Tíminn - 08.11.1964, Qupperneq 2
\
TÍMINN
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Yeturinn vaxtartími
Sumarið er liðið. Veturinn
genginn í garð. Og einu sinni
áttu þessi orð annan og misk-
unnlausari hljóm í hugum og
vitund okkar íslendinga.
Einu sinni virtist íslenzki
veturinn búa yfir öllum þeim
ógnum heljar, sem gætu birt
þar.n sannleika, að Guð hefði
gjört upp skuldina stóru eða
ætlaði að minnsta kosti að kref j
ast alls til hins síðasta eyrís
og hinzta blóðdropa af þessum
fáu og fákænu manneskjum
úti á hjara veraldar við hið
yzta hrf.
En hún er þetta öðruvísi,
hugsum við. Brosandi ljós
borgarirnar, sem speglast i
nýju malbiki gatnanna og
strætanna, sem hafa bæzt við
í sumar birta þann boðskap,
að Ijósið vann og sigraði myrk
ur skammdegisins á íslandi,
jafnvel asfaltið biksvart og ei-
tilhart grjótið neyðist til að
brosa við okkur í sjálfu haust
myrkrinu. Og innan dyra i hús
unum rennur brennheitt vatn
úr æðum sjálfrar fósturjarðar
og byggir frostinu út, svo að
jafnvel glugginn eignast eng-
ar frostrósir.
Þannig er íslenzki vetur-
inn orðinn í vitund ungrar
þjóðar á framaleið, ríks fólks,
sem á alls kostar við óræð öfl
þeirra höfuðskepna vatns og
lofts, sem áður ógnuðu og,
skelfdu í alveldi sinu.
Raunar þarf ekki að fara,
langt út úr borginni til þess
að allt breyti um svip í for-
sæludal undir skuggabjörgum
eða Helgrindum íslenzkra
fjalla, að ekki sé minnzt á
hafdjúpin og alla breka brims
við strönd.
En er þetta nokkuð annað
en blekking tæknínnar?
Ef rafstrengur brestur, ef
vatnsæð springur er myrkrið
og kuldinn aftur innan dyra
í fínustu íbúð rikasta fólksins,
jafnt sem bragganum eða kot-
inu.
Og svo er annar vetur til
með enn meiri ógnum, en
nokkur norðanstórhríð átti,
sem fól allt í átökum hel-
dimmrar hávetrar nætur með
ýlfri við ljóra og helgusti um
þekju og dyr. Það er veturinn,
se mleitar inn, þegar hjartað
frýs.
Og sannarlega virðist stund
um hrollvænlegur sannleikl í
orðum þeirra og hugsun, sem
segja með orðum Lúthers í
einum kærasta söng rétttrún-
aðarins:
„Nú geyst því gramur er
hinn gamli óvin fer.
Hans vald er vonzkugnægð
hans vopn er grimmd og
slægð“.
Og aftur: „Þótt djöflum fyll
ist veröld við.“
Allt mannkyn óttast þann
vetur, ef vel er að gáð. Og það
hriktir hvað eftir annað í
þekju heimsins af forboða
fellíbylsins,, eða istórhríðarinn-
ar og nú í fyrsta sinni aust-
ap.úr álfp friðarins austan frá
Kína, sem búið er að ganga á
námskeið til hinna svo kölluðu
kristnu þjóða. Sárbeizkara sögu
legt háð hefur aldrei verið
skráð á minnisspjöld mann-
kynsins. Öllum hafís verri er
hjartans ís.
Og þegar slíkur vetur hefst
og geisar, getum við efast um,
að Guð stjórni heiminum. Það
gæti svo sannarlega verið hinn
vondi fremur, finnst okkur
börnum tveggja heimsstyrj-
alda. En samt — hefur ekki
vorið sífellt sigrað, og jörðin
risið iðjagræn úr djúpi skamm
degismyrkursins eftir hvern
vetur? Hafa ekki jafnvel styrj-
aldir þokað mannkyninu
áfram til þroska og fullkomn-
unar? Er ekki líkt og þjáning
og skelfing eigi líka einhvern
tilgang úr höndum þess afls,
sem alheimi stýrir, þess hug-
ar, sem telur himintungla-
mergð og tárin sínna barna?
