendingu í huga.
NTB-Saigon. Formaður hins
svokallaða þjóðráðs í S.-Viet-
nam, Nguyen Quan Chu, hefur
sagt af sér í mótmælaskyni við
hina nýskipuðu ríkisstjórn
landsins. Hefur afsögn Chu
vakið mikinn glundroða í höf-
uðborginni og mikla athygli
um allt landið.
NTB-Eondon. Brezki viðskipta- fl
málaráðherrann, Douglas Jay, §
hefur boðið viðskiptamálaráð-
herra Kína og ýmsum kínversk
um verzlunarmálafulltrúum til
London á næstunni. Jay skýrði
frá þessu, er hann kom heim,
eftir að hafa opnað brezka iðn-
sýningu í Peking.
NTB-Tokio. Vopnaður lögreglu-
vörður suindraði í dag setu-
verkfalli rúmlega þúsund stú-
denta, en þeir vildu mótmæla
því, að amerískir kjarnorku-
kafbátar fengju að heimsækja
japanskar hafnarborgir. Einn
Iögreglumaður særðist og sex
stúdentar voru teknir til fanga.
NTB-Bomi. V.-þýzka geimrann-
sóknastöðin í Bochum, til-
kynnti í dag, að henni hefðu
borizt merki, sem líklega væru
frá nýju sovézku geimfari.
NTB-Stokkhólmur. Undirbún-
ingur er nú hafinin að samstarfi
tveggja mið-stjórnmálaflokk
anna í Svíþjóð, þjóðflokksins
og miðflokksins. Nu á næstunni
munu formenn flokkanna ræð-
ast við. Hægri flokknum er
boðið að vera með í samstarf-
inu með þeim skilyrðum að
hann snúi baki við nokkrum
atriðum S stefnuskrá sinni.
FRAMKVÆMDIR HEFJ-
AST VIÐ IÐNGARÐA HF.
MB-Reykjavík, 5. nóv.
í dag hófust framkvæmdir við
Iðngarða h. f. í Reykjavík, en
það er fjöliðjuver, sem ýmsir iðn
rekendur ætla að koma upp í sam
einingu. Er fyrirhugað fyrirkomu
lag þarna að ýmsu leyti nýstár-
legt fyrir okkur, meðal annars er
gert ráð fyrir því, að þar verði
veitt ýmis þjónusta því fólki, er
þarna vinnur, svo sem læknisþjón
usta og barnagæzla.
Blaðið innti Svein Valfells for
stjóra, sem er formaður stjórnar
HANDRITIN
Framhald af 1. síðu.
ætti það að framkvæmast á einum
stað.
Forystugrein blaðsins segir, að
til séu tveir leynilegir listar, ann-
ar gerður af íslendingum, en hinn
af dönskum vísindamönnum, en
ekki þó af sérfræðingum á þessu
sviði.
Jafnframt skrifar blaðið: —
Þegar frucnvarpið var í nefnd í
Þjóðþinginu 1961, bað kennslu-
málaráðuneytið — eftir ósk frá
Árna Magnúsonar-stofnuninni, —
um skoðun forystumannanna þar
í sambandi við ljósmyndun og
viðgerð þeirra handrita, sem af-
henda skyldi, en yfirmaður stofn
unarinnar, prófessor Jón Helga-
son, svaraði því til, að hann gæti
ekkert um þetta sagt, vegna þess
m.a. að hann hefði ekki fengið
nritt yfirlit yfir, hvaða handrit
ríkisstjórnin legði til að afhent
yrðu til íslands. Og að lokum seg
ir blaðið: — Allt útlit er fyrir, að
yfirvöldin hafi að yfirlögðu ráði
reynt að koma í veg fyrir að þeir
menn, sem skipaðir hafa verið til
þess að varðveita þennan sagn-
fræðilega fjársjóð, fengju
vitneskju um áætianir ríkisstjórn
arinnar í sambandi .við afhending
una.
Poul Nilsson, þingmaður jafn-
aðarnianna, var i gær kjörinn for
maður nefndarinnr, sem fær það
erfiða viðfangsefni að meðhöndla
frumvarp dönsku stjórnarinnar
um afhendingu íslenzku handrit
anna. Nilsson greiddi atkvæði með
afhendingunni 1961.
Nilsson fullvissaði nefndarmenn
í gær um, að þeir fengju nægan
tíma til þess að fara vandlega
í gegnum frumvarpið og fá svar
við öllum þeim spurningum, sem
fram kynnu að koma. Búizt er við
að fyrstu fyrirspurnir nefndar-
manna verði lagðar fram þegar í
þessari viku, og þeim beint til
K. B. Andersen, kennslumálaráð-
herra. Þegar svör hans liggja fyr-
ir, mun nefndin halda sinn fyrsta
raunverulega starfsfund.