Hefur ekki íslenzki veturinn
með allri sinni skefjalausu
grimmd, öllum sínum hríðum
og myrkri verið einn helzti
vaxtartími og þroskaskeið
þessi innsta og dýpsta í nor-
rænni menningu? Eru t.d.
ekki islenzku handritin, sem
nú eru sú „Lilja“, sem allir
vildu kveðið hafa skilgetið af-
kvæmi þeirra krafta, sem
vöktu við hjartaslög myrkurs-
ins, þegar hugsuðir, spekingar
og ritarar íslands vöktu undir
kolunni eða glóru grútartýr-
unnar í fjósi eða baðstofu með
fjaðrapenna í hönd.
• i ,
„Eg læt sem ég sofi.
en samt mun ég vaka“.
Er rórill, sem á víðar við en
hjá vöggustokki barnsins. Það
virtist allt svæft og sofið, en
það vap vakað undir stjörnu-
himni Guðs i ógleymi þess
máttar, „sem breytir dimmri
nótt í dag og dauðans ópi snýr
í vonarlag.“
í þessari björtu ljóstrú ís-
lendingsins, trúnni á vorið og
vöxtinn í blundandi lífsfræj-
um undir mjallhjúpi vetrar,
trúnni á sigrandi mátt lífsins
bak við allar skelfingar kjarn-
orkualdar skulum við horfa
vonglöðum augum til vetrar-
komunnar og þakka hvern
geisla frá guðdómseldi híns
liðna sumars.,
Hvort varð ekki sigur Krists
stærstur í kvölum á krossi? Er
ekki veturinn okkur þannig
böl, sem bætir og styrkir.
Og þótt ljós og ylur frá
tækniþróun mannlegrar snilli
og hugvits gefi tök til
varnar, þá verða skuggar cg
frost mannlegrar tilveru ekkí
umflúið í einhverri mynd. En
með einlægu trausti á sigur-
mátt sumargeisla frá náðaraug
um alföður verður hvert böl
bætt.
„Tæmt er húmsins haf
allt er ljós og líf“,
söng sjúkur maður í fjötr-
um skammdegisnætur, þegar
hann sá anda jólaenglana svífa
á ^stjörnugliti til jarðar, og
heyrði kirkjuklukkur óma frá
óravíddum algeimsins.
Þannig verður nú veturinn
velkominn. Og enginn veit nú,
hvernig menn hugsa ódauðleg-
ar hugsanir eða heyra eilífa
hljómfegurð á þessum vetri,
fremur en þeir urðu taldir
eða metnir, sem skiluðu and-
legum fjársjóðum út úr ríki
Framhald á 15. síðu.
MÁNUDAGUR 9. nóvember:
7,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisút-
varp. 13,15 ' Búnaðarþáttur: Gísli
Kristjánsson ræðir við Sæmund Stef
ánsson heildsala og Svein Einars-
son veiðistjóra um æðarfugl og
svartbak. 13,30 „Við vinnuna“- Tónl.
14,40 „Við, sem heima sitjum'. Fram
haldssagan „Kathrine1 eftir Anya
Seton; VH. Sigurlaug Árnadóttir þýð
ir og les. 15,00 Síðdegisútvarp: Frétt
ir, tilk. og tónleikar. 17,00 Fréttir.
17,05 Sígild tónlist
íyrir ungt fólk. —
18,00 Frarohalds-
saga barnanna: —
„Bernskuár af-
daladrengs‘“ eftir
Jón Kr. ísfeld —
(Höf. les). III —
18,30 Þingfréttir.
SIGURÐUR Tónleikar. 19,30
Fréttir. 20,20 Um daginn og veginn.
Sigurður Jónasson forstjórl. 20,20
„Svífur að hausti“, gömlu lögin sung
in og leikin. 20,45 „Tveggja manna
tal': Matthías Jóhannessen ritstjóri
ræðir við Ásmund Sveinsson mynd
höggvara. 21,30 Útvarpssagan: „Leið
in lá til Vesturhelms*1, eftir Stefán
Júlíusson; 22. lestur (Höfundur les).
22,00 Fréttir og vfr. 22,10 Hljóm
plötusafnlð. Gunnar Guðmundsson.
23,00 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR 10. nóvember:
7,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisút
varp. 13,00 „Við vinnuna**: Tónleik-
ar. 14,40 „Við, sem heima sitjum* Vig
dls Jónsdóttir, skólastj. talar aftur
um fæði skólabarna. 15,00 S/ðdegis-
útvarp. 17,00 Fréttir. — Endurtekið
tónlistarefni. 18,00 Tónlistartími
barnanna. Jón G. Þórarinsson. 18,30
Þingfróttir, — Tónioikar. 19,30 Frétt
ir. 20,00 Odetta sngur þjóðlóg. 21,15
Þriðjudagsleikritið: „Ambrose í Par-
ís* eftir Philip Levene; VI. Myndá-
stofa Madaleine. Þýðandi: Árni Gunn
arsson. — Leikstjóri: Klemens Jóns-
son. 21,00 íslenzkt mál. Jón Aðalst.
Jómsson cand. mag. 21,15 Erindi:
Norsk tónllst (Halfdan Kjerulf); III.
Baldur Andrésson cand. theol flytur.
21,45 Norræn svita eftir Hallgrím
Helgason. Strengjaflokkur úr Sin-
fóníuhljómsveit íslands leikur; höf-
undur stj. 22,00 Fréttir og vír 22,10
Kvöldsagan: Úr endurminningum
Friðriks Guðmundssonar; V. Gils
Guðmundsson les. 22,30 Lög unga
fólksins. Ragnheiður Heiðreksdóttir
kynnir lögin. 23,30 Dagskrárlok
MIÐVIKUDAGUR 11. nóvember:
7,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisút-
varp. 13,00 ,,Við vinnuna**: Tónl. —
14.40 „Við, sem helma sitjumk Fram
haldssagan „Kathrine** eftir Anya
Seton: VIII, Sigurlaug Árnadóttir
þýðir og les. 15,00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla í dönsku
og ensku. 18,00 Útvarpssaga barn-
anna: „Þorpið, sem svaf“. Unnur Ei-
ríksdóttir þýðir og les. VI. 18,30
Þingfréttir. — Tónleikar. 19.30 Frétt-
ir. 20,00 Upplestur: Konur á Sturl
ungaöld. IU. Helgi Hjörvar 20,15
Kvöldvaka: a) Hvers vegna orti Eg
ill Höfuðlausn? Pétur Benediktsson
bankastjóri. b) Úr verkum Steins
Steinarr. Flytjendur: Andrés Bjöms
son og Egill Jóns-
son. Ennfremur
lög eftir Jórunni
Viðar við Ijóð eft-
ir Stein Steinarr.
21,30 Á svörtu nót
unum: Hljómsveit
Svavars Gests, Elly
Vilhjálms og
Ragnar Bjarnason
skemmta. 22,00 Fréttir og vfr. —
22,10 Létt músík á síðkvöldi. Útdrátt-
ur úr söngleiknum „Oklahoma“ —
Magnús Bjarnfreðsson kynnlr. —
23,00 Bridgeþáttur. Stefán Guðjohn-
sen. — 23,35 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR 12. nóvember:
7,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegis-
útvarp. 13,00 „Á frívaktlnni*1, sjó-
mannaþáttur (Sigriður Hagalín). —
14,40 „Við, sem heima sitjum“: —
Margrét Bjarnason talar um söng- ,
konuna Elisabeth Schwarzkopf 15,00 I
Síðdegisútvarp. 17,40 Framburðark.