Nefndarmennirnir hafa þegar
fengið nefndarálitið frá 1961 til
þess að kynna sér málið nánar.
og einnig munu þeir leggja spurn
ingar fyrir sérstaka fulltrúa frá
bókasafni Árna Magnússonar og
liklega fara í heimsókn þangað,
að því er Aktuelt segir í dag.
Varaformaður nefndarinnar er
Ib Thyregod, en hann er andstæð
ingur afhendingarinnar.
KJARNORKUSPRENGJA
Framhald af 1. síðu.
Prófessor Martin gegnir um
þessar mundir kennsluskyldum
sínum eins og ekkert hafi í skor-
izt, og blaðamaður Tímans er ekki
kunnugt um, að neinar sérstakar
varúðarráðstafanir hafi verið gerð
ar í sambandi við hann.
Ef heimildirnar eru réttar, mun
þessi uppgötvun verða til þess áð
styrkja mjög stöðu Vestur-Þýzka
lands, bæði gagnvart Vesturveld-
unum og Sovétríkjunum.
Iðngarða, eftir þessum málum í
dag. Hann kvað 30 aðila upphaf
lega hafa ætlað að reisa þarna
bækistöðvar en margir þeirra
væru þegar byrjaðir að byggja og
hefðu því hætt þátttöku.
Iðnaðarhús þau, sem reist verða
í fyrsta áfanga, eru yfirleitt einn
ar hæðar, en það er talið miklu
hagkvæmara en margra hæða hús.
Verða í þessum áfanga reist 5
hús fyrir 16 fyrirtæki. Húsín eru
stöðluð og verða byggð í röð,
þannig að þegar búið er að grafa
grunn fyrsta hússins verður byrj
að á að grafa grunn þess næsta,
meðan byggingarframkvæmdir
hefjast við hið fyrsta, og þannig
koll af kolli.
Þegar þessum fyrsta áfanga er
lokið, er fyrirhugað að byrja á
þeim næsta. í skipulagí svæðisins
er meðal annars gert ráð fyrir
að þar verði verzlanir, svo starfs
fólk fyrirtækjanna geti keypt
nauðsynjavörur á staðnum, lækna
varðstofa, svo læknir sé ávallt til
taks ef óhöpp ber að höndum og
barnaheimili sem mæður þær er
vinna hjá fyrirtækjunum geti
komið börnum sínum í gæzlu á.
Framhald á 15. siðu.
CHOU EN-LAI
ER KOMINN
TIL MOSKVU
NTB-Moskva, 5. nóv.
Kínverski forsætisráðherr-
ann, Chou En-Lai, kom í dag
til Moskvu, sem formaður sjö
manna sendinefndar frá ríkis
stjórn og kommúnistaflokki
Kína. Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, t^k á móti
þeim á flugvellinum, en þetta
er í fyrsta skipti, sem Chou
En-Lai hittir hinn nýja yfir
mann Sovétríkjanna. Yfirmenn
þessara tveggja landa hafa ann
ars ekki ræðzt við síðan í
júli í fyrra. Opinber tilgangur
þessarar heimsóknar er hátíða
höldin í Moskvu 7. nóv. n.
k., en ljóst er að aðaltilgangur
heimsóknarinnar er viðræðu-
fundur Chou En-Lai við hina
nýju valdhafa. Kínverska sendi
nefndin mun halda heim í
miðri næstu viku og má þá bú
ast við opinberri greinargerð.
Forráðamenn allra helztu
kommúnistaflokkanna munu
verða viðstaddir hátíðahöldin,
nema frá Albaníu, sem ekki
er boðið að vera með.
Starfsfræðsludagur í 4
kauptúnum sunnanlands
MB-Reykjavík, 5. nóv.
Á sunnudaginn verður starfs-
fræðsludagur í fjórum kauptún-
um sunnanlands, Eyrarbakka,
Hveragerði, Selfossi eg Stokks-
eyri, og standa að hcnum allir
skólastjórar framhaldsskóla á
Suðurlandi. Framkvæmdastjóri
verður að venju Ólafur Gunnars-
son sálfræðingur.
Starfsfræðsludagur þessi verð;
ur á ýmsan hátt nýstárlegur. í
fyrsta lagi vegna þess, að starfs-
fræðslan fer fram á fjórum stöð-
um samtímis og í öðru lagi vegna
þess að fjöldi fræðslusýninga verð
ur meíri en nokkru sinni fyrr ut
an Reykjavikur bg ýmislegt, sem
aldrei hefur verið kynnt áður. Má
þar nefna fræðslu um jarðhitann,
iðnað SÍS, Veiðimálastofnunina o.
Á Eyrarbakka verða einkum
fræðslusýningar viðvíkjandi Sjáv
arútveginum, á Selfossi verður
fræðslusýning verzlunar- og við
skipta og í Hveragerði fræðslusýn
ing landbúnaðarins og Samvinnu-
skólans.