1 frönsku og þýzku. 18,00 Fyrir
yngstu hlustendurna. Sigriður Gunn
laugsdóttir og Margrét Gunnarsdótt
ir sjá um þáttinn. 18,30 Þingfréttir.
— Tónleikar. 19,30 Fréttir. 20,00
Tónleikar í útvarpssal: Egill Jóns-
son leikur á klarinettu og Máni Sig-
urjónsson á píanó. 20,20 Erindi: —
Æskan og menntun. Geðræ>it jafn-
vægi nemenda. Kristinn Bjömsson
sálfræðingur flytur. 20,45 Upplestur:
„Sáning*1 smásaga eftir Jón Dan. —
Steindór Hjörleifsson flytur. 21,00
Með æskufjöri: Andrés Inöriðason
og Ragnheiður Heiðreksdóttii sjá
um þáttinn. 22,00 Fréttir og vfr. —
22,10 Kvöldsagan: Úr endurminning-
um Friðriks Guðmundssonar; VI. —
Gils Guðmundsson les. 22,30 Har-
monikuþáttur. Ásgeir Sverrisson
kynnir lögin. 23,00 Skákþáttur, Guð
mundur Arnlaugsson. 23,35 Dagskrár
lok.
FÖSTUDAGUR 13. október:
7,00 Morgunútvarp, 12,00 Hádegisút-
varp. 13,15 Lesin dagskrá næstu
viku. 13,25 „Við vinnuna*1: Tónleik-
ar. 14,40 „Við, sem heima sitjum*:
Framhaldssagan „Kathrine' eftir
Anya Seton; 9. lestur. Sigurlaug
Árnadóttir þýðir og les. 15,00 Siðdeg
isútvarp. 17,00 Fréttir. — Endurtekið
tónlistarefni. 17,40 Framburðark. í
esperanto og spænsku. 18,00 Sögur
frá ýmsum löndum: Þáttur í umsjá
Alan Boucher. Sagan um Midas kon-
ung og guðina á Olympsfjalli. —
Tryggvi Gíslason þýðir og les. 18,30
Þingfréttir. — Tónleikar. 19,30 Frétt
ir. 20,00 Efst á baugi. Björgvin Guð
mundsson og Tómas Karlsson. 20,30
Frímerkjaþáttur. Sigurður Þorsteins
son. 20,45 Raddir lækna. Páll Sig-
urðsson talar um sjúkratryggingar.
I 21,05 Liljukórinn syngur islenzk þjóð
lög í útsetningu Sigfúsar Einarsson-
ar. Jón Ásgeirsson stj. 21,30 Útvarps
sagan: „Leiðin lá til Vesturheims"
cftir Stefán Júlíusson. 23. lestur. —
Höfundur les. 22,00 Fréttir og vfr.
22,10 Erindi um tóbaksnotkun; síð-
ari hluti. Stefán Guðnason læknir.
•22,30 Næturhljómlejkar. 23,40 Dag
skrárlok.
LAUGARDAGUR 14. rdvember:
7,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisút-
varp. 13,00 Óskalög sjúklinga (Krist-
in Anna Þórarinsdóttir). 14,30 í
vikulokin (Jónas Jónasson) 16,00
Skammdegistónar: Andrés Indriða
son kynnir fjörug lög. 16,30 Dans
kennsla. Heiðar Ástvaldsson. 17,00
Fréttir. 17,05 Þetta vil ég heyra: —
Guðsteinn Sigurgeirsson húsgagna
bólstrari velur sér hljómplótur. —
18,00 Útvarpssaga barnanna: „Þorp
ið, sem svaf'. Unnur Eiriksdóttjr
'MAGNÚS
SUNNUDAGUR 8. nóvember 1964
ÞYRLA FYRIR ÁRAMÓT
Framhald af 1. síðu.