Alls verða veittar upplýsingar
um 160 starfsgreinar, skóla og
stofnanir. Meðal nýrra starfs-
greina, sem kynntar verða, má
nefna sjónvarpstækni og kvik-
myndagerð. Starfsfræðslan hefst
með athöfn í Selfosbíói klukkan
13, en leiðbeiningar hefjast klukk
an 14 og standa til klukkan 18.
Fjöldi fagmanna af Suðurlandi
leiðbeinir og auk þeirra 60 fag
menn úr Reykjavík.
Þótt þessi starfsfræðsla sé að
allega ætluð unglingum af Suð-
urlandi er unglingum úr Reykja
vík einnig velkomið að sækja
hana.
Dómar í Sakadómi
Kveðinn hefur verið upp í
sakadómi Reykjavíkur af Þórði
Björnssyni yfirsakadómara, dómur
í máli því er reis upp vegna þess
Vígslusýning á
Litla sviðinu'
//
BÓ-Reykjavík, 5. nóv.
f gærkvöldi fór fram vígslu-
sýning á „Litla sviðinu", í
salnum sem Þjóðleikhúsið hef
ur tekið á leigu hjá Dagsbrún
og Sjómannafélagi Reykjavík-
ur, Lindargötu 9.
Var sýndur einþáttungurinn
Kröfuhafar eftir August Strind
berg, er Þjóðleikhúsið frum-
sýndi á Listahátíðinni í vor.
Leikendur eru þrír, Helga Val
týsdóttir, Rúrik Haraldsson og
Gunnar Eyjólfsson. Leikstjóri
Lárus Pálsson. Loftur Guð-
mundsson þýddi Kröfuhafa,
leiktjöld eru verk Gunnars
Bjarnasonar.
Guðlaugur Rósinkranz þjóð-
leikhússtjóri ávarpaði gesti áð-
ur en sýningin hófst, fagnaði
tilkomu „Litla sviðsins" og
þakkaði húseigendum sam-
vinnu um fyrirkomulag þar.
Þvínæst talaði Vilhjálmur Þ.
Gíslason formaður þjóðleikhús
ráðs um leikhúsíð og listina.
Meðal sýningargesta voru
ráðherrarnir Gylfi Þ. Gíslason,
Emil Jónsson og Guðmundur í.
Guðmundsson, margir leikarar
og makar þeirra.
að verkamaður hafði afhent for-
stjóra fyrirtækis 24 bifreiðir úr
vörugeymslum Eimskips án þess
að greidd hefðu verið af bifreið
unum tollar og aðflutningsgjöld
flutníngsgjöld og hluti af kaup-
verði þeirra samtals að fjárhæð
kr. 2.776.872.70. Verkamaðurinn
fékk eina brennivínsflösku fyrir
hverja afhenta bifreið á heimildar
skjala. Forstjórinn var dæmdur í
12 mánaða fangelsi og verkamað
urinn í 7 mán. fangelsi. Þá var
forstjórinn og sviptur leyfi ævi--
langt tíl að reka smásölu. Hinir
ákærðu hafa áfrýjað málinu til
Hæstaréttar.
Miðvikudaginn 21. okt. kvað
Gunnlaugur Briem, sakadómari,
upp dóm í máli manns eins, sem
uppvís hafði orðið að 41 þjófnaði
í húsum víðsvegar hér í borginni,
sem framdir voru í fyrra og á
þessu ári. Eins og áður hefur ver
ið skýrt frá í blöðum, hafði mað-
urinn farið inn í íbúðir, sem voru
ólæstar og stolið þar mest megn-
is kventöskum og kvenveskjum.
Tók hann eingöngu peninga úr
þeim, en skildi þau síðan eftir á
afviknum stöðum. Fundust þau
oftast og komust í hendur eig
enda.
Fyrir þjófnaði þessa var mað
urinn, sem áður hafði hlotið dóm
fyrir þjófnaði, dæmdur í 1 árs
fangelsi, til að greiða 85.381.00
kr. skaðabætur til 40 aðila og til
greiðslu alls sakarkostnaðar.
Við rannsókn málsins upplýst-
ist, að maðurinn átti skuldabréf,
að fjárhæð kr. 127.586.67, sem
honum hafði tæmzt sem arfur. Er
bréfið í vörzlu lögmanns hér í
borginní og samþykkti maðurinn,
að það skyldi ganga til greiðslu
á skaðabótunum.
öfn á neyðartal-
stöðvum rugluðust
í frásögn í blaðinu í gær um
tilraunir með neyðartalstöðvar
rugluðust nöfn á tveimur tegund
um talstöðvanna, Linkline og
Lifeline. Stöðvarnar, sem í tíl-
raunununum voru nefndar Alda
og Fjóla og í greinni voru taldar
handhægastar í notkun, voru af
gerðinni Linkline, en Bára og
Edda af gerðinni Lifeline og það
var því Lifline stöð, sem sendi
út hljóðmerki er heyrðust í Hol
ladni og Noregi. Eru hlutaðeig-
endur beðnir.afsökunar á þessum
mistökum.
!