á skipi gætu þær lent, þott velta
væri 7 til 10 gróður. Flughraðinn
er 90 sjómílur á klukkustund, eða
hálfur á við flughraða SIFar.
Gunnar Friðriksson kvað það
lengi hafa hafa verið óskadraum
þeirra slysavarnarfélagsmanna að
fá þyrlu til björgunarstarfa. Hann
kvað björgun á mönnum, hvort
heldur væri úr strönduðu skipi
eða gúmbátum á hafi úti, auð-
veldari með þyrlu en nokkru öðru
þekktu tæki, sama máli gegndi
með flutning á- björgunarmönnum
bg tækjum á strandstað. Þá kæmu
þær að góðum notum, þegar mað-
ur slasaðist eða veiktist um borð
í skipi, þegar flytja þyrfti leitar-
flokka á staði, sem venjulegar
flugvélar komast ekki á, og í
sjúkraflugi, þar sem ekki er unnt
að koma öðrum vélum við.
Eitt varðskipanna er útbúið fyr-
ir þyrlu, og sagði Pétur að auð-
velt væri að breyta fleirum í þá
átt. Gunnar lagði á það áherzlu,
að alla tíð hefði verið mjög góð
samvinna milli Slysavarnarfélags-
ins og Landhelgisgæzlunnar, og
hyggði hann gott til samstarfsins
um þyrluna.
Fyrir nokkrum árum fór fram
almenn söfnun til þyrlukaupa. Sú
upphæð, sem þá safnaðist og er í
vörzlu ráðuneytisins, nemur nú
með vöxtum 660 þúsund krónum,
pg verður þeirri upphæð varið í
þessi þyrlukaup.
pyoir og ies. vu. rreuir. —
20,00 Leikrit: „Feður og synir“ eft
ir Constance Cox, byggt á sltáld-
sögu eftir Turgenév. Þýðandi Geir
Kristjánsson. Leikstjóri: Ævar R.
Kvaran. 22,00 Fréttir og vfr. 22,10
Danslög. 24,00 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR 8. nóvember:
8,30'Létt morgunlög. 8,55 Fréttir og
útdráttur úr forystugroinum dagbl.
9,20 Morgunhugleiðing um músik: —
„Fiðlusmiðirnir í Cremona*-, III. —
Björn Ólafsson konsertmeistari flyt-
ur. 9,45 Morguntónleikar. 11,00 Messa
í Réttarholtsskóla. Prestur: Séra Ó1
afur Skúlason. 12,15 Hádegisútvarp.
13,15 Sunnudagserindi: Um hvali. I.
Þróun, bygging og hegðun. Jón Jóns
son fiskifræðingur. 14,00 Miðdegis
tónleikar: Tónleik
ar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í
Pittsburgh í Há-
skólabiói iaugard.
31. okt. s.l. — Ein
leikari: Charles
Treger. Stj.: Willi
am Steinberg —
15,30 Kaffitíminn.
VILHJ. Þ.
16,15 Á bókamarkaðinum. Vllhjálm
ur Þ. Gíslason útvarpsstjóri. 17,30
Barnatími (Skeggi Ásbjarnarson). —
18.30 „Frægir söngvarar'*. Kirsten
Flagstad syngur lög eftir Grieg —
19.30 Fréttir. 20,00 „Þetta vil ég
leika": íslenzkir tónlistarmenn j út
varpinu. Árni Arinbjarnarson leik
ur á orgel. 20,25 Erindi: Þættir að
norðan. Séra Gísli Brynjólfsson flyt
ur. 20,45 „Lítil stjarna* og fleiri lög
sungin af Luigi Alva. 21,00 ,Vel
mælt“ þáttur undir stjórn Sveins
Ásgeirssonar hagfræðings. 22,00
Fréttir og v£r. 22,10 íþróttir um
helgina. Sigurður Sigurðsson. 22,25
Danslög (valin af Heiðari Ástvalds
syni). 23,30 Dagskrárlok.